18 janúar 2024
/
Nr. 58/2024 Úrskurður
Hinn 18. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 58/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU23090084
Kæra [...]
á ákvörðun Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 19. september 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. september 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. laganna. Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum, sbr. 1. og 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að málinu verði vísað aftur til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 9. ágúst 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun ásamt löglærðum talsmanni sínum 31. janúar 2023 og í framhaldsviðtal hjá stofnuninni 31. maí 2023. Með ákvörðun, dags. 14. september 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var framangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 19. september 2023. Hinn 3. október 2023 barst kærunefnd greinargerð kæranda.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna aðildar að sérstökum þjóðfélagshóp á grundvelli tilrauna hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab til að fá hann til að ganga til liðs við samtökin og vegna þess að hann hafi orðið fyrir mismunun þar sem hann tilheyri minnihlutaættbálknum Jaaji og undirættbálkunum Axmed, Faarax og Raage.
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.
Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunnar, viðtals síns hjá stofnuninni og annarra gagna málsins hvað málsatvik varðar.
Í greinargerð gerir kærandi athugasemdir við málsmeðferð umsóknar hans og hina kærðu ákvörðun. Kærandi vísar til aldursgreiningar sem hann hafi undirgengist hér á landi og mótmælir niðurstöðum hennar með vísan til þess að hún hafi ekki farið fram í samræmi við áskilnað 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga og 40. gr. reglugerðar um útlendinga. Kærandi vísar til þess að þeir matsmenn sem hafi verið kallaðir til hafi verið tveir tannlæknar, sem hafi upplýst í greinargerð sinni að ekki væri hægt að ákvarða aldur kæranda út frá tönnum. Matið hafi því eingöngu verið framkvæmt með hliðsjón af beinvexti, sem rannsóknir og aðrar heimildir bendi til að séu óáreiðanlegri aðferð við aldursgreiningu og skekkjumörk séu veruleg. Kærandi hafi skilað andmælum við framangreinda málsmeðferð og niðurstöður aldursgreiningarinnar til Útlendingastofnunar og vísar kærandi til þeirra. Kærandi telur að hann hafi ekki hlotið sanngjarna málsmeðferð við aldursgreiningu og að leggja beri til grundvallar að hann sé barn í skilningi laganna þar sem vafa beri að meta kæranda í hag, sbr. 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga.
Kærandi vísar til þess að hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi yfirgefið Sómalíu 8. nóvember 2020. Sé uppgefinn aldur kæranda lagður til grundvallar hafi hann verið [...]þegar hann flúði heimaríki sitt. Meta beri frásögn kæranda í því ljósi og þeirrar viðkvæmu stöðu sem hann sé í sem fylgdarlaust barn, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um útlendinga.
Kærandi vísar til þess að staðhátta- og tungumálapróf sem hann hafi undirgengist bendi til þess að hann komi frá svæðinu Jilib, líkt og hann hafi greint frá í viðtali, enda hafi niðurstöður prófsins um báðar þær mállýskur sem hafi verið prófaðar ekki verið afgerandi heldur sambland af báðum mállýskum. Kærandi bendir einnig á að hann hafi umgengist aðra sómalska ríkisborgara, m.a. smyglara sem hafi komið honum úr landi og aðila hér á landi í búsetuúrræði kæranda og mállýska geti tekið stakkaskiptum í samræmi við aðstæður og einstaklinga í nærumhverfi.
Kærandi vísar til þess að byggt sé á því í forsendum hinnar kærðu ákvörðunar að hann sé ríkisborgari Sómalíu en að ekki sé unnt að ákveða með nákvæmari hætti hvaðan kærandi eigi uppruna sinn að rekja innan Sómalíu. Að sama skapi sé lagt til grundvallar að kærandi tilheyri Sheikhal ættbálknum, sem þó sé eingöngu með viðveru á tilteknum landsvæðum í Sómalíu. Kærandi byggir á því að forsendur niðurstöðu Útlendingastofnunar sem byggi á trúverðugleikamati á frásögn kæranda séu í innbyrðis mótsögn, þar sem kærandi geti ekki tilheyrt Sheikhal ættbálknum og talað sómölsku með þeirri mállýsku sem greind hafi verið, nema vera sannanlega frá því svæði sem hann kvaðst koma frá, þ.e. Jilib. Þá verði ekki talið að annað í frásögn kæranda um staðhætti heimasvæðis hans sé til þess fallið að útiloka frásögn hans sem trúverðuga í ljósi einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, áfallasögu hans, menntunarstigs og þeirri staðreynd að hann hafi flúði heimaland sitt ungur að aldri. Kærandi byggir á því að athugasemdir Útlendingastofnunar við trúverðugleikamat frásagnar hans sé ófullnægjandi og byggt á ótraustum grunni. Í því samhengi vísar kærandi til þess að Útlendingastofnun hafi gert athugasemd við að kærandi hafi skrifað nafn heimabæjar síns sem „Gilib“, en ekki „Jilib“, en samkvæmt heimildum sé bærinn einnig þekktur undir því nafni. Kærandi telur ótækt að leggja landfræðilega kunnáttu kæranda til grundvallar við mat á trúverðugleika frásagnar hans og hvaðan hann kemur, einkum í ljósi sérstaklega viðkvæmrar stöðu hans, sbr. 6. tl. 1. mgr. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að mállýska hans, sem sé það helsta gagn sem hægt sé að byggja á, komi ekki heim og saman við mállýskur sem talaðar séu af meðlimum Sheikhal ættbálksins á öðrum landsvæðum í Sómalíu og því liggi í augum uppi að leggja beri til grundvallar að kærandi sé frá Jilib. Kærandi byggir á því að um verulega ágalla sé að ræða á hinni kærðu ákvörðun sem brjóti í bága við meginregluna um að vafa beri að meta umsækjanda í hag og rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga, enda séu forsendur, ályktanir og rökstuðningur fyrir niðurstöðu hinnar kærðu ákvörðunar að stórum hluta byggðar á ályktun um að óljóst sé frá hvaða landsvæði kærandi komi. Því séu forsendur hinnar kærðu ákvörðunar um aðrar málsástæður kæranda verulegum annmörkum háðar.
