/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Umsókn um leyfi til að gera merkjalýsingar eða endurnýjun slíks leyfis

Leyfi til að gera merkjalýsingar hafa þeir einir sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra. Slíkt leyfi er gefið út til fimm ára í senn og krefst endurnýjunar. Skilyrði fyrir veitingu leyfis eru lögræði og búsforræði og að viðkomandi hafi setið námskeið og staðist próf sem sýnir fram á að þeir hafi staðgóða þekkingu á viðfangsefnum merkjalýsinga svo sem landmælingum, lögum um skráningu, merki og mat fasteigna, skipulagslögum, þinglýsingalögum, jarðalögum og annarri löggjöf er máli skiptir sem og sáttamiðlun.

Jafnframt skal sýnt fram á kunnáttu í að afla nauðsynlegra gagna og meta þau að gæðum sem og að beita gildandi útreikningsreglum og aðferðum við mælingar merkja og skráningu fasteigna samkvæmt fyrirmælum í reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024.

Umsókn um leyfi til gera merkjalýsingar skal fylgja:

Umsókn um endurnýjun leyfis til að gera merkjalýsingar skal fylgja:

Umsækjandi greiðir kostnað af útgáfu leyfis sem er 12.000 kr. Kostnaður vegna endurnýjunar leyfis er 2.200 kr.

Rafræn eyðublöð til að sækja um leyfi til að gera merkjalýsingar eða endurnýja slíkt leyfi eru á eyðublaðavef Stjórnarráðsins; minarsidur.stjr.is.

  1. Aðgangur að eyðublaðavefnum er með rafrænum skilríkjum.
  2. Umsækjendur velja síðan flipann Eyðublöð. Undir félags- og húsnæðismálaráðuneyti er viðeigandi umsóknareyðublað aðgengilegt.
  3. Athugið að eyðublaðið má vista meðan á vinnslu stendur en umsókn berst ekki ráðuneytinu fyrr en umsóknin hefur verið send.

Sjá einnig nánari leiðbeiningar um notkun eyðublaðavefsins

Efnisorð