24. september 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 405/2026

Hinn 24. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 405/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26010113

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 27. janúar 2026 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Grikklands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í þrjú ár.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi. Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt frestur til sjálfviljugrar brottfarar í samræmi við 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til þrautavara krefst kærandi þess að endurkomubanninu verði markaður skemmri tími.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, EES-samningurinn, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsrar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (Sambandsborgaratilskipunin), auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands 4. maí 2025 og var skráður í Þjóðskrá Íslands 19. september 2025. Samkvæmt upplýsingum í staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra hefur kærandi aldrei greitt staðgreiðslu hér á landi. Í beiðni lögreglu til Útlendingastofnunar, dags. 3. október 2025, kemur fram að frá 9. júlí 2025 hafi kærandi verið sakborningur í fjórum málum hjá lögreglu sem feli í sér sjö brot í heildina. Mál kæranda snúi að vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna þar sem hann sé grunaður um sölu og dreifingu. Þar að auki séu mál sem snúi að banni við akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja sem og peningaþvætti. Við leit lögreglu í bifreið sem kærandi hafi haft umráð yfir hafi fundist töluvert magn kannabisefna í litlum smellulásapokum undir farþegasæti og í aftursæti hafi fundist hvítt óþekkt efni í sígarettupakka. Jafnframt hafi við húsleit fundist meint kannabisefni og töluvert magn peningaseðla. Kærandi hafi verið stöðvaður við akstur bifreiðar og munnvatnssýni sýnt jákvæða svörun fyrir kannabis. Þá er mat lögreglu að líklegt sé að kærandi verði sakfelldur fyrir þau refsiverðu brot sem til meðferðar séu hjá lögreglu og að kærandi sé líklegur til þess að halda áfram afbrotahegðun sinni hér á landi og ógni þar með grundvallarhagsmunum samfélagsins. Þá sé það mat lögreglu að brot kæranda séu framkvæmd af miklum ásetningi og að háttsemi hans gefi til kynna að hann muni fremja refsiverð brot á ný. Framferði kæranda feli í sér raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins til brottvísunar. Með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur í máli R-5509/2025, dags. 21. október 2025, voru skilyrði fyrir tilkynningarskyldu kæranda talin uppfyllt og tekið fram að rökstuddur grunur væri um að kærandi hafi framið brot sem geti varðað meira en sex mánaða fangelsisvist. Í kjölfar beiðni lögreglu sendi Útlendingastofnun kæranda tilkynningu um hugsanlega brottvísun, dags. 15. október 2025, þar sem fram kom að stofnunin hefði til skoðunar hvort skilyrði 1. sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga væru uppfyllt í málinu. Var kæranda veittur þriggja daga frestur til að leggja fram andmæli vegna málsins, sbr. 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi lagði fram greinargerð 23. október 2025. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. nóvember 2025, var kæranda vísað brott frá Íslandi á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga og honum ákvarðað endurkomubann til landsins í þrjú ár, sbr. 1. mgr. 96. gr. sömu laga. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga stæði ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda. Kærandi lagði fram beiðni um endurupptöku á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga 12. nóvember 2025 þar sem ekki hefði verið tekin afstaða til greinargerðar kæranda sem hafði borist stofnuninni 23. október 2025. Var mál kæranda endurupptekið sama dag og málið tekið til meðferðar að nýju hjá Útlendingastofnun. Ný ákvörðun, dags. 27. nóvember 2025, var birt fyrir kæranda 27. janúar 2026.

Hinn 27. janúar 2026 var ákvörðunin kærð til kærunefndar útlendingamála. Hinn 5. febrúar 2026 lagði kærandi fram greinargerð vegna málsins.