Kærandi byggir á því að hann geti ekki leitað til annarra landsvæða í Sómalíu þar sem hann sé öruggur. Þvert á móti hafi slíkt verið talið ótækt í stjórnsýsluframkvæmd sökum aðstæðna í landinu og ættbálkakerfisins í Sómalíu og sá skilningur hafi verið staðfestur af kærunefnd útlendingamála.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðlega vernd sem flóttamaður hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, enda hafi hann ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum af hálfu Al-Shabaab sem fari með raunveruleg yfirráð á heimasvæði kæranda. Þá liggi fyrir að yfirvöld geti ekki tryggt öryggi hans eða mannréttindi á því svæði sem hann sé frá. Kærandi vísar til þess að ljóst sé af fyrirliggjandi heimildum að Al-Shabaab stjórni mið-Juba landsvæðinu að öllu leyti og séu í raun starfandi yfirvöld svæðisins og neyði unga drengi til að ganga til liðs við samtökin, ellegar sé þeim refsað með ofbeldi, þeir pyntaðir og/eða drepnir. Kæranda stafi veruleg ógn af Al-Shabaab samtökunum og hafi ástæðuríkan ótta um að verða fyrir ofsóknum af hálfu þeirra. Með vísan til 38. gr. laga um útlendinga hafi kærandi þurft að sæta ofsóknum, ofbeldi og hótunum í heimaríki og hafi því ástæðuríkan ótta um að vera utan heimaríkis og að vera sendur þangað aftur.
Kærandi krefst þess til vara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Raunhæf ástæða sé til að ætla að kærandi verði fyrir alvarlegum skaða, þ.e. ofbeldi, pyndingum, frelsissviptingu eða að vera drepinn af meðlimum Al-Shabaab samtakanna, sem fari með yfirráð á heimasvæði kæranda. Útilokað sé að kærandi geti leitað aðstoðar eða verndar í öðrum landshlutum Sómalíu. Öryggisástand í heimaríki kæranda sé með öllu ótryggt og kærandi hafi ríka þörf á vernd.
Kærandi krefst þess til þrautavara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. og 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Félagslegar aðstæður kæranda í heimaríki séu erfiðar auk þess sem almennar aðstæður á því svæði sem kærandi sé frá séu þess eðlis að hann eigi á hættu að vera drepinn eða þvingaður til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab. Kærandi eigi því á hættu að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa til heimaríkis. Kærandi vísar til þess að stuðningsnet hans sé veikt og faðir hans sé látinn. Þá verði kæranda að öllum líkindum refsað af hálfu Al-Shabaab verði honum gert að snúa aftur.
Þá vísar kærandi til þess að hann falli undir 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga þar sem hann teljist barn í skilningi laganna. Hafi mál hans ekki fengið afgreiðslu 9. desember 2023 verði meira en 16 mánuðir liðnir frá því að hann óskaði fyrst eftir alþjóðlegri vernd hér á landi. Þá vísar kærandi til þess að jafnvel þó ekki verði fallist á að kærandi uppfylli skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, sé á því byggt að beita beri undanþáguheimild frá ákvæðinu, sbr. 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, og fallast á að veita kæranda dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Kærandi krefst þess til þrautaþrautavara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og vísað aftur til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga. Útlendingastofnun hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni með fullnægjandi hætti við mat á trúverðugleika frásagnar kæranda og þeirra gagna sem lögð hafi verið fyrir forsendum og ályktunum um landaheimildir í hinni kærðu ákvörðun. Þá hafi forsendur og ályktanir við trúverðugleikamat leitt til rangrar niðurstöðu um heimasvæði kæranda sem óhjákvæmilega hafi leitt til rangs mats á málsástæðum kæranda. Auk þess hafi aldursgreining verið verulegum annmörkum háð og brotið gegn 40. gr. reglugerðar um útlendinga á þeim grundvelli að ekki hafi verið fengnir þar til bærir sérfræðingar við aldursgreiningu, enda sé ljóst að tannlæknar séu ekki bærir til að meta aldur einstaklinga á grundvelli beinvaxtar eða beinþroska. Kærandi hafi ekki fengið að njóta vafans við mat á aldri líkt og áskilið sé í 1. mgr. 113 gr. laga um útlendinga.
Að lokum telur kærandi að með endursendingu hans til Sómalíu yrði brotið gegn meginreglunni um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá muni slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á honum deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari þó að öðru leyti sé auðkenni hans óþekkt.
Mat á aldri, sbr. 113. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 26. gr. laga um útlendinga segir m.a. að ef grunur vaknar um að umsækjandi sem segist vera fylgdarlaust barn sé lögráða, og að ekki er hægt að staðfesta það á óyggjandi hátt, skuli gerð, eins fljótt og kostur er, aldursgreining samkvæmt 113. gr. laganna. Í 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ef grunur leiki á að umsækjandi um alþjóðlega vernd eða umsækjandi um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar villi á sér heimildir við meðferð máls eða segi rangt til um aldur við meðferð máls geti viðkomandi stjórnvald lagt fyrir útlending að hann gangist undir líkamsrannsókn til þess að ákvarða aldur hans. Niðurstaða úr slíkri líkamsrannsókn skuli metin í samhengi við önnur atriði málsins og vafi metinn umsækjanda í hag. Í 1. mgr. 40. gr. reglugerðar um útlendinga, sbr. 3. mgr. 113. gr. laga um útlendinga, kemur jafnframt fram að við ákvörðun á aldri skuli fara fram heildstætt mat á aðstæðum einstaklings og frásagnar af ævi hans en auk þess megi beita líkamsrannsókn til greiningar á aldri. Leiki grunur á að umsækjandi segi rangt til um aldur skuli framkvæma líkamsrannsókn til greiningar.
Samkvæmt framansögðu hefur löggjafinn ákveðið að stjórnvöld á sviði útlendingamála skuli beita tilteknum rannsóknaraðferðum þegar upplýsa þarf um aldur umsækjanda um alþjóðlega vernd. Þá hefur löggjafinn jafnframt ákveðið að mat á aldri skuli vera heildstætt og vera byggt, eftir atvikum, á fleiri gögnum en líkamsrannsókn.
Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að hann væri fæddur [...] en lagði engin gögn fram sem staðfestu auðkenni hans. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun var kæranda leiðbeint um að leggja fram gögn sem staðfestu fæðingardag hans. Kvaðst kærandi ekki getað útvegað slík gögn. Hinn 4. nóvember 2022 mætti kærandi ásamt löglærðum talsmanni sínum til Útlendingastofnunar og veitti samþykki fyrir aldursgreiningu. Kærandi undirgekkst aldursgreiningu 29. nóvember 2022, sem fólst í stafrænni röntgenbreiðmynd og sérmynd af jöxlum og framtönnum. Þá var tekin röntgenmynd af hönd og úlnlið kæranda. Í niðurstöðum aldursgreiningar, dags. 29. desember 2023, kemur fram að kærandi sé eldri en 18 ára. Þá kemur fram að endajaxla vanti í kæranda. Ekki sé unnt að greina hvort þeir hafi verið fjarlægðir eða hvort um meðfædda vöntun sé að ræða. Þroskaferli allra tanna kæranda sé lokið með lokun rótarenda og allir forjaxlar og jaxlar séu í bitsnertingu. Vegna vöntunar endajaxla hafi aldursgreiningu á tönnum ekki verið beitt en stuðst hafi verið við aldursgreiningu af beinvexti handar og úlnliðs. Samkvæmt henni sé kærandi eldri en 19 ára. Langtíma vannæring geti seinkað beinþroska og hefur þá þau áhrif að fullum beinþroska sé náð seinna á ævinni og þeir einstaklingar þá greindir yngri en þeir eru í raun. Hjá kæranda hafi fullum samruna beinenda verið náð. Öllum þroskaviðmiðum hafi veri lokið og þau breytist ekki síðar á ævinni. Þrátt fyrir að heppilegra hefði verið að hafa jafnframt aldursgreiningu á tönnum, hnígi öll rök að því að umsækjandi sé eldri en 18 ára. Hinn 5. nóvember 2022 kom kærandi í viðtal hjá Útlendingastofnun, ásamt löglærðum talsmanni sínum, þar sem honum voru kynntar niðurstöður aldursgreiningarinnar og tilkynnt að með hliðsjón af niðurstöðum hennar, gögnum málsins og þess að kærandi hafi ekki getað lagt fram skilríki sem sanni á honum deili eða aldri hans var það mat Útlendingastofnunar að farið yrði með mál hans sem mál fullorðins einstaklings.
Kærandi byggir á því í greinargerð að niðurstöður líkamsrannsóknar sem kærandi hafi undirgengist taki ekki af allan vafa um hvort kærandi hafi náð 18 ára aldri. Greiningin hafi verið framkvæmd af tveimur tannlæknum, þrátt fyrir að ekki hafi verið unnt að meta aldur hans út frá tönnum þar sem endajaxla vantaði. Líkt og fram kemur í niðurstöðunum eru umræddir tannlæknar sérmenntaðir í aldursgreiningum og hafa þá sérfræðikunnáttu sem þarf til að greina úr röntgenmyndum af beinum. Þá vísar kærunefnd til framangreindrar niðurstöðu aldursgreiningar þar sem fram kemur að fullum beinþroska hafi verið náð. Vannæring geti haft áhrif á aldursgreiningu en leiði þá frekar til þess að viðkomandi sé metinn yngri en hann raunverulega er. Auk þess verður ekki annað ráðið en að niðurstöður sérfræðilegs mats á þroskastigi handa og úlnliðs séu byggðar á ályktunum fagmanna af læknisfræðilegum gögnum. Líkt og fram kemur í aldursgreiningarskýrslu kæranda er nokkrum rannsóknaraðferðum beitt til að aldursgreina umsækjendur og eru þau viðmið sem lögð eru til grundvallar talin gefa raunsanna mynd af aldri barna og unglinga. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn umræddum fullyrðingum sínum til stuðnings. Samkvæmt niðurstöðu aldursgreiningarinnar hníga öll rök að því að kærandi sé eldri en 18 ára.
Þegar litið er með heildstæðum hætti til gagna málsins, einkum aldursgreiningar, telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé eldri en 18 ára. Þá verður að mati kærunefndar, ekki talið að vafi leiki þar á í skilningi 2. málsl. 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 2. júní 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
- Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
- Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
- Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, 11. ágúst 2023);
- Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
- Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
- Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
- EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
- EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
- Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
- Heightened Political Violence in Somalia (ACLED, 3. mars 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, september 2022);
- Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
- Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 - March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
- Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. september 2013);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 17. febrúar 2021);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
- Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
- Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
- Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
- Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
- Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
- Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
- Somalia: Health system (The Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
- Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
- Somalia – Rekruttering til al-Shabaab (Landinfo, 17. október 2022);
- Somalia – Reaksjoner mot personer mistankes for tilknytning til al-Shabaab (Landinfo, 2. desember 2022);
- Somalia – Reaksjoner mot al-Shabaab avhoppere (Landinfo, 20. júní 2023);
- Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
- Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
- Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
- Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
- Somalia. COI Query. Security situation update, 1 December 2022 to 14 April 2023 (EUAA, 25. apríl 2023);
- South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
- South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
- The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 28. nóvember 2023);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
- UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
- Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í maí 2018);
- Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, september 2021) og
- World Report 2023 – Somalia: Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 bera hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hefur hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega milli landsvæða og séu hópar samtakanna sérstaklega virkir á svæðum þar sem ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar haldi sig. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.
