06 maí 2021

/

Utanríkisráðuneytið

Skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um framkvæmd EES-samningsins 2021

{image.Description}
Hvernig verða ESB-reglur að EES-reglum?

Árlega skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um framkvæmd EES-samningsins 2021 er flutt Alþingi 6. maí. Er þetta í annað sinn sem ráðherra fllytur Alþingi sérstaka skýrslu  um framkvæmd EES-samningsins.

Í skýrslunni er haldið áfram þar sem frá var horfið í skýrslu um framkvæmd EES-samningsins sem ráðherra lagði fram á síðastliðnu löggjafarþingi og gerð grein fyrir framkvæmd samningsins á síðari hluta ársins 2019 og á árinu 2020, auk þróunar mála á fyrstu mánuðum þessa árs, þar sem þess þykir þurfa.