20 nóvember 2025
/
Dómsmálaráðuneytið
Ísland í örum vexti - Skýrsla starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd
Skýrsla starfshóps dómsmálaráðherra um dvalarleyfi. Dómsmálaráðherra skipaði hópinn vorið 2025. Hópnum var falið að fá betri yfirsýn yfir þann hóp sem sækir um útgefin dvalarleyfi á Íslandi, m.a. með hliðsjón af þeim markmiðum sem nefnd eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að gæta skuli samræmis við reglur nágrannaríkja á sviði útlendingamála og styrkja stjórnsýsluna hvað þessi mál varðar.