23. október 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Markviss sókn í grunnfærni og stuðning við hvert barn

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðherra kynnir þriðju og síðustu aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Þar eru sett mælanleg markmið um betri árangur í lestri og stærðfræði, snemmtækan stuðning við nemendur og að ekkert ungmenni týnist á leiðinni úr grunnskóla í framhaldsskóla. Umsagnarfrestur er til 26. október.

Áætlunin tekur til áranna 2027–2030 og skiptist í sex áherslusvið með um 30 verkþáttum. Þar er lögð áhersla á gæði kennslu, vönduð námsgögn, stuðning við nemendur, forvarnir gegn brotthvarfi, framtíðarhæfni og undirbúning nýrrar menntastefnu. Hver verkþáttur hefur skilgreindan ábyrgðaraðila, mælikvarða og tímaramma.

Fyrir árið 2030 er stefnt að því að 65% fimmtán ára nemenda nái grunnhæfni í lesskilningi, 60% drengja nái henni og 68% nemenda nái grunnhæfni í stærðfræði. Einnig er markmiðið að 80% barna sem ekki ná grunnhæfni samkvæmt Matsferli fái viðeigandi stuðning innan átta vikna.

Meðal aðgerða sem eiga að sjást í skólastarfi frá skólaárinu 2027–2028 eru langtímaáætlun um læsi, nýtt kjarnaefni í stærðfræði fyrir allan grunnskólann og aukinn stuðningur við kennara. Lagt er til að endurskoða viðmiðunarstundaskrá grunnskóla með auknu vægi íslensku, stærðfræði og náttúrufræði. Allir nýir kennarar fái leiðsögn reynds kennara innan 30 daga frá upphafi starfs.

Einnig verður lögð áhersla á samræmd viðmið um skólasókn og snemmtæk viðbrögð við brotthvarfshættu. Þróa á styttri og hagnýtar námsleiðir í framhaldsskólum og taka upp viðmiðunarbraut í STEM-greinum frá haustönn 2027. Viðmið um ábyrga og gagnrýna notkun gervigreindar verða þróuð fyrir öll skólastig. Símafríi í grunnskólum verður fylgt eftir og unnið er að 15 ára aldurstakmarki á samfélagsmiðlum.

Að loknu samráði leggur ráðherra tillögu til þingsályktunar fyrir Alþingi. Börn, foreldrar, kennarar, skólastjórnendur og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér drögin og senda inn umsögn fyrir 26. október.