14 desember 2023
/
Nr. 756/2023 Úrskurður
Hinn 14. desember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 756/2023
í stjórnsýslumálum nr. KNU23110004
Kæra [...]
á ákvörðun Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 1. nóvember 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu, ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. október 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga og til þrautaþrautavara á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laganna.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 31. júlí 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun ásamt löglærðum talsmanni sínum 11. október 2022 og til framhaldsviðtals hjá stofnuninni 22. ágúst 2023. Með ákvörðun, dags. 31. október 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var framangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 1. nóvember 2023. Hinn 14. nóvember 2023 barst kærunefnd greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum.
III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofsókna af hálfu hryðjuverkahópsins Al-Shabaab.
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.
Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera fæddur og uppalin í neðra-Juba í Berxaani. Kærandi kvaðst tilheyra ættbálkinum Reer Shabeele, undirættbálkunum Reer ciise og Waxaana Isasii aby og að hann tilheyrði minnihlutahópi vegna ættbálkar síns. Höfuðættbálkur hans gangi undir nafninu Jareer Weyne. Heilbrigði hans sé slæmt, en hann glími við minnisleysi, líkamlega verki og hafi takmarkað aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Kærandi hafi flúið frá heimaríki vegna Al-Shabaab. Kærandi hafi verið í trúarlegum skóla og verið hvattur af kennara til að ganga til liðs við samtökin, þvert á vilja hans. Kærandi sé með ör og áverka á líkama eftir barsmíðar kennara og meðferð af hálfu Al-Shabaab. Kæranda kvað kennara sinn hafa sagt í lok skóladags að daginn eftir myndu samtökin mæta í skólann og nemendur yrðu látnir ganga til liðs við samtökin. Foreldrar kæranda hafi verið andsnúnir því og kærandi hafi ákveðið að mæta ekki í skólann á tilsettum degi. Kærandi hafi hins vegar verið sóttur af liðsmönnum Al-Shabaab sem hafi numið hann á brott með valdi. Kærandi hafi verið krafinn nokkrum sinnum um afstöðu sína til þess að ganga til liðs við samtökin. Að lokum hafi kærandi flúið til frænda síns í Kismayo en þegar þangað hafi verið komið hafi hann fengið fregnir af því að faðir hans hafi verið myrtur af Al-Shabaab. Þá lýsti kærandi ofsóknum vegna aðildar að ættbálki sínum í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi hafi verið barinn á heimili sínu í kjölfar deilna við meðlimi annars ættbálks. Þá hafi kærandi jafnframt sætt mismunun af hálfu tengdafjölskyldu sinnar, þar sem eiginkona hans væri af meirihlutaættbálki, og verið grýttur með steinum af öðrum borgurum í heimaþorpi sínu.
Kærandi hafi hlotið hæstu mögulegu einkunn á tungumála- og staðháttaprófi og hafi prófið tekið mið af mállýskunni Benadiri sem þekkist m.a. á neðra-Juba landsvæði sem kærandi kveðst vera frá. Þrátt fyrir það hafi Útlendingastofnun hnekkt framburði hans í trúverðugleikamati með vísan til framburðar kæranda í fyrsta viðtali og framhaldsviðtali. Kærandi vísar til þess að þekkingu á staðháttum verði að setja í samhengi við aldur hans, hann sé ungur að aldri og hafi verið enn yngri þegar hann hafi lagt á flótta. Þá vísar kærandi til félagslegs bakgrunns síns en hann hafi ekki hlotið neina menntun fyrir utan nám í trúarlegum skóla. Taka verði tillit til persónubundinna atriða, eins og aldurs, samkvæmt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar. Auk þess vísar kærandi til þess að lýsingar hans á heimaþorpi hans, Berxaani og staðsetning þess í Kismayo séu í samræmi við landaupplýsingar sem settar séu fram á blaðsíðu 12 í hinni kærðu ákvörðun. Ekki sé rétt að láta það hafa áhrif á trúverðugleikamat að kærandi hafi fullyrt að heimaþorpi hans væri stjórnað af Al-Shabaab þrátt fyrir að tilvísun Útlendingastofnunar í landakort, sem síðast hafi verið uppfært 17. janúar 2023, gefi til kynna að ATMIS og stjórnvöld í Sómalíu fari með stjórn yfir Kismayo og að Berxaani falli utan þess svæðis sem Al-Shabaab fari með stjórn. Kærandi hafi ekki verið inntur eftir því í viðtali hver færi með faglega stjórn yfir svæðinu. Hann hafi gefið upplýsingar um hver væri með raunstjórn á heimasvæði hans og landaupplýsingar styðji þá fullyrðingu kæranda enda komi fram í upplýsingum frá EUAA frá árinu 2023 að Al-Shabaab stjórni eða hafi áhrif á stjórn flestalls landsvæðis í Neðra-Juba. Þá vísar kærandi til þess að ekki sé skýrt í hinni kærðu ákvörðun hvað annað í staðháttalýsingum kæranda hafi verið talið draga úr trúverðugleika hans. Fram komi í ákvörðun Útlendingastofnunar að svör kæranda um heimaþorp hans hafi hvorki verið sérstaklega skýr né greiningargóð, án vísan til sérstakra röksemda því til stuðnings. Kærandi vísar til 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um rökstuðning ákvarðana og og 13. gr. sömu laga, þar sem hann hafi takmarkaðan kost á að andmæla vegna takmarkaðs rökstuðnings.
Kærandi andmælir mati Útlendingastofnunar um að það sé ótrúverðugt að kærandi hafi verið þvingaður til að ganga til liðs við Al-Shabaab eða hann eigi á hættu að vera þvingaður til þess þar sem heimasvæði kæranda sé undir stjórn sómalskra yfirvalda. Kærandi vísar til þess að samkvæmt skýrslu EUAA um öryggisaðstæður í Sómalíu árið 2023 sé virkni Al-Shabaab í neðri-Juba sérstaklega mikil, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt skýrslu Landinfo um nýliðun Al-Shabaab sé ljóst að þeir afli sér ekki bara meðlima á svæðum sem þeir fari með yfirráð heldur einnig á svæðum sem þeir njóti áhrifa á. Í ljósi virkni Al-Shabaab í neðri-Juba verði að telja verulegar líkur á að kærandi kunni að vera þvingaður til aðildar á heimasvæði sínu. Þá vísar kærandi til þess að heimabær hans sé í dreifbýli en teljist ekki til stórborgar sem hafi þýðingu við samlestur. Kærandi byggir á því að kröfur til þess að hann sanni þvingaða aðild sína að Al-Shabaab séu óraunhæfar og í ósamræmi við sönnunarkröfur flóttamannaréttar og framkvæmd kærunefndar. Því til stuðnings vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar frá 2. febrúar 2023 í máli nr. 57/2023 og 11. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi gerir athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun komi ekki skýrlega fram hvort þvinguð aðild kæranda að Al-Shabaab hafi verið lögð til grundvallar eða ekki. Þá hafi ofsóknir Al-Shabaab á hendur föður kæranda, sem hafi leitt til þess að hann hafi verið myrtur, ekki fengið neina umfjöllun í hinni kærðu ákvörðun.
Kærandi byggir á því að ofsóknir séu á heimasvæði hans í neðra-Juba, umsvif Al-Shabaab séu sérstaklega mikil og að meirihlutaættbálkar fari með ógnarstjórn. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna. Kærandi greinir frá því að hann tilheyri ættbálknum Rer Shabelle, n.t.t. undirættbálknum Reer Ciise og hann hafi rakið ætt sína í viðtali hjá Útlendingastofnun þannig að hann tilheyri höfuðættbálknum Jareer Weyne. Kærandi tilheyri minnihlutahópi og hann hafi verið barinn á heimili sínu í kjölfar þess að hann hafi átt í deilum við meðlimi annars ættbálks. Þá hafi hann sætt mismunun af hálfu tengdafjölskyldu sinnar þar sem eiginkona hans sé af meirihlutaættbálki. Kærandi andmælir því sem komi fram í hinni kærðu ákvörðun um að einstaklingar sem tilheyri Jareer Weyne ættinni eigi ekki sérstaklega undir högg að sækja. Hér sé verið að gagnálykta út frá heimildum en heimildir beri heldur ekki með sér sterkan bakgrunn Jareer Weyne í sómölsku samfélagi og í því ljósi verði að meta allan vafa um mismunun eða ástæðuríkan ótta við ofsóknir kæranda í hag. Þá beri heimildir með sér að höfuðættbálkur kæranda teljist til minnihlutahóps sem sé verulega jaðarsettur í Sómalíu. Ættbálkurinn gangi undir nafninu Bantu, Gosha eða Jareer Weyne. Útlendingastofnun hafi yfirsést að um sama ættbálk sé að ræða, enda hafi stofnunin vísað til Bantu sem sérstaks ættbálkar. Kærandi geti ekki treyst því að farið hafi verið rétt með heimildir um ættbálk hans í hinni kærðu ákvörðun vegna þessa og telur rannsókn um ættbálk hans haldna verulegum annmarka, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. laga um útlendinga.
Kærandi byggir á því að hann sé flóttamaður samkvæmt skilgreiningu 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, með vísan til þess að hann hafi ástæðuríkan ótta á að sæta ofsóknum af hálfu aðila sem nefndir séu í a-c lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, á grundvelli aðildar að þjóðfélagshóp, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og þjóðernis, sbr. c-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga. Kærandi búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna aðildar hans að þjóðfélagshópi þar sem hann hafi verið þvingaður til aðildar að Al-Shabaab, þá sé kærandi þolandi ofbeldisglæpa samtakanna og aðili að ættbálki í minnihluta sem njóti ekki viðunandi verndar í Sómalíu. Kærandi hafi vikið sér undan þvingaðri aðild sem hafi tilheyrandi afleiðingar og geti leitt til dauðarefsingar. Þá hafi kærandi lýst ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð af hálfu samtakanna og líflátshótunum. Kærandi vísar til þess að samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Landinfo beinist nýliðaskráning Al-Shabaab aðallega að drengjum á táningsaldri, líkt og kæranda, og flestir séu ráðnir í gegnum skóla sem séu undir stjórn samtakanna. Þá byggir kærandi á að aðild hans að minnihlutaættbálki sé grundvöllur að ástæðuríkum ótta við ofsóknir, með vísan til þjóðernis. Kærandi hafi bent á að öll heimildameðferð á minnihlutaættbálki hans hafi verið annmörkunum háð út frá rannsókn hjá Útlendingastofnun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til þess að alvarleikaþröskuldi 38. gr. laga um útlendinga sé fullnægt þar sem þvinguð vinna og mögulegar refsingar sem kærandi eigi yfir höfði sér séu gróf mannréttindabrot. Auk þess hafi kæranda borist líflátshótanir sem fullnægi einar og sér alvarleikaþröskuldi ákvæðisins. Bæði hlutlægir og huglægir þættir eigi við í máli kæranda, enda sé hann meðvitaður um reynslu þeirra sem tilheyri sama þjóðfélagshópi og hann.
