08 nóvember 2017

/

Mál nr. 51/2017 Úrskurður 27. október 2017

Mál nr. 51/2017                     Eiginnafn: Selina

 


 

Hinn 27. október 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 51/2017 en erindið barst nefndinni 18. september.

Eiginnafnið Selina (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Selinu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Selina (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.