25 júní 2018

/

Utanríkisráðuneytið

Forsætisráðuneytið

Stöðuskýrsla 2018 um framgang heimsmarkmiðanna á Íslandi

Verkefnastjórn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna ritaði skýrslu um stöðu Íslands gagnvart markmiðunum á innlendum og erlendum vettvangi. Í skýrslunni eru kortlögð helstu verkefni, áætlanir og áskoranir stjórnvalda gagnvart tilteknum markmiðum en á grunni þeirrar vinnu lagði verkefnastjórnin jafnframt fram forgangsmarkmið sem munu vísa stjórnvöldum veginn við innleiðingu markmiðanna næstu árin.

Stöðuskýrslan í heild sinni

Forgangsmarkmið ríkisstjórnarinnar við innleiðingu heimsmarkmiðanna, innanlands og í alþjóðasamstarfi