Kærandi byggir á því að hann geti ekki hlotið vernd frá yfirvöldum í Sómalíu þar sem yfirvöld sjálf séu valdur að ofsóknum gegn honum, sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kæranda hafi ekki staðið til boða viðhlítandi vernd þeirra gegn meðlimum Al-Shabaab eða öðrum ofsóknaraðilum. Al-Shabaab teljist til hóps/samtaka sem stjórni ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess og beiti ofsóknum í skjóli refsileysis í landinu. Þá sé ljóst að sómölsk stjórnvöld séu veikburða í samanburði við ofsóknaraðila kæranda. Heimildir bendi ekki til þess að kærandi geti gert ráð fyrir virkri, aðgengilegri og ótímabundinni vernd í Sómalíu. Þá hafi rannsókn Útlendingastofnunar um þetta efni einkennst af ógildingarannmörkum, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Kærandi krefst þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji að meta verði stöðu hans með hliðsjón af öllum viðeigandi gögnum um Sómalíu en ekki einskorða úrlausn á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga við trúverðugleikamat í máli hans. Kærandi vísar til einstaklingsbundinna atvika sem verði að taka tillit til við úrlausn á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þ.e. umsvifa Al-Shabaab og upplifunar hans af ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð af hálfu meðlima samtakanna. Þá telur kærandi að hætta steðji að almennum borgurum vegna handahófskenndra árása þar sem ekki sé greint á milli borgaralegra og hernaðarlegra skotmarka. Nýjustu heimildir beri með sér hækkað viðbúnaðarstig í Kismayo. Flest öryggisatvik í neðra-Juba eigi sér stað í Kismayo sem sé nærri heimaþorpi kæranda. Þá sé viðvera Al-Shabaab á svæðinu ótvíræð samkvæmt gögnum frá EUAA. Kærandi gerir athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun sé Mógadisjú og Kismayo jafnað saman, þar sem stofnunin vísi til upplýsinga frá kærunefnd útlendingamála í Noregi um aðstæður í Mógadisjú. Þá vísi stofnunin til úrskurðar kærunefndar úrlendingamála nr. 551/2023 frá 5. október 2023, en hann sé óbirtur og hafi því enga þýðingu fyrir kæranda sem hafi ekki aðgang að honum. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 138/2023, þar sem fram komi að þeir sem komi frá svæðum undir stjórn Al-Shabaab eða svæðum þar sem mikil átök ríkja milli Al-Shabaab og sómalskra öryggissveita séu í hvað mestri hættu á að lenda í aðstæðum sem falli undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Heimaþorp kæranda teljist til svæða þar sem mikil átök ríkja milli Al-Shabaab og sómalskra öryggissveita. Í ljósi nýlegs mannfalls verði að telja að mikil átök ríki á heimasvæði kæranda. Kærandi telur að meta þurfi framangreint mál í ljósi jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, 11. gr. stjórnsýslulaga, enda sé um sambærileg tilvik að ræða. Þá vísar kærandi til jafnræðisreglunnar og þess að framkvæmd sé fyrir því að veita umsækjendum í Mið- og Suður-Sómalíu viðbótarvernd, uppfylli þeir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi vísar kærandi til úrskurða kærunefndar nr. 382/2023 og 374/2023. Með vísan til heimilda flokkist ofbeldi gegn almennum borgurum í Sómalíu undir stríðsglæpi sem kalli auðsjáanlega á viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til þess að innri flutningur í landinu sé ekki mögulegur fyrir kæranda, enda séu Al-Shabaab og stjórnvöld valdur af þeim margvíslegu mannréttindabrotum sem framin séu í landinu og hann eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri meðferð hvar sem hann sé staddur í landinu.
Kærandi byggir á því til þrautavara að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með alvarlegum ástæðum samkvæmt ákvæðinu sé átt við alvarlegar aðstæður í heimaríki, viðvarandi mannréttindabrot, eða þegar yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldi og glæpum. Allt framangreint eigi við í máli kæranda. Kærandi eigi ekki afturkvæmt til Sómalíu og sé í viðkvæmri félagslegri stöðu. Hann falli að hinum dæmigerða þolanda þvingaðrar aðildar af hálfu Al-Shabaab, bæði vegna ungs aldurs og kyns. Þá hafi kærandi ekkert félagslegt bakland í heimaríki. Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og endurrits efnisviðtals síns hvað varðar heilbrigðisástæður hans. Þá vísar kærandi til fyrirliggjandi sjúkragagna sem sýni fram á álagsmeiðsl á brjóstkassa sem hafi farið versnandi. Auk þess vísar kærandi til þess að möguleikar hans á vernd yfirvalda séu útilokaðir.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að tekin verði afstaða til þess hvort hann uppfylli skilyrði dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd 31. júlí 2022 og hafi ekki hlotið niðurstöðu í máli sínu á stjórnunarstigi. Skilyrði a-, c-, og d-liðar 2. mgr. 74. gr. séu uppfyllt í máli kæranda. Engin vafi leiki á auðkenni kæranda með vísan til þess hvernig leyst hafi verið úr ákvörðun hans hjá Útlendingastofnun. Þá hafi Útlendingastofnun tjáð honum í viðtali að það væri ólíklegt að það hefði áhrif á mál hans að hann væri ekki með skilríki. Kærandi sé ungur að aldri og hafi verið einsamall á flótta í eitt og hálft ár. Málsmeðferð hans hafi staðið frá 31. júlí 2022 án teljandi skýringa á töfum. Með vísan til þess sé ljóst að kærandi uppfylli skilyrði dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að lokum telur kærandi að með endursendingu hans til Sómalíu yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingum, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá muni slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á honum deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og lagði Útlendingastofnun auðkenni kæranda til grundvallar og komst að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar hvað varðar heimasvæði og þjóðerni kæranda. Verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari. Af gögnum málsins verður ekki séð að kærandi hafi lagt fram nokkur gögn til að sanna á sér deili og er það því mat kærunefndar að auðkenni hans sé að öðru leyti óupplýst.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- ●2021 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 2. júní 2022);
- ●2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
- ●2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
- ●Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- ●BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- ●Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
- ●Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
- ●Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
- ●Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
- ●Country Guidance: Somalia (EUAA, 11. ágúst 2023);
- ●Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- ●Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
- ●Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
- ●Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
- ●Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
- ●EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
- ●EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
- ●Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
- ●Heightened Political Violence in Somalia (ACLED, 3. mars 2023);
- ●International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, september 2022);
- ●Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
- ●Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 - March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
- ●Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. september 2013);
- ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 17. febrúar 2021);
- ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
- ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
- ●Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
- ●Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
- ●Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
- ●Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
- ●Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
- ●Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
- ●Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
- ●Somalia: Health system (The Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- ●Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
- ●Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
- ●Somalia – Rekruttering til al-Shabaab (Landinfo, 17. október 2022);
- ●Somalia – Reaksjoner mot personer mistankes for tilknytning til al-Shabaab (Landinfo, 2. desember 2022);
- ●Somalia – Reaksjoner mot al-Shabaab avhoppere (Landinfo, 20. júní 2023);
- ●Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
- ●Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
- ●Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
- ●Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
- ●Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
- ●Somalia. COI Query. Security situation update, 1 December 2022 to 14 April 2023 (EUAA, 25. apríl 2023);
- ●South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
- ●South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
- ●The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 28. nóvember 2023);
- ●UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
- ●UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
- ●Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í maí 2018);
- ●Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, september 2021) og
- ●World Report 2023 – Somalia: Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 bera hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hefur hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega milli landsvæða og séu hópar samtakanna sérstaklega virkir á svæðum þar sem ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar haldi sig. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.