Í skýrslu Landinfo frá október 2022 er fjallað um nýliðunaraðferðir Al-Shabaab samtakanna. Fram kemur í skýrslunni að Al-Shabaab samtökin noti ýmsar aðferðir til að ráða hermenn og stuðningsmenn. Séu aðferðir við ráðningar mismunandi eftir tíma og stað og endurspegli hernaðarþarfir hópsins sem og hver styrkur samtakanna sé gegn hersveitum ættbálka og öðrum sem séu tryggir yfirvöldum. Landinfo greinir frá því í skýrslunni að heimildir gefi til kynna að samtökin reyni aðallega að fá unglinga og unga karlmenn til liðs við þau á svæðum þar sem samtökin hafi ákveðna stjórn á eða eru virk. Í borgum undir stjórn stjórnvalda, þar sem Al-Shabaab sé ekki með virka starfsemi reyni samtökin síður að ráða nýja meðlimi. Fari nýliðun í þeim borgum í gegnum fjölmiðlarásir samtakanna og samfélagsmiðla. Þá kemur fram í skýrslunni að þvingaðar ráðningar eigi sér stað en séu mjög sjaldgæfar og eigi sér þá aðallega stað þegar samtökin hafa orðið fyrir hernaðarlegu- eða efnahagslegu tjóni og séu örvæningarfull í að fá nýliða. Í skýrslunni er vísað til þess að samkvæmt rannsóknum um atferli Al-Shabaab samtakanna séu þvingaðar ráðningar dýrkeypt ráðningarferli. Hafi rannsakendur bent á það að óbreyttir borgarar sem þvingaðir séu til liðs við samtökin séu lélegir hermenn þar sem hvatinn til að taka þátt í bardaga sé lítill og líkurnar á því að þeir gerist liðhlaupar séu miklar. Þá sé hætta á því að á þeim svæðum þar sem margir séu þvingaðir til liðs við samtökin gefi það heimamönnum þess svæðis ástæðu til að starfa með yfirvöldu
Í skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (AMISOM) sé friðargæslusveit í Sómalíu, studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, sem samanstandi af nærri 20.000 hersveitum. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. AMISOM hafi tekist að ná yfirráðum úr höndum Al-Shabaab á nokkrum svæðum, þ. á m. Mógadisjú. Árangur AMISOM sé þó ekki öruggur þar sem hann sé háður hernaðarstuðningi alþjóðasamfélagsins.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 hafi Al-Shabaab borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í skýrslunni kemur fram að í Sómalíu séu fjórir stærstu ættbálkarnir Darod, Hawiye, Isaaq og Dir. Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Heimildir benda til þess að meðlimir Sheikhal ættbálksins (einnig þekktur undir nafninu Sheekhaal, Shiqhal, Sheikhal, Sheikhall, Shiikaal, Shekal, Shiqal, Shikhal o.fl.) séu nokkrir hópar með mismunandi menningu og mállýskur. Sheikhal sé komið af orðinu Sheik og tákni ætterni sem hafi arfgenga trúarlega stöðu. Meðlimir ættbálksins séu dreifðir um mismunandi héruð og svæði í Sómalíu, t.d. í Mógadisjú, Belet Weyne, Jowhar, mið- og neðra Juba og Gedo. Á sómalska þinginu séu þrjú sæti frátekin fyrir ættbálkinn í gegnum Hawiye ættbálkinn. Samkvæmt skýrslu Rauða krossins í Austurríki (ACCORD) nýtur ættbálkurinn Sheikhal tiltekinnar trúarlegrar stöðu sem veitir meðlimum hans ákveðin forréttindi í öllum hlutum Sómalíu. Við lok borgarastyrjaldarinnar í Sómalíu árið 1992 hafi meðlimir ættbálksins Sheikhal myndað tengsl við ættbálkinn Hawiye sem hafi styrkt pólitíska stöðu og áhrif Sheikhal til muna. Jafnframt hafi það gert meðlimum Sheikhal kleift að leita verndar hjá Hawiye ættbálkinum. Samkvæmt skýrslu ACCORD sé þó misjafnt eftir heimildum hvort Sheikhal teljist minnihlutahópur eða heyri undir Hawiye. Ráða megi að Sheikhal séu aðallega frá suðurhluta eða mið Sómalíu og austur Eþíópíu. Í Sómalíu séu meðlimir ættbálksins þekktir sem Sheikhal en í Eþíópíu séu þeir þekktir sem Shekash. Meðlimir Sheikhal telji uppruna sinn mega rekja til arabískra ætta þó sumir ættfræðingar líti á þá sem hluta af ættbálkinum Hawiye. Meðlimum Sheikhal í Mógadisjú hafi verið ógnað á heimaslóðum sínum allt frá árinu 1990 en þar sem meðlimir ættbálksins beri ekki vopn geti þeir ekki varið sig og hafi því þurft að leita verndar hjá Hawiye ættbálkinum. Ekki höfðu verið skráð nein nýleg dæmi um mannréttindabrot gagnvart meðlimum Sheikhal árið 2014 samkvæmt skýrslu EASO frá sama ári. Þá kemur fram í gögnunum að þýðing ættbálka hafi minnkað á undanförnum árum í Mógadisjú.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Í borginni sé aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu og apótekum.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki sökum hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab sem hafi reynt að þvinga kæranda til að ganga til liðs við sig. Þá hafi kærandi mátt þola mismunun á grundvelli þess að móðir hans tilheyri minnihlutaættbálki.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. janúar 2023 greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í Gilib í mið-Juba umdæmi í Sómalíu. Samkvæmt landaupplýsingum er borgin betur þekkt undir nafninu Jilib. Kærandi greindi frá því að hafa búið þar allt þangað til hann hafi yfirgefið landið í lok nóvember 2020. Í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þar sem kærandi hafi ekki lagt fram gögn til staðfestingar á auðkenni sínu hafi stofnunin ákveðið að láta kæranda þreyta tungumála- og staðháttapróf 6. febrúar 2023. Í prófinu hafi mállýska kærandi verið borin saman við mállýskuna sem helst sé einkennandi fyrir talsmáta þeirra sem komi frá sama svæði og kærandi kveðst koma frá, þ.e. borginni Jilib á mið-Juba landsvæðinu. Niðurstaða prófsins hafi verið sú að meiri líkur en minni séu á því að mállýska kæranda sé ósamrýmanleg Benadiri mállýskunni og þar með því tungumálasamfélagi sem helst sé einkennandi í borginni Jilib að mati tungumálaþjónustunnar Verified. Í því skyni að fá frekar úr því skorið til hvaða tungumálasamfélags mállýska kæranda ætti helst tengsl við var óskað eftir sérstakri greiningu á hljóðupptöku úr prófinu, þar sem kannað yrði hvort tungumál kæranda samræmdist því tungumálasamfélagi er kallast norður-sómalska (e. Northern Somali). Niðurstöður seinni greiningarinnar hafi verið þær að tungumálagreiningin geti hvorki staðfest né hrakið hvort hinar fengnu niðurstöður séu í samræmi við mállýskuna Daarood. Jilib sé staðsett innan svæðis þar sem talaðar séu Digil og Af May mállýskur. Þá séu Benadiri mállýskur með Darood áhrifum og Benadiri með Af May áhrifum í Jilib svæðinu. Jilib sé staðsett á mörkum þess svæðis þar sem töluð sé neðri-Juba Sómalska. Sú mállýska sé skilgreind sem Benadiri norður-sómalska, þar sem Benadiri og Darood mállýskur séu talaðar á svæðinu. Fram kemur að túlkun á niðurstöðum í þeim tilfellum þar sem líkleg mállýska sé neðri-Juba Sómalska sé erfið, t.d. á Jilib svæðinu. Ef tungumálanotkun einkennist af blöndu af Benadiri og norður sómalskri mállýsku, líkt og geti átt við hér, sé möguleiki að mállýskan sé í samræmi við neðri-Juba sómölsku. Sé mállýska að mestu eða öllu leyti í samræmi við norður-sómölsku gæti hún verið í samræmi við þá mállýsku sem sé í norðurhluta Sómalíu, norðurhluta Keníu, Djibouti eða hluta af Eþíópíu.
Í skýrslu Verified, fyrirtækisins sem gerði tungumála- og staðháttaprófið fyrir Útlendingastofnun, koma fram ákveðnir fyrirvarar varðandi gildi prófsins. Í skýrslunni kemur fram að ekki hafi verið framkvæmdar vettvangsrannsóknir svo vitað sé á mállýskum Sómalíu síðan á níunda áratug síðustu aldar, að undanskilinni rannsókn sem hafi verið framkvæmd í Hargeysa í Sómalílandi árið 1999. Átök í Sómalíu hafi leitt til mikilla fólksflutninga og því sé ráðlegt að gæta varúðar þegar ákveðin málsvæði eru tengd við landsvæði. Kærunefnd telur að þessi fyrirvari dragi nokkuð úr vægi tungumálaprófa vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd sem kveðast vera frá Sómalíu og óttist ofsóknir þar í landi. Af þeim sökum er sérstök ástæða til að líta jafnframt til annarra gagna sem gefa til kynna uppruna umsækjenda, þ.m.t. trúverðugleika framburðar umsækjanda sjálfs varðandi uppruna sinn og um þá atburði og aðstæður sem hann telur leggja grundvöll að umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Að mati kærunefndar er jafnframt þörf á sérstakri varúð varðandi umsækjendur sem kveðast vera frá þeim svæðum Sómalíu þar sem líf þeirra kann að vera í hættu vegna langvarandi átaka og óstöðugleika.
Niðurstaða prófs, eða athugunar á því hvaða mállýsku einstaklingur talar, verður ekki talin fela í sér afdráttarlausa niðurstöðu um uppruna eða búsetu viðkomandi einstaklings heldur verður að meta niðurstöðu prófsins í samhengi við önnur gögn máls. Taka verði tillit til ytri þátta við mat á uppruna og búsetu, svo sem uppruna fjölskyldumeðlima og búsetusögu umsækjanda. Í prófinu var kærandi jafnframt spurður um staðhætti á því svæði sem hann kveðst vera frá, þ.e. Jilib og nágrenni. Fram kemur að kærandi hafi réttilega nefnt tvær borgir á svæðinu og ánna Juba. Þá hafi kærandi réttilega nefnt verkefni sem fari fram á svæðinu, vatnsaflsvirkjunarverkefnið Faanoole. Auk þess hafi kærandi réttilega minnst á ættbálka sem séu búsettir á svæðinu. Kærandi hafi hins vegar ekki getað nefnt nein þorp á svæðinu. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun 31. janúar 2023 greindi kærandi frá því að Jilib væri staðsett í mið-juba umdæmi og að áin Jubba lægi nálægt borgunni. Aðspurður greindi kærandi réttilega frá því að borgirnar Jamaame og Xaramka væru staðsettar nálægt heimaborg hans. Kærandi greindi hins vegar ranglega frá því að Kismayo væri höfuðborg umdæmisins. Í framhaldsviðtali 31. maí 2023 greindi kærandi þá frá því að hann vissi ekki hver væri höfuðborg mið-Juba umdæmis en að Kismayo væri höfuðborg Jubbalands. Kærandi kvaðst réttilega halda að Bu‘aale væri höfuðborg mið-Juba umdæmis. Þá greindi kærandi ranglega frá því að Jilib væri í Bu‘aale héraði. Aðspurður gat kærandi ekki nefnt önnur héruð í mið-Juba umdæmi. Kærandi nefndi þrjá tiltekna staði sem hann kvað vera hverfi innan Jilib borgarinnar. Þá nefndi kærandi þrjú þorp sem hann kvað vera í nágrenni við Jilib en við skoðun finnast þau ekki á landakorti. Að mati kærunefndar bera frásögn kæranda og niðurstöður úr staðháttaprófi með sér að kærandi hafi einhverja þekkingu á staðháttum í nágrenni Jilib en ekki yfirgripsmikla. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann tilheyri ættbálknum Sheikhal og hliðarættbálknum Loobage og Caagane. Sheikhal ættbálkurinn væri að mestu leyti þekktur fyrir að úthluta mjólk í Jilib og fyrir að vera trúarleiðtogar. Þá séu meðlimir ættbálksins kennarar í trúarlegum skólum í Jilib og víðar. Ættbálkurinn sé hvorki meiri- né minnihluta ættbálkur. Heimildir benda til þess að Loobage og Caagane séu undirættbálkar Sheikhaal. Heimildir benda jafnframt til þess að meðlimir Sheikhaal ættbálksins séu nokkrir hópar með mismunandi menningu og mállýskur og séu dreifðir um mismunandi héruð og svæði Sómalíu, t.d. í Mógadisjú, Belet Weyne, Jowhar, mið- og neðra Juba og Gedo. Meðlimir ættbálksins eru því m.a. staðsettir á því svæði sem kærandi kveðst vera frá og benda heimildir ekki til þess að meðlimir ættbálksins hafi tengsl við norðurhluta landsins. Ekki verður séð að Útlendingastofnun hafi litið til þess við meðferð málsins en stofnunin lagði til grundvallar að kærandi tilheyrði ættbálknum. Í framhaldsviðtali var kæranda m.a. gefinn kostur á að viðhafa andmæli í tengslum við niðurstöður úr tungumálaprófi. Kærandi kvað móður sína koma frá svæði sem kallist Bari. Kærandi hafi ekki fengið að verja tíma með jafnöldrum sínum eftir skóla vegna Al-Shabaab og hafi því eytt mestum tíma með móður sinni. Með vísan til alls framangreinds er það mat kærunefndar að niðurstöður tungumála- og staðháttaprófsins gefi til kynna að ekki sé hægt að útiloka að kærandi hafi verið búsettur í Jilib áður en hann yfirgaf heimaríki sitt og það teljist því heimasvæði kæranda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. janúar 2023 kvaðst kærandi hafa flúið heimaríki sitt þar sem faðir hans hafi verið myrtur af meðlimum Al-Shabaab hryðjuverkasamtakanna í október 2020. Faðir kæranda hafi átt lítinn sveitabæ og þurft að greiða skatta til Al-Shabaab samtakanna. Þegar faðir kæranda hafi ekki getað greitt skatt hafi Al-Shabaab myrt föður hans. Um tveim vikum síðar hafi meðlimir samtakanna farið fram á það við móður