15 mars 2016

/

Dómsmálaráðuneytið

Skýrsla starfshóps um framtíð Hegningarhússins við Skólavörðustíg

Komin er út skýrsla starfshóps innanríkisráðherra um framtíð Hegningarhússins við Skólavöðrustíg í Reykjavík. Meðal niðurstaðna er að forgangsverkefni sé að gera húsið upp þar sem það liggi undir skemmdum. Telur starfshópurinn að í húsinu ætti að vera fjölþætt menningarstarfsemi og þjónusta, svo sem sérhæfð verslunarstarfsemi og veitingarekstur.