Í skýrslu Landinfo frá október 2022 er fjallað um nýliðunaraðferðir Al-Shabaab samtakanna. Fram kemur í skýrslunni að Al-Shabaab samtökin noti ýmsar aðferðir til að ráða hermenn og stuðningsmenn. Séu aðferðir við ráðningar mismunandi eftir tíma og stað og endurspegli hernaðarþarfir hópsins sem og hver styrkur samtakanna sé gegn hersveitum ættbálka og öðrum sem séu tryggir yfirvöldum. Landinfo greinir frá því í skýrslunni að heimildir gefi til kynna að samtökin reyni aðallega að fá unglinga og unga karlmenn til liðs við þau á svæðum þar sem samtökin hafi ákveðna stjórn á eða eru virk. Í borgum undir stjórn stjórnvalda, þar sem Al-Shabaab sé ekki með virka starfsemi reyni samtökin síður að ráða nýja meðlimi. Fari nýliðun í þeim borgum í gegnum fjölmiðlarásir samtakanna og samfélagsmiðla. Þá kemur fram í skýrslunni að þvingaðar ráðningar eigi sér stað en séu mjög sjaldgæfar og eigi sér þá aðallega stað þegar samtökin hafa orðið fyrir hernaðarlegu- eða efnahagslegu tjóni og séu örvæntingarfull í að fá nýliða. Í skýrslunni er vísað til þess að samkvæmt rannsóknum um atferli Al-Shabaab samtakanna séu þvingaðar ráðningar dýrkeypt ráðningarferli. Hafi rannsakendur bent á það að óbreyttir borgarar sem þvingaðir séu til liðs við samtökin séu lélegir hermenn þar sem hvatinn til að taka þátt í bardaga sé lítill og líkurnar á því að þeir gerist liðhlaupar séu miklar. Þá sé hætta á því að á þeim svæðum þar sem margir séu þvingaðir til liðs við samtökin gefi það heimamönnum þess svæðis ástæðu til að starfa með yfirvöldum.
Í skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (AMISOM) sé friðargæslusveit í Sómalíu, studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, sem samanstandi af nærri 20.000 hersveitum. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. AMISOM hafi tekist að ná yfirráðum úr höndum Al-Shabaab á nokkrum svæðum, þ. á m. Mógadisjú. Árangur AMISOM sé þó ekki öruggur þar sem hann sé háður hernaðarstuðningi alþjóðasamfélagsins.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 hafi Al-Shabaab borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.
Í skýrslu EUAA frá 2023 er vísað til korts Political Geography Now frá 17. janúar 2023 sem sýnir að sómölsk stjórnvöld fari með yfirráð yfir borginni Kismayo. Í skýrslunni er vitnað til heimilda frá árinu 2021 þar sem fram kom að sómölsk stjórnvöld væru með sterk yfirráð yfir Kismayo og nærumhverfi. Þá hafi Al-Shabaab farið með stjórn yfir stærstum hluta dreifbýla í neðra-Juba umdæmi í september 2021. Átök eigi sér stað milli Al-Shabaab, sómalskra stjórnvalda og bandamanna stjórnvalda í neðra-Juba umdæmi, þ. á m. í tilteknum hverfum í Kismayo. Þá séu samtökin með viðveru m.a. í Kismayo og stjórni ýmsum vegum til og frá borginni. Á tímabilinu frá júlí 2021 til nóvember 2022 hafi 517 ofbeldisatvik, þ.e. átök, sprengjur og ofbeldi gagnvart óbreyttum borgurum, og 548 dauðsföll tengd þeim verið skráð í neðra-Juba umdæmi. Flest öryggisatvik, 244 talsins, hafi átt sér stað í Kismayo. Jafnframt hafi flest dauðsföll átt sér stað í Kismayo, 303 talsins, þar af 12 óbreyttir borgarar. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu ACLED frá júlí 2023 hafi 200 pólitísk ofbeldisatvik átt sér stað á tímabilinu 24. júní 2023 til 21. júlí 2023 í umdæmum neðra-Shabelle, Banadir og neðra-Juba í Sómalíu. Umdæmin hafi verið miðdepill pólitísks ofbeldis á framangreindu tímabili vegna árása Al-Shabaab á sómalskar öryggissveitir. Neðra-Juba umdæmi hafi verið með hæsta fjölda skráðra dauðsfalla, rúmlega 150 tilfelli á umræddu tímabili, og hafi flest þeirra átt sér stað í átökum milli Al-Shabaab og sómalskra stjórnvalda. Sómalskar öryggissveitir og bandamenn þeirra hafi framið fjölda árása, þ. á m. loftárásir, á bækistöðvar Al-Shabaab í Kismayo, Jamame og Afmadow í neðra-Juba umdæmi í júní og júlí 2023. Þó kemur fram í skýrslu EUAA frá ágúst 2023 að viðvera einstaklings ein og sér í neðra-Juba umdæmi myndi ekki leiða til þess að hann teldist eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi c-liðar 15. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2011/95/EB (e. Qualification Directive). Hins vegar nái handahófskennt ofbeldi á svæðinu háu stigi og því þurfi minna að koma til við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum viðkomandi til að rökstuddar líkur verði taldar á því að viðkomandi muni eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi ákvæðisins verði honum gert að fara aftur til neðra-Juba umdæmis.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í skýrslunni kemur fram að í Sómalíu séu fjórir stærstu ættbálkarnir Darod, Hawiye, Isaaq og Dir. Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslunni hafi mikilvægi aðildar að tilteknum ættbálki breyst á undanförnum árum í höfuðborginni Mógadisjú. Hlutverk ættbálksins hafi í auknum mæli færst frá því að verja stöðu ættbálksins yfir í hlutverk félagslegrar aðstoðar og stuðnings. Í skýrslu ESAO frá árinu 2021 kemur fram að íbúum neðra-Juba landsvæðisins megi skipta í fimm einingar eftir þjóðernisbrotum. Meðfram Jubba ánni tilheyri meginhluti íbúa Somali Bantu ættbálknum, einnig þekktur sem Jareer. Þá kemur fram að íbúasamsetning Kismayo sé flókin og háð breytingum. Þar séu tvær ríkjandi ættir, Harti/Darood sem hafi komið þangað á 19. öld, og Zubeir/Ogaden sem hafi sest að í hverfum Kismayo. Meðlimir annarra ættbálka hafi jafnframt sest að í Kismayo, s.s. Marehan og Bajuni. Harti ættin sé aðallega í þéttbýli og stundi viðskipti. Þá sé stór hluti Somali Bantu/Jareer ættarinnar búsettur í Kismayo, sem hafi flúið frá Jubba Valley af ótta við Al-Shabaab. Í skýslu EUAA frá árinu 2023 kemur m.a. fram að neðra-Juba einkennist af fjölbreyttum þjóðfélagshópum. Íbúar svæðisins tilheyri m.a. ættbálkunum Somali Bantu (einnig þekkt sem Jareer), Biypmaal/Dir, Tunni/Digil-Mirifle, Mohamed Zubier/Ogaden/Darood, Gaaljaal, Harti/Darood og Somali Bajuni. Þá sé íbúasamsetning Kismayo flókin en Ogaden ættin hafi verið með yfirráð í borginni.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Í borginni sé aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu og apótekum.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í heimaríki af hálfu meðlima Al-Shabaab samtakanna sem fari með yfirráð í heimabæ hans.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 11. október 2022 kvaðst kærandi vera fæddur og uppalinn í umdæmi Jubalands, í bænum Berxaani , í héraðinu Kismayo. Svæðið sé í suðvesturhluta Sómalíu nálægt landamærum Kenía. Aðspurður um borgir í nágrenninu nefndi kærandi Kajaroon, Qudus og Laba Kus. Í framhaldsviðtali, dags. 22. ágúst 2023, var kærandi inntur eftir nákvæmari upplýsingum um búsetu hans í Sómalíu. Kærandi greindi þá frá því að hann hafi verið búsettur í þorpinu Berxaani sem sé ekki hluti af Kismayo borginni en tilheyri sama héraði. Aðspurður kvað kærandi Afnoon, Kaajaroon, Qudus og Shimbirey vera þorp eða bæi sem væru staðsettir nálægt heimaþorpi hans. Í viðtalinu greindi kærandi frá því að Berxaani væri staðsett langt frá borginni Kismayo og að það tæki um það bil frá morgni til hádegis að keyra þar á milli, eftir því á hvernig bíl væri ferðast. Kæranda var greint frá því að heimildir bentu til þess að um 50 kílómetrar væru á milli Berxaani og Kismayo. Kærandi greindi þá frá því að vegirnir þar á milli væru illa farnir og víða væri ekki hægt að aka hratt. Auk þess þyrfti að ferðast í gegnum yfirráðasvæði Al-Shabaab.
Í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þar sem kærandi hafi ekki lagt fram gögn til staðfestingar á auðkenni sínu hafi stofnunin ákveðið að láta kæranda þreyta tungumála- og staðháttapróf 13. júlí 2023. Í prófinu hafi mállýska kæranda verið borin saman við þá mállýsku sem helst sé einkennandi fyrir talsmáta þeirra einstaklinga sem komi frá sama svæði og kærandi kveðst koma frá, þ.e. frá Beer Xaani í neðra-Juba umdæmi í Suður-Sómalíu. Kærandi hafi fengið hæstu mögulegu einkunn, +3. Þá hafi kærandi réttilega nefnt þorp og bæi í kringum heimaþorp sitt. Auk þess hafi kærandi nefnt hefðbundinn dans frá svæðinu og þekkta ættbálka.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að rannsókn stofnunarinnar hafi leitt til þess að heimaþorp kæranda komi fram undir nöfnunum Berxaani, Berhani, Berhaani, Beerhani og Berhane. Þá sé í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2020 m.a. vísað til Beerhani sem einnar stærstu borgar sem fyrirfinnist í umdæmi Kismayo. Þorpið Berhani sem Útlendingastofnun vísar til er í neðri-Juba um 60 kílómetra fyrir ofan borgina Kismayo. Í viðtali hjá Útlendingastofnun nefndi kærandi Afmadow, Badhaadhe og Jana Cabdalle sem nærliggjandi borgir, þorp eða bæi við Berxaani. Heimildir benda til þess að landsvæði neðra-Juba sé skipt upp í fimm umdæmi, Kismaayo, Afmadow, Badhaadhe, Jamaame og Xagar. Jafnframt má finna borg sem ber heitið Afmadow og er staðsett í miðju Jubalandi, um 80 kílómetra frá Berhani. Badhadhe umdæmið er staðsett í suðurhluta neðri-Juba. Þá virðist Jana Cabdalle, sem kærandi vísaði til, vera þorp sem staðsett er í um 21 kílómetra frá Berhani. Þegar kærandi var beðinn um að nefna ekki umdæmi heldur þorp eða bæi í nálægð við heimaþorp sitt nefndi hann Afnoon, Kaajaroon, Qudus og Shimbirey. Kaajaroon sem kærandi vísar til virðist einnig vera þekkt undir nafninu Kanjaroon, Kajaroon og Kamjaroon. Líkt og Útlendingastofnun bendir á í ákvörðun sinni virðast Qudus og Kaajaroon vera þorp staðsett um 65 kílómetra frá Kismayo. Þá virðist Shimbirey vera landsvæði í Kenía, staðsett nálægt bænum Garissa. Scimberrei virðist hins vegar vera þorp í neðri-Juba. Þá hefur rannsókn kærunefndar leitt í ljós landsvæði, nálægt Kismayo, sem ber nafnið Beer Xaani og er vísað til þess í tungumála- og staðháttaprófi kæranda. Kærunefnd leggur til grundvallar líkt og Útlendingastofnun, með hliðsjón af frásögn kæranda og heimildum, að Berxaani sé einnig þekkt undir nöfnunum Berhani, Berhaani, Beer-hani og Berhane og sé staðsett í neðri-Juba um 64 kílómetra vestan við borgina Kismayo. Lagt verður til grundvallar að kærandi komi frá bænum Berxaani í Sómalíu.
