10 maí 1998

/

Heilbrigðisráðuneytið

Forgangsröðun í heilbrigðismálum: Niðurstöður nefndar um forgangsröðun

Á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins hefur á undanförnum misserum verið unnið mikið starf
á sviði stefnumótunar og áætlanagerðar í heilbrigðismálum. Má þar nefna mótun stefnu í upplýsingamálum
heilbrigðiskerfisins, uppbyggingu og þróun fjarlækninga, aðgerðir í gæðamálum, árangursstjórnun og vinnu
að breyttri skipan sjúkrahúsmála.