12. febrúar 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 79/2026

Hinn 12. febrúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 79/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25100082

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. október 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Víetnam (hér eftir kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. september 2025, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í þrjú ár.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi en til vara krefst hann þess að endurkomubanninu verði markaður skemmri tími.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefna vegabréfsáritun til Noregs 30. október 2024 sem heimilaði kæranda 90 daga dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 1. janúar 2025 til 1. janúar 2026. Kærandi hefur ekki haft dvalarleyfi á Íslandi. Samkvæmt gögnum málsins hafði lögregla afskipti af lítilli hópbifreið 21. september 2025 við umferðareftirlit. Greindu tveir farþegana frá því að þeir væru í níu daga ljósmyndaferð um Ísland og að þeir hefðu bókað ferðina á samfélagsmiðlum í gegnum kæranda. Af þeim sökum var kærandi færður í lögreglubifreið til viðræðna. Kærandi greindi frá því að vera atvinnuljósmyndari og vera staddur í þeim tilgangi á Íslandi að mynda norðurljós. Hann hefði auglýst ferðina á netinu og boðið fólki að koma með í þeim tilgangi að deila með sér kostnaði. Kærandi kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir því að atvinnuleyfi væri nauðsynlegt til að stunda ljósmyndastörf á Íslandi. Aðspurður um hlutverk sitt innan hópsins kvaðst hann hafa skipulagt ferðina og bókað allt sem til þyrfti en að greiðslur farþeganna væru einungis til að standa undir sameiginlegum kostnaði, s.s. vegna gistingar, matar og aksturs. Kærandi hefði ekki fengið laun greidd af hendi farþeganna auk þess sem bílstjóri hópbifreiðarinnar hefði ekki fengið greidd laun, aðeins uppihald. Aðspurður neitaði kærandi að starfa hér á landi án atvinnuleyfis eða að hann stæði fyrir ferðum til farþegaflutninga án rekstrarleyfis. Við rannsókn lögreglu á vefsíðu á vegum kæranda mátti sjá auglýstar ferðir til margra Evrópuríkja, þ. á m. norðurljósaferðir til Íslands á nánar tilteknum dagsetningum. Í auglýsingunni mátti sjá leiðarlýsingu auk auglýsingar á ferðinni en þar kom m.a. fram verð ferðarinnar og að innifalið í verðinu væri sæti í níu sæta bifreið með einkabílstjóra og leiðsögumanni sem talaði víetnömsku og væri af víetnömskum uppruna. Þá hafi vefsíðu kæranda verið skyndilega lokað meðan á rannsókn lögreglu stóð. Kærandi var færður á lögreglustöð og í framburðarskýrslu, dags. 22. september 2025, kemur m.a. fram að hann hefði ekki haft dvalar- eða atvinnuleyfi í Evrópu, hann hafi komið til Íslands 21. september 2025 og hugðist dvelja hér á landi í um tvær vikur. Hann hafi ekki bókað flug úr landi en hygðist gera það þegar hann hefði tekið góða norðurljósamynd. Kærandi var beðinn að útskýra myndir á framangreindri vefsíðu hans þar sem sjá mátti ljósmyndir af honum með ferðahópi frá árinu áður. Kærandi ítrekaði fyrri framburð um að hlutverk hans innan ferðahópsins hafi einungis verið að bóka það sem þyrfti fyrir hönd allra og að hann fengi ekki laun greidd frá þeim. Kæranda var birt tilkynning um hugsanlega brottvísun 21. september 2025. Í tilkynningunni hakaði kærandi í reit um að hann hygðist leggja fram skrifleg andmæli og liggja þau fyrir meðal gagna málsins, ódagsett.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. september 2025, var kæranda brottvísað á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og ákveðið endurkomubann til þriggja ára, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Með ákvörðuninni var frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar felldur niður með vísan til e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar var birt fyrir kæranda 2. október 2025 og kærð til kærunefndar 14. október 2025. Hinn 21. október 2025 var kæranda skipaður talsmaður í samræmi við 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Hinn 5. nóvember 2025 barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum. Kæranda var fylgt úr landi með heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra 23. október 2025.

III. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir á því að hlutverk hans í umræddum ferðahópi hafi verið að skipuleggja ferðina og bóka allt henni tengt en að sá kostnaður sem farþegarnir hafi innt af hendi væri eingöngu til að standa straum af kostnaði vegna ferðarinnar. Þá hafi kærandi ekki fengið greidd laun fyrir starfið. Jafnframt hafi kærandi fengið nafngreindan eiginmann konu sem hann þekki til að aka hópnum um landið en sá sé íslenskur atvinnubílstjóri. Viðkomandi hafi forfallast og því hafi kærandi leigt bifreiðina sem hann hafi verið stoppaður á af lögreglu.

Kærandi vísar til þess að tilgangur ferðarinnar hafi verið að skoða landið og taka ljósmyndir. Þá hafi tilgangur vefsíðu á vegum kæranda eingöngu verið að fá fólk með sér í ferðina og lækka eigin kostnað. Kærandi hafi tekið við greiðslum frá fólki fyrir mat, gistingu og akstur og hafi því sjálfur ekki fengið greitt fyrir ferðina. Kærandi hafi eingöngu verið á ferðalagi hér með hópi fólks og þar sem hann hafi áður komið til Íslands hafi það komið í hans hlut að velja gististaði, veitingastaði og hvar skyldi ljósmynda. Um hafi verið að ræða endurgjaldslausa ráðgjöf og því ekki um eiginlega leiðsögn að ræða. Kærandi hafi ekki haft ásetning til að brjóta gegn ákvæðum laga um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002. Kærandi hafi einungis komið hingað til lands sem ferðamaður og því sé ekki grundvöllur til að brottvísa honum á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar þá til meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga, við töku íþyngjandi ákvarðana. Stjórnvöldum hafi verið í lófa lagið að bjóða kæranda að breyta ferðaáætlun sinni og yfirgefa landið af sjálfsdáðum frekar en að grípa til þess ráðs að vísa honum úr landi. Með vísan til framangreinds krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi.

Til vara krefst kærandi þess að endurkomubanni verði markaður skemmri tími. Ekki sé rökstutt í hinni kærðu ákvörðun hvers vegna kæranda hafi verið gert að sæta þriggja ára endurkomubanni nema með vísan til alvarleika brota hans og til að tryggja raunhæf varnaðaráhrif. Kærandi vísar til úrskurða kærunefndar í málum nr. 1269/2024 frá 18. desember 2024 og nr. 578/2025 frá 14. ágúst 2025 en þar hafi nefndin stytt endurkomubann úr þremur árum niður í tvö. Kærandi vísar til meginreglna stjórnsýsluréttar, sbr. 11. og 12. gr. stjórnsýslulaga, í þessu samhengi og telur að endurkomubann skuli ekki vera lengra en tvö ár.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem er án dvalarleyfis ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna, hefur af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum eða kemur sér hjá því að hlíta ákvörðun sem felur í sér að hann skuli yfirgefa landið. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að í b-lið felist heimild til að vísa útlendingi brott ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna. Hér undir myndu sem fyrr geta fallið fleiri en eitt brot gegn lögunum sem hvert fyrir sig teldist ekki alvarlegt.

Útlendingastofnun lagði til grundvallar að kærandi hafi starfað ólöglega hér á landi án tilskilinna atvinnu- og dvalarleyfa, sbr. 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi verið stöðvaður með hóp ferðamanna í skipulagðri ferð sem hann hafi staðið að hér á landi í atvinnuskyni. Að mati stofnunarinnar hafi það verið hafið yfir allan vafa að kærandi hafi starfað hér ólöglega án þess að afla sér tilskilinna atvinnu- og dvalarleyfa og að um alvarlegt brot sé að ræða gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá hafi útskýringar kæranda um að hann hafi komið hingað til lands sem ljósmyndari til að mynda norðurljós ekki verið taldar trúverðugar þegar gögn málsins og framburður vitna sé virtur í heild. Með framburði sínum hafi kæranda í reynd játað atvinnustarfsemi hér á landi og jafnframt orðið uppvís að því að hafa veitt lögreglu efnislega rangar upplýsingar. Að framangreindu virtu var það mat Útlendingastofnunar að heimilt væri að brottvísa kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga þar sem hann hefði brotið alvarlega gegn ákvæðum laga um útlendinga og af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögum um útlendinga.

Málatilbúnaður kæranda byggist á því að tilgangur ferðarinnar hafi verið að skoða landið og taka ljósmyndir. Þá hafi vefsíða á vegum kæranda eingöngu haft það markmið að fá fólk með sér í ferðina og lækka eigin kostnað. Kærandi hafi tekið við greiðslum frá fólki fyrir mat, gistingu og akstur en hafi sjálfur ekki fengið greitt fyrir ferðina. Um hafi verið að ræða endurgjaldslausa ráðgjöf og því ekki um eiginlega leiðsögn að ræða. Kærandi hafi ekki haft ásetning til að brjóta gegn ákvæðum laga um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga.

Samkvæmt 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga þarf útlendingur sem hyggst ráða sig til starfa hér á landi að hafa dvalarleyfi auk atvinnuleyfis þar sem það er áskilið í lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Kærandi er ekki með atvinnu- og dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga en hann dvaldi hér á landi á grundvelli vegabréfsáritunar útgefinnar af norskum stjórnvöldum. Samkvæmt meginreglum laga um atvinnuréttindi útlendinga ber erlendum ríkisborgurum almennt að hafa atvinnuleyfi til starfa hér á landi en frá því eru undanþágur sem mælt er fyrir um í III. kafla laganna. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi sé undanþeginn því að hafa dvalar- og atvinnuleyfi til þess að starfa á Íslandi. Atvinnustarfsemi án viðhlítandi heimildar hefur neikvæð áhrif á aðilann sjálfan, þá sem kaupa af honum þjónustu, og íslenskt samfélag í heild. Slík háttsemi er til þess fallin að grafa undan íslenskum vinnumarkaði með hliðsjón af réttindum og réttaröryggi launþega. Þar að auki eru þjónustukaupendur í ótryggri stöðu og grafið er undan greiðslu skatta og annarra opinberra gjalda til ríkissjóðs. Að teknu tilliti til framangreinds teljast brot kæranda gegn lögum um útlendinga alvarleg og eru skilyrði til brottvísunar samkvæmt b-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga uppfyllt. Að virtum forsendum Útlendingastofnunar og gögnum málsins að öðru leyti er lagt til grundvallar að tilgangur með dvöl kæranda hér á landi hafi verið að stunda atvinnustarfsemi án þess að hafa atvinnuleyfi. Þá eru skýringar kæranda á tilhögun ferðarinnar ótrúverðugar.

Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi eigi nánasta aðstandanda hér á landi í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga, sbr. 17. tölul. 3. gr. laganna. Þá eru tengsl kæranda að öðru leyti ekki slík að brottvísun og endurkomubann feli í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi ákvæðisins. Ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda er í samræmi við lög og tilgangur hennar er að framfylgja lögmætum markmiðum laga um útlendinga. Stendur 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda.

Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Í ákvæðinu kemur fram að endurkomubann skuli að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Þó geti endurkomubann varað lengur en fimm ár þegar útlendingur telst ógn við öryggi ríkisins, almannaöryggi eða allsherjarreglu. Við ákvörðun um lengd endurkomubanns skuli litið til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda gert að sæta endurkomubanni til þriggja ára. Varakrafa kæranda lýtur að að styttingu endurkomubanns. Að virtum málsatvikum og úrskurðaframkvæmd kærunefndar er fallist á varakröfu kæranda og endurkomubann hans stytt í tvö ár.

Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt e-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar útlendingi er vísað úr landi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til málsatvika er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Er einnig litið til þess að endurkomubanni er m.a. bæði ætlað að hafa almenn og sérstök varnaðaráhrif gagnvart brotum á ákvæðum laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga hófst endurkomubann kæranda þegar hann var færður úr landi 23. október 2025.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu verður hin kærða ákvörðun hvað varðar brottvísun kæranda frá landinu á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og niðurfellingu frests til þess að yfirgefa landið sjálfviljugur staðfest. Endurkomubann kæranda skal vera tvö ár.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda er stytt í tvö ár.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant‘s entry ban is shortened to two years.

Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir