22 apríl 2020Kærunefnd útboðsmála
Mál nr. 29/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Kröfugerð. Bindandi samningur.
Kominn var á bindandi samningur á milli varnaraðila samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þegar af þeirri ástæðu var hvorki unnt að ógilda val varnaraðila á tilboði né velja tilboð kæranda í hinu kærða útboði, en aðrar kröfur voru ekki gerðar. Kröfum kæranda var því hafnað.