30 júní 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skýrsla starfshóps um áföll meðal barna - forvarnir og viðbrögð

Mennta- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp um forvarnir og viðbrögð við áföllum barna. Markmið hópsins var að kortleggja aðstæður sem líklegar eru til þess að valda alvarlegu áfalli í lífi barns eða aðstandanda þess, greina þjónustuþörf og nauðsynleg úrræði sem gætu dregið úr líkum á áföllum eða áhrifum áfalla og tillögur að úrbótum þvert á þjónustukerfin. Hópurinn tók til starfa í ágúst 2023.

Tillögur starfshópsins eru eftirfarandi:

  1. Áfallamiðuð nálgun þvert á þjónustukerfi barna.
  2. Fræðsla til starfsfólks sem hefur aðkomu að málefnum barna.
  3. Kortlagning þjónustu fyrir börn á landsvísu.