01 júlí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Formennskuáætlun Íslands í Eystrasaltsráðinu 2026-2027

{image.Description}

Ísland tekur við sem formennskuríki Eystrasaltsráðsins af Póllandi hinn 1. júlí 2026, á tímum djúpstæðra landfræðipólitískra áskorana á Eystrasaltssvæðinu. Öryggisumhverfi svæðisins heldur áfram að taka örum breytingum og það krefst styrkingar á samstarfi, aukins viðbúnaðar og áframhaldandi pólitískrar samhæfingar meðal aðildarríkja ráðsins.

Eystrasaltsráðið hefur í yfir þrjá áratugi reynst afar mikilvægur vettvangur til að hlúa að gagnkvæmum skilningi, byggja traust og efla pólitísk skoðanaskipti, eiga menningarsamskipti og skapa tengsl milli fólks á Eystrasaltssvæðinu öllu. Í kjölfar allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu og úrsagnar þess úr Eystrasaltsráðinu hefur ráðið í auknum mæli beint sjónum að breyttu öryggisumhverfi á svæðinu, og gegnir nú mikilvægu hlutverki sem vettvangur fyrir samráð, upplýsingamiðlun og stefnumótun um brýn öryggismál.

Mikilvægi þess að efla getu landa og samfélaga til að takast á við yfirstandandi öryggis- og umhverfisáskoranir hefur aukist umtalsvert á síðustu árum. Þetta varðar ekki síst Eystrasaltssvæðið, þar sem vaxandi þrýstingur vegna fjölþáttaógnar frá Rússlandi hefur aukið þörfina fyrir áfallaþol, viðbúnað og nánari svæðisbundna samvinnu.

Ísland mun í formennskutíð sinni setja áfallaþol í öndvegi og leggja áherslu á hagnýtt samstarf í samræmi við langtímaforgangsatriði ráðsins:

  • öruggt og verndað svæði,
  • sjálfbært og hagsælt svæði,
  • svæðisbundin sjálfsmynd.

Ísland mun byggja á því árangursríka starfi sem Pólland vann í formennsku sinni og leitast við að styrkja bæði stjórnmálalegt og hagnýtt samstarf innan Eystrasaltsráðsins. Eftirfylgni og framfylgd Sopot yfirlýsingarinnar frá 2026 mun verða lykilatriði, einkum að því er varðar áframhaldandi samstarf ríkjanna í tengslum við nýjar öryggisáskoranir á svæðinu, þar á meðal starfsemi skuggaflotans, fjölþáttaógnir og áhætta gagnvart mikilvægum innviðum og siglingaöryggi. Áhersla verður lögð á að tryggja samráð og forðast tvíverknað.

Sjá formennskuáætlun Íslands í Eystrasaltsráðinu 2026-2027.