21. maí 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 241/2026

Hinn 21. maí 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 241/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25120076

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 15. desember 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. desember 2025, um að synja umsókn hans um endurnýjun dvalarleyfis fyrir námsmenn, sbr. 65. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með ákvörðuninni var kæranda jafnframt ákvörðuð brottvísun og tveggja ára endurkomubann, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Kærandi krefst þess að aðallega að umsókn hans um endurnýjun á dvalarleyfi fyrir námsmenn, sbr. 65. gr. laga um útlendinga, verði samþykkt. Til vara krefst kærandi þess að málið verði sent til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun vegna brota gegn 7. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði ekki gert að sæta brottvísun og endurkomubanni.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefið dvalarleyfi fyrir námsmenn 26. september 2024, með gildistíma til 15. júlí 2025, sbr. 65. gr. laga um útlendinga. Hinn 16. júní 2025 sótti kærandi um endurnýjun dvalarleyfis fyrir námsmenn sem var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. desember 2025. Fram kom í hinni kærðu ákvörðun að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 6. mgr. 65. gr. laga um útlendinga um námsframvindu. Kærandi hafi ekki lokið nægjanlegum fjölda eininga á síðasta skólaári og ekki væru óviðráðanlegar ytri aðstæður þess valdandi að fullnægjandi námsframvindu væri ekki náð.

Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 2. desember 2025 og kærð til kærunefndar útlendingamála 15. desember 2025. Kærandi lagði fram greinargerð ásamt fylgigögnum 29. janúar 2026. Líkt og fram kemur í ákvörðunarorðum hinnar kærðu ákvörðunar frestar stjórnsýslukæra réttaráhrifum hennar, sbr. 1. mgr. 103. gr. laga um útlendinga.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji sig falla undir undanþáguheimild 4. málsl. 6. mgr. 65. gr. laga um útlendinga og því beri kærunefnd að endurnýja dvalarleyfi hans. Fallist kærunefnd ekki á það telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki leiðbeint honum sem skyldi og hann ekki notið liðsinnis lögmanns og því ekki verið ljóst hverju hann ætti að svara. Kærandi hafi aðeins lokið 20 einingum við Háskóla Íslands á síðasta skólaári. Kærandi hafi komið hingað til lands síðar en hann hafi ætlað sér, m.a. vegna óviðráðanlegra orsaka, s.s. vegna tafa við útgáfu dvalarleyfis hans hér á landi. Eftir að kærandi kom hingað til lands hafi brotist út óeirðir á heimasvæði hans í Nígeríu. Meðan á því hafi staðið hafi hálfbróðir kæranda verið skotinn til bana. Almennar heimildir greini frá framangreindu ofbeldi en t.d. komi fram að tveir einstaklingar hafi verið skotnir til bana í Anambra ríki. Í kjölfar andláts hálfbróður kæranda hafi frænka hans fengið hjartaáfall og síðar látist vegna þess. Kærandi vísar til þess að framangreindir atburðir hafi haft mikil áhrif á sig og getu sína til að stunda fullt nám á Íslandi. Þrátt fyrir framangreint hafi kærandi lokið 20 einingum á síðasta skólaári og skráð sig aftur í fullt nám á þessu ári og stundað námið af kappi. Kærandi hafi sótt um dvalarleyfi fyrir námsmenn í góðri trú og sýnt fram á að hann vilji uppfylla öll skilyrði laga um dvalarleyfi fyrir námsmenn. Kærandi vísar til þess að Háskóli Íslands hafi veitt honum skólavist aftur á núverandi skólaári og því uppfylli kærandi greinilega öll skilyrði til áframhaldandi náms. Kærandi vísar til 4. málsl. 6. mgr. 65. gr. laga um útlendinga og telur að með framlögðum gögnum og bréfi hans, auk almennra heimilda hafi hann sýnt fram á óviðráðanlegar aðstæður sem íslenskum stjórnvöldum beri að sýna skilning.

