01 apríl 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Tillögur að aukinni þátttöku fatlaðs fólks í listum og menningu

Skýrsla þessi sem unnin er af starfshópi á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis og er hluti af lögfestingu stjórnvalda á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Meðlimir starfshópsins hafa allir persónulega reynslu af fötlun og víðtæka snertingu við menningu og listir.


Skýrslan skiptist í tvo meginhluta:

Fyrri hlutinn fjallar á breiðum grunni um stöðuna á aðgengi fatlaðs fólks að listum og listsköpun eins og hún blasir við og þá með tilliti til opinberra listastofnana, menningarsjóða og háskólastofnana í listum. Sérstök áhersla er lögð á höfuðborgarsvæðið en starfshópur er meðvitaður um að greining á aðgengi fatlaðs fólks að listum og menningu utan höfuðborgarsvæðis þurfi að fara fram í kjölfar þessarar skýrslu.

Í seinni hluta skýrslunnar eru lagðar fram ítarlegar tillögur að aðgerðaáætlun sem miða að því að auka markvisst aðgengi fatlaðs fólks að listum og menningu.

Hér má finna samantekt á auðlesnu máli úr skýrslunni.