28 febrúar 2020Kærunefnd útboðsmála
Mál nr. 28/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. nóvember 2019 kærði Vátryggingafélag Íslands hf. útboð Borgarbyggðar auðkennt „Vátryggingaútboð Borgarbyggðar 2020“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála „felli niður 3. tölul. 6.1. gr. útboðsskilmála“ í hinu kærða útboði, sem hljóðar svo: „Bjóðandi starfræki starfsstöð í Borgarbyggð með starfsmanni a.m.k. 16 tíma á viku.…