Kærandi greindi frá því í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi flúið heimaríki af ótta við hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab sem færu með yfirráð í heimaþorpi hans. Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now bæði frá því í desember 2021 og frá því í janúar 2023, fara sómölsk yfirvöld með yfirráð yfir borginni Kismayo og nágrenni hennar en heimaþorp kæranda er staðsett í um 60 kílómetra fjarlægð frá borginni. Kort á vegum Global Initiative frá því í desember 2022 bendir jafnframt til þess að Berhani sé utan þess svæðis sem áætlað er að Al Shabaab fari með yfirráð yfir. Þrátt fyrir það er ekki hægt að útiloka að Al-Shabaab fari með einhver ítök á svæðinu. Í skýrslu EUAA kemur fram að stjórnvöld hafi haft sterka stjórn á borginni Kismayo og næsta nágrenni, þar á meðal alþjóðaflugvellinum. Þá séu nokkrir bæir í neðri-Juba, s.s. Afmadow og Dobley einnig undir stjórn Jubbalands. Heimildir beri með sér að Al-Shabaab hafi yfirráð og ítök á ákveðnum svæðum í neðri-Juba, sérstaklega í dreifbýlum. Þá fari Al Shabaab með yfirráð í Bahaadhe í suðurhluta neðri-Juba. Fréttagreinar sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að komið hafi til átaka í heimaþorpi kæranda á milli Al-Shabaab og sómalskra öryggissveita. Í fréttagrein frá 5. júní 2023 kemur m.a. fram að höfuðpaur Al-Shabaab hafi verið felldur í heimaþorpi kæranda í vel skipulagðri hernaðaraðgerð. Þá kemur fram í fréttagrein frá Somaliland frá því í nóvember 2023 að öryggissveitir sómalskra stjórnvalda hafi framkvæmt markvissar aðgerðir gegn bækistöðvum Al-Shabaab á neðra-Juba landsvæðinu, þ. á m. í heimaþorpi kæranda. Aðgerðirnar hafi leitt til eyðingu á mörgum bækistöðvum Al-Shabaab. Þessir staðir hafi verið auðkenndir sem vígi Al-Shabaab og hafi valdið íbúum á svæðinu vanlíðan og ótta. Öryggissveitirnar hafi tekið niður bækistöðvar og útrýmt hugsanlegum ógnum, s.s. sprengiefnum sem talið sé að Al-Shabaab hafi komið fyrir. Þá hafi öryggissveitirnar skuldbundið sig til að halda áfram aðgerðum þar.
Kærandi greindi frá því í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi verið nemandi við trúarlegan skóla í heimabæ sínum sem bæri nafnið Madressa. Í skólanum tíðkist, þegar nemendur nái táningsaldri, að Al-Shabaab reyni að fá þá til að ganga til liðs við sig. Kennarar skólans reyni jafnframt að hafa áhrif á nemendurna og hvetja þá til að ganga til liðs við samtökin. Meðlimir samtakanna hafi ítrekað reynt að fá kæranda til að ganga til liðs við Al-Shabaab, m.a. með því að fá kennara og nemendur skólans til að sannfæra kæranda. Kærandi hafi hins vegar ekki viljað ganga til liðs við samtökin. Þegar komið hafi verið að síðasta skóladegi kæranda hafi kennari við skólann greint honum frá því að hann ætti að ganga til liðs við Al-Shabaab næsta dag. Kærandi hafi ekki viljað ganga til liðs við samtökin og hafi því ekki mætt í skólann ásamt fjórum öðrum samnemendum sínum. Síðdegis sama dag hafi meðlimir Al-Shabaab nálgast kæranda nálægt heimili hans og tekið hann með valdi. Umrætt atvik hafi átt sér stað 10. júlí 2022. Þeir hafi farið með kæranda á stað í eigu Al-Shabaab og hótað honum lífláti ef hann gengi ekki til liðs við samtökin. Kæranda hafi verið veittur umhugsunarfrestur til næsta dags. Kærandi hafi verið ákveðinn í því ganga ekki til liðs við samtökin en hafi óskað eftir frekari fresti þegar hann hafi verið inntur eftir svörum næsta dag. Á þriðja degi, þegar meðlimir samtakanna biðu eftir svari frá kæranda, hafi brotist út áflog í þorpinu. Húsið sem kærandi hafi verið vistaður í hafi ekki verið vel byggt og hann hafi náð að flýja. Fyrir tilstilli móður kæranda hafi hann flúið til frænda síns í Kismayo. Frændi kæranda hafi greint honum frá því að meðlimir Al-Shabaab hafi farið að heimili kæranda til að leita að honum og tekið föður hans. Meðlimir Al-Shabaab hafi jafnframt haft samband við kæranda símleiðis og hótað honum. Fyrir tilstilli frænda síns hafi kærandi ferðast til Keníu, þaðan til Hollands og loks til Íslands þar sem kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd. Þegar kærandi hafi verið staddur í Keníu hafi hann fengið fregnir af því að faðir hans hafi verið myrtur af meðlimum Al-Shabaab. Í framhaldsviðtali greindi kærandi frá því að þegar meðlimir Al-Shabaab hafi tekið hann með valdi hafi þeir bundið fyrir augu hans og keyrt með hann út úr þorpinu. Þá hafi þeir haldið kæranda í tvær nætur en þriðju nóttina, á meðan kærandi og aðrir sváfu, hafi þyrlur gert árás og kæranda hafi tekist að flýja. Þá greindi kærandi frá því að kennari sem hafi verið meðlimur samtakanna, hafi reynt að sannfæra kæranda daglega um að ganga til liðs við samtökin. Kærandi hafi alltaf ætlað sér að flýja gæfist tækifæri til þess, líkt og hann hafi gert þegar árásin brast út. Þá greindi kærandi frá því að á þriðja degi hafi hann verið aðskilinn frá öðrum og honum greint frá því að hann yrði drepinn þar sem hann fylgdi ekki skipunum um að ganga til liðs við samtökin.
Samkvæmt skýrslu Landinfo frá október 2022 er þvinguð nýliðaskráning Al-Shabaab óalgeng og á sér sjaldan stað á þeim svæðum sem eru ekki undir fullri stjórn samtakanna. Í skýrslunni kemur fram að samtökin reyni aðallega að fá unglinga og unga karlmenn til liðs við þau á svæðum þar sem samtökin hafi ákveðna stjórn á eða eru virk. Í borgum undir stjórn stjórnvalda, þar sem Al-Shabaab sé ekki með virka starfsemi, fari skipulögð nýliðun ekki fram. Fari nýliðun í þeim borgum fram í gegnum fjölmiðlarásir samtakanna og samfélagsmiðla. Þá kemur fram að þvingaðar ráðningar eigi sér stað en séu mjög sjaldgæfar og eigi sér þá aðallega stað þegar samtökin hafa orðið fyrir hernaðarlegu- eða efnahagslegu tjóni og séu örvæntingarfull í að fá nýliða. Í skýrslunni er vísað til þess að samkvæmt rannsóknum um atferli Al-Shabaab samtakanna séu þvingaðar ráðningar dýrkeypt ráðningarferli, þar sem óbreyttir borgarar sem séu þvingaðir til liðs við samtökin séu lélegir hermenn.
Það er mat kærunefndar að frásögn kæranda um þvingunaraðgerðir Al-Shabaab sem hafi átt sér stað 10. júlí 2022 sé óskýr. Þá gætir nokkurs misræmis á milli viðtala. Í fyrra viðtali greindi kærandi frá því að hann hafi verið vistaður af Al-Shabaab í húsnæði innan þorps síns, áflog hafi brotist út í þorpinu og hann hafi náð að flýja heim til sín eftir að hafa verið haldið gegn vilja sínum í þrjá daga. Í seinna viðtali greindi kærandi frá því að meðlimir samtakanna hafi farið með kæranda út úr þorpinu. Á þriðja degi hafi verið gerð árás með þyrlum og kærandi hafi náð að flýja. Þá greindi kærandi ekki frá því í fyrra viðtali að hafa verið aðskilinn frá öðrum og dæmdur til dauða þar sem hann hafi ekki fylgt skipunum samtakanna. Þvert á móti greindi kærandi frá því að hann hafi flúið áður en hann hafi greint frá ákvörðun sinni um að ganga ekki til liðs við samtökin. Það er jafnframt ótrúverðugt að mati kærunefndar, í ljósi gagna um starfshætti samtakanna, að kæranda hafi verið gefinn svo langur umhugsunarfrestur. Þá er ljóst að heimasvæði kæranda er ekki og hefur ekki verið undir stjórn Al-Shabaab síðustu ár.
Kærandi hefur engin gögn lagt fram við meðferð málsins sem styðja frásögn hans, þá gætir ósamræmis um veigamikil atriði í frásögn og telur kærunefnd hana ótrúverðuga. Hvaða varðar frásögn kæranda um að faðir hans hafi verið myrtur af Al-Shabaab er ljóst að kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem sýna fram á að faðir hans hafi látist og verður því ekki talið að sú frásögn breyti framangreindu trúverðugleikamati. Er það því mat kærunefndar að kærandi hafi ekki, með vísan til framangreindra landaupplýsinga og gagna málsins, leitt líkur að því að Al-Shabaab hafi komið á heimili hans og þvingað hann til að ganga til liðs við samtökin. Þá benda gögn um heimaríki kæranda ekki til þess að almennir borgarar eigi almennt á hættu áreiti eða ofsóknir af hálfu Al-Shabaab á því svæði þar sem kærandi var búsettur. Með vísan til alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kæranda hafi ekki tekist að sýna fram á með rökstuddum hætti að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu Al-Shabaab í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð byggir kærandi á því að kröfur til þess að hann sanni þvingaða aðild hans að Al-Shabaab séu óraunhæfar og í ósamræmi við sönnunarkröfur flóttamannaréttar og framkvæmd kærunefndar. Því til stuðnings vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar frá 2. febrúar 2023 í máli nr. 57/2023 og 11. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd vísar til þess að í framangreindu máli lá fyrir að kærandi hafði starfað fyrir sómölsk stjórnvöld og lagt fram gögn því til stuðnings. Kærandi var því talin hafa leitt líkur að því, með stoð í heimildum, að hún væri sérstakt skotmark Al-Shabaab. Ekkert í gögnum málsins eða frásögn kæranda bendir til þess að hann sé sérstakt skotmark Al Shabaab.
Kærandi hefur einnig greint frá því að tilheyra minnihlutaættbálknum Rer Shabelle sem sé undirflokkur Jareer Weyne ættbálksins. Á þeim grundvelli hafi hann sætt slæmri meðferð af hendi samfélagsins og annarra ættbálka. Þá hafi kærandi lent í ágreining við einstakling sem hafi tilheyrt Mareehan ættbálknum sem hafi leitt til þess að meðlimir þess ættbálks hafi komið að heimili kæranda og beitt hann og fjölskyldu hans ofbeldi. Þá tilheyri eiginkona kæranda jafnframt öðrum ættbálk og kærandi hafi mátt þola mismunun vegna þess. Samkvæmt framangreindum upplýsingum um ættbálk kæranda eru meðlimir ættbálksins Jareer Wayne, einnig þekktur sem Somali Bantu, aðallega búsettir meðfram Jubba ánni. Þá sé stór hluti Somali Bantu/Jareer ættarinnar búsettur í Kismayo, sem hafi flúið frá Jubba Valley af ótta við Al-Shabaab. Telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi tilheyri Rer Shabelle ættbálknum, sem er undirflokkur Jareer Weyne ættbálksins. Þrátt fyrir að ættbálkurinn sé ekki leiðandi á heimasvæði kæranda benda heimildir ekki til þess að hann hafi orðið fyrir sérstöku aðkasti eða sæti kerfisbundinni mismunun. Hins vegar er ekki unnt að útiloka að meðlimir ættbálksins sæti einhverri mismunun í heimaríki. Kærandi hefur þó ekki greint frá því að hafa orðið fyrir mismunun eða eiga á hættu mismunun sem nær því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður meðlima Jarrer ættbálksins er það mat kærunefndar að aðstæður hans séu ekki slíkar að þær geti talist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er það því mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann eigi á hættu ofsóknir vegna aðildar sinnar að minnihlutaættbálkinum Rer Shabelle í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í heimaríki af öðrum ástæðum.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.
Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Líkt og rakið hefur verið leggur kærunefnd til grundvallar í málinu að uppruna kæranda megi rekja til bæjarins Berxaani (Berhani, Berhaani, Beerhani og Berhane) í Kismayo héraði í neðra-Juba umdæmi í Suður-Sómalíu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað fara sómölsk stjórnvöld með full yfirráð yfir borginni Kismayo og nærumhverfi hennar en heimabær kæranda er staðsettur í um 60 kílómetra fjarlægð frá borginni og tilheyrir umdæmi hennar. Samkvæmt heimildum hafi hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab þó viðveru á svæðinu og nái handahófskennt ofbeldi milli samtakanna og sómalskra stjórnvalda og bandamanna þeirra háu stigi. Líkt og fram hefur komið leiðir viðvera einstaklings ein og sér í neðra-Juba umdæmi, samkvæmt leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023, ekki til þess að viðkomandi teljist eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi c-liðar 15. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2011/95/EB (e. Qualification Directive). Hins vegar nái handahófskennt ofbeldi á svæðinu háu stigi og því þurfi minna að koma til við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum viðkomandi til að rökstuddar líkur verði taldar á því að viðkomandi muni eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi ákvæðisins verði honum gert að fara aftur til neðra-Juba umdæmis. Með vísan til framangreinds trúverðugleikamats kærunefndar og fyrirliggjandi gagna málsins verður ekki séð að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í heimaríki hans að verða fyrir handahófskenndu ofbeldi. Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sínu í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í heimaríki sínu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi uppfyllir heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Kærandi byggir á því að hann eigi ekki afturkvæmt til Sómalíu og sé í viðkvæmri félagslegri stöðu. Hann falli að hinum dæmigerða þolanda þvingaðrar aðildar af hálfu Al-Shabaab, bæði vegna ungs aldurs og kyns. Þá hafi kærandi ekkert félagslegt bakland í heimaríki. Auk þess vísar kærandi til fyrirliggjandi sjúkragagna sem sýni fram á að álagsmeiðsl á brjóstkassa hans hafi farið versnandi.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. Með vísan til niðurstöðu kærunefndar að framan verður ekki talið að aðstæður kæranda nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 11. október 2022 greindi kærandi frá því að hann glími við minnisleysi og meiðsli í hné. Samkvæmt gögnum frá Göngudeild sóttvarna fór kærandi í venjubundna heilbrigðisskoðun 9. september 2022 þar sem hann greindi frá minnisleysi og verk í vinstra hné. Samkvæmt nótu frá hjúkrunarfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 3. apríl 2023, hafi kærandi kvartað yfir verk í hálsi og maga sem hann hafi glímt við í nokkrar vikur. Kærandi hafi prófað lyf án árangurs. Kærandi hafi jafnframt greint frá andþyngslum og svima. Kærandi hafi fengið tilvísun til heimilislæknis. Þá hafi kærandi leitað á Göngudeild sóttvarna 6. júlí 2023 vegna áverka á hálsi frá því fyrir ári síðan. Kærandi hafi verið með verki síðan og verið að kæla og taka bólgueyðandi lyf. Verkur leiði niður bak og brjóstkassa. Kærandi hafi fengið tilvísun til heimilislæknis. Þá hafi kærandi haft samband við Göngudeild sóttvarna 19. júní 2023 vegna álagsmeiðsla í brjóstvöðva. Kærandi hafi leitað á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vegna þessa. Haft hafi verið samband við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hafi veitt þær upplýsingar að kærandi hafi verið greindur með kúlu í bringubeininu (e. sternal). Líklegast sé um að ræða vöðvaslit eftir átök í líkamsrækt. Kæranda hafi verið ráðlagt að hvíla höndina. Hinn 31. júlí 2023 hafi kærandi leitað aftur til Göngudeildar sóttvarna vegna verks í brjóstkassa. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi hvílt sig í tvær vikur frá líkamsrækt en verkir fari versnandi. Kærandi sé áhyggjufullur og hafi fengið skoðun á vakt. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi ekki í meðferð hér á landi sem sé læknisfræðilega óforsvaranlegt að rjúfa. Þá hefur ekki komið annað fram í viðtölum við kæranda en að hann sé að öðru leyti við góða heilsu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Kærandi er ungur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sjálfum sér. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga eiginkonu, móður og systkini í heimaríki sínu.
Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 31. júlí 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Athugasemdir kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar
Kærandi gerði í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans, svo sem við trúverðugleikamat stofnunarinnar. Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun hafi yfirsést að ættbálkur hans Jareer Weyne gangi einnig undir nafninu Bantu og Gosha. Kærandi geti ekki treyst því að farið hafi verið rétt með heimildir um ættbálk hans í hinni kærðu ákvörðun vegna þessa og telur rannsókn um ættbálk hans vera verulegan annmarka, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. laga um útlendinga. Kærunefnd vekur athygli á því að á blaðsíðu 14 í hinni kærðu ákvörðun tekur Útlendingastofnun sérstaklega fram að höfuðættin Jareer Weyne sé samheiti yfir Somali Bantu ættina. Þá er síðar vísað til Somali Bantu og Jareer samhliða. Kærunefnd fellst því ekki á málsástæðu kæranda hvað þetta varðar.
Líkt og framangreind niðurstaða ber með sér hefur kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að frásögn kæranda um ofsóknir af hálfu Al-Shabaab sé ótrúverðug. Þá hefur kærunefnd yfirfarið öll gögn málsins, málsmeðferð Útlendingastofnunar og ákvörðun hennar í máli kæranda og telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við málsmeðferð stofnunarinnar í máli hans. Kærunefnd hefur tekið afstöðu til athugasemda kæranda að því leyti sem þær kunna að hafa haft áhrif á niðurstöðu málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli hans. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 31. júlí 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Hinn 1. febrúar 2023 var kæranda tilkynnt að Útlendingastofnun væri með það til skoðunar hvort brottvísa bæri honum með endurkomubanni til tveggja ára. Var kæranda gefið færi á að tjá sig um það og hafa uppi andmæli. Í athugasemdum kæranda, dags. 9. febrúar 2023, kvaðst kærandi ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur lönd á Schengen-svæðinu. Kærandi kvað endursendingu til heimaríkis vera ósanngjarna ráðstöfun þar sem vandamál væru í heimaríki, líkt og hótanir vígmanna, þurrkur og hungursneyð sem fari versnandi. Á Íslandi sé kærandi öruggur. Auk þess sé fjölskylda hans í hættu í heimaríki. Fjölskylda hans hafi flúið heimabæ sinn vegna hótanna öfgamanna. Kærandi hafi ekki upplýsingar um fjölskyldu sína. Í viðtali greindi kærandi frá því að fjölskylda hans hafi flúið til Dhooble nálægt landabmærum Kenía. Kærandi hafi verið í sambandi við þau í gegnum síma, aðallega myndsímtöl.
Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Í ákvörðunarorðum í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann sjálfviljugur frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir