23 desember 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Stefna utanríkisráðuneytisins á sviði borgaraþjónustu 2026-2030
Utanríkisráðuneytið hefur birt nýja stefnu á sviði borgaraþjónustu 2026 – 2030. Uppfært stefnuskjal tekur mið af þeim áskorunum sem borgaraþjónustan hefur staðið fyrir á síðustu árum, ekki síst heimsfaraldri Covid-19 sem og vaxandi hernaðarátök á heimsvísu. Þá er jafnframt horft til tækninýjunga sem hafa komið fram á sjónarsviðið og tækifæra sem þær hafa að geyma fyrir eflingu borgaraþjónustu, til að mynda á sviði gervigreindar.
Hægt er að nálgast stefnu utanríkisráðuneytisins á sviði borgaraþjónustu 2026 – 2030 hér.