23. október 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Opið fyrir umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

Skatturinn hefur opnað fyrir umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Á fyrri hluta ársins lagði fjármála- og efnahagsráðherra fram frumvarp um að gera úrræðið varanlegt. Einstaklingar geta því að nýju ráðstafað séreignarsparnaði sínum skattfrjálst inn á höfuðstól húsnæðislána vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Umsókn þarf að berast Skattinum eigi síðar en 30. nóvember n.k. til að heimildin taki til uppsafnaðra iðgjalda frá 1. janúar 2026. Berist umsókn síðar gildir hún frá og með umsóknarmánuði.

Hverjir geta sótt um?

Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í íbúðarhúsnæðinu.
  • Vera með skráð lögheimili í íbúðarhúsnæðinu.
  • Vera með húsnæðislán sem er tryggt með veði í eigninni.
  • Eiga eftir ónýttan ráðstöfunartíma. Heimildin gildir í allt að tíu ár, eða samanlagt 120 mánuði. Hafi umsækjandi áður nýtt sambærileg úrræði til skattfrjálsrar ráðstöfunar séreignarsparnaðar vegna öflunar íbúðarhúsnæðis telst sá tími með og styttir þann tíma sem eftir stendur.

Hversu miklu má ráðstafa?

Heimilt er að ráðstafa allt að 500.000 kr. skattfrjálst vegna ársins 2026. Þar af getur eigið framlag einstaklings numið allt að 333.000 kr. og mótframlag launagreiðanda allt að 167.000 kr. Fjárhæðarmörkin taka árlegum breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Umsóknin skref fyrir skref

  1. Farðu á upplýsingasíðu Skattsins á Ísland.is og smelltu á „sækja um“.
  2. Veldu vörsluaðila séreignarsparnaðar.
  3. Skráðu upplýsingar um íbúðarhúsnæðið og húsnæðislánið, þar á meðal fastanúmer eignar, lánveitanda og lánsnúmer.
  4. Farðu yfir upplýsingarnar og sendu umsóknina inn.

Gott er að yfirfara sérstaklega vörsluaðila séreignarsparnaðar, fastanúmer íbúðarhúsnæðis, lánveitanda og lánsnúmer áður en umsókn er send. Ef rangar upplýsingar eru skráðar þarf að senda nýja umsókn. Skatturinn yfirfer hvort skilyrðin séu uppfyllt og getur staðfest upplýsingarnar hjá viðeigandi aðilum.