29 október 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Stjórn fiskveiða 2025/2026 - Lög og reglugerðir
Stjórn fiskveiða 2025/2026 - Lög og reglugerðir
Í þessu riti eru tekin saman helstu lög og reglugerðir sem lúta að stjórn fiskveiða á fiskveiðiárinu 2025/2026 og almanaksárinu 2026.
Útgáfan er ætluð til hagræðis fyrir notendur og því hefur umfang ritsins verið aukið og inniheldur öll þau helstu lög og reglugerðir um stjórn fiskveiða sem falla undir málefnasvið atvinnuvegaráðherra. Ritið inniheldur einnig yfirlit um önnur lög, reglugerðir og fyrirmæli sem varða málefni tengd stjórn fiskveiða sem ekki var talin ástæða til að hafa með í ritinu. Vert er að benda á að með forsetaúrskurði nr. 46/2025, um breytingu á forsetaúrskurði nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands fluttust mál er varða meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða frá atvinnuvegaráðuneytinu til innviðaráðuneytisins. Þær reglugerðir sem innviðaráðuneytið hefur þegar sett vegna þessa eru einnig hluti af þessu riti þar sem þær varða lög um stjórn fiskveiða.
Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á ritinu til þess að auka notagildið og tilvísanir hafa verið uppfærðar með hliðsjón af gildandi lögum og reglugerðum. Jafnframt er breytingasaga reglugerða tilgreind þar sem slíkt á við. Helstu nýmæli í ritinu eru þau að efnistök hafa verið aukin og nýjum hluta verið bætt við þar sem er að finna lög og reglugerðir sem tengjast lax- og silungsveiði. Ritið inniheldur einnig lista yfir tilvísanir í auglýsingar, erindisbréf, forsetaúrskurði, gjaldskrár, konungsbréf, lög, reglugerðir, reglur, samþykktir og tilskipanir.
Þar sem það á við hefur reglugerðum sem gefnar eru út af öðrum ráðuneytum einnig verið bætt við ef þær tengjast efninu sem fjallað er um í þessu riti. Tekið skal fram að ritið inniheldur ekki lög og reglugerðir um fiskeldi og tengdar reglugerðir þótt þær séu á málefnasviði atvinnuvegaráðherra.
Þrátt fyrir að reglugerðir og auglýsingar séu til hagræðis flokkaðar eftir helstu efnisatriðum þá ber þess að geta að ákvæði viðkomandi reglugerða geta átt við fleiri efnisatriði þrátt fyrir að valið sé að flokka þær með öðrum reglugerðum er varða hliðstæð efnisatriði. Í einhverjum tilvikum hafa prentvillur verið leiðréttar og uppsetning aðlöguð í útgáfunni en þó skal áréttað að séu frávik frá texta Stjórnartíðinda og því sem birt er í þessari útgáfu þá víkur að sjálfsögðu texti þessar útgáfu.