26 janúar 2024

/

Úrskurður nr. 102/2024


Hinn 26. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 102/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24010047

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli [...]

Málsatvik

Hinn 10. janúar 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. ágúst 2023, um að umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrði ekki tekin til efnismeðferðar og að hann yrði endursendur til Grikklands. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 11. janúar 2024 og 16. janúar 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 23. janúar 2024 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hann muni þingfesta mál á hendur íslenska ríkinu og m.a. krefjast ógildingar á úrskurði kærunefndar. Það muni valda honum óafturkræfum skaða verði ekki fallist á frestun réttaráhrifa í máli hans, sbr. ákvæði 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Verði aðila gert að yfirgefa landið áður en máli hans hefur verið lokið hjá dómstólum muni hann ekki eiga raunhæft úrræði til að bera ákvörðun stjórnvalda undir dómstóla. Aðili vísar þá til þess að hann sé ólæs og óskrifandi og háður bræðrum sínum. Þá sé aðili talsvert á eftir jafnöldrum sínum hér á landi vegna þessa. Það muni verða aðila ofviða að verða sendur í burtu frá bræðrum sínum, íslenskri fjölskyldu sem hann hafi notið stuðnings frá og búi hjá til jafns við heimili bróður síns. Frænkur aðila búi hér á landi ásamt fjölskyldum sínum og séu foreldrar hans jafnframt væntanleg hingað til lands. Þar sem aðili sé bæði ólæs og óskrifandi þá muni hann eiga erfitt uppdráttar í Grikklandi fjarri öllu sínu fólki. Í Grikklandi þekki hann engan og miklar líkur séu á því að hann muni enda á götunni þar sem hann muni ekki getað bjargað sér í þeim harða heimi án bræða sinna. Þá muni vera erfitt fyrir aðila að eiga í samskiptum við talsmann sinn vegna fyrirhugaðs dómsmáls þar sem ekki sé hægt að vita hvernig andleg staða hans verði og hvort hann hafi burði til að fylgja máli sínu eftir frá Grikklandi. Aðili muni hvorki geta tjáð sig í rituðu máli né lesið skilaboð frá talsmanni sínum. Aðili sé háður elsta bróður sínum fjárhagslega og andlega þar sem hann sé bæði ólæs og óskrifandi. Aðili kvíði því að vera sendur einn til Grikklands burt frá fjölskyldu sinni. Vegna atburða í heimaríki aðila hafi fjölskyldan haldið saman og reynt að styðja við hvort annað vegna þessara atburða. Verði aðili endursendur til Grikklands muni það auka á sorg hans og kvíða. Aðili bíði þess að fá staðfest að hann sé ólæs og óskrifandi ásamt því að fá tíma hjá lækni vegna þess áfalls sem brottvísun sé honum. Aðili óskar þess að brottvísun verði frestað svo hann fái þá aðstoð sem hann þurfi. Aðili fer þá fram á að kærunefnd leggi heildstætt mat á umsókn hans og meti það svo að fresta beri réttaráhrifum úrskurðarins. Aðili muni standa einn í Grikklandi og muni ekki geta haldið máli sínu áfram. Hagsmunir aðila að réttaráhrifum verði frestað séu miklir bæði fyrir mál hans og andlega heilsu.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Enn fremur benda gögn málsins ekki til annars en að aðili geti nýtt rétt sinn til komu og tímabundinnar dvalar hér á landi á grundvelli 20. gr. laga um útlendinga til að vera við réttarhöld sín og gefa skýrslu fyrir dómi. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans um efnismeðferð. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að aðila sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins. Í úrskurði kærunefndar í máli kæranda var lagt til grundvallar að kærandi væri bæði ólæs og óskrifandi. Að mati nefndarinnar hefur sú málsástæða takmarkaða þýðingu hvað varðar beiðni hans um frestun réttaráhrifa. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að aðili sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar og þrátt fyrir það að hann sé ólæs og óskrifandi.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.


ÚRSKURÐARORÐ

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður