27 júní 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu - 2. útgáfa, júní 2025
Landsáætlun um
útrýmingu á sauðfjárriðu - 2. útgáfa, júní 2025.
Helstu breytingar á milli 1. útgáfu og 2. útgáfu.
Í samræmi við Landsáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu stýrði MAST endurskoðun á 1. útgáfu áætlunarinnar en endurskoðun skal fara fram fyrir 1. apríl ár hvert. Í starfshópnum voru tveir fulltrúar frá MAST, tveir frá BÍ og einn frá ATRN.
Starfshópurinn hefur lokið endurskoðuninni og leggur til nokkrar breytingar fyrir 2. útgáfu. Helstu breytingar snúa að uppfærslu ræktunaráætlana í kafla 3 og breytinga á kafla 8 sem fjallar um fjármál. Minniháttar leiðréttingar og breytingar voru gerðar á texta í því augnamiði að gera hann hnitmiðaðri og auðskildari. Öll ákvæði sem voru sérmerkt árinu 2024 eru tekin út. Orðið heimaeinangrun/einangrun heima á bæ sem kemur fyrir oftar en einu sinni í 1. útgáfu áætlunarinnar er skipt út fyrir að „fé skuli haldið innan fjárheldra girðinga fjarri öðru fé“.
Orðið einangrun hefur of þrönga merkingu miðað við takmarkanir sem gilda um fé á riðubæ í kjölfar uppkomu riðuveiki, t.d. er leyfilegt að setja á afrétt fé úr riðuhjörð sem er arfhreint með vendandi arfgerð eða sem hefur mögulega verndandi gena-samsætu á móti verndandi genasamsætu, þannig er hluti hjarðarinnar ekki í einangrun og því er ekki rétt að nota það orð. Gerð er grein fyrir helstu breytingum í einstökum köflum hér að neðan.