Í kæru sinni til kærunefndar gerði kærandi kröfu um frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar með vísan til 2. mgr. 29. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við ákvæði 1. mgr. 103. gr. laga um útlendinga frestaði kæra framkvæmd ákvörðunarinnar. Með vísan til þess er þeirri kröfu kæranda vísað frá.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda eru málavextir raktir í samræmi við framangreinda yfirferð. Kærandi fjallar um 95. gr. laga um útlendinga, en ákvæðið eigi sér fyrirmynd og stoð í 27. gr. tilskipun Evrópusambandsins nr. 38/2004/EB. Kærandi vísar til þess að Eftirlitsstofnun EFTA hafi kveðið á um að brottvísun EES- eða EFTA-borgara á grundvelli upplýsinga um fyrri refsidóma komi aðeins til álita ef þær aðstæður sem leitt hafi til refsidóms gefi til kynna að framferði viðkomandi ógni almannaöryggi. Ekki sé nægjanlegt að útlendingur hafi gerst sekur um einhvers konar lögbrot heldur verði þeir hagsmunir sem hann ógni að teljast til helstu hagsmuna þjóðfélagsins. Evrópudómstóllinn hafi slegið því föstu í máli Régina gegn Pierre Couchereau í máli C-30/77 frá 27. október 1977, að fyrri sakfellingar geti ekki verið sjálfstæður eða sjálfvirkur grundvöllur takmarkana á frjálsri för vegna ógnar við allsherjarreglu. Beita verði ströngum mælikvarða til þess að skilyrði um allsherjarreglu og almannaöryggi samræmist EES-rétti. Gæta verði meðalhófs í að takmarka ferðafrelsi og túlka skuli frávik frá ferðafrelsi einstaklinga með þröngum hætti, sbr. dóm EFTA-dómstólsins í máli Jann Anfinn Wahl gegn íslenska ríkinu nr. E-15/12 frá 2013. Kærandi mótmæli túlkun Útlendingastofnunar um að skilyrði 95. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt. Kærandi telji ákvörðun Útlendingastofnunar ganga gegn sakleysisreglunni, sbr. 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þrátt fyrir að fordæmi séu fyrir því í réttarframkvæmd að litið sé til ólokinna mála, sé sú heimild þröng og bundin ströngum skilyrðum. Kærunefnd útlendingamála og dómstólar hafi lagt til grundvallar að heimilt sé að líta til ólokinna mála í þeim tilgangi að meta hvort viðkomandi muni fremja afbrot á ný þó án þess að sé tekin afstaða til sektar. Kærandi vísar til dóms Landsréttar nr. 419/2022 og úrskurðar kærunefndar í máli nr. 175/2025. Þegar mat á raunverulegri og yfirvofandi ógn byggi á ólokinni rannsókn sé yfirleitt horft til þess hvort ítrekuð afskipti lögreglu eða hegðunarmynstur bendi til áframhaldandi brotahegðunar af hálfu viðkomandi. Ekki sé vísað til slíks hegðunarmynsturs í hinni kærðu ákvörðun heldur byggt á fjórum ótilgreindum og óloknum málum lögreglu. Að mati kærandi uppfylli slíkt ekki kröfur 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga um raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn. Kærandi gerir jafnframt athugasemd við að tveir mánuðir hafi liðið frá því að hin kærða ákvörðun hafi verið tekin og þar til hún hafi verið birt sem gangi þvert gegn meginforsendu ákvörðunarinnar að af kæranda stafi raunveruleg, yfirvofandi og nægilega alvarleg ógn. Kærandi vísar til 1. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga í þessu samhengi. Kærandi telji hina kærðu ákvörðun vera ósamrýmanlega alþjóðlegum skuldbindingum sem á íslenska ríkinu hvíli samkvæmt EES-samningum. Rétturinn til frjálsrar farar sé ein af grunnstoðum EES-samstarfsins og öll frávik frá þeim rétti beri að túlka þröngt. Hin kærða ákvörðun standist ekki kröfur sem EES-réttur geri til takmörkunar á þessum grundvallarrétti og sé andstæð 12. gr. stjórnsýslulaga, þar sem beiting jafn íþyngjandi ráðstöfunar á grundvelli ósannaðrar háttsemi gangi lengra en nauðsynlegt sé til að vernda grundvallarhagsmuni samfélagsins.

