04 desember 2001Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Framtíðarskipan opinbers matvælaeftirlits
Með minnisblaði dags. 26. nóvember 1999 um rannsóknir á Camphylobacter lagði umhverfisráðherra til við ríkisstjórnina að nefnd forsætisráðuneytisins um opinbera eftirlitsstarfsemi fengi það verkefni að skoða fyrirkomulag matvælaeftirlits í samráði við hlutaðeigandi ráðuneyti og gera tillögu um framtíðarskipan matvælaeftirlits hér á landi, sem miði að því að einfalda og bæta núverandi fyrirkomulag.