21 júlí 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og færri en öflugari lögregluembætti
Lögregluembættum verður fækkað og skilgreining á skipulögðum brotahópum rýmkuð og gerð skýrari þannig að hún taki betur mið af starfsemi slíkra hópa. Þetta kemur fram í tveimur áformaskjölum sem dómsmálaráðuneytið birti í samráðsgátt stjórnvalda í dag. Áformin um skipulagsbreytingar lögreglu má nálgast hér og áformin um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi hér.
Skoðað að lögfesta hærri refsingu fyrir skipulagða brotastarfsemi
Annað áformaskjalið snýr að aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi. Þær fela meðal annars í sér breytingar á hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum.
Meðal þess sem er til skoðunar er að heimila þyngri refsingar þegar skipulögð brotastarfsemi er annars vegar eða þegar börn og ungmenni eru nýtt til brota. Skoðað verður að efla rannsóknarúrræði þannig að rannsókn og saksókn umfangsmikilla mála af þessu tagi verði skilvirkari.
Heildstæð stefna og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi
Horft verður til afhendingar rannsóknargagna til verjenda og tímalengdar gæsluvarðhalds og hvort hægt verði að fara í tilteknar rannsóknaraðgerðir áður en úrskurður dómstóls liggur fyrir þegar brýnir rannsóknarhagsmunir krefjast þess.
Fyrirhugað frumvarp er liður í stefnu stjórnvalda, Öruggara Ísland, sem kynnt var í byrjun árs. Markmiðið er að stjórnvöld búi yfir fullnægjandi úrræðum til að fyrirbyggja, rannsaka og sækja til saka brot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi.
Lögregluembættum fækkað og þau efld
Hitt áformaskjalið snýr að breytingum á lögreglulögum og eftir atvikum þeirri löggjöf sem gildir um verkefni lögreglunnar. Breytingarnar fela meðal annars í sér að lögregluembættum verði fækkað úr níu í fjögur til fimm. Þau embætti sem sameinuð verða öðrum yrðu með aðstoðarlögreglustjóra í stað lögreglustjóra til að tryggja nálægð við ákvörðunartöku. Hvorki starfsfólki né svæðisstöðvum verður fækkað.
Löggæsla efld með fækkun lögregluembætta
Dómsmálaráðherra hefur heimsótt lögregluembættin á landinu til að fylgja áformunum eftir. Þau hafa einnig verið rædd við samráðshóp sem í sitja fulltrúar dómsmálaráðuneytisins, ríkislögreglustjóra, Lögreglustjórafélagsins og Landssambands lögreglumanna.
Breytingunum er ætlað að styrkja og efla lögregluna og ná um leið fram umbótum og aukinni skilvirkni í löggæslu. Sameinuð embætti verða í betri stöðu til að fást við umfangsmeiri, flóknari og kostnaðarsamari verkefni, ásamt því að mæta auknum kröfum til lögreglunnar um að tryggja almannaöryggi og verkefni á alþjóðavettvangi með samstarfi og samhæfingu.