16. október 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 97/2026 Úrskurður 16. október 2026

Mál nr. 97/2026                    Eiginnafn:     Traust

Hinn 16. október 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 97/2026 en erindið barst nefndinni 30. september 2026.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

1.      Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

2.      Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

3.      Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

4.      Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Traust tekur íslenska eignarfallsendingu, Trausts, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Traust er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.