kæranda að hann og tiltekinn bróðir hans myndu ganga til liðs við samtökin. Í kjölfarið hafi móðir kæranda ákveðið að selja sveitabæinn og senda kæranda með frænda sínum til Eþíópíu og önnur systkini hans til annarra svæða í Sómalíu. Kærandi kvaðst ekki geta dvalið lengur á heimasvæði sínu þar sem hann hefði verið myrtur eða settur í fangelsi hefði hann neitað að ganga til liðs við Al-Shabaab. Kærandi greindi frá því að Al-Shabaab réðu yfir því svæði sem hann hafi verið búsettur á. Þá greindi kærandi frá því að systkinahópur hans samanstæði af fimm bræðrum og þremur systrum en elsti bróðir kæranda hefði látist árið 2022. Einn bróðir kæranda sé búsettur í austur Sómalíu en móðir kæranda og önnur systkini hans væru ekki lengur í Sómalíu. Kærandi hafi ekki getað leitað til lögreglunnar í Sómalíu þar sem móðir hans tilheyri minnihlutaættbálki. Kærandi greindi frá því að þar sem að faðir hans hafi látist, hafi ættbálkur kæranda ekki lengur staðið við bakið á honum. Í framhaldsviðtali 31. maí 2023 greindi kærandi frá því að faðir hans hafi verið myrtur á seinni tveimur vikunum í október. Kærandi gat hins vegar ekki greint frá nákvæmri dagsetningu atburðarins. Meðlimir Al-Shabaab hafi fyrst um sinn hitt föður kæranda og óskað eftir því að hann gerði upp skuld sína. Síðar hafi meðlimir samtakanna tekið föður kæranda af lífi með byssu og hníf á kaffihúsi. Aðspurður kvaðst kærandi ekki vita hvert væri nafn kaffihússins en að eigandi þess bæri nafnið Halima. Kærandi greindi frá því að Al-Shabaab hafi ekki haldið áfram að innheimta skatt af móður kæranda heldur þess í stað farið fram á að kærandi og tiltekinn bróðir hans gengju til liðs við samtökin.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi ekki hafa orðið fyrir áreiti eða mismunun á þeim grundvelli að tilheyra ættbálknum Sheikhal. Móðir kæranda hafi hins vegar tilheyrt minnihlutaættbálknum Jaaji Axmed Faarex Raage og kærandi hafi mátt þola mismunun á þeim grundvelli. Kærandi kvað mismunina felast í því að hann hafi oft mátt heyra fólk fara fram á það við föður hans að hann skildi við móður kæranda þar sem hún tilheyrði minnihlutaættbálki. Kærandi greindi ekki frá því að hafa mátt þola mismunun á grundvelli ættbálkatengsla sinna að öðru leyti. Af framangreindum upplýsingum og framburði kæranda verður ekki byggt á því að kærandi eigi á hættu að sæta mismunun eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 38. gr., vegna ættbálks síns.
Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now, bæði frá því frá því í desember 2021 og janúar 2023, fer Al-Shabaab með yfirráð yfir borginni Jilib sem kærandi kveðst vera frá. Þá benda heimildir til þess að til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Frásögn kæranda um að samtökin hafi innheimt skatt af föður hans, sem átti sveitabæ og búfénað á svæðinu, er því í samræmi við landaupplýsingar um heimaríki kærandi.
Í skýrslu Landinfo frá október 2022 er fjallað um nýliðunaraðferðir Al-Shabaab samtakanna. Fram kemur í skýrslunni að Al-Shabaab samtökin noti ýmsar aðferðir til að ráða hermenn og stuðningsmenn. Séu aðferðir við ráðningar mismunandi eftir tíma og stað og endurspegli hernaðarþarfir hópsins sem og hver styrkur samtakanna sé gegn hersveitum ættbálka og öðrum sem séu tryggir yfirvöldum. Landinfo greinir frá því í skýrslunni að heimildir gefi til kynna að samtökin reyni aðallega að fá unglinga og unga karlmenn til liðs við sig á svæðum þar sem samtökin hafi ákveðna stjórn á eða séu virk. Framangreind skýrsla og skýrsla EUAA frá 2023, benda til þess að markhópur Al-Shabaab séu aðallega drengir og ungir karlmenn á aldrinum 12-24 ára. Al-Shabaab miði enn að nýliðun drengja og unglinga í gegnum menntakerfið á svæðum sem þeir stjórni eða hafi veruleg áhrif á. Al-Shabaab krefjist þess að ættir greiði fyrir íslamskar stofnanir á vegum Al-Shabaab og útvegi ákveðinn fjölda nemanda á hverju ári. Fjöldi nemanda sé ekki fastur heldur miðaður við þörf Al-Shabaab hverju sinni. Dæmigerð aðferð við slíka ráðningu sé að Al-Shabaab hafi samband við öldunga í ættbálkum á staðnum og fram fari samningaviðræður um hversu marga drengi ættin muni senda til Al-Shabaab. Heimildarmenn hafi greint frá því að þeir reyni að dreifa byrgðum á milli hinna ýmsu undirætta og fjölskyldna. Þá geti áhrifamiklar ættir varið sig fyrir slíkum ráðningu, t.d. með því að greiða bætur til Al-Shabaab í formi reiðufjár eða vopna. Þá hafi efnaðri fjölskyldur borgað fátækari fjölskyldum fyrir að senda börnin sín í stað þeirra. Heimildir bendi þó til þess að slíkar framkvæmdir við ráðningar eigi sér síður stað á kjarnasvæðum Al-Shabaab, líkt og í mið-Juba. Ungt fólk sem alist upp þar sem Al-Shabaab hafi óumdeilanlega yfirráð sé að miklu leyti berskjaldað fyrir hugmyndafræði Al-Shabaab þar sem samtökin séu líkt og ríkisvald sem hafi rétt til að ráða hermenn. Íbúar á slíkum kjarnasvæðum hafi því síður möguleika á að forðast eða þagga niður ákvörðun samtakanna um ráðningu. Þá hafi þeim sem neiti beiðni samtakanna um að ráða yngri fjölskyldumeðlimi til samtakanna verið hótað og þeir stimplaðir sem vantrúarmenn sem hafni íslamstrú og lögum. Sumir hafi verið drepnir sem viðvörun fyrir aðra í samfélaginu.
