01 september 2026

/

Traust, jafnræði og öflugt samstarf aðildarríkjanna lykilinn að árangri bankans síðustu 50 ár

{image.Description}
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hélt opnunarávarp á 50 ára afmælishátíð Norræna fjárfestingabankans

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hélt opnunarávarp á 50 ára afmælishátíð Norræna fjárfestingabankans (NIB) í Helsinki í dag. Í ræðunni lagði hann áherslu á að árangur bankans væri byggður á trausti, jafnræði og öflugu samstarfi aðildarríkjanna.

„Fyrir fimmtíu árum var Norræni fjárfestingarbankinn stofnaður á grundvelli einfaldrar en áhrifamikillar hugmyndar: Að umbreyta mætti trausti milli ríkja í langtímafjárfestingar,“ sagði Daði Már.

Ísland með frá upphafi

Ísland var meðal stofnríkja NIB og kom fyrsta lánsumsóknin sem bankanum barst frá Íslandi. Hún varðaði byggingu járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga.

Ráðherra rifjaði upp að við stofnun bankans hefði verið álitamál hvort Ísland, sem minnsta framlagsríkið, ætti að hafa jafna rödd á við önnur aðildarríki. Niðurstaðan var skýr: Bankinn gæti aðeins náð árangri ef starfsemi hans byggðist á trausti og jafnræði ríkjanna.

„Sú grundvallarregla stendur enn hálfri öld síðar. Öll átta aðildarríkin eru fullgildir og jafnir eigendur bankans og jafnræðið endurspeglast í atkvæðisrétti þeirra,“ sagði ráðherra.

Hefur fjármagnað yfir 2.500 verkefni

Daði Már lagði áherslu á að bankinn, sem hefur fjármagnað yfir 2.500 verkefni, hefði alltaf getað aðlagast breyttum tímum. Nýlega hafi hann uppfært stefnu sína þannig að hann getur nú fjármagnað verkefni á sviði öryggis- og varnarmála en bankinn fjármagnar einkum langtímaverkefni sem styrkja samkeppnishæfni, sjálfbærni og viðnámsþrótt aðildarríkjanna.

„Þegar við horfum til næstu fimmtíu ára er ábyrgð okkar skýr. Við verðum að tryggja að þetta sameiginlega tæki okkar sé vel rekið, fjárhagslega sterkt og einbeiti sér að þeim fjárfestingum sem mestu máli skipta fyrir framtíð svæðisins,“ sagði ráðherra.

Traustið mesti styrkurinn

„Mesti styrkur NIB hefur alltaf verið það traust sem aðildarríkin bera hvert til annars. Það hefur gert okkur kleift að deila áhættu, virkja fjármagn til fjárfestinga og hrinda sameiginlegum markmiðum í framkvæmd. Verkefni okkar nú er að skila þessu trausti áfram til næstu kynslóðar,“ sagði Daði Már og færði starfsfólki og samstarfsaðilum bankans heillaóskir um leið og hann þakkaði þeim fyrir þeirra framlag síðustu 50 ár.

Norræni fjárfestingarbankinn er í sameiginlegri eigu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Fjármálaráðherrar aðildarríkjanna fara með hlutverk bankastjóra hans fyrir hönd ríkisstjórna sinna og marka sameiginlega stefnu bankans. Ráðherra talaði fyrir hönd fjármálaráðherra allra átta aðildarríkjanna á hátíðinni í dag.

Ræðan í heild á ensku