Staða kæranda sem EES-borgara veiti honum réttmætar væntingar að njóta grundvallarréttinda sem felist í frjálsri för og dvöl á Evrópska efnahagssvæðinu. Framangreind ákvörðun gangi gegn þessum væntingum kæranda og hann hafi átt réttmætar væntingar til þess að fá tækifæri til að yfirgefa landið sjálfviljugur og þar með komast hjá endurkomubanni. Kærandi vísar til þess að hin kærða ákvörðun sé haldin efnisannmarka vegna þess að stofnunin hafi vanrækt að taka afstöðu til 104. gr. laga um útlendinga um frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Þessi frestur sé áréttaður í 1. málsl. 3. mgr. 101. gr. laganna. Með því að líta fram hjá þessu ákvæði byggi hin kærða ákvörðun á röngum lagagrundvelli sem brjóti í bága við lögmætisregluna og því sé ákvörðunin ógildanleg. Komist kærunefnd að þeirri niðurstöðu að annmarkinn leiði ekki til ógildingar krefst kærandi þess til vara að hinni kærðu ákvörðun verði a.m.k. breytt á þann veg að kærandi fái hæfilegan frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

Til þrautavara krefst kærandi þess að endurkomubanni verði markaður skemmri tími með vísan til 12. gr. stjórnsýslulaga um meðalhóf. Í máli kæranda sé þriggja ára endurkomubann byggt á mati lögreglu sem reist sé á grun en ekki sakfellingu fyrir refsiverðan verknað. Kærandi hafi engan sakaferil hér á landi og rannsókn lögreglu hafi engum sönnunargögnum skilað sem tengi hann með óyggjandi hætti við þau brot sem hann sé grunaður um. Kærandi vísar til þess að í framkvæmd stjórnvalda og dómstóla séu lengri endurkomubönn að jafnaði aðeins staðfest þegar fyrir liggi alvarlegur og ítrekaður brotaferill sem gefi vísbendingu um hættu á frekari afbrotum, en slíkt sé ekki uppi í máli kæranda þar sem meint aðkoma hans sé ósönnuð. Með hliðsjón af þessu sé ákvörðun um þriggja ára endurkomubann úr hófi og ekki í samræmi við atvik málsins. Kærandi telji tveggja ára endurkomubann sé betur fallið að aðstæðum hans.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í samræmi við 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, hefur tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna verið tekin upp í íslenskan rétt, sbr. m.a. XI. kafla laga um útlendinga sem felur í sér sérreglur um útlendinga sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

Í 95. gr. laga um útlendinga er fjallað um brottvísun EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans. Samkvæmt 1. mgr. greinarinnar er heimilt að vísa EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans úr landi ef það er nauðsynlegt með skírskotun til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Í 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga segir að brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. sé heimil ef framferði viðkomandi feli í sér raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins. Ákvörðun um brottvísun skuli ekki eingöngu byggjast á almennum forvarnarforsendum. Ef viðkomandi hafi verið dæmdur til refsingar eða sérstakar ráðstafanir ákvarðaðar, sé brottvísun af þessari ástæðu því aðeins heimil, að um sé að ræða háttsemi sem geti gefið til kynna að viðkomandi muni fremja refsivert brot á ný. Fyrri refsilagabrot nægi ekki ein og sér til þess að brottvísun sé beitt.

Hugtökin allsherjarregla og almannaöryggi eru ekki skilgreind nánar í íslenskum lögum. Í 27. gr. sambandsborgaratilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38, kemur fram að aðildarríki geti takmarkað réttinn til frjálsrar farar og dvalar á grundvelli allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Ráðstafanir sem gerðar eru á grundvelli allsherjarreglu og almannaöryggis skulu vera í samræmi við meðalhóf og eingöngu byggðar á framferði viðkomandi einstaklings og mati á því hvort hans persónulega hegðun feli í sér raunverulega og nægilega alvarlega ógn gegn grundvallarhagsmunum samfélagsins. Röksemdirnar skulu ekki byggðar á almennum forvörnum. Í leiðbeiningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um túlkun sambandsborgaratilskipunarinnar frá árinu 2009 kemur fram að almannaöryggi nái til innra og ytra öryggis ríkis og allsherjarregla komi í veg fyrir að unnið sé gegn þjóðskipulaginu. Þá kemur fram að skýra þurfi framangreind skilyrði þröngt.

Við túlkun á framangreindum lagaákvæðum er unnt að líta til dóma Evrópudómstólsins á þessu sviði, sbr. 6. gr. EES-samningsins og 2. mgr. 3. gr. samnings milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Hefur Evrópudómstóllinn í dómaframkvæmd sinni vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Má sjá slíka nálgun m.a. í dómum dómstólsins í málum nr. C-41/74 (Van Duyn), frá 4. desember 1974 og nr. C-33/07 frá 10. júlí 2008, þar sem m.a. kemur fram að aðildarríki hafi heimild til að meta hvenær takmarka skuli réttinn til frjálsrar farar á grundvelli allsherjarreglu en slíkar undantekningar beri að túlka þröngt. Er því ljóst að við túlkun og beitingu framangreindra ákvæða um allsherjarreglu og almannaöryggi er stjórnvöldum falið svigrúm til að skilgreina nánar hvenær aðstæður eru slíkar að nauðsynlegt sé að takmarka frjálsa för til verndar allsherjarreglu og almannaöryggis. Slíkt mat verði þó ávallt að hvíla á málefnalegum grundvelli og taka mið af inntaki skuldbindinga íslenska ríkisins.

Líkt og kemur fram í málsatvikalýsingu kom kærandi hingað til lands 4. maí 2025 og skráði dvöl sína hér á landi 19. september 2025 í þjóðskrá Íslands. Meðal gagna málsins eru skýrslur lögreglu og yfirlit yfir þau brot sem kærandi er grunaður um og eru til meðferðar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Frá 9. júlí 2025 hefur kærandi verið skráður sakborningur í fjórum málum sem feli í sér sjö brot í heildina sem snúi að vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna þar sem hann er grunaður um sölu og dreifingu. Þar að auki séu málseiningar sem snúi að banni við akstri undir áhrifum fíkniefna og lyfja sem og peningaþvætti. Það sé mat lögreglu að kærandi verði sakfelldur fyrir þau refsibrot sem til meðferðar séu hjá lögreglu. Jafnframt sé það mat lögreglu að kærandi sé líklegur til þess að halda áfram afbrotahegðun sinni hér á landi og ógni þar með allsherjarreglu samfélagsins. Það sé einnig mat lögreglu að brot kæranda séu framkvæmd af miklum ásetningi og háttsemi kæranda gefi til kynna að hann muni fremja refsivert brot á ný. Framferði kæranda feli því í sér raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins til brottvísunar. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-5509/2025, dags. 21. október 2025, var staðfest að skilyrði fyrir tilkynningarskyldu kæranda væru uppfyllt og sýnt hafi verið fram á að rökstuddur grunur væri um að kærandi hefði framið brot sem gætu varðað meira en sex ára fangelsisvist.

Einstök refsiverð afbrot fela ekki sjálfkrafa í sér alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins, sbr. til hliðsjónar niðurlag 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Þvert á móti þarf mat stjórnvalda á 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga að endurspegla háttsemi og brotastarfsemi málsaðila í víðara samhengi. Í því ber m.a. að líta til tíðni brota og lengdar brotaferils til samræmis við dvalarleyfi. Að auki hefur, í úrskurðaframkvæmd kærunefndar, verið litið til málaskrár lögreglu sem vísbendingu um hegðunarmynstur brotamanna, til viðbótar við önnur gögn, sbr. til hliðsjónar dóm Landsréttar nr. 419/2022, dags. 1. desember 2023. Þá hefur einkum verið litið til þess hvort að hegðun og framferði viðkomandi sé með þeim hætti að lögregla hafi þurft að hafa ítrekuð afskipti af þeim.

Við mat á því hvað fellur undir allsherjarreglu eða almannaöryggi í skilningi framangreinds ákvæðis er unnt að líta til túlkunar á sviði Evrópuréttar á hugtökunum og sjónarmiða við beitingu þeirra í framkvæmd. Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að fíkniefnabrot, einkum sem liður í skipulagðri glæpastarfsemi, geti réttlætt brottvísun á grundvelli almannaöryggis og almannahagsmuna, sbr. m.a. dóm Evrópudómstólsins nr. C-145/09 Tsakouridis. Lagt er til grundvallar í framangreindum dómi að einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram sem taki mið af eðli brots, hvort viðkomandi sé líklegur til að brjóta endurtekið af sér, auk tengsla við landið. Þá skuli taka mið af grundvallarréttindum einstaklings, einkum réttinum til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu, sbr. 7. gr. mannréttindasáttmála Evrópu (m.a. 52. og 53. mgr. dómsins). Er til þess að líta að löggjafinn hér á landi hefur tekið skýra afstöðu gegn sölu fíkniefna með lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 auk almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. einkum kafla XVIII um brot sem hafa í för með sér almannahættu.

Við mat á því hvort framferði kæranda sé þess eðlis að skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt, sbr. 27. gr. Sambandsborgaratilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38, verður einkum að líta til þess að kærandi er sakborningur í málum þar sem rökstuddur grunur er um að hann sé viðriðinn sölu og dreifingu fíkniefna og þá hafi hann verið stöðvaður við akstur undir áhrifum slíkra efna. Samkvæmt fyrirliggjandi skýrslu lögreglu er það mat hennar að kærandi sé líklegur til að halda áfram afbrotahegðun sinni hér á landi og ógni þar með allsherjarreglu samfélagsins. Brot hans séu framin af miklum ásetningi og háttsemi hans gefi til kynna að hann muni fremja refsivert brot á ný, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir dómur um meint brot kæranda er um að ræða rökstuddan grun lögreglu og rannsókn lögreglu og gögn málsins benda til þess að kærandi hafi dvalið hér á landi í þeim tilgangi einum að stunda sölu og dreifingu fíkniefna.

Þá beinast brot kæranda að grundvallarhagsmunum íslensks samfélags í skilningi 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga, þ.e. meðal annars þeirra hagsmuna að vernda einstaklinga og þjóðfélagið í heild gegn þeirri skaðsemi sem ávana- og fíkniefni hafa verið talin fela í sér. Líkt og að framan greinir hefur löggjafinn hér á landi reynt að stemma stigu við dreifingu, sölu og notkun á slíkum efnum með refsikenndum viðurlögum líkt og ákvæði almennra hegningarlaga og laga um ávana- og fíkniefni bera með sér. Kærandi hefur þá verið stöðvaður við akstur undir áhrifum fíkniefna. Akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna eru almannahættubrot. Sérstök hætta er af slíkum brotum, sem eru ítrekuð og yfir langt tímabil, enda felst í háttseminni mikið skeytingarleysi og hætta gegn lífi og velferð annarra.

Þótt framangreind háttsemi kæranda hafi falið í sér alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins verður einnig að leggja mat á það hvort af háttsemi kæranda stafi raunveruleg og yfirvofandi ógn og hvort um sé að ræða háttsemi sem geti gefið til kynna að hann muni fremja refsiverð brot á ný. Í þessu sambandi er til þess að líta að markmið frjálsrar farar og dvalar er að auðvelda borgurum sambandsins að sinna efnahagslegri virkni í öðrum aðildarríkjum. Rétturinn er ekki án takmarkana og grundvallast einkum á því að auðvelda einstaklingum að stunda atvinnu, sjálfstæðan rekstur, sinna þjónustu eða stunda nám innan aðildarríkjanna. Samkvæmt framburði kæranda hafi hann komið hingað til lands sem ferðamaður en kvaðst hafa áhuga á því að dvelja hér á landi eins lengi og hann hefði fjármagn til. Þá greindi kærandi jafnframt frá því að hann vildi finna sér vinnu og búa hér á landi. Kærandi skráði dvöl sína hjá Þjóðskrá um fjórum mánuðum eftir að hann kom hingað til lands sem er ekki í samræmi við 1. mgr. 89. gr. laga um útlendinga, en EES- eða EFTA borgari sem dvelst lengur en þrjá mánuði hér á landi skal skrá sig innan þriggja mánaða. Kærandi hefur samkvæmt upplýsingum í staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra aldrei greitt staðgreiðslu hér á landi og af frásögn hans verður ekki ráðið að hann sé skráður í viðurkennda námsstofnun. Fyrir liggur að lögregla hefur reglulega haft afskipti af kæranda á þeim skamma tíma sem hann hefur dvalið hér á landi. Verður af framangreindu að ætla að tilgangur dvalar kæranda hér á landi sé sá að stunda ólöglega brotastarfsemi, s.s. sölu og dreifingu fíkniefna.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að framferði kæranda feli í sér raunverulega og yfirvofandi ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins í skilningi 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga og er það niðurstaða kærunefndar að skilyrðum fyrir brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga sé fullnægt.

Í 97. gr. laga um útlendinga eru ákvæði um takmarkanir á heimild til brottvísunar skv. 95. gr. laga um útlendinga. Í a-lið 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að brottvísun skv. ákvæði 95. gr. skuli ekki ákveða ef viðkomandi hefur rétt til ótímabundinnar dvalar skv. 87. gr. nema alvarlegar ástæður liggi til þess á grundvelli allsherjarreglu eða almannaöryggis. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi skráður í þjóðskrá Íslands 19. september 2025. Ákvæði 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga eiga því ekki við í máli kæranda.

Í 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga koma fram takmarkanir á heimild til brottvísunar samkvæmt 95. gr. laganna. Í ákvæðinu segir að brottvísun skuli ekki ákveða ef það, með hliðsjón af málsatvikum og tengslum EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans við landið, myndi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart viðkomandi eða nánustu aðstandendum hans. Við matið skuli m.a. taka mið af lengd dvalar á landinu, aldri, heilsufari, félagslegri og menningarlegri aðlögun, fjölskyldu og fjárhagsaðstæðum og tengslum viðkomandi við heimaland sitt, sbr. 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga.

Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi hafi myndað atvinnutengsl við landið. Gögn málsins benda jafnframt ekki til þess að kærandi eigi fjölskyldutengsl hér eða hafi önnur slík félagsleg eða menningarleg tengsl við landið að þau leiði til þess að um ósanngjarna ráðstöfum sé að ræða. Með hliðsjón af 23. og 24. gr. formálsorða Sambandsborgaratilskipunarinnar skal vernd gegn brottvísunum vera ríkari með hliðsjón af aðlögun einstaklingsins að samfélagi viðkomandi ríkis. Gögn málsins bera með sér að slík aðlögun hafi ekki átt sér stað í tilviki kæranda. Þvert á móti benda gögn til þess að kærandi hafi dvalið hér á landi í þeim tilgangi að stunda ólögmæta starfsemi, sem stríðir gegn markmiðum tilskipunarinnar um frjálsa för einstaklinga. Að virtum gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að tengsl kæranda við landið séu ekki slík að í þeim felist ósanngjörn ráðstöfun gagnvart kæranda í skilningi 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga um útlendinga felur brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. í sér bann við komu til landsins síðar. Í sama ákvæði er kveðið á um að endurkomubann geti verið varanlegt eða tímabundið en þó ekki styttra en tvö ár. Við mat á því skuli sérstaklega litið til atriða sem talin eru upp í 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda bönnuð endurkoma til Íslands í þrjú ár og telst sú ákvörðun vera hófstillt. Að málsatvikum virtum og með hliðsjón af tíðni brota kæranda og lítilli aðlögun að íslensku samfélagi verður endurkomubannið staðfest.

Athygli er vakin á því að samkvæmt 2. mgr. 96. gr. laga um útlendinga er heimilt að fella endurkomubann úr gildi ef nýjar aðstæður mæla með því og rökstutt er að orðið hafi verulegar breytingar á þeim aðstæðum sem réttlættu ákvörðun um endurkomubann. Endurkomubann kæranda tók gildi þegar hann yfirgaf landið.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hin kærða ákvörðun sé haldin efnisannmarka vegna þess að stofnunin hafi vanrækt að taka afstöðu til 104. gr. laga um útlendinga um frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Kærandi telur að með því að líta fram hjá þessu ákvæði byggi hin kærða ákvörðun á röngum lagagrundvelli sem brjóti í bága við lögmætisregluna og sé því haldin ógildingarannmarka. Kærandi krefst þess að honum verði veittur hæfilegur frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt c-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar slíkt telst nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Fallist er á með kæranda að það hafi ekki verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti að láðst hafi að taka afstöðu til framangreinds í hinni kærðu ákvörðun. Þó verður ekki fallist á með honum að annmarkinn sé slíkur að leiði til ógildingar ákvörðunarinnar. Er kröfu kæranda þess efnis hafnað auk beiðni hans um að honum verði veittur frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

Að teknu tilliti til málsatvika og þar sem komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að brottvísa beri kæranda á grundvelli 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til c-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir