4. september 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 378/2026

Hinn 4. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 378/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26030041

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. mars 2026 kærði karlmaður að nafni [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, ranglega dags. 16. febrúar 2026, sem tekin var 6. mars 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í fimm ár.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi en til vara krefst hann þess að endurkomubann verði fellt niður og að kæranda verði veittur frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Til þrautavara er þess krafist að endurkomubanni verði markaður skemmri tími.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með úrskurði kærunefndar nr. 351/2026, dags. 14. ágúst 2026, var ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. janúar 2026, um brottvísun og endurkomubann kæranda til Íslands í þrjú ár staðfest. Var það niðurstaða kærunefndar að ekki væri annað ráðið af gögnum málsins en að að kærandi hafi starfað hér á landi án atvinnuleyfis, sbr. 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga. Var því talið að brot kæranda gegn lögum um útlendinga væru alvarleg og því væru skilyrði til brottvísunar samkvæmt b-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Fyrri ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda, sem staðfest var með framangreindum úrskurði, var birt fyrir honum 9. janúar 2026 en þar var honum veittur sjö daga frestur til að yfirgefa landið og fara til heimaríkis eða annars ríkis hvar hann nýtur heimildar til dvalar. Samkvæmt gögnum málsins fór kærandi af landinu til Búdapest í Ungverjalandi 14. janúar 2026. Í færslu í skjáskoti úr málaskrá Útlendingastofnunar, dags. 16. janúar 2026, kemur fram að engar upplýsingar hafi borist frá kæranda um að hann hefði yfirgefið Schengen-svæðið eða farið til Danmerkur, hvar hann hefur heimild til dvalar. Í færslu í sömu málaskrá, dags. 20. janúar 2026, kemur fram að kærandi hafi verið skráður í endurkomubann til þriggja ára. Samkvæmt framlögðu brottfararspjaldi fór kærandi frá Ungverjalandi til Danmerkur 17. janúar 2026. Þrátt fyrir að kærandi hafi verið skráður í endurkomubann kom hann aftur hingað til lands 25. janúar 2026 frá Edinborg í Skotlandi.

Í skýrslu lögreglu, dags. 3. febrúar 2026, kemur fram að lögregla hafi haft afskipti af hópferðabifreið sem kærandi hafi ekið með tveimur farþegum. Kærandi kvaðst starfa sem umboðsmaður hjá dönsku ferðaþjónustufyrirtæki og að hann hafi haft samband við Vinnumálastofnun og fengið staðfest að hann hefði leyfi til að starfa hér á landi. Kærandi hafi vísað í samskipti sem hann hafi átt við Vinnumálastofnun sem að hans sögn hafi gefið honum leyfi til að starfa sem umboðsmaður danska ferðaþjónustufyrirtækisins. Kærandi hafi einnig vísað í útprentaða reglugerð velferðarráðuneytisins. Kærandi hafi eingöngu komið hingað í viðskiptaerindum og ætti tíma hjá lækni í Danmörku degi síðar og því mætti hann ekki missa af fluginu sínu til baka. Kærandi kvaðst búa hjá vini sínum meðan á dvölinni hér á landi stæði. Kærandi væri eigandi ferðaþjónustufyrirtækis og hafi komið hingað í vettvangsskoðun. Kærandi kvaðst vera búsettur í Danmörku. Kærandi hafi fengið hópferðabifreiðina í láni hjá nafngreindum félaga sínum. Kærandi kvaðst ekki þiggja greiðslu fyrir aksturinn en farþegarnir hafi einungis viljað koma með honum. Farþegar bifreiðarinnar hafi greint frá því að þau væru að greiða fyrir ferðina. Kærandi kvað félaga sinn hafa beðið hann um að sækja farþegana til að þau gætu ferðast saman.

Í samræmi við 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga var kæranda veittur þriggja daga frestur til að leggja fram skrifleg andmæli. Við birtingu ákvörðunar Útlendingastofnunar kvaðst kærandi ætla að leggja fram andmæli. Hinn 5. febrúar 2026 hafi andmæli kæranda borist Útlendingastofnun. Í ákvörðun Útlendingastofnunar, sem samkvæmt gögnum málsins var tekin 6. mars 2026, kemur fram að kæranda sé vísað brott frá Íslandi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og ákveðið endurkomubann til fimm ára, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Með ákvörðuninni var frestur til sjálfviljugrar heimfarar felldur niður samkvæmt e-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar var birt fyrir kæranda 6. mars 2026 og kærð til kærunefndar 12. mars 2026. Kæranda var 13. mars 2026 skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Hinn 15. mars 2026 barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum. Hinn sama dag lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefnd, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Kæranda var fylgt úr landi með heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra 10. mars 2026. Í ljósi þess að kærandi hefur verið fluttur úr landi er beiðni um frestun réttaráhrifa vísað frá.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé ríkisborgari Kína en hafi verið búsettur í Danmörku í 29 ár og sé handhafi gilds dansks dvalarleyfis. Kærandi sé eigandi og framkvæmdastjóri nafngreinds ferðaþjónustufyrirtækis þar í landi. Kærandi hafi komið til Íslands í desember 2025 og lögregla haft afskipti af honum og í kjölfarið hafi kæranda verið ákvarðað brottvísun og endurkomubann til þriggja ára á þeim forsendum að hann hafi starfað hér á landi án tilskilinna leyfa. Kæranda hafi verið gert að yfirgefa landið innan sjö daga. Kærandi hafi yfirgefið landið 14. janúar 2026 innan frestsins. Við brottför á Keflavíkurflugvelli hafi kærandi verið í fylgd lögreglumanns sem hafi fullvissað hann um að brottför hans yrði skráð og endurkomubannið tæki þar með ekki gildi. Kærandi hafi í góðri trú talið að hann hafi átt rétt á að sinna viðskiptaerindum hér á landi. Kærandi hafi tilkynnt komu sína og fyrirhuguð störf sem fulltrúi fyrirtækis til Vinnumálastofnun 20. janúar 2026 og fengið staðfestingu þess efnis.

Að mati kæranda sé niðurstaða Útlendingastofnunar efnislega röng þar sem stofnunin hafi látið hjá líða að rannsaka og beita viðeigandi undanþágum. Í d-lið 4. gr. reglugerðar um atvinnuréttindi útlendinga nr. 339/2005, komi fram undanþágur frá kröfu um atvinnuleyfi en fulltrúar í viðskiptaerindum falli þar undir. Kærandi hafi lagt fram gögn sem sýni fram á að hann sé framkvæmdastjóri fyrirtækis í Danmörku og hafi verið í viðskiptaerindum á vegum þess hér á landi. Kærandi hafi tilkynnt komu sína til Vinnumálastofnunar og fengið staðfestingu á móttöku. Stjórnvöldum hafi borið að meta þessi gögn heildstætt áður en gripið hafi verið til íþyngjandi viðurlaga og brottvísunar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telji að hann hafi verið hér á landi í lögmætum viðskiptaerindum samkvæmt 2. mgr. 23. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002. Kærandi sé með gilt dvalarleyfi í Danmörku og vísar til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji að Útlendingastofnun hafi virt framangreint ákvæði að vettugi. Ekki hafi farið fram áskorun um að hann skyldi yfirgefa landið og fara til Danmerkur, né hafi verið sýnt fram á að hann teldist ógn við allsherjarreglu. Brottvísun án slíkrar áskorunar til einstaklinga með dvalarleyfi innan Schengen-svæðisins sé ágalli sem leiði til ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar. Þá vísar kærandi til þess að b-liður 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga geri áskilnað um að brotið hafi verið alvarlega og margsinnis gegn ákvæðum laga um útlendinga. Kærandi hafi sýnt einbeittan vilja til að fylgja lögum og hann verið í góðri trú eftir samtal við lögreglu á Keflavíkurflugvelli 14. janúar 2026 að fyrra endurkomubann hafi verið fellt niður þar sem hann hafi yfirgefið landið innan veitts frests. Þá vísar kærandi til þess að fimm ára endurkomubann á Schengen-svæðið sé íþyngjandi úrræði. Kærandi vísar til 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Skráning á fimm ára endurkomubanni í Schengen-upplýsingakerfið og G-kerfi geti haft bein og afdrifarík áhrif á búsetu kæranda í Danmörku. Kærandi vísar til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og 102. gr. laga um útlendinga. Slík viðurlög kunni að svipta kæranda lífsviðurværi sínu og dvalarleyfi í öðru Evrópuríki.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem er án dvalarleyfis ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna, hefur af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum eða kemur sér hjá því að hlíta ákvörðun sem felur í sér að hann skuli yfirgefa landið. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að í b-lið felist heimild til að vísa útlendingi brott ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna. Hér undir myndu sem fyrr geta fallið fleiri en eitt brot gegn lögunum sem hvert fyrir sig teldist ekki alvarlegt.

Útlendingastofnun lagði til grundvallar að kærandi hafi starfað ólöglega hér á landi án tilskilinna atvinnu- og dvalarleyfa, sbr. 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga. Taldi stofnunin að upplýsingar frá lögreglu væru skýrar og afdráttarlausar um að kærandi hafi starfað hér á landi ólöglega án þess að afla sér tilskilinna réttinda og því væri um alvarlegt brot að ræða gegn lögum um útlendinga. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar að heimilt væri að brottvísa kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga þar sem hann hefði brotið alvarlega gegn ákvæðum laga um útlendinga og af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögum um útlendinga.

Málatilbúnaður kæranda hjá kærunefnd byggist á því að hann hafi lagt fram gögn sem sýni fram á að hann sé framkvæmdastjóri dansks fyrirtækis og hafi verið í viðskiptaerindum á vegum þess hér á landi, sbr. d-lið 1. mgr. 23. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Kærandi hafi tilkynnt komu sína til Vinnumálastofnunar og fengið staðfestingu á móttöku. Stjórnvöldum hafi borið að meta þessi gögn heildstætt áður en gripið hafi verið til íþyngjandi viðurlaga og brottvísunar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Í skýrslu lögreglu frá 4. febrúar 2026 kemur fram að kærandi hafi, daginn áður, verið stöðvaður við umferðareftirlit. Tveir farþegar hafi verið í hópferðabifreiðinni sem kærandi ók og í samtali lögreglu við farþegana kom í ljós að kærandi hefði sótt þá út á flugvöll. Farþegarnir hafi greitt þriðja aðila peningaupphæð fyrir sjö daga ferð um Ísland. Kærandi hafi framvísað dönsku ökuskírteini þar sem fram hafi komið að hann væri með B-réttindi en ekki réttindi til að aka farþegum gegn gjaldi. Í framburðarskýrslu lögreglu, dags. 3. febrúar 2024, kemur fram að kærandi hafi greint frá því hafa leyfi til að starfa hér á landi í viðskiptaerindum sem umboðsmaður dansks ferðaþjónustufyrirtækis síns hér á landi.

Samkvæmt 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga þarf útlendingur sem hyggst ráða sig til starfa hér á landi að hafa dvalarleyfi auk atvinnuleyfis þar sem það er áskilið í lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Kærandi er ekki með atvinnu- og dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga en kærandi sem handhafi dvalarleyfis í Danmörku er ekki áritunarskyldur hingað til lands og má því dvelja hér á landi í 90 daga á hverju 180 daga tímabili. Samkvæmt meginreglum laga um atvinnuréttindi útlendinga ber erlendum ríkisborgurum almennt að hafa atvinnuleyfi til starfa hér á landi en frá því eru undanþágur sem mælt er fyrir um í III. kafla laganna.

Í 1. mgr. 23. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er kveðið á um undanþágur frá kröfu um tímabundið atvinnuleyfi í allt að 90 daga á ári. Í d-lið ákvæðisins falla þar undir fulltrúar í viðskiptaerindum. Hópstjórar hafa verið felldir undir undanþáguákvæði vegna viðskiptaerinda en hlutverk hópstjóra sé einkum að fylgja hópnum til og frá landi og vera í forsvari, s.s. gagnvart leiðsögumanni og öðrum innlendum þjónustuaðilum. Í framburði kæranda í skýrslutöku hjá lögreglu kemur fram að kærandi hafi hvorki fylgt hópnum til Íslands né heldur verið í forsvari fyrir hópinn. Gögn málsins benda þvert á móti til þess að tilgangur komu kæranda hafi verið akstur ferðamanna hér á landi en kærandi hafi verið stöðvaður við akstur hópbifreiðar sem hann hafði auk þess ekki leyfi til að keyra. Samkvæmt framangreindu er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi sé undanþeginn því að hafa dvalar- og atvinnuleyfi til þess að starfa á Íslandi. Atvinnustarfsemi án viðhlítandi heimildar hefur neikvæð áhrif á aðilann sjálfan, þá sem kaupa af honum þjónustu, og íslenskt samfélag í heild. Slík háttsemi er til þess fallin að grafa undan íslenskum vinnumarkaði með hliðsjón af réttindum og réttaröryggi launþega. Þar að auki eru þjónustukaupendur í ótryggri stöðu og grafið er undan greiðslu skatta og annarra opinberra gjalda til ríkissjóðs.

Verður samkvæmt framanröktu ekki talið að undanþága d-liðar 1. mgr. 23. gr. laga um atvinnuréttindi, sem kærandi vísar til í greinargerð, eigi við í máli hans en hann hafi ekki sýnt fram á að vera fulltrúi í viðskiptaerindi hér á landi. Þá verður ekki fallist á að kærandi falli undir aðra liði 1. mgr. 23. gr. laganna og að kæranda hafi því verið skylt að afla sér viðeigandi atvinnuheimilda hafi hann ætlað að sinna störfum sínum hér á landi á lögmætan hátt. Þá verður ekki talið að d-liður 4. gr. reglugerðar um atvinnuréttindi útlendinga útlendinga eigi við í málinu en ákvæðið er sambærilegt d-lið 1. mgr. 23. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Jafnframt er ljóst að skjal frá Vinnumálastofnun sem kærandi sýndi lögreglu við skýrslutöku hafi ekki verið samþykki stofnunarinnar vegna tilkynningar kæranda um komu hans til landsins heldur sjálfvirk staðfesting á móttöku tilkynningarinnar. Því bera gögn málsins með sér að kærandi hafi haft vitneskju um að hann þyrfti að gera tilteknar ráðstafanir til að ferðast með hóp hér á landi. Þá hafi kærandi áður verið stöðvaður af lögreglu við akstur ferðamanna hér á landi og hlotið brottvísun og endurkomubann vegna þeirrar háttsemi, sbr. úrskurð kærunefndar nr. 351/2026. Ekki verður annað ráðið af gögnum málsins en að öll rök hnígi að því að kærandi hafi starfað hér á landi án atvinnuleyfis, sbr. 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til framangreinds teljast brot kæranda gegn lögum um útlendinga alvarleg og eru skilyrði til brottvísunar samkvæmt b-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga uppfyllt. Að virtum forsendum Útlendingastofnunar og gögnum málsins að öðru leyti er lagt til grundvallar að tilgangur með dvöl kæranda hér á landi hafi verið að stunda atvinnustarfsemi án þess að hafa atvinnuleyfi. Þá skal einnig tekið fram að dvalarleyfi þriðja ríkisborgara í öðru aðildarríki Schengen-samstarfsins veitir ekki sjálfkrafa rétt til atvinnuþátttöku á Íslandi.

Kærandi byggir á því að Útlendingastofnun hafi borið að skora á hann að yfirgefa landið með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Áréttað er að ákvæðið á aðeins við um þá sem brottvísað er á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laganna en ákvörðun um brottvísun kæranda byggir á b-lið 1. mgr. sömu greinar og á því ákvæði 3. mgr. 98. gr. ekki við í máli kæranda.

Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi eigi nánasta aðstandanda hér á landi í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga, sbr. 17. tölul. 3. gr. laganna. Í málatilbúnaði kæranda er vísað til þess að b-liður 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga geri áskilnað um að brotið hafi verið alvarlega og margsinnis gegn ákvæðum laga um útlendinga. Kærandi hafi sýnt einbeittan vilja til að fylgja lögum og hann verið í góðri trú eftir samtal við lögreglu á Keflavíkurflugvelli 14. janúar 2026 að endurkomubann hafi verið fellt niður þar sem hann hafi yfirgefið landið innan veitts frests. Þá telji kærandi að fimm ára endurkomubann á Schengen-svæðið sé íþyngjandi úrræði og vísar til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og 102. gr. laga um útlendinga. Líkt og að framan greinir hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að tilgangur komu kæranda hingað til lands hafi verið að stunda atvinnustarfsemi án þess að hafa atvinnuleyfi en ljóst er að þekkingarleysi á lögum landsins girðir ekki fyrir að kærandi hljóti brottvísun og endurkomubann til Íslands. Verður því ekki fallist á með kæranda að umrædd ráðstöfun sé í ósanngjörn og í andstöðu við meðalhóf. Þá eru tengsl kæranda við Ísland að öðru leyti ekki slík að brottvísun og endurkomubann feli í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi ákvæðisins. Ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda er í samræmi við lög og tilgangur hennar er að framfylgja lögmætum markmiðum laga um útlendinga. Stendur 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda.

Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Í ákvæðinu kemur fram að endurkomubann skuli að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Þó geti endurkomubann varað lengur en fimm ár þegar útlendingur telst ógn við öryggi ríkisins, almannaöryggi eða allsherjarreglu. Við ákvörðun um lengd endurkomubanns skuli litið til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda gert að sæta endurkomubanni til fimm ára með hliðsjón af alvarleika og fjölda brota kæranda. Með vísan til forsendna hinnar kærðu ákvörðunar og að teknu tilliti til atvika málsins er fimm ára endurkomubann kæranda staðfest.

Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Heimilt er að fella niður frest til sjálfviljugrar heimfarar sé útlendingi brottvísað á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr., sbr. e-lið 2. mgr. 104. gr. laganna.

Endurkomubann kæranda hófst þegar hann var færður úr landi 10. mars 2026, sbr. 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu verður hin kærða ákvörðun hvað varðar brottvísun kæranda frá landinu á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir