16. október 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Mál nr. 93/2026 Úrskurður 16. október 2026
Mál nr. 93/2026 Aðlögun kenninafns: Tadeusson
Hinn 16. október 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 93/2026.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 17. september 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX að kenna sig við föður sinn, Tadeusz, þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn hans verði Tadeusson.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Tadeusson.