23 febrúar 2026

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stöðuskýrsla aðgerðahóps gegn ofbeldi meðal barna - janúar 2026

Aðgerðahóp stjórnvalda um víðtækar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum 2024-2026 er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum stjórnvalda til að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi. Um er að ræða tveggja ára verkefni til þess að innleiða aðgerðirnar með reglubundinni eftirfylgni og árangursmælingum. Hópurinn gerir grein fyrir framvindu aðgerða með reglulegum stöðuskýrslum og stöðumati.