03 september 2026

/

Samstaða Íslands með Þýskalandi áréttuð

{image.Description}
Utanríkisráðuneytið við Austurhöfn.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins í Reykjavík á sinn fund í dag, þar sem samstaða íslenskra stjórnvalda með Þýskalandi var áréttuð í ljósi drónaatviks í Leipzig þann 4. ágúst sl.

Rannsóknir þýskra stjórnvalda staðfesta að aðilar með tengsl við rússnesk yfirvöld beri ábyrgð á atvikinu.

„Við gerðum alvarlegar athugasemdir við framferði Rússlands og þær fjölþáttaðgerðir sem stjórnvöld í Moskvu beita til að grafa undan öryggi Evrópu og hafa áhrif á stuðning Þýskalands og annarra bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Á fundinum var jafnframt komið á framfæri fordæmingu íslenskra stjórnvalda á stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu og þeirri stigmögnun sem nú á sér stað með grimmilegum loftárásum Rússa á almenna borgara og borgaralega innviði í Úkraínu.

„Við gerðum fulltrúa rússneska sendiráðsins kyrfilega grein fyrir því að stuðningur Íslands við Úkraínu sé staðfastur og verði það áfram,“ segir Þorgerður Katrín.