23 febrúar 2011
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Mótun Hönnunarstefnu Íslands - Kynningarfundur
Þann 25. febrúar mun iðnaðarráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti í félagi við Hönnunarmiðstöð Íslands ýta úr vör verkefninu mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland.

Þann 25. febrúar mun iðnaðarráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti í félagi við Hönnunarmiðstöð Íslands ýta úr vör verkefninu mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland. Á fundinum verður farið yfir aðdraganda verkefnisins og áherslur og gestum gefinn kostur að ræða verkefnið og koma fram með hugmyndir.
Kynningarfundur í Tjarnarbíói 12:00-13:15 föstudaginn 25. febrúar
- Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
- Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
- Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands
- Hjálmar Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands
Umræður, panell og fyrirspurnir úr sal.
- Fundarstjóri, Þórir Hrafnsson.
- Fundurinn er öllum opinn