Í viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun, dags. 31. maí 2023, greindi kærandi sem fyrr segir frá því að hann ætti sjö systkini, þar af fimm bræður á aldrinum 14-24 ára en elsti bróðir hans hafi látist árið 2022. Al-Shabaab hafi einungis reynt að fá kæranda, þá að sögn [...], og næsta elsta bróður hans, þá að sögn [...], til að ganga til liðs við sig í lok október árið 2020. Á þeim tíma hafi elsti bróðir kæranda að sögn kæranda enn verið á lífi [...] að aldri. Þá hafa yngri bræður kæranda verið [...]. Heimildir benda sem fyrr segir til þess að markhópur Al-Shabaab séu aðallega drengir og ungir karlmenn á aldrinum 12-24 ára. Þá benda heimildir til þess að nýliðun drengja og unglinga fari aðallega fram í gegnum menntakerfið á svæðum sem samtökin stjórni eða hafi veruleg áhrif á. Jafnframt séu þvingaðar ráðningar mjög sjaldgæfar og eigi sér aðallega stað þegar samtökin hafa orðið fyrir hernaðarlegu- eða efnahagslegu tjóni og séu örvæntingafull að fá nýliða. Hins vegar er ljóst að Jilib er óumdeilanlega undir yfirráðum Al-Shabaab og benda heimildir til þess að borgin sé ein af höfuðvígum samtakanna. Á slíkum svæðum eru borgarar að miklu leyti berskjaldaðir fyrir hugmyndafræði Al-Shabaab. Þá eiga þvingaðar nýliðunarráðningar sér stað á slíkum svæðum. Í því ljósi er ekki hægt að útiloka að samtökin hafi farið fram á að kærandi og næst elsti bróðir hans gengju til liðs við samtökin en ekki aðrir fjölskyldumeðlimir.
Það er mat kærunefndar að frásögn kæranda um ástæðu flótta hans sé hvorki ítarleg né nákvæm. Kæranda er t.a.m. ekki unnt að greina frá því með nákvæmum hætti hvar og hvaða dag faðir hans hafi verið myrtur. Þá hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn máli sínu til stuðnings. Frásögn kæranda hefur samt sem áður verið stöðug og ekki augljóst misræmi á milli frásagna hans. Þá fær frásögn kæranda að miklu leyti stoð í þeim landaupplýsingum sem lagðar hafa verið til grundvallar í máli hans. Að framangreindu virtu telur kærunefnd, með tilliti til trúverðugleika kæranda og þess að meta skuli vafa kæranda í hag, ekki ástæðu til annars en að leggja til grundvallar að til hafi staðið að þvinga kæranda til að ganga til liðs við Al-Shabaab samtökin. Þá má ætla að þau afskipti sem Al-Shabaab hafi haft af kæranda og staða samtakanna í Jilib geti leitt til þess að hann verði í aukinni hættu á að verða fyrir ofsóknum af hálfu samtakanna verði honum gert að snúa aftur til heimasvæðis síns. Frásögn kæranda um að ekki sé hægt að fá vernd stjórnvalda í heimaríki hans vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab fær jafnframt stoð í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað. Heimildir bera með sér að réttarvörslukerfið sé veikburða og á sumum svæðum óvirkt í mið- og suðurhluta Sómalíu. Með vísan til þess og heildstæðs mat á aðstæðum kæranda í heimaríki hans telur kærunefnd að kærandi hafi með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann kunni að eiga á hættu ofsóknir sem rekja megi til aðstæðna hans í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og að yfirvöld í heimaríki geti ekki veitt honum vernd sbr. c-liður 4. mgr. 38. gr. sömu laga.
Mat á möguleika á flutningi innanlands
Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi sýnt fram á ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum á því landsvæði sem hann býr, er heimilt að synja umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga segir að niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003). Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kæranda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess lífsviðurværi einstaklings verði síðra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.
Líkt og fram hefur komið kveðst kærandi vera fæddur og uppalinn í Jilib í mið-Juba umdæmi í suður Sómalíu. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar að kærandi eigi á hættu að sæta ofsóknum verði honum gert að fara aftur þangað. Kemur þá til skoðunar hvort raunhæft og sanngjarnt sé að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í heimaríki sínu. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt ríki til að endursenda ekki einstaklinga til mið-Sómalíu eða suðurhluta landsins, einkum vegna hernaðaraðgerða af hálfu vopnaðra hópa sem þar hafi átt sér stað lengi, sbr. skýrsla stofnunarinnar frá 2016, UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I). Í leiðbeiningum stofnunarinnar um mat á innri flutningi í Sómalíu frá 2022 er fjallað um mögulegan innri flutning til ákveðinna svæða í Sómalíu, s.s. Mógadisjú, Puntlands og Sómalílands. Flutningur þangað sé þó afar erfiður og almennt sé ekki sanngjarnt að ætlast til að einstaklingur setjist að annars staðar í Sómalíu nema ljóst sé að hann muni njóta stuðnings fjölskyldu sinnar eða ættbálks. Þá sé staða einstaklinga sem tilheyri minnihlutahópum eða minnihlutaættbálkum sérstaklega erfið. Kærandi hefur greint frá því að einn bróðir hans sé búsettur í austur Sómalíu, n.tt. í Bari héraði hjá ættingjum. Þá séu tveir bræður hans, m.a. sá sem kærandi kvað Al-Shabaab hafa ætlað að fá til að ganga til liðs við sig á sama tíma og kæranda, A, búsettir í Mógódisjú, í úthverfi sem nefnist Warsheikh. Kærandi kvað A lifa í ótta við Al-Shabaab og frændi kæranda hafi sagt A að Al-Shabaab leiti hans í Mógadisjú en samtökin hafi ekki náð til hans. Þá hafi frændi kæranda greint kæranda frá því að móðir hans og önnur systkini hefðu flúið til Kenía en aðstæður þar hafi verið erfiðar svo þau hafi snúið aftur til Sómalíu og sest að í borg sem nefnist Bulo Xaawo (einnig þekkt undir nafninu Buula Xaawo og Baled Xaawo/Hawo) og er staðsett nálægt landamærum Kenía og Eþíópíu. Aðspurður kvaðst kærandi ekki getað búið hjá fjölskyldu sinni þar sem aðstæður væru erfiðar og hann yrði byrði á þeim. Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now, bæði frá því frá því í desember 2021 og janúar 2023, fara ATMIS eða sómölsk stjórnvöld með yfirráð yfir borgunum Mógódisjú og Bulo Xaawo. Þá er Bari landsvæðið undir stjórn sjálfstæðra hersveita. Í skýrslu UNHCR frá árinu 2022 er jafnframt fjallað um landsvæði þar sem Al-Shabaab fer með stjórn og eru framangreind svæði ekki þar með talin. Þó verður að líta til þess að þrátt fyrir að Al-Shabaab fari ekki með yfirráð yfir svæðinu geta samtökin samt sem áður haft þar ítök.
Kærunefnd hefur kynnt sér gögn um ferðaleiðir til Mógódisjú og er ljóst að kærandi getur snúið þangað án þess að vera í hættu eða þurfa að fara inn á svæði þar sem hann geti átt á hættu að sæta ofsóknum af hálfu Al-Shabaab. Kærandi getur m.a. flogið með beinu flugi frá Tyrklandi til flugvallarins í Mógadisjú.
Kærandi hefur greint frá því að tilheyra Sheikhal ættbálknum. Líkt og fram hefur komið benda heimildir ekki til þess að meðlimir ættbálksins hafi mátt sæta mismunun á þeim grundvelli. Ættbálkurinn hefur tengsl við meirihlutaættbálkinn Hawiye og er meðlimi hans m.a. að finna í Mógódisjú. Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi eigi ekki á hættu að sæta mismunun eða ofsóknum á grundvelli þess að hann tilheyri framangreindum ættbálki eða á grundvelli þess að móðir hans tilheyri minnihlutaættbálki. Af þeim sökum verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að sæta mismunun á grundvelli ættbálkar síns verði honum gert að setjast að á nýju svæði innan Sómalíu.
Er því ljóst að kærandi getur á öruggan og löglegan hátt ferðast til Mógadisjú og er það mat kærunefndar, þrátt fyrir að fallist hafi verið á að Al-Shabaab hafi ætlað sér að fá kæranda og bróður hans til að ganga til liðs við sig, að kærandi sé af þeim sökum ekki í sérstakri hættu á því að verða skotmark samtakanna í Mógadisjú enda benda gögn til þess að nýliðasöfnun samtakanna fari einkum fram á svæðum þar sem þau fari með stjórn og þvinguð nýliðun eigi sér sjaldnast stað í Mógadisjú. Þá er að mati kærunefndar ósennilegt að kærandi sé á sérstökum lista samtakanna vegna þess að hann hafi flúið af svæðinu áður en samtökin hafi fengið hann til liðs við sig.
Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að flutningur innanlands komi til álita í máli kæranda.
Að uppfylltu fyrra skilyrði við mat á möguleika á flutningi innanlands verður því næst að taka afstöðu til þess hvort unnt sé, með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og aðstæðum í heimaríki hans, að ætlast með sanngirni til þess að kærandi setjist að á öðru svæði í Sómalíu. Líkt og að framan greinir þá er það mat kærunefndar að kærandi njóti stuðnings fjölskyldu og ættbálks síns í Sómalíu. Horfa verður einkum til þeirrar fjölskyldu sem kærandi kveðst eiga í Mógadisjú, sbr. leiðbeiningar Flóttamannastofnunar um að einkum sé rétt að horfa til borgarinnar og svæða í norður Sómalíu varðandi möguleika einstaklinga til innri flótta. Í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu í máli K.A.B. gegn Svíþjóð (mál nr. 886/11) frá 17. febrúar 2014 og R.H. gegn Svíþjóð (mál nr. 4601/14) frá 1. febrúar 2016 kemur fram að almennt öryggisástand í Mógadisjú hafi farið batnandi á undanförnum árum eftir að stjórnvöld höfðu náð yfirráðum í borginni. Þá var það afstaða dómsins að aðgengilegar landaupplýsingar bentu ekki til þess að aðstæður í borginni væru slíkar að íbúar í borginni væru almennt í hættu á að sæta meðferð sem færi gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Því myndi endursending einstaklinga til Sómalíu ekki brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins benda ekki til þess að aðstæður í Mógadisjú hafi breyst til hins verra.
Kærandi hefur greint frá því að bróðir hans, sem einnig hafi verið þvingaður til að ganga til liðs við Al-Shabaab þegar þeir hafi verið búsettur í Jilib, sé búsettur í Mógódisjú og að samtökin hafi ekki haft afskipti af honum þar. Þá hefur kærandi greint frá því að vera við góða heilsu og aðspurður kvaðst hann geta unnið við bústörf í heimaríki. Kærunefnd telur líkur standa til þess að hann hafi atvinnutækifæri í heimaríki og ætti ekki að eiga í erfiðleikum með að aðlagast á nýjum stað innan landsins. Það er mat kærunefndar með hliðsjón af frásögn kæranda og gögnum málsins að kærandi geti séð fyrir sér í heimaríki og njóti stuðnings fjölskyldu sinnar og ættingja þar í landi.
Er það mat kærunefndar að hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í Sómalíu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu eru skilyrði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um flutning innanlands uppfyllt og telst kærandi því ekki flóttamaður. Þá falla aðstæður kæranda að öðru leyti ekki undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um þetta atriði staðfest.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi eigi möguleika á flutningi innanlands á hann ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 4. mgr. 37. gr. og 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Kærandi byggir á því að félagslegar aðstæður hans í heimaríki séu erfiðar auk þess sem almennar aðstæður á því svæði sem kærandi sé frá séu þess eðlis að hann eigi í hættu á að vera drepinn eða þvingaður til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab. Þá sé stuðningsnet kæranda veikt og faðir hans sé látinn.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. Með vísan til niðurstöðu kærunefndar að framan verður ekki talið að aðstæður kæranda nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. janúar 2023 greindi kærandi frá því að hann væri við góða líkamlega heilsu og að andleg heilsa hans væri á uppleið. Kærandi kvaðst í fyrra viðtali taka lyf en í síðari viðtali sínu kvaðst kærandi hættur að taka lyfin en tæki svefnlyf. Samkvæmt þeim gögnum sem fyrir liggja stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu er í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Verður því lagt til grundvallar að heilsufar kæranda sé ekki slíkt að það réttlæti veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Kærandi er ungur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sjálfum sér. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga móður og systkini í heimaríki sínu.
Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði. Með vísan til aldursgreiningar hefur verið lagt til grundvallar í máli kæranda að hann sé eldri en 18 ára. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 9. ágúst 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli hans. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 9. ágúst 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Hinn 31. janúar 2023 var kæranda tilkynnt að Útlendingastofnun væri með það til skoðunar hvort brottvísa bæri honum með endurkomubanni til tveggja ára. Var kæranda gefið færi á að tjá sig um það og hafa uppi andmæli. Í athugasemdum kæranda, dags. 6. febrúar 2023, kvaðst kærandi ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur lönd á Schengen-svæðinu. Kærandi kvað endursendingu til heimaríkis vera ósanngjarna ráðstöfun þar sem Al-Shabaab hafi myrt föður hans og móðir hans hafi mátt sæta mismunun á þeim grundvelli að tilheyra minnihlutaættbálki. Þá sé heimaborg hans, Jilib, aðal vígi Al-Shabaab samtakanna og þaðan skipuleggi þeir hernaðaraðgerðir sínar. Kærandi eigi á hætti að láta lífið verði honum gert að snúa aftur til heimaborgar sinnar.
Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Í ákvörðunarorðum í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann sjálfviljugur frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir