27 mars 2007

/

Heilbrigðisráðuneytið

Staða og endurskoðun meginmarkmiða heilbrigðisáætlunar til ársins 2010

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur gefið út skýrslu um stöðu og endurskoðun á markmiðum heilbrigðisáætlunar til ársins 2010. Í henni er gerð grein fyrir hvernig gengið hefur að ná upphaflegum markmiðum og fjallað er um breytingar sem nauðsynlegt er að gera á áætluninni. Ennfremur hafa verið sett ný markmið er miða að því að draga úr offitu og ofþyngd, auk víðtækari markmiðssetningar í krabbameinsvörnum.