13 mars 2014

/

Mál nr. 19/2014, úrskurður 13. mars 2014


Mál nr. 19/2014


Eiginnafn: Elvira

Hinn 13. mars 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 19/2014 en erindið barst nefndinni 28. febrúar:

Eiginnafnið Elvira (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Elviru og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Elvira (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.