01 febrúar 2024

/

Nr. 101/2024 Úrskurður

Hinn 1. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 101/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23050041

 

Kæra [...]

á ákvörðun Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. maí 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. apríl 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af greinargerð kæranda má ráða að hann krefjist þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi krefst þess til vara að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 14. september 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun ásamt löglærðum talsmanni sínum 19. október 2022. Með ákvörðun, dags. 27. apríl 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var framangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 6. maí 2023. Hinn 8. maí 2023 barst kærunefnd greinargerð kæranda.

III.    Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna ofsókna og tilrauna til nýliðaskráningar af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab vegna aðildar að sérstökum þjóðfélagshópi.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð lýsir kærandi málsatvikum og vísar til gagna málsins og viðtals síns hjá Útlendingastofnun. Kærandi greinir frá því að hann hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki en hann glími við andleg veikindi þar sem hann hafi mátt þola þjáningar þar í landi. Þá eigi kærandi erfitt með svefn en líði aðeins betur hér á landi. Kærandi sé fæddur og uppalinn í hverfinu Berdale í suðvestur hluta Sómalíu við landamæri Kenía, þar sem hann hafi verið búsettur þar til hann yfirgaf Sómalíu. Tilheyri kærandi ættbálkinum Raxaweyn og undirættbálknum Liisan og ættbálkur hans sé í minnihluta. Kærandi kveður ástæðu þess að hann hafi neyðst til að flýja heimaríki sitt vera vegna ofsókna af hálfu Al Shabaab. Hryðjuverkasamtökin áreiti fólk og skipi því að vinna fyrir sig eða greiða skatta. Kærandi hafi ekki getað lifað við þessar aðstæður og hafi óttast um líf sitt þar sem hann hafi ekki viljað starfa með Al-Shabaab. Kæranda hafi verið rænt af meðlimum samtakanna og verið haldið í 45 daga en fjölskylda kæranda haf selt búgarð í þeirra eigu og borgað Al-Shabaab gegn því að fá kæranda lausan. Á meðan kærandi hafi verið í haldi Al-Shabaab hafi hann verið beittur ofbeldi og meðlimir samtakanna hafi lamið kæranda með byssu í bringu hans og bak og vakið hann upp að nóttu til og hellt yfir hann köldu vatni. Meðlimir samtakanna hafi komið fram við kæranda, og aðra sem hafi verið í haldi þeirra, líkt og þræla og hann hafi þurft að þrífa af þeim fötin, elda fyrir þá og sinna bústörfum. Kærandi sé með ör eftir ofbeldið, bæði á höfði og fingri. Kærandi óttist að verða fyrir ofbeldi og vera tekinn af lífi í heimaríki. Þá óttist kærandi um fjölskyldu sína í heimaríki vegna ofsókna Al-Shabaab. Kærandi greinir frá því að hann hafi átt litla verslun í heimaríki sem hann hafi tekið við eftir að faðir hans lést árið 2014. Kærandi hafi lent í vandræðum og útistöðum við Al-Shabaab þar sem þeir hafi sífellt krafið kæranda um að greiða skatta líkt og kærandi hafi gert eftir bestu getu. Kærandi hafi ekki haft mikið á milli handanna og hafi verið að reyna að halda fjölskyldu sinni uppi. Þegar kærandi hafi ekki getað staðið í skilum við Al-Shabaab hafi verslun hans verið lokað af meðlimum Al-Shabaab. Í kjölfarið hafi fjölskylda kæranda lent í vandræðum með framfærslu en þau hafi einstaka sinnum fengið vinnu á búgörðum og fengið greitt í korni eða maís. Kærandi hafi ekki gengið í skóla þar sem Al-Shabaab heimili ekki að börn gangi í skóla en hann hafi notað farsíma sinn til afla sér þekkingar. Kærandi byggir á því að líf hans sé í hættu í heimaríki þar sem Al-Shabaab leiti hans og ætli sér að taka kæranda af lífi fyrir að vilja ekki ganga til liðs við samtökin. Kærandi hafi ástæðuríkan ótta um að verða beittur ofbeldi eða vera tekinn af lífi í heimaríki sínu. Þá hafi hann ástæðuríkan ótta um að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð og pyndingum í heimaríki. Engin leið sé fyrir kæranda að leita eftir vernd lögreglu eða yfirvalda í heimaríki hans vegna ástandsins þar í landi, þar sem Al-Shabaab stjórni öllu. Þá vísar kærandi til almennra aðstæðna í Sómalíu með vísan til alþjóðlegra skýrslna.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, enda hafi hann mátt sæta ofsóknum af hálfu yfirvalda í heimaríki og grundvallarmannréttindi hans séu ekki tryggð af hálfu yfirvalda. Kærandi eigi raunverulega á hættu að verða tekinn af lífi í heimaríki og hann geti ekki leitað verndar hjá lögreglu eða yfirvöldum. Með vísan til 38. gr. laga um útlendinga sé ljóst að kærandi hafi þurft að sæta ofsóknum, pyntingum, fangelsun, ofbeldi og hótunum um að verða tekinn af lífi af hálfu Al-Shabaab í heimaríki og hafi því ástæðuríkan ótta við að verða sendur aftur til heimaríkis.

Kærandi krefst þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Raunhæf ástæða sé til að ætla að kærandi verði fyrir alvarlegum skaða, þ.e. ofbeldi, pyndingum og frelsissviptingu og verði tekinn af lífi í Sómalíu vegna stöðu sinnar þar í landi gagnvart Al-Shabaab. Útilokað sé að kærandi geti leitað verndar stjórnvalda í heimaríki. Þá sé staða kæranda sú sama alls staðar í Sómalíu þar sem Al-Shabaab fari með stjórn yfir nær öllu landinu. Verði kæranda gert að snúa aftur til heimaríkis, eigi hann á hættu að verða fyrir skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðar- og borgaralegra skotmarka, enda séu hernaðarleg átök á svæðinu mikil á milli ættbálka og árása af hálfu Al-Shabaab. Öryggisástand á heimaslóðum kæranda sé því með öllu ótryggt.

Kærandi krefst þess til þrautavara að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að um heimildarákvæði sé að ræða sem gefi stjórnvöldum svigrúm við mat á því hvenær sé rétt að veita dvalarleyfi samkvæmt ákvæðinu. Kærandi byggir á því að félagslegar aðstæður hans í heimaríki séu erfiðar þar sem hann tilheyri minnihlutaættbálki. Auk þess óttist hann Al-Shabaab sem sé meginástæða þess að hann geti ekki snúið aftur. Þá viðgangist gróf mannréttindabrot í Sómalíu og stjórnvöld geti ekki veitt kæranda vernd. Kærandi eigi sannanlega á hættu að verða fyrir ofsóknum og þurfa að þola illa og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis, þar sem hann hafi ástæðuríkan ótta um að vera pyntaður, fangelsaður og tekinn af lífi af hálfu Al-Shabaab.

Að lokum telur kærandi að með endursendingu hans til Sómalíu yrði brotið gegn meginreglunni um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá muni slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á honum deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari þó að öðru leyti sé auðkenni hans óþekkt.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • ●2021 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 2. júní 2022);
  • ●2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • ●2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
  • ●Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • ●BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • ●Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
  • ●Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
  • ●Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
  • ●Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
  • ●Country Guidance: Somalia (EUAA, 11. ágúst 2023);
  • ●Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • ●Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
  • ●Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
  • ●Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
  • ●Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
  • ●EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
  • ●EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
  • ●Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
  • ●Heightened Political Violence in Somalia (ACLED, 3. mars 2023);
  • ●International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, september 2022);
  • ●Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
  • ●Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 - March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
  • ●Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. september 2013);
  • ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 17. febrúar 2021);
  • ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
  • ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
  • ●Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
  • ●Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
  • ●Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
  • ●Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
  • ●Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
  • ●Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
  • ●Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
  • ●Somalia: Health system (The Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • ●Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
  • ●Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
  • ●Somalia – Rekruttering til al-Shabaab (Landinfo, 17. október 2022);
  • ●Somalia – Reaksjoner mot personer mistankes for tilknytning til al-Shabaab (Landinfo, 2. desember 2022);
  • ●Somalia – Reaksjoner mot al-Shabaab avhoppere (Landinfo, 20. júní 2023);
  • ●Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
  • ●Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
  • ●Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
  • ●Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
  • ●Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
  • ●Somalia. COI Query. Security situation update, 1 December 2022 to 14 April 2023 (EUAA, 25. apríl 2023);
  • ●South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
  • ●South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
  • ●The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 9. janúar 2024);
  • ●UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
  • ●UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
  • ●Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í maí 2018);
  • ●Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, september 2021) og
  • ●World Report 2024 – Somalia: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);

Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 bera hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hefur hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.

Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.

Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega milli landsvæða og séu hópar samtakanna sérstaklega virkir á svæðum þar sem ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar haldi sig. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.

Í skýrslu Landinfo frá október 2022 er fjallað um nýliðunaraðferðir Al-Shabaab samtakanna. Fram kemur í skýrslunni að Al-Shabaab samtökin noti ýmsar aðferðir til að ráða hermenn og stuðningsmenn. Séu aðferðir við ráðningar mismunandi eftir tíma og stað og endurspegli hernaðarþarfir hópsins sem og hver styrkur samtakanna sé gegn hersveitum ættbálka og öðrum sem séu tryggir yfirvöldum. Landinfo greinir frá því í skýrslunni að heimildir gefi til kynna að samtökin reyni aðallega að fá unglinga og unga karlmenn til liðs við þau á svæðum þar sem samtökin hafi ákveðna stjórn á eða eru virk. Í borgum undir stjórn stjórnvalda, þar sem Al-Shabaab sé ekki með virka starfsemi reyni samtökin síður að ráða nýja meðlimi. Fari nýliðun í þeim borgum í gegnum fjölmiðlarásir samtakanna og samfélagsmiðla. Þá kemur fram í skýrslunni að þvingaðar ráðningar eigi sér stað en séu mjög sjaldgæfar og eigi sér þá aðallega stað þegar samtökin hafa orðið fyrir hernaðarlegu- eða efnahagslegu tjóni og séu örvæningarfull í að fá nýliða. Í skýrslunni er vísað til þess að samkvæmt rannsóknum um atferli Al-Shabaab samtakanna séu þvingaðar ráðningar dýrkeypt ráðningarferli. Hafi rannsakendur bent á það að óbreyttir borgarar sem þvingaðir séu til liðs við samtökin séu lélegir hermenn þar sem hvatinn til að taka þátt í bardaga sé lítill og líkurnar á því að þeir gerist liðhlaupar séu miklar. Þá sé hætta á því að, á þeim svæðum þar sem margir séu þvingaðir til liðs við samtökin, gefi það heimamönnum þess svæðis ástæðu til að starfa með yfirvöldum.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 hafi Al-Shabaab borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í skýrslunni kemur fram að í Sómalíu séu fjórir stærstu ættbálkarnir Darod, Hawiye, Isaaq og Dir. Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslu EUAA frá því í júní 2022 eru meðlimir Rahanweyn ættbálksins aðallega búsettir í héröðunum Bay, Bakool og Gedo, á milli ánna Shabelle og Jubba og starfi aðallega við búskap. Ættinni sé skipt upp í tvær stórar ættir, Digil og Mirifle. Að hluta til sé litið á ættbálkinn sem lágsettan ættbálk af meðlimum annarra ættbálka, en hann tilheyri meirihlutaættbálkum. Ættbálkurinn sé fjölmennur og meðlimir hans geti gengið í hjónaband með meðlimum Hawiye og Darood. Þá hafi ættbálkurinn öðlast virðingu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi stofnað sína eigin hersveit og svæðisstjórn. Meðlimir Rahanweyn hafi jafnframt gegnt áhrifamiklum stöðum innan ríkisstjórnar Sómalíu. Meðlimir ættbálksins hafi þó mátt sæta mismunun af hálfu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi sest að á stöðum þar sem aðrir ættbálkar séu ríkjandi.

Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Í borginni sé aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu og apótekum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir á því að hann hafi verið handsamaður af meðlimum Al-Shabaab og neyddur til að ganga til liðs við samtökin eða greiða lausnargjald. Þá hafi samtökin krafið hann um skattgreiðslur vegna verslunar sem hann hafi rekið. Með vísan til þess hafi kærandi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu Al-Shabaab. Þá byggir kærandi á því að hann tilheyri minnihlutaættbálki í heimaríki.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurriti af viðtali hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 19. október 2022 greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í Berdale í Bay umdæmi í Suðvestur-Sómalíu. Kærandi hafi verið búsettur þar þangað til hann hafi yfirgefið landið árið 2022. Kærandi greindi frá því að Al-Shabaab hefðu mikil ítök í heimabæ hans og hefðu afskipti af fólki og létu það starfa fyrir samtökin og greiða skatta. Kærandi hafi flúið heimaríki sitt þar sem hann hafi ekki viljað lifa undir stjórn Al-Shabbab. Kærandi greindi frá því að átta mánuðum áður en viðtal við kæranda fór fram hafi hann verið handsamaður af meðlimum samtakanna og honum gefnir tveir afarkostir, ganga til liðs við Al-Shabaab eða greiða þeim tiltekna upphæð til þess að öðlast frelsi. Kærandi hafi haft samband við móður sína sem hafi selt búgarð í þeirra eigu og greitt Al-Shabaab til að fá kæranda sleppt úr haldi. Kærandi hafi verið í haldi Al-Shabaab í 45 daga og hafi verið veikur og illa áttaður eftir að honum hafi verið sleppt. Þegar kærandi hafi verið í haldi samtakanna hafi hann mátt þola ofbeldi sem hann beri áverka eftir. Komið hafi verið fram við kæranda eins og þræl. Kærandi hafi óttast um líf sitt og hafi því flúið heimaríki sitt eftir að hann hafi verið laus úr haldi. Þá óttist kærandi um öryggi fjölskyldu sinnar í heimaríki. Kærandi greindi jafnframt frá því að hann hafi rekið verslun í heimaríki. Kærandi hafi tekið við versluninni þegar faðir hans hafi látist árið 2014. Al-Shabaab hafi krafið kæranda um háar skattgreiðslur vegna verslunarinnar.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er lagt til grundvallar að kærandi sé ríkisborgari Sómalíu og eigi uppruna sinn að rekja til Berdale í Bay umdæmi. Með vísan til landaupplýsinga og skorts á framlögðum gögnum var frásögn kæranda hvað varðar brottnám, ofbeldi, skattlagningu og þvingaðar nýliðaskráningar af hálfu Al-Shabaab hins vegar ekki lögð til grundvallar.

Í skýrslu Landinfo frá október 2022 er fjallað um nýliðunaraðferðir Al-Shabaab samtakanna. Fram kemur í skýrslunni að Al-Shabaab samtökin noti ýmsar aðferðir til að ráða hermenn og stuðningsmenn. Séu aðferðir við ráðningar mismunandi eftir tíma og stað og endurspegli hernaðarþarfir hópsins sem og hver styrkur samtakanna sé gegn hersveitum ættbálka og öðrum sem séu tryggir yfirvöldum. Samkvæmt sömu skýrslu Landinfo er þvinguð nýliðaskráning Al-Shabaab óalgeng og á sér sjaldan stað á þeim svæðum sem eru ekki undir fullri stjórn samtakanna. Í skýrslunni kemur fram að samtökin reyni aðallega að fá unglinga og unga karlmenn til liðs við sig á svæðum þar sem samtökin hafi ákveðna stjórn á eða séu virk. Markhópur Al-Shabaab séu aðallega drengir og ungir karlmenn á aldrinum 12-24 ára. Í borgum undir stjórn stjórnvalda, þar sem Al-Shabaab sé ekki með virka starfsemi, fari skipulögð nýliðun ekki fram. Fari nýliðun í þeim borgum fram í gegnum fjölmiðlarásir samtakanna og samfélagsmiðla. Þá sé ljóst að staða einstaklinga í samfélaginu geti haft áhrif á líkur þess að Al-Shabaab reyni að fá einstakling til liðs við sig og líkur þess að einstaklingur vilji ganga til liðs við samtökin. Í skýrslunni er vísað til þess að samkvæmt rannsóknum á atferli Al-Shabaab samtakanna séu þvingaðar ráðningar dýrkeypt ráðningarferli. Hafi rannsakendur bent á að óbreyttir borgarar sem þvingaðir séu til liðs við samtökin séu lélegir hermenn þar sem hvatinn til að taka þátt í bardaga sé lítill og líkurnar á því að þeir gerist liðhlaupar miklar.

Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now bæði frá því í desember 2021 og frá því í janúar 2023, fara ATMIS eða sómölsk yfirvöld með yfirráð yfir heimabæ kæranda, n.t.t. Berdale í Bay umdæmi í Suðvestur-Sómalíu. Þrátt fyrir það er ekki hægt að útiloka að Al-Shabaab fari með einhver ítök á svæðinu. Frásögn kæranda um að Al-Shabaab fari með stjórn yfir heimabæ hans og að honum hafi verið rænt af meðlimum Al-Shabaab og haldið föngnum í 45 daga en látinn laus gegn lausnargjaldi er hins vegar ekki í samræmi við fyrirliggjandi landaupplýsingar um heimaríki kæranda.

Framangreindar landaupplýsingar benda til þess að á svæðum sem eru undir stjórn stjórnvalda, þar sem Al-Shabaab er ekki með virka starfsemi, líkt og í tilviki kæranda, fari skipulögð nýliðun ekki fram. Kærandi er auk þess ekki á þeim aldri sem heimildir benda til að samtökin beini helst spjótum sínum að. Kærunefnd vísar jafnframt til þess að það gætir ósamræmis um ákveðin atriði í frásögn kæranda. Kærandi greindi t.a.m. frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi ekki getað farið í skóla þar sem Al-Shabaab banni skólastarf og lærdóm. Landaupplýsingar benda hins vegar til þess að það séu starfræktir skólar í heimabæ kæranda. Þá ráði samtökin gjarnan nýliða í gegnum skólastarf. Verður frásögn hvað varðar brottnám, varðhald og pyntingar af hálfu Al-Shabaab í þeim tilgangi að fá kæranda til að ganga til liðs við sig ekki lögð til grundvallar þar sem hún fær ekki stoð í upplýsingum um heimabæ kæranda og starfsemi Al-Shabaab, auk þess sem engum sönnunargögnum til stuðnings frásögninni er til að dreifa.

Kærandi greindi jafnframt fyrst frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að Al-Shabaab hafi farið fram á að kærandi greiddi tiltekna fjárhæð til samtakanna ellegar myndu samtökin loka verslun hans. Þar sem kærandi hafi ekki getað greitt hafi þau lokað versluninni. Síðar í viðtalinu greindi kærandi svo frá því að hann hafi sjálfur lokað verslun sinni þar sem hann hafi átt erfitt með skattgreiðslur til Al-Shabaab. Samkvæmt skýrslu EUAA frá því í ágúst 2023 fer skattlagning Al-Shabaab að mestu fram á þeim svæðum sem eru undir stjórn samtakanna. Þó hafi skattlagning samtakanna breiðst út í Mógódisjú og á öðrum svæðum sem eru undir stjórn sómalskra stjórnvalda, líkt og Bosasso og Jowhar og í litlum mæli í Baidoa og Kismayo. Skattlagningarkerfi Al-Shabaab felist m.a. í skattheimtu við eftirlitsstöðvar, fjárkúgun fyrirtækja, innflutningsskatti í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu. Skattkerfi samtakanna sé byggt á hótunum, ótta um áframhaldandi viðskipti og ofbeldi ef ekki sé unnið með samtökunum. Með vísan til frásagnar kæranda um skattheimtu samtakanna óskaði kærunefnd hinn 19. janúar 2024, eftir frekari upplýsingum um verslunarrekstur kæranda og hvernig skattlagning samtakanna hafi farið fram. Í svari kæranda 23. janúar 2024 greindi kærandi frá því að hann hafi engin svör við fyrirspurnum kærunefndar en honum líði verulega illa líkamlega og andlega vegna ástands síns og ótta við að vera endursendur til heimaríkis. Auk þess er á reiki í frásögn kæranda hvenær hann sjálfur eða Al-Shabaab hafi lokað verslun hans. Kæranda var gefið færi á að leggja fram gögn varðandi verslunarrekstur sinn hjá Útlendingastofnun en hann kvaðst ekki geta lagt fram slík gögn. Er það mat kærunefndar með vísan til þess misræmis sem fram kemur í frásögn kæranda, framangreindra landaupplýsinga og skorts á gögnum sem stutt geta við hana s.s. gögnum um verslun sem kærandi kvaðst hafa rekið í um níu ár, að kærandi hafi ekki leitt líkur að því að Al-Shabaab hafi beitt þvingunaraðgerðum við skattheimtu á verslun í hans eigu.

Þá er samkvæmt heimildum ólíklegt að almennum borgurum, sem tengist hvorki yfirvöldum né alþjóðasamtökum, stafi sérstök hætta af Al-Shabaab m.a. á heimasvæði kæranda, en frásögn kæranda og gögn málsins benda ekki til þess að hann hafi tengsl við yfirvöld eða sé sérstakt skotmark Al-Shabaab af öðrum sökum.

Með vísan til alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kæranda hafi ekki tekist að sýna fram á með rökstuddum hætti að hann hafi ástæðuríkan ótta við að sæta ofsóknum af hálfu Al-Shabaab í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann tilheyri Raxaweyn ættbálknum (einnig þekktur undir nafninu Rahanweyn) og að hann sé minnihlutaættbálkur. Hinn 19. janúar 2024 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá kæranda um að hvaða leyti kærandi hafi upplifað ættbálkinn vera minnihlutaættbálk. Í tölvubréfi sem barst frá kæranda 24. janúar 2024 kvaðst kærandi ekki hafi nein svör við fyrirspurnum kærunefndar. Samkvæmt skýrslu EUAA frá því í júní 2022 er ættbálkurinn einn af fimm höfuðættbálkum Sómalíu ásamt Dir, Isaaq, Darood, og Hawiye. Þá skiptist Rahanweyn höfuðættbálkurinn upp í tvo stóra flokka, Digil og Mirifle. Kærandi hefur greint frá því að tilheyra undirættinni Leeysen, sem fellur undir Mirifle. Heimildir benda til þess að Rahanweyn sé fjölmennur ættbálkur og að hann sé í meirihluta í Bay umdæmi. Meðlimir Mirifle ættbálksins séu aðallega búsettir í norðurhluta landsvæðisins og Digil ættbálksins í suðurhluta svæðisins. Í Baidoa höfuðborginni og Berdale, heimabæ kæranda, sé Mirifle ættbálkurinn í meirihluta. Heimildir benda til þess að þrátt fyrir að ættbálkurinn sé meirihlutaættbálkur hafi meðlimir ættbálksins mátt sæta mismunun þegar þeir hafi sest að á svæðum þar sem aðrir höfuðættbálkar séu ríkjandi. Kærandi kveðst hins vegar koma frá svæði þar sem Rahanweyn ættbálkurinn er í meirihluta. Þá hefur kærandi ekki greint frá því að hafa orðið fyrir mismunun eða eiga á hættu mismunun sem nær því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður meðlima Rahanweyn ættbálksins er það mat kærunefndar að aðstæður hans séu ekki slíkar að þær geti talist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í heimaríki af öðrum ástæðum.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar frásögn kæranda um að hann sé í hættu í heimaríki vegna hættu á ofsóknum af hálfu meðlima Al-Shabaab. Lagt hefur verið til grundvallar að uppruna kæranda megi rekja til Berdale í Bay umdæmi í Sómalíu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað fara sómölsk stjórnvöld með full yfirráð yfir Berdale í Bay umdæmi og nærliggjandi umhverfi. Af landaupplýsingum er ljóst að öryggisástand í Bay umdæmi er ekki eins og best væri á kosið. Umdæmið er staðsett í suðvestur Sómalíu og Baidoa er höfuðborg landsvæðisins. Líkt og áður hefur komið fram er Rahanweyn ættbálkurinn stærstur á landsvæðinu. Samkvæmt skýrslu EUAA frá ágúst 2023 er einkennandi fyrir Bay umdæmi að þar séu mörg opinber mannvirki og því sé viðvera öryggissveita mikil á svæðinu. Al-Shabaab fari með yfirráð yfir hluta landsvæðisins eða um helmingi af yfirráðasvæði Bay utan þéttbýlis. Ríkis- og sambandssveitir hafi haldið yfirráðum yfir helstu bæjum og borgum, þ. á m. heimabæ kæranda Bardale og öðrum bæjum og borgum líkt og Baidoa, Buur og Hakaba. Þá sé svæðið í kringum höfuðborgina Baidoa undir áhrifum Al-Shabaab þrátt fyrir að það sé ekki undir fullri stjórn samtakanna. Samkvæmt leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 leiðir viðvera einstaklings ein og sér í Bay umdæmi ekki til þess að viðkomandi teljist eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi c-liðar 15. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2011/95/EB (e. Qualification Directive). Hins vegar nái handahófskennt ofbeldi á svæðinu háu stigi og því þurfi minna að koma til við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum viðkomandi til að rökstuddar líkur verði taldar á því að viðkomandi muni eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi ákvæðisins verði honum gert að fara aftur til heimaríkis. Með vísan til framangreinds trúverðugleikamats kærunefndar og fyrirliggjandi gagna málsins verður ekki séð að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í heimaríki hans fyrir því að verða fyrir handahófskenndu ofbeldi. Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sínu í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í heimaríki sínu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi uppfyllir heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. Kærandi byggir á því að aðstæður hans í heimaríki séu erfiðar þar sem hann tilheyri minnihlutaættbálki. Auk þess óttist hann Al-Shabaab sem sé meginástæða þess að hann geti ekki snúið aftur. Þá viðgangist gróf mannréttindabrot í Sómalía og stjórnvöld geti ekki veitt kæranda vernd.  Með vísan til niðurstöðu kærunefndar að framan verður ekki talið að þær aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að aðstæður hans í heimaríki hafi haft áhrif á hann andlega og valdið honum svefnerfiðleikum. Engin gögn hafa verið lög fram um heilsufar kæranda. Kærandi greindi frá því að hann hefði ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Verður því ekki talið að kærandi hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Kærandi er karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sjálfum sér. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann hafi unnið við bústörf og rekið verslun. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga eiginkonu, móður og systkini í heimaríki. Þá tilheyrir kærandi höfuðættbálki sem er í meirihluta á því svæði sem kærandi kveðst vera frá. Kærunefnd telur að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 14. september 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli hans. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Brottvísun og endurkomubann  

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. 

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 14. september 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Hinn 2. febrúar 2023 var kæranda tilkynnt að Útlendingastofnun væri með það til skoðunar hvort brottvísa bæri honum með endurkomubanni til tveggja ára. Var kæranda gefið færi á að tjá sig um það og hafa uppi andmæli. Í athugasemdum kæranda, dags. 5. febrúar 2023, kvaðst kærandi ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur lönd á Schengen-svæðinu. Þá svaraði kærandi spurningu Útlendingastofnunar um hvort hann teldi brottvísun og endurkomubann hingað til lands og alls Schengen-svæðisins ósanngjarna ráðstöfun gagnvart sér eða fjölskyldumeðlimum sínum neitandi.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Í ákvörðunarorðum í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann sjálfviljugur frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

 

Valgerður María Sigurðardóttir

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir