Úrskurður nr. 306/2026
Hinn 2. júlí 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 306/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26060038
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 10. júní 2026 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Írak (hér eftir kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. júní 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í sex ár.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Til vara krefst kærandi þess að endurkomubanninu verði markaður skemmri tími.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi lagði fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 6. október 2020. Hinn 8. júlí 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. mars 2021, um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Þá lagði kærandi fram beiðni um endurupptöku 22. nóvember 2021 sem var hafnað af kærunefnd 2. desember 2021 og aðra beiðni 18. október 2022 sem var hafnað 1. desember 2022. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi fluttur af stoðdeild Ríkislögreglustjóra til Grikklands 25. janúar 2023. Hinn 15. febrúar 2023 lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi að nýju. Hinn 18. ágúst 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. apríl 2023, um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað brott frá landinu með endurkomubanni til tveggja ára. Hinn 13. nóvember 2023 fékk kærandi atvinnu- og dvalarleyfi hér á landi vegna skorts á starfsfólki með gildistíma til 2. apríl 2024. Umsókn um endurnýjun dvalarleyfis barst Útlendingastofnun 13. febrúar 2026 og er til meðferðar hjá stofnunni. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-3081/2025 frá 18. mars 2026 var kærandi dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir brot gegn 217. og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var fullnustu refsingar frestað og félli hún niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu héldi kærandi almennt skilorði, sbr. 57. gr. almennra hegningarlaga. Brot gegn ákvæðunum geta varðað fangelsi allt að sex árum. Þá hefur kærandi greitt fjórar sektir vegna aksturs án ökuréttinda ásamt því að hafa gengist undir tvær lögreglustjórasáttir til viðbótar vegna sömu brota. Í greinargerðum lögreglu, dags. 19. maí og 5. júní 2026, kemur fram að lögregla hafi haft ítrekuð afskipti af kæranda frá því að hann kom til landsins árið 2020. Kærandi hafi verið skráður sakborningur í 14 málum sem feli í sér 14 brot gegn almennum hegningarlögum og öðrum sérrefsilögum. Þá hafi kærandi fjögur opin mál í kerfum lögreglu sem feli í sér sex brot í heildina. Kæranda var birt tilkynning um hugsanlega brottvísun 5. júní 2026. Hinn 6. júní 2026 barst Útlendingastofnun lögregluskýrsla frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Í skýrslunni kom fram að tilkynning hafi borist frá fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra að kærandi hafi brotið sér leið út um neyðarútgang flugstöðvarinnar og væri kominn út á flugstæði flugvallarins. Þegar lögregla hafi komið á staðinn hafi kærandi verið kominn upp í bíl starfsmanns Isavia. Lögreglan hafi ætlað að handtaka kæranda vegna gruns um brot gegn 1. mgr. 157. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 en kærandi reynt að komast hjá handtöku með ofbeldi í garð lögreglu en hann hafi bæði beitt hnefahöggum og spörkum gegn lögreglu þar til lögreglu hafi tekist að yfirbuga hann. Kærandi hafi verið handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa. Kærandi lagði fram greinargerð til Útlendingastofnunar, dags. 8. júní 2026. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. júní 2026, var kæranda brottvísað á grundvelli c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga og ákvarðað endurkomubann til sex ára, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Með ákvörðuninni var frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar felldur niður með vísan til e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Kæranda var birt ákvörðun Útlendingastofnunar 10. júní 2026 og kærð til kærunefndar sama dag. Hinn 25. júní 2026 barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi dvalið hér á landi samfellt frá 13. nóvember 2023 á grundvelli dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki í þeirri sérgrein sem hann starfi við. Kærandi hafi sótt um endurnýjun 13. febrúar 2026 og talið sig hafa gilt leyfi til dvalar á Íslandi sem og til að ferðast til og frá landinu. Kærandi hafi farið í stutt frí til Grikklands 1. júní 2026 og hafi ætlað að dvelja þar í tíu daga. Kærandi hafi ákveðið að snúa strax aftur til baka eftir að hann hafi fengið bréf frá Vinnumálastofnun 2. júní 2026 þar sem óskað hafi verið eftir frekari gögnum vegna umsóknar hans. Kærandi hafi byggt upp líf sitt á Íslandi síðustu þrjú ár og lagt sitt af mörkum til íslensks samfélags með vinnu sinni og sérþekkingu og haft hér góðar tekjur. Kærandi hafi eignast unnustu hér á landi, leigi íbúð og eigi bíl. Kærandi vísar til þess að flest mála hans hjá lögreglu varði þá einu sök að hann hafi keyrt bifreið sinni án tilskilinna réttinda en ökuskírteini hans hafi ekki verið tekið gilt á Íslandi.
Kærandi fjallar um c- lið 99. gr. laga um útlendinga en í athugasemdum við ákvæðið komi fram að líta beri til 98. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að í sambandi við 98. gr. laga um útlendinga sé horft til erlendra refsidóma og því eðli málsins samkvæmt nauðsynlegt að líta til refsiramma þess refsiákvæðis sem sambærilegt brot myndi heyra undir hér á landi, þ.e. í stað þess að líta aðeins til eiginlegrar erlendrar refsiákvörðunar sem kunni að brjóta gegn réttarvitund á Íslandi. Þetta telji kærandi að megi túlka sem svo að tilvísun c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga til refsiramma þeirra ákvæða sem hann hafi brotið gegn kunni að orka tvímælis, en löggjafinn hafi gefið litlar leiðbeiningar um túlkun. Þannig kunni eftir atvikum að vera rétt að horfa til eiginlegs brots og eiginlegrar refsingar til þess að afleiðingar smávægilegs brots, t.d. smáþjófnaðar hafi ekki í för með sér afleiðingar sem brjóti gegn réttarvitund sem og sjónarmiðum um jafnræði og meðalhóf stjórnsýsluréttar. Kæranda hafi ekki verið boðið að yfirgefa landið sjálfviljugur á meðan Útlendingastofnun hafði til meðferðar umsókn hans um dvalarleyfi á Íslandi, sbr. kröfur 12. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til þess að brot á 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 geti aðeins varðað fangelsi allt að einu ári og því falli ákvæðið ekki undir skilyrði c-liðar. Hins vegar geti brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga varðað fangelsi allt að sex árum enda um almennt þjófnaðarbrot að ræða þar sem refsing ráðist af verðmæti þess sem hafi verið stolið. Kærandi telji ómögulegt að líta aðeins til refsiramma 244. gr. almennrar hegningarlaga. Kærandi hafi verið fundinn sekur um að hafa stolið samloku að söluverðmæti 1.659 krónur og aðeins fengið 60 daga skilorðsbundinn dóm. Sú staðreynd að dómstóllinn hafi ekki talið ástæðu til að fullnusta refsingu gefi vísbendingu um að háttsemi hans hafi hvorki verið metin það alvarleg né að hann teljist slík ógn við samfélagið að frelsissvipting sé nauðsynleg. Að beita hinu íþyngjandi úrræði brottvísunar í slíku tilviki brjóti í bága við réttarvitund sem og sjónarmið um jafnræði og meðalhóf. Fordæmi kærunefndar um beitingu c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga varði mun alvarlegri brot og þyngri refsingu. Slík sjónarmið þurfi að hafa í huga við mat kærunefndar, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga um heimildarákvæði c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga.
Í hinni kærðu ákvörðun sé aðeins stuðst við skilyrði heimildarákvæðis c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga. Þá sé heimildarákvæðið skýrt um að aðeins megi horfa til refsidóma. Það sé því óviðeigandi að rekja smávægileg brot sem kærandi hafi gengist við eða opin mál þar sem kærandi hafi ekki verið dæmdur. Slík umfjöllun dragi úr trúverðugleika ákvörðunarinnar og lögmæti sjónarmiða. Grundvallarregla íslensks réttar um sakleysi uns sekt sé sönnuð og þau brot sem lögregla kunni að hafa til rannsóknar eða annar brotaferill, hafi ekki erindi í mat stjórnvalda samkvæmt c-lið 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga og telur að málsatvik og alvarleiki brots hans í skilningi ákvæðisins sé það smávægilegt að það væri ósanngjarnt að gera honum að sæta brottvísun og endurkomubanni. Kærandi hafi byggt upp líf með lögmætri búsetu og atvinnu undanfarin ár. Á Íslandi hafi kærandi eignast unnustu og hafi þau áform um að gifta sig. Unnusta kæranda gæti ekki fylgt honum til heimaríkis þar sem hún sé frá Sýrlandi auk þess sem að aðeins viðurkenndir flóttamenn hafi rétt á fjölskyldusameiningu í Grikklandi en kærandi hafi að eigin sögn ekki slíka viðurkenningu. Þá sé fjölskyldusameiningum settar verulegar skorður í Grikklandi. Telur kærandi að ákvörðun um brottvísun og endurkomubann brjóti gegn 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi eigi því tilfinningalegar rætur hér á landi og ekki sé hægt að gera þá kröfu að unnusta hans fylgi honum frá landinu, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu nr. 54273/00, Boultif gegn Sviss.
Kærandi krefst þess þá að endurkomubann hans verði stytt í tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að dómur hans hafi verið smávægilegur auk tengsla hans við landið. Kærandi telji það ósanngjarnt að gera honum að sæta endurkomubanni lengur en tvö ár og myndi það brjóta gegn meðalhófsreglu.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi atvinnu- og dvalarleyfi hér á landi vegna skorts á starfsfólki, sbr. 62. gr. laga um útlendinga og var það í gildi til 2. apríl 2024. Dvalarleyfi kæranda var endurnýjað 28. febrúar 2025 og rann út 2. apríl 2026. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem hefur dvalarleyfi hér á landi ef hann hefur verið dæmdur hér á landi til refsingar fyrir háttsemi getur varðað fangelsi lengur en eitt ár eða oftar en einu sinni verið dæmdur til fangelsisrefsingar á síðustu þremur árum. Samsvarandi gildir um öryggisráðstafanir sem ákvarðaðar eru vegna slíkrar refsiverðrar háttsemi. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að heimildirnar til að vísa útlendingi úr landi samkvæmt ákvæðinu séu nánast þær sömu og í 98. gr. laga um útlendinga og vísað til athugasemda við 98. gr. laganna. Í athugasemdum við d-lið 98. gr. laga um útlendinga kemur fram að það sé refsirammi samkvæmt lögum sem skipti máli. Samkvæmt framangreindu beri stjórnvöldum að líta til refsinga samkvæmt lögum við beitingu ákvæðisins, en ekki dæmdrar refsingar í hverju tilfelli.
Líkt og áður greinir var kærandi, með dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-3081/2025, dags. 18. mars 2026, dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir brot gegn 217. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga. Var fullnustu refsingar frestað og félli hún niður að liðnum tveimur árum frá dópsuppsögu héldi kærandi almennt skilorði, sbr. 57. gr. almennra hegningarlaga. Brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga geta varðað fangelsi allt að sex árum. Með vísan til framangreinds eru skilyrði til brottvísunar samkvæmt ákvæði c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga uppfyllt í málinu.
Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda eða nánustu aðstandendum hans verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Í dómaframkvæmd hefur Mannréttindadómstóll Evrópu vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Þá hefur dómstóllinn lagt til grundvallar að aðildarríki mannréttindasáttmálans hafi vald til þess að brottvísa útlendingi sem hefur hlotið dóma fyrir refsiverð afbrot enda sé það nauðsynlegt með tilliti til allsherjarreglu, svo sem í máli Üner gegn Hollandi (46410/99) frá 18. október 2006. Þó verði að horfa til þess hvort ákvörðunin skerði rétt viðkomandi til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu samkvæmt 8. gr. mannréttindasáttmálans. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um, stefna að lögmætu markmiði, og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. Þau sjónarmið sem mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar í málum af þessum toga eru t.a.m. eðli þess brots sem viðkomandi hefur gerst sekur um, lengd dvalar viðkomandi í því ríki sem tekur ákvörðun um brottvísun og félags-, menningar- og fjölskyldutengsl viðkomandi við dvalarríki og heimaríki, sbr. t.d. mál Balogun gegn Bretlandi (nr. 60286/09) frá 4. október 2013 og Ndidi gegn Bretlandi (nr. 41215/15) frá 14. september 2017. Dómstóllinn hefur almennt veitt ríkjum talsvert svigrúm til mats þegar kemur að brottvísun aðila vegna alvarlegra afbrota með vísan til allsherjarreglu þótt aðili hafi fjölskyldutengsl við ríkið, sbr. t.d. mál Üner gegn Hollandi.
Eins og að framan greinir er skilyrði c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga uppfyllt í tilviki kæranda en markmið ákvæðisins er að tryggja hagsmuni almennings gagnvart þeirri hættu sem stafar af einstaklingum sem fremja afbrot. Því er ljóst að brottvísun kæranda er í samræmi við lög og stefnir að því lögmæta markmiði. Eftir því sem brot útlendings eru alvarlegri standa almennt þyngri rök til brottvísunar hans. Í slíkum tilvikum fá grundvallarhagsmunir samfélagsins aukið vægi þegar metið er hvort ráðstöfun gangi of langt gagnvart réttindum einstaklings samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Verður því næst að horfa til þess hvort að sú skerðing sem brottvísun kæranda mun hafa á friðhelgi einkalífs hans og fjölskyldu vegi þyngra en hagsmunir ríkisins af brottvísun hans frá landinu.
Í Boultif gegn Sviss (nr. 54273/00) frá 2. nóvember 2001 setti Mannréttindadómstóll Evrópu fram nokkur ráðandi sjónarmið í málum þar sem reynst gæti erfitt fyrir fjölskyldumeðlimi einstaklinga með afbrotaferil að fylgja þeim til heimaríkis vegna brottvísunar en sömu sjónarmið voru ítrekuð í Amrollahi gegn Danmörku (56811/00) frá 11. október 2002. Sjónarmið dómstólsins voru eðli og alvarleiki brotsins, lengd dvalar hans í gistiríki, tími frá því afbrotið var framið og hegðun aðilans á því tímabili. Þjóðerni aðila kemur til skoðunar, ásamt fjölskylduaðstæðum, þ.m.t. lengd hjúskapar, hvort að maki hafi vitað af afbrotinu þegar til fjölskyldutengsla hafi verið stofnað, hvort aðili eða maki hans eigi börn og hver sé aldur þeirra. Þá lítur dómstóllinn einnig til þess hvort það sé verulegum erfiðleikum bundið fyrir maka að dvelja í heimaríki viðkomandi, þrátt fyrir að vissir erfiðleikar geti ekki komið í veg fyrir brottvísun, þegar af þeirri ástæðu. Þá er litið til þess að réttur til fjölskyldulífs er ekki skilyrðislaus heldur er stjórnvöldum heimilt að mæla fyrir um takmarkanir á réttinum, m.a. með vísan til allsherjarreglu, sbr. t.d. mál Üner gegn Hollandi. Einnig kemur fram í dómi Boultif gegn Sviss að erfiðleikar fyrir maka að fylgja málsaðila til heimaríkis komi ekki í veg fyrir brottvísun, þegar af þeirri ástæðu.
Samkvæmt gögnum málsins var kæranda veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi 3. október 2019 og hafði hann dvalarleyfi þar í landi með gildistíma til 6. október 2022 sem var framlengt til 6. október 2028. Dvalarleyfisskírteini kæranda þess efnis er meðal gagna málsins og verður af þeim sökum ekki fallist á þær röksemdir í greinargerð að hann njóti ekki réttarstöðu flóttamanns. Kærandi kveðst eiga sýrlenska unnustu hér á landi og að þau hafi áform um að giftast. Kærandi og maki hans eiga ekki börn. Ekkert í gögnum málsins bendir til annars en að kærandi og maki hans geti sameinast í Grikklandi þar sem hann hefur löglega heimild til dvalar. Í skýrslu European Council of Refugees and Exiles (ECRE) frá árinu 2025, kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi geti sótt um fjölskyldusameiningu. Þá kemur fram að einstaklingur sem ekki sé í hjúskap en sannanlega sé í sambandi með einstaklingi sem hlotið hafi réttarstöðu flóttamanns eigi rétt á fjölskyldusameiningu en færa þurfi sönnur fyrir sambandinu. Að framangreindu virtu verður talið að þrátt fyrir að kærandi hafi tengsl hér á landi, m.a. með vísan til fjölskyldu- og atvinnutengsla, að brot kæranda vegi þyngra en tengslin. Verður ákvörðun um brottvísun ekki talin fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda eða nánustu aðstandendum hans í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Eru skilyrði 2. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu jafnframt uppfyllt.
Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda bönnuð endurkoma til Íslands í sex ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt ákvæðinu skal endurkomubann að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Þó getur endurkomubann varað lengur en fimm ár þegar útlendingur telst ógn við öryggi ríkisins, almannaöryggi eða allsherjarreglu. Við ákvörðun um lengd endurkomubanns skal litið til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Að málsatvikum virtum, lengd refsingar kæranda og fyrri úrskurðarframkvæmdar verður kæranda gert að sæta endurkomubanni til þriggja ára.
Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Heimilt er að fella niður frestinn í tilvikum sem vísað er til í a-f liðum 2. mgr. ákvæðisins. Í hinni kærðu ákvörðun var frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar felldur niður á grundvelli e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga þar sem brottvísun hans byggir á 99. gr. laganna. Með vísan til framangreinds verður staðfest niðurstaða Útlendingastofnunar að fella niður frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar.
Samantekt og leiðbeiningar
Að framangreindu virtu verður hin kærða ákvörðun staðfest en kæranda gert að sæta endurkomubanni til þriggja ára. Í 1. mgr. 101. gr. kemur fram að við endanlega ákvörðun um brottvísun fellur útgefið dvalarleyfi, atvinnuleyfi og ótímabundið dvalarleyfi útlendings úr gildi. Óafgreiddum umsóknum um dvalarleyfi skal þá vísað frá. Athygli er vakin á því að samkvæmt 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga er samkvæmt umsókn heimilt að fella endurkomubann úr gildi hafi aðstæður breyst frá því að ákvörðun um brottvísun var tekin. Þegar sérstaklega stendur á, að jafnaði þó ekki fyrr en að tveimur árum liðnum, má samkvæmt umsókn heimila þeim sem vísað hefur verið brott að heimsækja landið án þess þó að endurkomubann falli úr gildi. Þá er athygli kæranda jafnframt vakin á því að tímabilið sem kæranda er bönnuð endurkoma til landsins hefst við framkvæmd brottvísunar, sbr. 4. mgr. 101. gr. laganna.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
Endurkomubann kæranda skal vera þrjú ár.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
The appellant‘s re-entry ban shall be three years.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir