18 janúar 2024
/
Nr. 5/2024 Úrskurður
Hinn 18. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 5/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23090108
Kæra […]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 21. september 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. september 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.
Kærandi fer aðallega fram á að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi, að honum verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og að lagt verði fyrir stofnunina að veita honum dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laganna. Til vara fer kærandi fram á að fyrirliggjandi ákvörðun verði felld úr gildi, að honum verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að veita honum dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laganna. Önnur varakrafa er að fyrirliggjandi ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 1. mgr. 74. gr. útlendingalaga. Þriðja varakrafa er að fyrirliggjandi ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74 útlendingalaga. Fjórða varakrafa er að fyrirliggjandi ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka málið til efnismeðferðar að nýju vegna annmarka á málsmeðferð. Fimmta varakrafa er að kærandi fái veitt dvalarleyfi skv. 1. mgr. 76. gr. útlendingalaga. Sjötta varakrafa er að kærandi fái veitt dvalarleyfi til níu mánaða skv. 1. mgr. 75. gr. útlendingalaga.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 2. maí 2022 og fór í sitt fyrsta viðtal af þremur hjá Útlendingastofnun 22. júní 2022 ásamt þáverandi talsmanni. Kærandi kom í efnisviðtal hjá Útlendingastofnun 7. nóvember 2022 ásamt núverandi talsmanni sínum. Boðað var til framhaldsviðtals 11. nóvember 2022. Með bréfi dags. 15. nóvember 2022 óskaði kærandi eftir því að mál hans hlyti forgangsmeðferð á grundvelli a-liðar 1. mgr. 29. gr. laga um útlendinga þar sem líklegt væri að umsókn hans yrði samþykkt vegna sérstakra aðstæðna hans. Samkvæmt dagbókarfærslum í tölvukerfi Útlendingastofnunar sem eru á meðal gagna málsins var ekki fallist á beiðni kæranda um að taka mál hans til forgangsmeðferðar. Með ákvörðun, dags. 4. september 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 21. september 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 9. október 2023. Frekari gögn bárust frá kæranda 27. nóvember 2023. Kærunefnd óskað eftir frekari upplýsingum frá kæranda með tölvubréfi, dags. 7. desember 2023. Svör bárust frá kæranda 13. desember 2023.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna líflátshótana og fjárkúgunar gagnvart honum og fjölskyldu hans, almenns ástands, stjórnmálaskoðana og kynhneigðar hans, auk þess sem að hann geti ekki vænst þess að fá lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.
Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Um atvik málsins og helstu lagarök er vísað til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 22. nóvember 2022. Einnig er vísað til framburðar kæranda í tveimur efnisviðtölum stofnunarinnar 7. nóvember 2022 og 11. nóvember 2022.
Kærandi byggir umsókn sína á því hann sem yfirlýstur andstæðingur stjórnvalda eigi á hættu ofsóknir í heimalandi sínu vegna þátttöku sinnar í andófi. Andstæðingar yfirvalda í Venesúela eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum í skilningi ákvæða 1. og 2. mgr. 38. gr., sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þótt kærandi hafi ekki verið leiðtogi eða framámaður í andspyrnu gegn stjórnvöldum, hafi hann verið skráður í stjórnmálasamtökin Mesa de la Unidad Democrática, tekið þátt í opinberum mótmælum, tjáð sig á samfélagsmiðlum um stöðu mála, og ritað nafn sitt á undirskriftalista sem yfirvöld hafi notað sem svartan lista yfir andófsmenn. Ef kærandi myndi á einhvern hátt vekja athygli stjórnvalda gæti það orðið til þess að hættan á ofsóknum raungerðist. Kærandi lagði fram safn skjáskota af opinberri tjáningu hans á Facebook um stöðu mála í Venesúela á árunum 2015 til 2018, ásamt safni skjáskota af myndum sem kærandi kvaðst hafa tekið af mótmælum í Venesúela sem hann hafi tekið þátt í og deilt á Facebook.
Kærandi kvaðst ofsóttur af hálfu glæpasamtaka sem hafi þvingað hann til að smygla fíkniefnum til Arúba, þar sem kærandi hafi verið stöðvaður og tekinn til rannsóknar vegna smyglsins. Kvaðst kærandi hafa gefið yfirvöldum á Arúba allar þær upplýsingar sem hann hefði um framangreinda aðila og glæpasamtök. Meðlimir samtakanna telji kæranda hafa svikið þau og hafi haft í hótunum við kæranda og m.a. hótað kæranda lífláti. Kærandi hafi verið á flakki innan heimaríkis í um ár en síðar flúið landið til Ekvador. Kærandi kvað umrædd glæpasamtök hafa ítök hjá lögregluyfirvöldum í Venesúela, vísaði hann til nafngreinds einstaklings sem hann kvað háttsettan innan lögreglunnar sem tæki þátt starfsemi glæpasamtakanna. Þá hafi kæru sem kærandi hafi lagt fram á hendur meðlimum samtakanna verið eytt úr gagnagrunni lögreglu og ekkert verið aðhafst vegna málsins. Kærandi kvað glæpasamtökin hafa getað haft uppi á kæranda í Ekvador og honum hafi borist hótanir á meðan hann hafi verið búsettur þar. Þannig falli glæpasamtökin undir c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst eiga á hættu ofsóknir í heimalandi sína vegna samkynhneigðar sinnar. Hann hafi orðið fyrir langvarandi fordómum og áreiti og óttist ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar. Kveður kærandi þetta falla undir 1. og 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, sbr. einkum a- og b-liði 2. mgr 38. gr. laganna. Þeir sem standi að ofsóknunum séu venesúelska ríkið, en auk þess m.a. lögregla, samborgarar og kirkjan. Teljist þetta ofsóknir á grundvelli aðildar kæranda að tilteknum þjóðfélagshópi en einnig á grundvelli trúarbragða.
Kærandi kvaðst vera þolandi mansals, kynferðisofbeldis og að hann stríði við heilsufarsvanda. Þá geti hann ekki fengið lífsnauðsynlega heilsufarsþjónustu í Venesúela. Því sé hann í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Staða kæranda sem opinbers stjórnarandstæðings, skotmarks glæpasamtaka og sem samkynhneigður maður geri að verkum að um samansafn ástæðna sé að ræða, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar snúi hann aftur til Venesúela, sbr. 1. og 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, sbr. einkum a-lið 2. mgr. ákvæðisins. Kærandi telur sig ofsóttan vegna aðildar að þremur þjóðfélagshópum sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, fórnarlömb mansals, fólk sem hefur tekið afstöðu gegn glæpasamtökum og fátækt fólk.
Kærandi telur að vegna almenns ástands í Venesúela, víðtækra áhrifa glæpasamtaka, auk landlægs haturs í garð samkynhneigðra komi innri flutningur í skilningi 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ekki til greina.
Til stuðnings varakröfu kæranda byggir hann á því að þegar tekið sé tillit til einstaklingsbundinna aðstæðna hans séu almennar aðstæður í Venesúela – kerfisbundnir glæpir yfirvalda gegn mannkyni, víðtæk mannréttindabrot þeirra, nær algert hrun réttarkerfisins, lögleysa og uppgangur glæpasamtaka, spilling og ofríki lögreglu og annarra yfirvalda, ótryggt öryggisástand, há glæpa- og morðtíðni, skortur á hreinu drykkjarvatni, ófullnægjandi heilbrigðisþjónusta og landlægt fæðuóöryggi – með þeim hætti að falli undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur sig við þessar aðstæður eiga á hættu að týna lífinu, verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða verða fyrir öðrum alvarlegum skaða í Venesúela. Með einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda sé átt við þátttöku hans í andófi, kynhneigð hans, viðkvæma stöðu hans sem fórnarlamb mansals og þolanda kynferðisofbeldis og andlegrar heilsu hans. Geri þetta aðstæður hans aðrar og erfiðari en gengur og gerist um ríkisborgara Venesúela. Þá telur kærandi að með vísan til jafnræðisreglu skuli veita honum stöðu flóttamanns á grundvelli viðbótarverndar, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð kæranda til kærunefndar útlendingamála eru gerðar athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar á frásögn kæranda og mat stofnunarinnar á þeirri einstaklingsbundnu hættu sem að honum steðji. Þá eru gerðar athugasemdir við mat Útlendingastofnunar hvað varðar skilyrði viðbótarverndar skv. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á grundvelli aðstæðna í Venesúela vegna breyttrar framkvæmdar stofnunarinnar og nýlegra úrskurða kærunefndar.
Kærandi byggir á því að ekkert í gögnum málsins eða viðtali við kæranda sé til þess fallið að grafa undan trúverðugleika frásagnar hans af ástæðum umsóknar hans um alþjóðlega vernd. Frásögnin komi heim og saman við fyrirliggjandi upplýsingar um aðstæður í Venesúela. Frásögn kæranda hafi heilt yfir verið nákvæm og ítarleg. Ekki hafi verið í frásögninni innbyrðis ósamræmi eða ósamræmi á milli viðtala sem gefi tilefni til að draga hana í efa. Minniháttar ónákvæmni og ósamræmi sem vera kunni í frásögn kæranda sé ekki slíkt að ástæða sé til að efast um trúverðugleika frásagnarinnar, einkum þegar horft sé til þess tíma sem liðinn er og þess sem kærandi hefur gengið í gegnum síðan. Niðurstaða Útlendingastofnunar hafi verið sú að lykilatriði í frásögn kæranda séu ekki trúverðug og að á trúverðugleikamatinu séu verulegir ágallar hvað varðar aðferðafræði, rökstuðning, íslensk lög og meginreglur flóttamannaréttar.
Kærandi gerir athugasemdir við kröfur Útlendingastofnunar um framlagningu sönnunargagna og mat stofnunarinnar á þeim gögnum sem kærandi gat lagt fram. Kærandi hafi lagt fram þau gögn sem hann gat útvegað og þótt þau hafi ekki fært fullkomnar sönnur á frásögn hans verði að líta til almennra sjónarmiða flóttamannaréttar um hóflegar sönnunarkröfur í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd, sbr. leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem íslensks stjórnvöld líta til við trúverðugleikamat, einkum Handbók um réttarstöðu flóttamanna og Beyond Proof – Credibility Assessment in EU Asylum Systems. Kærandi lagði fram handtökuheimild yfirvalda á Arúba á hendur sér fyrir fíkniefnasmygl, ásamt gögnum og samskiptum um skipun lögmanns fyrir kæranda vegna máls hans á Arúba. Kærandi lagði einnig fram bréf frá Samtökunum ´78 og Stígamótum þar sem vísað er til frásagnar kæranda af mansali og ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki og nágrannaríkjum.
Til stuðnings annarri varakröfu kæranda vísar hann til úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá 27. september 2023 nr. 526/2023, enda séu aðstæður kæranda sambærilegar við aðstæður manns í þeim úrskurði. Þá vísar kærandi til framangreindra málsástæðna sinna. Enn fremur vísar kærandi til þess að hann sé samkynhneigður karlmaður sem felli sig ekki við hefðbundið kynhlutverk karla í heimalandi sínu. Hann eigi á hættu ofbeldi og útskúfun snúi hann aftur til Venesúela. Kærandi kveður aðstæður í heimaríki sínu alvarlegar og þar séu framin viðvarandi mannréttindabrot auk þess sem yfirvöld veiti þegnum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum. Kærandi vilji leita verndar gegn mansali, annarra afbrota gegn honum og hótana glæpasamtaka. Kærandi sé einnig yfirlýstur andstæðingur yfirvalda í Venesúela og hafi tekið þátt í og verið sýnilegur í andófi. Leiti hann eftir lögregluaðstoð, heilbrigðisþjónustu, matvælaaðstoð eða öðru álíka komi hann til athygli yfirvalda með neikvæðum afleiðingum. Kærandi byggir einnig á andlegum veikindum sínum en hann sýni miðlungs eða alvarleg þunglyndiseinkenni, alvarleg kvíðaeinkenni og einkenni áfallastreituröskunar sem séu tilkomin vegna mansals, alvarlegs kynferðisofbeldis, áralangs áreitis og smánunar vegna kynhneigðar og annarra áfalla í lífi hans. Endursending kæranda til Venesúela myndi leiða til óbætanlegs heilsutjóns. Þá geti verið erfitt að nálgast nauðsynleg lyf í Venesúela.
Þriðja varakrafa kæranda er að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann hafi sótt um alþjóðlega vernd 2. maí 2022 og 2. nóvember 2023 hafi umsókn hans verið til meðferðar í 18 mánuði. Hann uppfylli því skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Fjórða varakrafa kæranda er að fyrirliggjandi ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka málið til efnismeðferðar að nýju vegna annmarka á málsmeðferð. Verulegir annmarkar séu á málsmeðferð Útlendingastofnunar á umsókn kæranda. Lúti þeir að ófullnægjandi rannsókn, brotum gegn andmælarétti, broti gegn andmælarétti, broti gegn jafnræðisreglu, brotum gegn grundvallarsjónarmiðum í flóttamannarétti, ófullnægjandi rökstuðningi og málshraða. Þá hafi Útlendingastofnun farið á svig við aðferðafræði Flóttamannastofnunar um trúverðugleikamat. Varði þessir annmarkar flestir ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á einn eða annan hátt en aðrir stríði gegn viðteknum viðmiðum um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd.
Fimmta varakrafa kæranda er að kærandi fái veitt dvalarleyfi skv. 1. mgr. 76. gr. laga um útlendinga. Lærandi gerir athugasemd við það sem segir í hinni kærðu ákvörðun, að erfitt væri fyrir Útlendingastofnun að leggja mat á hvort raunverulega hafi verið um mansal að ræða þar sem stofnunin þekkti ekki til laga og reglna á Arúba hvað þetta varði. Kærandi telur að ekki skipti máli hvað teljist mansal á Arúba heldur hvað teljist mansal eftir íslenskum lögum, sbr. 227. gr. a almennra hegningarlaga.
Sjötta varakrafa kæranda er að kærandi fái veitt dvalarleyfi til níu mánaða skv. 1. mgr. 75. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til ófullnægjandi rannsóknar Útlendingastofnunar, ummæla fyrrverandi dómsmálaráðherra um mansal á ríkisborgurum Venesúela, erfiðs bakgrunns kæranda, áfallasögu hans og aðstæðna í heimalandi hans. Kærandi fer fram á að leyfi skv. ákvæðinu verði gefið út til níu mánaða.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Trafficking in Persons Report: Venezuela (U.S. Department of State, 15. júní 2023);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country of Origin Information Report. Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, ágúst 2020);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (vefsíða Global Initiative against transnational organized crime, sótt 22. desember 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, júní 2018);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Vefsíða Sameinuðu þjóðanna (http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957 – sótt 20. júní 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 14. júní 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017–January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venazuela‘s Corrupt Officials Key to Human Trafficking Networks (Insight Crime, 8. ágúst 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 1. nóvember 2023);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2022 – Venezuela (Human Rights Watch, 15. janúar 2022) og
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem upp koma í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á sama tíma hafi tíðni annarra glæpa aukist, s.s. fjárkúgun, fíkniefnasala og heimilisofbeldi. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2022 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 40,4 morð á hverja hundrað þúsund íbúa.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States, OAS) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn.
Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu EASO, hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að sambönd einstaklinga af sama kyni séu ekki refsiverð í Venesúela. Stjórnarskrá Venesúela leggi bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Þrátt fyrir það verði LGBTI+ einstaklingar fyrir mismunun, þ. á m. á atvinnu- og leigumarkaði sem og í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þeir hópar sem verði aðallega fyrir ofbeldi og mismunun séu trans- og intersex einstaklingar. LGBTI+ einstaklingar verði ekki fyrir kerfisbundnu ofbeldi af hálfu yfirvalda en lögreglumenn hafi meinað þeim um aðgang að opinberum stöðum og notfært sér lagalegt tómarúm til að áreita og beita slíka einstaklinga ofbeldi. Í skýrslu kanadíska flóttamanna- og innflytjendaráðsins frá 2021 kemur fram að LGBTI+ einstaklingar geti lagt fram kvartanir vegna mismununar og brota gegn þeim en ekkert kerfi hafi verið til staðar til að taka við kvörtunum og leysa úr þeim með fullnægjandi hætti. Þá veigri einstaklingar sem verði fyrir ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar sér við því að leita sér aðstoðar vegna vantrausts í garð lögregluyfirvalda. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að í maí 2022 hafi verið sett á fót sérstök skrifstofa sem ætlað sé að rannsaka brot á réttindum LGBTI+ hópsins. Í fyrrnefndri skýrslu EASO kemur fram að hagsmunasamtök berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga í Venesúela. Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 8. ágúst 2023 kemur fram að gefnar hafi verið út leiðbeiningar til að stuðla að því að LBGTI+ einstaklingar hljóti vernd og aðstoð í mannúðaraðgerðum. Leiðbeiningarnar feli í sér leiðsögn til mannúðarsamtaka, embættismanna, stofnana Sameinuðu þjóðanna og frjálsra félagasamtaka í landinu um hvernig veita eigi LBGTI+ einstaklingum viðeigandi þjónustu og stuðning án mismununar. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að í mars 2023 hafi hæstiréttur Venesúela ógilt ákvæði í lögum landsins um herrétt (e. The Code of military justice) sem lagði refsingu við samkynja samböndum innan hersins. Þá hvatti Türk stjórnvöld í Venesúela til þess að vinna áfram að því að bæta réttindi LGBTI+ hópsins í landinu.
Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá júní 2023 er Venesúela uppspretta og áfangastaður fyrir mansal einstaklinga til þvingaðrar atvinnu og kynlífsþrælkunar. Viðkvæm börn séu einnig misnotuð af ættingjum til þess að vinna inni á heimilum, eða seld inn í vopnaða hópa sem starfi í Kólumbíu og á landamærum Venesúela. Innlend mansalsnet séu í samstarfi við spillta embættismenn til að auðvelda þessa ólöglegu starfsemi. Stjórnvöld í Venesúela uppfylli ekki lágmarkskröfur þegar komi að afnámi mansals. Aðeins takmörkuð skref hafi verið stigin í átt að því að ákæra gerendur í mansalsmálum og bera kennsl á þolendur mansals. Fólksflótti milljóna manna frá landinu hafi stuðlað að því að fleiri hafi verið seldir mansali m.a. til Kólumbíu, Arúba, Curaçao, Trínidad og Tóbagó, Brasilíu, Síle og Bandaríkjanna. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum í Venesúela starfi tvö sérstök saksóknaraembætti að því að rannsaka mansalsglæpi gegn konum, móta stefnu gegn mansali og auðvelda fórnarlömbum aðgang að dómstólum. Umboð þeirra nái ekki yfir mansalsglæpi gegn trans einstaklingum, börnum eða karlmönnum, sem hafi leitt til refsileysis brota gagnvart þessum hópi og ýtt undir hættuna á endurteknu mansali. Mannréttindasamtök hafi lýst yfir efasemdum um hvort embætti sérstaks saksóknara væri í raun starfandi. Framboð á aðstoð við þolendur sé takmarkað og engin sérhæfð aðstoð sé í boði fyrir þolendur mansals í landinu. Frjáls félagasamtök og hjálparsamtök veiti konum og börnum sem hafi verið þolendur kynferðislegrar misnotkunar, þar með talið kynlífsmansals, sálfræðiþjónustu og húsnæði. Stjórnvöld veiti að eigin sögn aðstoð við þolendur sem byggi á einstaklingsbundinni og félagslegri stöðu þolenda, tegund brota og tengslum þolenda við gerendur. Frjáls félagasamtök hafi efasemdir um að slík aðstoð standi þolendum raunverulega til boða af hálfu stjórnvalda. Þá bendi heimildir til þess að stjórn Maduro hafi jafnvel stutt við umhverfi þar sem glæpahópar geti stundað mansal án afleiðinga og þá komi ítrekað upp mál þar sem að opinberir starfsmenn hafi tekið þátt í og staðið að baki mansalsstarfsemi.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela. Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.
Kærandi kvað ástæðu flótta síns frá heimaríki mega rekja til þess að í kjölfar tilkynningar um andlát Hugo Chávez, fyrrverandi forseta, árið 2013 hafi kærandi lent í fjárhagsörðugleikum. Þrír kunningjar hans hafi þá komið að máli við hann og sagt við kæranda að þeir gætu boðið honum verkefni sem hann fengi greitt vel fyrir. Hann þyrfti að vera öruggur um að vilja heyra hvert verkefnið væri því eftir að hann fengi vitneskju um hvert verkefnið væri yrði ekki aftur snúið. Var kæranda þá tjáð að hann skyldi fara með fíkniefni til Spánar en hann kvaðst ekki vilja taka þátt í neinu sem snerti fíkniefni. Þremur dögum síðar hafi komið til hans nafngreind kona sem hafi tjáð kæranda að hann skyldi afhenda henni vegabréf hans og hann þyrfti að fara 26. júní 2014. Hún hafi hótað kæranda og fjölskyldu hans þegar hann hafi neitað. Kærandi kvaðst svo hafa verið sóttur af fyrrgreindum mönnum og honum afhent ferðataska sem hann ætti að geyma föt sín í. Kærandi kvaðst hafa flogið til Arúba þar sem hann hafi verið handtekinn því fíkniefni hafi fundist í ferðatöskunni. Kærandi hafi ekki vitað að það væru fíkniefni í töskunni en hann hafi heldur ekki spurt þá sem sendu hann með töskuna hvort í henni væru slík efni. Kærandi kvaðst hafa sagt saksóknara á Arúba allt sem hann vissi um málið og þá aðila sem hafi sent hann til Arúba. Saksóknarinn hafi tjáð honum að fólkið tengdist skipulagðri mansalsstarfsemi. Eftir níu daga á Arúba hafi kærandi verið sendur aftur til Venesúela. Mennirnir sem sendu kæranda til Arúba hafi grunað hann um að hafa þar selt fíkniefnin sjálfur og heimtuðu greiðslur og upplýsingar frá kæranda. Kærandi hafi farið í felur vegna þessa. Kærandi hafi síðan ákveðið að tilkynna lögreglunni (CICPC) um það sem gerst hefði og nafngreind kona, F, hafi tekið á móti honum. F hafi verið kærasta vinkonu kæranda. Umrædd vinkona hafi síðar varað kæranda við og sagt honum að yfirgefa Venesúela. Kærandi kvaðst síðar hafa frétt að F væri hluti af þeirri mansalsstarfsemi sem hann hafi orðið fyrir barðinu á. Þá hafi einn þeirra manna sem hafi verið viðriðinn mansalið, A, einnig starfað fyrir CICPC.
Kærandi hafi flutt til Ekvador en þessir aðilar hafi áfram hótað honum og fjölskyldu hans. Hafi kærandi þurft að greiða þessum aðilum 100 til 200 dollara á mánuði. Kærandi kvaðst ekki geta lagt fram gögn til þess að sýna fram á þessar greiðslur þar sem hann hefði millifært á móður sína sem hafi greitt aðilunum í peningum. Kærandi kvaðst hafa reynt að leita sér hjálpar í Ekvador, m.a. hjá réttarlögreglu sem spurði kæranda hvort hann ætti afrit af kærum til lögreglu í Venesúela. Kærandi hafi því beðið móður sína um að afla slíkra gagna en þegar hún hafi farið til yfirvalda hafi ekki verið til neinar skráningar um þær kærur sem kærandi hefði lagt fram, hvorki varðandi framangreindar ofsóknir né vegna kæru sem hann hefði lagt fram árið 2012 vegna fjárkúgana og þess að bílnum hans hefði verið stolið. Kvað kærandi að ástæða þessa væri sú að F væri nú yfirmaður alþjóðalögreglunnar í Venesúela og þegar hún hafi fengið stöðuhækkun hafi hún eytt út öllum málaskráningum mála sem mögulega tengdust henni og vafasömum aðilum. Kærandi hefði heyrt fleiri svipaðar sögur um kærur sem ekki væru lengur til. Kærandi kvað réttarlögregluna í Ekvador ekki hafa getað hjálpað sér og hann hafi haldið áfram að greiða mánaðarlega til umræddra fjárkúgara. Þessir aðilar væru enn að hóta og kúga fjölskyldu hans í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa yfirgefið Venesúela árið 2016 og hafi hvorki snúið þangað aftur né séð fjölskyldu sína síðan þá.
Kærandi kvaðst þá eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna þar sem hann hafi tekið þátt í andófi. Kærandi lagði fram skjal sem ber með sér að vera vottorð, dags. 15. apríl 2023, gefið út af hálfu svæðisstjóra sósíaldemókratísku stjórnmálasamtakanna Partido Un Nuevo Tiempo (UNT) í Portuguesa, þar sem reifuð eru störf hans fyrir samtökin í Portuguesa fylki á tímabilinu 2008 til 2015. Kærandi kvaðst hafa tekið þátt í fjölda mótmæla árið 2016 og látið í ljós skoðanir sínar á stjórnvöldum á samfélagsmiðlum. Kærandi lagði fram safn skjáskota af opinberri tjáningu hans á samfélagsmiðlinum Facebook á tímabilinu 22. júlí 2015 til 2018. Kærandi og meðlimir fjölskyldu hans hafi einnig skráð nafn sitt á undirskriftalista, sem kallist El Firmaso, sem hafi verið notaður af stjórnvöldum sem einhvers konar svartur listi yfir andófsmenn.
Við málsmeðferð kærunefndar lagði kærandi fram umfangsmikla greinargerð þar sem gerðar voru athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar auk þess sem kærandi taldi stofnunina ekki hafa rannsakað mál sitt með fullnægjandi hætti í ljósi framlagðra gagna. Þar sem að í frásögn kæranda var að finna misræmi í tímalínu atburða og óljóst hvernig tímalína frásagnar kæranda rímaði við tímalínu í framlögðu vottorði stjórnmálasamtaka í heimaríki kæranda og lýsingu af þátttöku kæranda í starfsemi þeirra, sendi kærunefnd frekari spurningar til kæranda með tölvubréfi, dags. 7. desember 2023.
Aðspurður í viðtali dags. 7. nóvember 2022 hvar kærandi hafi búið áður en hann fór frá Venesúela kvaðst hann hafa verið á flakki innan Venesúela frá 2014 til 2016 þegar hann hafi yfirgefið landið. Kærandi kvaðst í framhaldsviðtali dags. 11. nóvember 2022 hafa farið til lögreglu í Venesúela einhvern tíma milli ágúst og september árið 2015, til að kæra atvikið í tengslum við Arúba í júlí og ágúst sama ár. Í svörum kæranda til kærunefndar, dags. 13. desember 2023, kemur fram að kærandi hafi einnig mismælt sig varðandi hvenær hann hafi verið á hrakhólum innan Venesúela. Hið rétta sé að hann hafi verið á hrakhólum frá árinu 2015, eftir að hann hafi verið þvingaður með fíkniefni til Arúba og fram til ársins 2016 þegar hann hafi yfirgefið landið. Lagði kærandi fram skjáskot af Facebook með myndum sem hann kveður hafa verið teknar á Merida svæðinu m.a. af fjöllum og landslagi. Eru þær Facebook myndir dagsettar í ágúst 2015 en kærandi kveður myndirnar ekki hafa verið birtar opinberlega á Facebook síðu hans. Fram kemur í umræddum skjáskotum að kærandi hafi einnig verið í Merida í maí 2014 og janúar 2016. Framlögð gögn sýna að mati kærunefndar ekki fram á annað en að kærandi hafi verið á ferðalagi um Venesúela á einhverjum tímapunkti.
Kærandi hefur lagt fram gögn sem hann kveður styðja við frásögn sína um þvingað fíkniefnasmygl hans til Arúba. Er um að ræða afrit gagna sem ætla má að stafi frá yfirvöldum í Arúba, s.s. gæsluvarðhaldsákvörðun, skipunarbréf verjanda og yfirlit yfir störf tiltekins lögmanns fyrir kæranda, dagsett dagana 26. -28. júlí 2015. Er það mat kærunefndar að þó framangreind gögn hafi takmarkað sönnunargildi, einkum þar sem um er að ræða afrit gagna og ekki kemur annað fram í þeim en að kærandi hafi verið handtekinn, settur í gæsluvarðhald og skipaður verjandi, þá sé ekki ástæða til að efast um að kærandi kunni að hafa verið þvingaður til þess að smygla fíkniefnum til Arúba árið 2015 enda fær sú frásögn jafnframt stuðning í heimildum um heimaríki kæranda.
Fram kemur í ákvæði d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga að þolendur mansals skuli teljast til sérstaks þjóðfélagshóps. Ekki eru allir þolendur mansals taldir standa frammi fyrir slíkri hættu að þeir geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Við mat sitt á því hvort þolandi mansals þurfi á alþjóðlegri vernd hér á landi að halda hefur kærunefnd litið til þess hvort þolendur mansals eigi á hættu athafnir sem eru af slíku alvarleikastigi að þær jafngildi ofsóknum, t.d. ofbeldi eða endurtekið mansal. Fram þarf að fara einstaklingsbundið mat þar sem tekið er mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafna eða hvort um sé að ræða samsafn athafna sem talist geti til ofsókna. Við mat á því hvort líklegt sé að þolandi mansals eigi á hættu ofsóknir er litið til ýmissa áhættuþátta, svo sem upphæðar skuldar þolanda gagnvart geranda sínum, þ.e. þeim sem standi að baki mansalinu, hvort þolandi hafi borið vitni gegn geranda sínum, valda og getu geranda, þekkingu geranda á fjölskyldu og bakgrunni þolanda, félags- og efnahagslegan bakgrunn þolanda og aðgangs þolanda að stuðningsneti í heimaríki.
Kærandi kvaðst hafa sætt áreiti af hálfu þeirra aðila sem hafi staðið að baki fíkniefnasmyglinu eftir að hann hafi komið aftur til Venesúela í júlí 2015. Kærandi hafi í kjölfarið verið á hrakhólum innan heimaríkis síns þar til hann hafi lagt fram kæru til lögreglu á tímabilinu ágúst til október 2016. Kærandi kvaðst hafa leitað til F sem starfaði hjá CICPC til þess að leggja fram kæru vegna ferðarinnar til Arúba en hann hafi síðar komist að því að F hafi verið tengd þeim aðilum sem hafi neytt hann með fíkniefnin til Arúba og hafi hún eytt út öllum gögnum sem tengdust málum kæranda hjá lögreglu. Heimildir um Venesúela benda til þess að að stofnunin Cuerpo de Investigaciones Científicas, Penales y Criminalísticas (CICPC) geti átt þátt í aftökum á almennum borgurum án dóms og laga. Þá bera heimildir með sér að stofnunin hafi staðið að óhóflega löngum gæsluvarðhöldum, símhlerunum, ferðabönnum og rannsóknum í hefndarskyni gegn mannréttindabaráttufólki sem gagnrýnt hafi störf stofnunarinnar. Ennfremur hafi háttsettir opinberir starfsmenn orðið uppvísir af því að standa að baki mansali eða taka þátt í slíkum brotum. Er því ekki ástæða til að útiloka að tilteknir starfsmenn CICPC séu, eða hafi verið, spilltir og jafnvel tekið þátt í mansali svo sem kærandi kveðst hafa orðið fyrir. Kærandi byggir ekki á því að hafa orðið fyrir hótunum af hálfu F, heldur aðeins af hálfu þeirra aðila sem hafi þvingað hann til að fara til Arúba. Af frásögn kæranda verður ráðið að þeir aðilar hafi hótað kæranda lífláti og fleiru þar sem þeim hafi þótt grunsamlegt að kæranda hafi verið sleppt úr haldi yfirvalda á Arúba. Þá hafi kærandi ferðast um landið til Merida, Caracas, Miranda og Acarigua. Kærandi mun hafa farið einhvern tíma á milli ágúst og október árið 2016 til CICPC til að leggja fram áðurnefnda kæru. Þá var rúmt ár liðið frá ferðinni til Arúba. Kærandi hafi svo farið úr landi 30. október 2016. Athugun kærunefndar útlendingamála á Instagram reikningi kæranda leiðir í ljós að hann birti myndir af sér í Ekvador, 8. nóvember 2016, 12. apríl 2017, 25. apríl 2017, 29. apríl 2017, 27. maí 2017, 18. janúar 2018, 16. september 2018, ásamt fleiri myndum á árinu 2019, enga mynd 2020 og sjö myndir á árinu 2021. Á flestum myndanna, meðal annars þeirri frá 8. nóvember 2016, kemur fram hvar kærandi sé staddur í Ekvador. Sú staðreynd að kærandi birti þessar myndir sjálfur á Instagram reikningi sínum bendir ekki til þess að kærandi hafi verið í felum og reynt að halda dvalarstað sínum leyndum.
Samkvæmt frásögn kæranda liggur því fyrir að aðilarnir hafi í að minnsta kosti einhver skipti haft tækifæri til að gera alvöru úr hótunum sínum en ekki gert það í öll þau ár sem liðin eru frá ferð kæranda til Arúba. Þótt gera verði hóflegar sönnunarkröfur til umsækjenda um alþjóðlega vernd, svo sem margfaldlega hefur komið fram í greinargerð og svörum kæranda til kærunefndar, þýðir það ekki að engar slíkar kröfur megi gera til kæranda.
Í greinargerð til kærunefndar og í svörum kæranda til nefndarinnar dags. 13. desember 2023 kvaðst kærandi ekki geta lagt fram gögn um hótanir sem hann kvað hafa borist sér og fjölskyldu hans eftir atvikið og bærust enn fjölskyldu hans. Kvað hann aðilana hafa hótað honum og fjölskyldu hans í gegnum síma og í eigin persónu og því væru engin gögn til að leggja fram. Þá kvaðst kærandi ekki geta sýnt fram á greiðslur sínar öll þessi ár til aðilanna enda hafi þessar greiðslur farið fram með afhendingu reiðufjár en ekki með millifærslum. Kærandi kvaðst þó hafa lagt inn á móður sína sem hafi séð um að greiða aðilunum þann tíma sem hann dvaldi í Ekvador en gat þó ekki lagt fram gögn um þær millifærslur. Er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki leitt líkum að því að nú átta árum eftir að framangreindur atburður átti sér stað eigi hann á hættu ofsóknir af hálfu þeirra aðila sem hann kveður hafa staðið að baki ferð sinni til Arúba. Á kærandi því ekki á hættu ofsóknir í heimaríki vegna stöðu sinnar sem þolandi mansals.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Ekki er ástæða til þess að draga í efa að kærandi hafi verið gagnrýninn á stjórnvöld á Facebook og að hann hafi tekið þátt í almennum mótmælum. Tjáning kæranda á Facebook fólst þó að mati kærunefndar aðallega í því að deila efni frá öðrum þar sem fram kemur gagnrýni á stjórnvöld. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun aldrei hafa verið tengdur pólitískum leiðtogum eða verið leiðtogi sjálfur og í framhaldsviðtali hjá stofnuninni kvað kærandi stjórnmálaþátttöku sína hafa verið mjög einfalda og að hann hefði ekki sætt ofsóknum á grundvelli stjórnmálaskoðana áður en hann yfirgaf heimaríki sitt. Þá liggur fyrir að kærandi gat fengið útgefið vegabréf 2015 og framlengingu á því 2021 en landaupplýsingar benda til þess að ferðafrelsi andstæðinga stjórnvalda hafi verið takmarkað meðal annars með því að vegabréf hafi verið tekin af þeim. Kærandi kvað systur sína starfa hjá dómstólum í Venesúela sem bendir ekki til þess að hún sé skotmark stjórnvalda. Kærandi kvaðst í svörum sínum til kærunefndar, dags. 13. desember 2023, hafa stundað starf í þágu umræddra stjórnmálasamtaka allt fram að þeim tíma sem hann fór frá Venesúela. Kærunefnd telur ekki sýnt fram á að kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í Venesúela á grundvelli stjórnmálaskoðana hans. Verður það því ekki lagt til grundvallar. Svör kæranda til kærunefndar dags. 13. desember 2023 hagga ekki framangreindu mati nefndarinnar og benda ekki til þess að kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna í heimaríki.
Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga frásögn kæranda um kynhneigð hans í efa. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa orðið fyrir ofbeldi eða áreiti í heimaríki sem nær því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 38. gr., vegna kynhneigðar sinnar. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að samkynhneigðir eigi á hættu að verða fyrir félagslegri mismunun í Venesúela en ekki sé um kerfisbundnar ofsóknir að ræða. Lög banni mismunun á þeim grundvelli auk þess sem starfandi séu í landinu ýmis frjáls félagasamtök sem berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga. Þá benda nýlegar aðgerðir stjórnvalda og nýlegur dómur hæstaréttar landsins til þess að stjórnvöld vinni að því að bæta stöðu þessara einstaklinga í landinu. Verður ekki talið að sú mismunun eða áreiti sem LGBTI+ einstaklingar kunni að eiga á hættu nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé að nokkru leyti ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Frásögn kæranda ber með sér að hann hafi ekki dvalið í heimaríki síðan árið 2016 og hafi því ekki reynslu af kerfinu þar í landi síðustu árin. Þrátt fyrir mögulega erfiðleika verður ekki talið að kæranda sé ómögulegt að leita aðstoðar lögreglu í landinu, m.a. sökum kynhneigðar sinnar. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi eigi á hættu að sæta áreiti eða mismunun sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, á grundvelli kynhneigðar sinnar.
Í ljósi þess, og að virtum gögnum málsins, telur kærunefnd að samlegðaráhrif þeirra atriða sem kærandi hefur vísað til sem hugsanlegar ástæður ofsókna séu ekki þess eðlis eða nái því marki að hann teljist eiga á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna í heimaríki af öðrum ástæðum.
Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 110 mgr., og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997, 40. mgr.).
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í Araure í Portuguesa fylki í Venesúela þar sem hann hafi einnig verið búsettur áður en hann flúði landið. Heimafylki kæranda, Portuguesa, er staðsett í vesturhluta landsins og á landamæri að Lara fylki, Cojedes fylki, Trujillo fylki og Barinas fylki. Heimildir bera ekki með sér að vopnuð átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði hann sendur aftur til heimaríkis. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það jafnframt mat kærunefndar að ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda gefi tilefni til að ætla að sérstakar aðstæður hans leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka.
Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði hún send aftur til heimaríkis. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það jafnframt mat kærunefndar að ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda gefi tilefni til að ætla að sérstakar aðstæður hennar leiði til þess að hún eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hún til baka.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður kæranda í Venesúela séu ekki með þeim hætti að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Uppfyllir kærandi þannig ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi uppfyllir heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 2. maí 2022. Frá því kærandi sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi þar til úrskurður þessi er kveðinn upp, 18. janúar 2024, eru liðnir rúmlega 20 mánuðir. Kærandi hefur því ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið er um í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita honum dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.
Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi sé, sbr. b-lið 2. mgr. 74 gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um aðrar kröfur kæranda skv. 74. – 76. gr. laga um útlendinga.
Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar
Kærandi skilaði 63 blaðsíðna greinargerð til kærunefndar útlendingamála með mörgum athugasemdum um trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd tekur undir hluta þeirra athugasemda og sér ástæðu til að beina eftirfarandi tilmælum til Útlendingastofnunar.
Í fyrsta lagi lýtur trúverðugleikamat einkum að frásögn umsækjanda sem tengist málsástæðum hans. Ekki er allt sem umsækjandi segir jafn mikilvægt, þótt skoða þurfi þær upplýsingar sem máli skipta, þ.e. tengjast málsástæðunum, í ljósi allra upplýsinga sem fyrir liggja.
Í öðru lagi er frásögn umsækjanda um alþjóðlega vernd hluti af gögnum málsins sem ekki verður litið fram hjá. Ef stjórnvöld hafa ekki ástæðu til að hrekja frásögnina, verður að leggja hana til grundvallar að öllu jöfnu. Kröfur til umsækjenda um framlagningu gagna verður m.a. að ígrunda í þessu ljósi. Það eitt að umsækjendur geti ekki lagt fram gögn um tiltekin atriði gerir frásögn þeirra ekki ótrúverðuga af þeirri ástæðu einni.
Útlendingastofnun óskaði eftir frekari gögnum frá kæranda með tölvupósti dags. 2. maí 2023. Í dæmaskyni voru tilgreind gögn sem kærandi gæti lagt fram til að byggja undir frásögn hans. Kærunefnd óskaði eftir því við Útlendingastofnun að fá afrit af umræddum tölvupósti með erindi dags. 14. nóvember 2023. Fékk kærunefndin það svar að umræddur tölvupóstur fyndist ekki í kerfum Útlendingastofnunar. Kærunefnd telur þetta annmarka sem hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins. Kærandi taldi að Útlendingastofnun hefði brotið gegn andmælarétti kæranda með því að gefa kæranda ekki kost á því að tjá sig um það mat stofnunarinnar að lykilþættir frásagnar hans væru uppspuni. Í ljósi þess að Útlendingastofnun óskaði sérstaklega eftir fleiri gögnum frá kæranda fellst kærunefnd ekki á það með kæranda að brotið hafi verið gegn andmælarétti hans.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar á ákvörðun Útlendingastofnunar hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd staðfest. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð:
Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd er staðfest.
The Directorate of Immigration is instructed to issue the appellant a residence permit based on Article 74(2) of the Act on Foreigners. The decision of the Directorate related to his application for international protection is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir