Skýrsla nefndar um flutningskostnað
Undanfarin ár hafa átt sér stað miklar breytingar á sviði flutninga á Íslandi. Breytingar þessar felast m.a. í fækkun viðkomustaða strandferðaskipa, mikilli aukningu flutninga með vöruflutningabifreiðum og sameiningu og stækkun fyrirtækja í þessari grein.