09 nóvember 2023

/

Nr. 660/2023 Úrskurður

Hinn 9. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 660/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23070036

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. júlí 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari Aserbaísjan (hér eftir kærandi) um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar hér á landi, aðallega með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en til vara með vísan til 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 25. janúar 2023. Þar sem kærandi var með vegabréfsáritun til Lettlands var send beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd, dags. 31. janúar 2023, til yfirvalda í Lettlandi á grundvelli 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá lettneskum yfirvöldum, dags. 6. mars 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. mars 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 30. júní 2023 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda samdægurs og barst greinargerð kæranda kærunefnd 6. júlí 2023 ásamt fylgigögnum.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að lettnesk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Lettlands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn hans til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Lettlands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi þjáist af sykursýki og taki lyf vegna þess. Kærandi finni almennt ekki fyrir vanlíðan vegna sjúkdómsins taki hann lyfin sín en um leið og hann upplifi streituvaldandi aðstæður, líkt og í Lettlandi, eigi sykurinn það til að rjúka upp með tilheyrandi vanlíðan. Kærandi sé við góða andlega heilsu en stríðið í Úkraínu hafi haft áhrif á hann andlega og efnahagslega þar sem hann hafi rekið fyrirtæki í Úkraínu og misst það þegar hann og fjölskylda hans hafi neyðst til þess að flýja. Kærandi geti ekki snúið aftur til Lettlands þar sem launin sem hann fái þar í landi dugi ekki fyrir grunnþörfum og framfærslu fjölskyldunnar. Þá hafi þau ekki haft efni á að senda dóttur þeirra í háskóla í Lettlandi, fjölskyldan geti ekki greitt leigu í næsta mánuði og því muni þau neyðast til að búa á götunni í Lettlandi með enga aðstoð frá hinu opinbera. Kærandi og fjölskylda hans hafi þó haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Lettlandi. Kærandi byggir á því að hann óttist innrás Rússa í Lettlandi. Þá óttist kærandi að vegabréfsáritun hans verði ekki endurnýjuð og þeim verði gert að snúa aftur til heimaríkis.

Kærandi byggir á því að þrátt fyrir að til greina komi að mál kæranda falli undir c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, á grundvelli þess að hann hafi fengið vegabréfsáritun til Lettlands, sé ótækt að beita heimildinni í tilviki kæranda þar sem hann telji sig ekki geta snúið aftur þangað. Þá kveði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga aðeins á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja umsækjanda um efnismeðferð en ekki skyldu. Meginregla laganna sé að taka skuli allar umsóknir til efnismeðferðar, nema rétt þyki að beita undantekningarreglu laganna, en í samræmi við almennar lögskýringarreglur skuli undantekningarreglur túlkaðar þröngt. Þá vísar kærandi til þess að í athugasemdum með 2. mgr. 36. gr. í frumvarpi sem varð að núgildandi lögum um útlendinga, komi fram að með sérstökum ástæðum sé vísað til þess að einstaklingar geti verið í viðkvæmri stöðu s.s. vegna heilsufars eða þeir átt erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna mismununar sökum kynhneigðar, kynþáttar eða kyns. Þá skuli fara fram ítarlegt mat á aðstæðum viðkomandi útlendings og aðstæðum og ástandi í viðtökuríki. Kærandi telur að þessi viðbót leiði í ljós vilja löggjafans til að víkka út gildissvið 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga miðað við framkvæmd stjórnvalda á sambærilegu ákvæði í eldri lögum.

Þá byggir kærandi á því að endursending hans til Lettlands brjóti gegn meginreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), sem lögfest hafi verið í 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ástæðuríkan ótta um að vera sendur aftur til heimaríkis og hann telji líf sitt vera í hættu í Lettlandi. Að auki myndi endursending kæranda brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979 og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, frá 28. júlí 1951. Kærandi byggir á því að hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 í Lettlandi og því beri að taka mál hans til efnismeðferðar hér á landi.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]sem er staddur einsamall hér á landi. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að eiginkona hans og tvö börn á aldrinum [...] og [...] ára séu búsett í Lettlandi. Kærandi hafi verið búsettur í Úkraínu en hafi flúið þaðan til Póllands í mars 2022 í kjölfar innrásar Rússlands í landið. Kærandi hafi farið þaðan til Lettlands og dvalið þar í landi á grundvelli vegabréfsáritunar þar til hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í janúar 2023. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að yfirvöld í Lettlandi hafi greitt fyrir leiguíbúð kæranda og fjölskyldu hans í þrjá mánuði. Þá hafi kærandi og fjölskylda hans jafnframt fengið fjárhagsstuðning í þrjá mánuði. Kærandi og fjölskylda hans hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Kærandi greindi frá því að hann hafi verið með atvinnu í Lettlandi en vinnan hafi verið erfið og launin lág. Aðstæður kæranda og fjölskyldu hans séu erfiðar efnahagslega og andlega í Lettlandi og yfirvöld geti ekki haldið þeim uppi. Kærandi greindi frá því að dóttir hans hafi lært lettnesku en hún hafi ekki tækifæri til að fara í frekara nám vegna kostnaðar. Þá hafi sonur kæranda verið með atvinnu í Lettlandi. Kærandi greindi frá því að hann hafi ekki upplifað fordóma í Lettlandi en hann óttist að Rússar ráðist inn í landið. Kærandi kvaðst vera með sykursýki og taka lyf vegna þess. Þá sé kærandi verkjaður í hnjám en ekki alvarlega. Kærandi kvaðst vera við góða andlega heilsu.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Lettlands á umsókn kæranda er byggð á 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, þar sem kærandi hefur fengið útgefna vegabréfsáritun þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja lettnesk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kæranda kemur fram að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar en ekki skyldu. Kærunefnd hefur í eftirfarandi umfjöllun lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsóknir kærenda til efnismeðferðar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a - d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar. Er umræddri málsástæðu hafnað.

Aðstæður í Lettlandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Lettlandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Latvia (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Employment, Social Affairs & Inclusion (European Commission, https://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=1117&intPageId=4633&langId=en);

  • Freedom in the World 2023 – Latvia (Freedom House, mars 2023);
  • Information on procedural elements and rights of applicants subject to a Dublin transfer to Latvia (European Union Agency for Asylum, EUAA, 14. apríl 2023);
  • Report on Migration and Asylum in Latvia 2021 (Office of Citizenship and Migration Affairs Republic of Latvia, maí 2022);
  • Vefsíða lettnesku útlendingastofnunarinnar (https://www.pmlp.gov.lv/en) og
  • Vefsíða umboðsmanns Lettlands (https://www.tiesibsargs.lv/en/areas-of-practice/).

Lettland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Lettland verið aðili að Evrópuráðinu frá 10. febrúar 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1997. Lettland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð, samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og barnasáttmálann 14. apríl 1992. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 31. júlí 1997.

Á vefsíðu lettnesku útlendingastofnunarinnar (e. Office of Citizenship and Migration Affairs, OCMA) kemur fram að hægt sé að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá landamæravörðum, lögreglu eða hjá lettnesku útlendingastofnuninni. OCMA taki ákvörðun í málum er varði umsóknir um alþjóðlega vernd. Niðurstaða fáist almennt innan þriggja mánaða en sá málsmeðferðartími kunni að fara upp í tólf mánuði séu sérstakar ástæður fyrir hendi. Fái umsækjandi synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd eigi hann þess kost að bera synjunina undir stjórnsýsludómstól en þeim dómi sé ekki unnt að áfrýja frekar. Þá hefur umboðsmaður (l. Latvijas Republikas Tiesībsargs) eftirlit með mannréttindum og frelsi borgaranna í Lettlandi. Í skýrslu European Union Agency for Asylum (EUAA) kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá OCMA og dómstólum, eigi þess kost að leggja fram viðbótarumsókn, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, s.s. ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggi fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafi breyst verulega eða verulegir annmarkar hafi verið á fyrri málsmeðferð, geti skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt vefsíðu OCMA eigi umsækjendur í Lettlandi rétt á húsnæði, túlkaþjónustu, mataraðstoð og vasapeningum. Umsækjendum sé tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu vegna líkamlegra og andlegra heilsufarsvandamála. Þá geti umsækjendur fengið sálfræðiaðstoð og stuðning frá félagsráðgjafa. Í skýrslu EUAA kemur fram að lög og reglugerðir mæli fyrir um aðgang umsækjenda um alþjóðlega vernd að bráða-, almennri- og geðheilbrigðisþjónustu auk hvers kyns læknisþjónustu vegna ólögráða barna. Þá hvíli skylda á umsækjendum um alþjóðlega vernd að undirgangast heilbrigðisskoðun í þágu lýðheilsu. Samkvæmt skýrslunni sé heilbrigðisstarfsfólk til staðar í móttökumiðstöðvum sem umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi aðgang að.

Af framangreindum gögnum er ljóst að lettnesk stjórnvöld veita lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Í upplýsingum á vefsíðu OCMA kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Lettlandi geti fengið lögfræðiþjónustu ef umsókn þeirra um vernd hefur verið synjað af OCMA. Umsækjendur eigi því aðeins rétt á lögfræðiaðstoð sér að kostnaðarlausu við meðferð máls á kærustigi í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggi fram umsókn um alþjóðlega vernd í Lettlandi eigi þeir rétt á túlkaþjónustu án endurgjalds bæði þegar umsókn er til meðferðar hjá lettnesku útlendingastofnuninni og á kærustigi.

Á vefsíðu OCMA kemur fram að þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem settir eru í varðhald við komu til Lettlands eiga rétt á lögfræðiaðstoð og túlkaþjónustu án endurgjalds. Þá sé hægt að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla (e. district city court). Aðeins megi beita varðhaldi á grundvelli skilyrða sem eru skilgreind í lettnesku útlendingalögunum, þ.e. ef skortur sé á auðkennisgögnum, rökstuddur grunur sé uppi um að útlendingur gefi rangar upplýsingar, útlendingur sé ógn við almannaöryggi, ástæða sé til að ætla að útlendingur muni reyna að komast hjá flutningi úr landi eða ef útlendingur virðir ekki reglur um inngöngu og dvöl í landinu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að ríkislögreglan og héraðslögreglan beri ábyrgð á löggæslu í Lettlandi. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá sé sjálfstæði dómstóla tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kveði lög í Lettlandi á um bann við mismunun og ofbeldi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis. Ríkisstjórnin hafi framfylgt lögunum á áhrifaríkan hátt. Frjáls félagasamtök hafi greint frá tilfellum um áreitni og hatursorðræðu gagnvart minnihlutahópum. Af skýrslunni má ráða að löggæsluyfirvöldum sé stjórnað með skilvirkum hætti og borgarar landsins geti leitað til lögreglunnar telji þeir brotið á sér.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri með sykursýki og tæki lyf vegna þess. Kærandi hafi fengið greiningu í Úkraínu og Lettlandi og hafi haft aðgengi að meðferð í Lettlandi. Kærandi mæli blóðsykur sinn á hverjum degi ef honum líður illa en annars á þriggja daga fresti. Þá sé andleg heilsa kæranda góð en stríðið í Úkraínu hafi haft áhrif á hann þar sem hann hafi rekið fyrirtæki þar í landi og hafi misst allt. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 27. apríl 2023, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að vera með sykursýki tegund tvö og hann taki lyf daglega. Þá sé kærandi með verk við getnaðarlim. Samkvæmt nótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 17. maí 2023, hafi kærandi verið greindur með lifrabólgu C og tilvísun hafi verið send til viðeigandi sérfræðinga á Landspítalanum. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 22. maí 2023, kemur fram að kærandi hafi greint frá verk í brjóstholi. Kærandi hafi áður verið með svipaðan verk og fengið meðhöndlun í heimaríki. Kærandi hafi verið skráður með brjóstholsbólgu en meðhöndlun hafi ekki skilað árangri. Þá hafi verkurinn farið versnandi síðustu daga en sé ekki mjög slæmur. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 25. maí 2023, kemur fram að kærandi sé með svima og vandamál í hnjám. Kærandi hafi greint frá háþrýstingi, krónískri brisbólgu, geðrænum vandamálum og sé mögulega með skert blæði í slagæð í heila. Samkvæmt samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 30. maí 2023, hafi kærandi leitað þangað og kvaðst vera í slæmu ástandi. Kærandi hafi ekki verið veikindalegur að sjá en hafi kvartað yfir verk í fótum og kvaðst vera vanur að fá sprautur í fætur vegna þessa. Kæranda hafi verið ráðlagt að bíða eftir tíma hjá lækni. Samkvæmt samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 8. til 19. júní 2023, kemur m.a. fram að kærandi hafi lagt fram lista af sjúkdómum sem hann hafi glímt við. Um sé að ræða háþrýsting, sykursýki tegund tvö, kransæðasjúkdóm, fituhrörnun í heila (e. cerebral atherosclerosis), heilakvilla (e. encephalopathy), Lifrasjúkdóm (e. steatohepatitis), brisbólgu (e. pancreatitis) og þursabit (e. lumbago). Við skoðun hafi komið í ljós að kærandi sé með hækkaðan blóðþrýsting og hraðtakt (e. tachycardia), sennilega gúlp (e. sinus) en ekki sé unnt að taka hjartarafrit (EKG). Taugaskoðanir og göngulag kæranda sé eðlilegt. Kærandi hafi greint frá svima og höfuðverk og hann sé viðkvæmur fyrir hljóði. Kærandi virki kvíðinn og stressaður og sjúkrasaga hans sé ruglingsleg. Kærandi ofhugsi sjúkdóma sína og lyfjameðferð og óttist að deyja. Kærandi hafi greint frá því að sér líði verr með hverjum deginum. Kærandi sé með brjóstverk og doðatilfinningu og óski eftir að fá meðferð sem hann hafi fengið í Úkraínu en hann viti ekki hvað lyfið heitir sem hann hafi verið á. Kærandi hafi jafnframt óskað eftir ómskoðun á hjarta og lungu. Kæranda hafi verið greint frá því að samkvæmt röntgenmyndatöku af lungum hafi þau verið eðlileg. Auk þess hafi lungnahlustun verið eðlileg. Þá sé kærandi tvívegis búinn að fara á bráðamóttöku heilbrigðisstofnun Suðurnesja og tekið hafi verið hjartarit og ómskoðun sem hafi komið eðlilega út. Þá hafi verið tekin tölvusneiðmynd af heila kæranda hjá Domus Medica sem hafi komið eðlilega út. Kæranda hafi verið ávísað lyfjum og bókaður hafi verið tími hjá heimilislækni í eftirfylgni. Við meðferð málsins hefur kærandi jafnframt lagt fram fjölda heilbrigðisgagna frá Úkraínu og Lettlandi, m.a. um greiningu á sykursýki tegund tvö og ómun af kviði.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Lettlandi verður ráðið að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Nefndin telur að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Við meðferð málsins hefur kærandi jafnframt greint frá því að hann hafi fengið heilbrigðisþjónustu í Lettlandi og lagt fram gögn þess efnis.

Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann hafi ekki upplifað fordóma í Lettlandi en hann óttist að Rússland muni ráðast næst á Lettland. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Þá bendir ekkert til þess að innrás Rússa í Lettland sé yfirvofandi.

Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Lettlandi kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann hafi fengið húsnæðis- og fjárhagsstuðning í Lettlandi. Þá hafi hann og fjölskyldumeðlimir hans verið með atvinnu þar í landi og leigt húsnæði.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 7. mars 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 25. janúar 2023.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Lettlandi, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Lettlandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 25. janúar 2023 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Lettlands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í málum þessum hafa lettnesk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda hann til Lettlands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Gunnar Páll Baldvinsson