22. júní 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 287/2026

Hinn 22. júní 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 287/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26050017

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. maí 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Víetnam (hér eftir kærandi), drátt á afgreiðslu umsóknar sinnar um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun.

Fyrrgreind kæra er lögð fram á grundvelli 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir á því að afgreiðsla umsóknar hennar á dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar hafi dregist óhóflega. Kærandi hafi lagt fram umsóknina 31. mars 2025 og því séu liðnir 14 mánuðir án þess að málið hafi hlotið afgreiðslu hjá Útlendingastofnun. Kærandi vísar til 9. gr. stjórnsýslulaga í þessu samhengi. Ákvörðun hafi ekki verið tekin svo fljótt sem unnt sé með hliðsjón af eðli málsins og umfangi þess, en umsóknin sé einföld. Markmið dvalarleyfis á grundvelli vistráðningar séu tímabundin menningarskipti og aðstoð við fjölskyldu með ungt barn. Vistmóðir sé í eftirfylgni hjá [...] vegna sjálfsvígshættu og vanlíðanar á meðgöngu og í matsviðtali 28. janúar 2026 hafi svör hennar bent til kvíða- og þunglyndiseinkenna. Af þessu megi ráða að þörf fjölskyldunnar fyrir vistráðningu sé raunveruleg og brýn. Þá hafi Útlendingastofnun ekki veitt upplýsingar um hvenær ákvörðunar sé að vænta, þrátt fyrir að margir mánuðir séu liðnir frá umsókn. Kærandi hafi aðeins fengið þær upplýsingar 21. apríl 2026 að málið sé enn til meðferðar hjá lögfræðiteymi Útlendingastofnunar. Kærandi vísar til þess að rannsóknarskylda stjórnvalda verði að vega á móti meginreglunni um málshraða. Ákvarðanir kunni að verða þýðingarlausar séu þær ekki teknar tímanlega. Í fyrirliggjandi máli sé þörf fjölskyldunnar fyrir vistráðningu brýn en jafnframt tímabundin. Umsækjandi muni ná [...] og tilgangur dvalarleyfisins verði þá að engu. Kærandi hafi ekki notið réttmætrar og skilvirkrar málsmeðferðar. Kærandi krefst þess að Útlendingastofnun verði gert að afgreiða málið svo fljótt sem unnt er, en eigi síðar en 30. júní 2026.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Eins og að framan greinir hefur kærandi til meðferðar umsókn um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun en slíkar ákvarðanir eru kæranlegar til kærunefndar útlendingamála, sbr. 7. gr. laga um útlendinga. Kæran grundvallast á 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga þar sem fram kemur að dragist afgreiðsla máls óhóflega sé heimilt að kæra það til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Í 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga kemur fram að þegar fyrirsjáanlegt sé að afgreiðsla máls muni tefjast beri að skýra aðila máls frá því. Skuli þá upplýsa um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.

Í lögum um útlendinga og reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 er ekki kveðið á um lögbundinn frest fyrir Útlendingastofnun til þess að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi. Um málshraða við meðferð umsókna um dvalarleyfi gildir því almenn málshraðaregla stjórnsýsluréttar, sbr. 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, en þar segir að ákvarðanir í málum skuli teknar svo fljótt sem unnt er. Í reglunni felst m.a. að stjórnvald megi ekki draga afgreiðslu máls nema slíkt sé nauðsynlegt eða réttlætanlegt. Við mat á því hvort tafir séu nauðsynlegar eða réttlætanlegar hefur m.a. verið litið til þess að þótt mönnun og álag á stjórnvöldum kunni að koma til skoðunar þegar metið er hvað sé eðlilegur afgreiðslutími verði að gera þá kröfu að stjórnvöld skipuleggi meðferð mála með þeim hætti að ekki verði óhæfilegur dráttur á meðferð þeirra.

Samkvæmt málsferilsyfirliti Útlendingastofnunar barst umsókn kæranda um vistráðningu Útlendingastofnun 2. apríl 2025. Kærandi lagði fram frekari gögn með pósti 19. ágúst 2025. Umsóknin hafi verið tekin til vinnslu hjá lögfræðiteymi stofnunarinnar 13. janúar 2026 en hvorki hefur verið tekin ákvörðun um umsóknina né óskað frekari skýringa eða gagna frá kæranda til þess að varpa betra ljósi á málið. Hefur umsóknin því legið óhreyfð í um 10 mánuði frá því að kærandi lagði fram viðbótargögn í ágúst 2025. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu stofnunarinnar liggur fyrir að teknar hafa verið til vinnslu umsóknir um dvalarleyfi vegna vistráðningar frá því í desember 2025.

Umsóknir um dvalarleyfi á grundvelli vistráðninga, sbr. 68. gr. laga um útlendinga, geta krafist nokkurrar gagnaöflunar. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 3. júní 2026, var óskað eftir skýringum frá Útlendingastofnun á töfum málsins og hvenær mætti vænta niðurstöðu. Með tölvubréfi stofnunarinnar til kærunefndar, dags. 16. júní 2026, er hluti framangreindara málsmeðferðar rakinn en stofnunin færði ekki fram frekari skýringar á töfum í málinu eða hvenær niðurstöðu í málinu væri að vænta.

Líkt og að framan greinir sendi kærandi inn frekari gögn 19. ágúst 2025. Játa verður stjórnvöldum svigrúm til þess að leggja mat á innkomin gögn vegna stjórnsýslumála, einkum ef í þeim felast matskenndar upplýsingar. Ljóst er að dvalarleyfi á grundvelli 68. gr. laga um útlendinga er að einhverju leyti háð mati stjórnvalda. Þrátt fyrir framangreint er ljóst að tíminn sem leið frá gagnaframlagningu kæranda 19. ágúst 2025 fram að uppkvaðningu þessa úrskurðar er ekki í samræmi við upplýsingar um málshraða á vefsíðu stofnunarinnar. Hefur meðferð málsins því farið úr hófi og er því beint til Útlendingastofnunar að taka ákvörðun í málinu svo fljótt sem unnt er.

Samkvæmt framansögðu eru þær tafir sem orðið hafa á meðferð Útlendingastofnunar á umsókn kæranda, dags. 2. apríl 2025, ekki í samræmi við 9. gr. stjórnsýslulaga.

Úrskurðarorð:

Málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda er ekki í samræmi við 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka ákvörðun í málinu svo fljótt sem unnt er.

The Directorate of Immigration‘s processing of the case is not in accordance with Article 9 of the Administrative Procedures Act no. 37/1993. The Directorate of Immigration is instructed to issue a decision as soon as possible.

Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir