30 október 2025
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Þróunarverkefnið MEMM – menntun, móttaka, menning: Áfangaskýrsla
MEMM stendur fyrir menntun, móttaka, menning og er þróunarverkefni leitt af mennta- og barnamálaráðuneytinu í samstarfi við Reykjavíkurborg og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Mennta- og barnamálaráðuneytið gaf í október 2025 út áfangaskýrslu um framvindu MEMM verkefnisins þar sem farið er yfir framkvæmdina, mælikvarða og næstu skref.