Kærandi telur að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið verulega ábótavant og að honum hafi hvorki verið leiðbeint með fullnægjandi hætti né hafi mál hans verið rannsakað og upplýst, sbr. 7. og 10. gr. stjórnsýslulaga. Í hinni kærðu ákvörðun komi fram að Útlendingastofnun hafi í eitt skipti veitt kæranda færi á að leggja fram andmæli. Þegar svör og gagnaframlagning kæranda hafi verið ábótavant hafi stofnunin ekki gert neinn reka að því að leiðbeina honum. Kærandi telji að frekari gögn og upplýsingar hefðu haft mikil áhrif á niðurstöðu málsins. Útlendingastofnun hafi borið að rannsaka aðstæður á heimasvæði hans en það hafi stofnunin látið hjá líða þrátt fyrir að gögn og upplýsingar hafi verið aðgengilegar. Kærandi telji að ekki verði bætt úr framangreindu á kærustigi og því beri að senda málið aftur til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

Þá telur kærandi ósanngjarnt að honum verði gert að sæta brottvísun og endurkomubanni. Kærandi telji það andstætt meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og réttmætisreglu íslensks stjórnsýsluréttar. Kærandi vísar til 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga en hann hafi tengsl við nafngreindan einstakling hér á landi sem hafi gengið honum í föðurstað.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Endurnýjun dvalarleyfis

Samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem ætlar að stunda fullt nám hér á landi dvalarleyfi enda sé hann eldri en 18 ára og fullnægi þeim kröfum sem gerðar eru í viðkomandi námi. Fullt nám er samfellt nám á háskólastigi, þ.m.t. nám á háskólastigi sem fram fer á vinnustöðum, eða annað það nám sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Sá sem sækir einstök námskeið telst ekki stunda fullt nám. Ákvæði 2. mgr. 65. gr. laga um útlendinga áskilur að 1. og 2. mgr. 55. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt, ásamt því að útlendingur stundi fullt nám hér á landi samkvæmt staðfestingu eða vottorði frá hlutaðeigandi skóla eða hafi fengið heimild til undanþágu frá skilyrði um fullt nám, svo sem vegna skipulags náms á grundvelli beiðni frá hlutaðeigandi skóla.

Í 6. mgr. 65. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um endurnýjun dvalarleyfis fyrir námsmenn en það skal gert ef útlendingur fullnægir áfram skilyrðum 1. og 2. mgr. sömu greinar og getur sýnt fram á viðunandi námsárangur, þar sem þess er krafist. Við fyrstu endurnýjun dvalarleyfis telst námsárangur viðunandi hafi útlendingur lokið samanlagt a.m.k. 75% af fullu námi á námsárinu. Heimilt er að víkja frá kröfunni um viðunandi námsárangur ef um er að ræða óviðráðanlegar ytri aðstæður, svo sem slys eða alvarleg veikindi. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að heimild hafi verið sett í lögin til að endurnýja dvalarleyfi ef óviðráðanlegar aðstæður valda því að fullnægjandi námsárangri hafi ekki verið náð. Þessar aðstæður þurfa að vera óviðráðanlegar fyrir námsmanninn, svo sem alvarleg veikindi eða ef nauðsynleg námskeið falla niður. Það telst ekki til óviðráðanlegra aðstæðna ef námsmaður er t.d. að vinna það mikið meðfram námi að hann nær ekki prófum, en nær að stunda vinnu þrátt fyrir veikindi. Við endurnýjun dvalarleyfis þarf að sýna fram á fullnægjandi námsárangur en með því er átt við að útlendingur hafi staðist samanlagt 75% af heildareiningarfjölda tveggja anna og er nóg að leyfishafi nái t.d. 50% af heildareiningafjölda fyrstu annar ef hann nær a.m.k. 100% á næstu önn. Er þannig komið til móts við þá erlendu námsmenn sem kunna af ýmsum ástæðum að eiga erfitt með að fóta sig í náminu á fyrstu mánuðunum í nýju landi og við nýjar aðstæður eða ef skortur á framboði í námskeiðum í háskóla hamlar þátttöku í fullu námi.

Kærandi hefur verið innritaður í nám á vegum Háskóla Íslands frá haustinu 2024 og fékk útgefið dvalarleyfi á þeim grundvelli með gildistíma til 15. júlí 2025. Kærandi lagði fram umsókn um endurnýjun á dvalarleyfi fyrir námsmenn 16. júní 2025 en það er sú umsókn sem synjað var með hinni kærðu ákvörðun. Í yfirlýsingu frá Háskóla Íslands, dags. 9. september 2025, kemur fram að kærandi hafi eingöngu náð 20 einingum af 60 á síðasta skólaári og fái því leyfi til að endurtaka öll námskeið haustannarinnar og skrá sig í 30 einingar á vorönn. Kærandi sé því skráður í 60 einingar á yfirstandandi skólaári. Námsframvinda á síðari misserum kemur ekki til skoðunar við mat á framvindu á framangreindu tímabili. Kærandi uppfyllir því ekki framangreint skilyrði um námsárangur og skal dvalarleyfi hans almennt ekki endurnýjað nema að óviðráðanlegar ytri aðstæður, svo sem slys eða alvarleg veikindi mæli með því.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hálfbróðir hans hafi verið skotinn til bana 20. nóvember 2024 á meðan á óeirðum á heimasvæði kæranda í Nígeríu hafi staðið. Í kjölfarið hafi frænka kæranda fengið hjartaáfall og látist. Framangreindir atburðir hafi haft mikil áhrif á andlega heilsu kæranda. Á kærustigi lagði kærandi m.a. fram dánarvottorð nafngreinds manns og konu sem hann kveður vera hálfbróður hans og frænku frá heimaríki. Líkt og fram kemur í athugasemdum við 6. mgr. 65. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga var heimild til að endurnýja dvalarleyfi þrátt fyrir ófullnægjandi námsárangur bundin við óviðráðanlegar aðstæður fyrir námsmanninn, svo sem alvarleg veikindi eða ef nauðsynleg námskeið falla niður. Kærunefnd dregur ekki í efa framangreinda frásögn kæranda um andlát skyldmenna sinna en bendir á að kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem sýna fram á að atburðirnir hafi haft þannig áhrif á heilsu kæranda að hann hafi ekki getað sinnt námi sínu.

Að teknu tilliti til framangreinds hefur kærandi ekki sýnt fram á fullnægjandi námsframvindu við endurnýjun dvalarleyfis vegna náms. Þá hefur hann ekki sýnt fram á að óviðráðanlegar ytri aðstæður í skilningi 6. mgr. 65. gr. laga um útlendinga hafi verið fyrir hendi í málinu. Er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um endurnýjun dvalarleyfis vegna náms því staðfest.

Brottvísun og endurkomubann

Í 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, eins og ákvæðinu var breytt með lögum nr. 136/2022, segir að svo framarlega sem 102. gr. eigi ekki við skuli vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu. Líkt og þegar hefur verið rakið hefur synjun Útlendingastofnunar á umsókn kæranda um dvalarleyfi verið staðfest og þar með bundinn endi á heimild kæranda til dvalar í landinu. Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda brottvísað og gert að sæta tveggja ára endurkomubanni. Var skilyrðum 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga fullnægt þegar hin kærða ákvörðun var tekin og birt kæranda. Kæra frestaði framkvæmd ákvörðunar í samræmi við 1. mgr. 103. gr. laga um útlendinga.

Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 30. október 2025, var kæranda bent á framangreinda heimild til brottvísunar, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, og veittur frestur til að skila inn andmælum. Í andmælum kæranda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að stuttu eftir komu hans til Íslands hafi ástand á heimasvæði kæranda versnað og hálfbróðir kæranda verið myrtur. Frænka hans hafi svo látist í kjölfarið. Hafi fréttirnar haft slæm áhrif á andlega heilsu kæranda og getu hans til að sinna náminu. Í greinargerð sinni til kærunefndar byggir kærandi þá á því að njóta liðsinnis nafngreinds einstaklings hér á landi sem hafi gengið honum í föðurstað og því sé ósanngjarnt að brottvísa honum. Kærandi hefur ekki lagt fram frekari gögn eða skýringar varðandi þau tengsl sín. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að brottvísun kæranda teljist ósanngjörn ráðstöfun í skilningi ákvæðisins. Ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda er í samræmi við lög og er tilgangur hennar að framfylgja lögmætum markmiðum laga um útlendinga.

Með kæru til kærunefndar var réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar frestað, sbr. 1. mgr. 103. gr. laga um útlendinga. Kærandi nýtur því 15 daga frests til sjálfviljugrar heimfarar frá móttöku úrskurðar kærunefndar en innan þess frests verður endurkomubann hans fellt niður, sbr. 1. málsl. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Yfirgefi kærandi ekki landið innan framangreinds frests mun endurkomubann að óbreyttu hefjast þann dag sem hann er færður úr landi, sbr. 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til úrskurðarframkvæmdar kærunefndar í sambærilegum málum telur kærunefnd hæfilegt að endurkomubann verði til tveggja ára. Því er ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda staðfest.

Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar hefur í fjölda úrskurða verið lagt mat á almennar aðstæður í heimaríki kæranda og lagt til grundvallar að hvergi í heimaríki kæranda séu aðstæður með þeim hætti að endursending þangað sé andstæð 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hann muni verða í sérstakri hættu snúi hann til baka til heimaríkis á grundvelli einstaklingsbundinna eða almennra aðstæðna á heimasvæði sínu. Gögn um heimasvæði kæranda, s.s. upplýsingar frá EUAA síðast uppfærðar í mars 2026, benda ekki til þess aðstæður þar séu með þeim hætti að ákvæði 102. gr. eða 42. gr. laga um útlendinga komi í veg fyrir brottvísun kæranda frá landinu.

Athugasemdir kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Kærandi telur að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið verulega ábótavant, honum hafi hvorki verið leiðbeint með fullnægjandi hætti né hafi mál hans verið rannsakað og upplýst í skilningi 7. og 10. gr. stjórnsýslulaga. Í hinni kærðu ákvörðun komi fram að Útlendingastofnun hafi í eitt skipti veitt kæranda færi á að leggja fram andmæli. Þegar svör og gagnaframlagning kæranda hafi verið ábótavant hafi stofnunin ekki gert neinn reka að því að leiðbeina honum. Útlendingastofnun hafi borið að rannsaka aðstæður á heimasvæði hans en það hafi stofnunin látið hjá líða þrátt fyrir að gögn og upplýsingar hafi verið aðgengilegar. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 30. október 2025, var kæranda leiðbeint um að leggja fram frekari gögn, t.a.m. vottorð sérfræðings vegna veikinda sinna sem og frekari rökstuðning. Kærandi lagði ekki fram læknisfræðileg gögn við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Í ákvörðun sinni dró Útlendingastofnun ekki í efa frásögn kæranda varðandi andlát ættmenna sinna en taldi frekari gögn þurfa liggja fyrir um andlega erfiðleika kæranda vegna þeirra atburða. Kærandi hefur þá haft tök á því að koma á framfæri frekari gögnum og sjónarmiðum við meðferð málsins hjá kærunefnd sem hann hefur ekki gert. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd ekki tilefni til að gera athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á umsókn kæranda um endurnýjun dvalarleyfis staðfest. Kæranda er brottvísað frá landinu og skal sæta endurkomubanni til tveggja ára. Endurkomubann hans fellur niður ef hann yfirgefur landið innan 15 daga frá móttöku úrskurðarins.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir