12 febrúar 2024
/
Nr. 151/2024 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 12. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 151/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24010123
Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli [...] og barns hennar
Málsatvik
Hinn 24. janúar 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 23. og 25. ágúst 2023, um að umsóknir einstaklings er kveðst heita [...], vera fædd 25. ágúst 2000 og vera ríkisborgari Nígeríu, og barns hennar, stúlku Samson, fd. 18. júlí 2023, ríkisborgara Nígeríu, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrðu ekki teknar til efnismeðferðar og að þær yrðu endursendar til Ítalíu. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 25. janúar 2024 og 31. janúar 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar ásamt greinargerð. Þá bárust viðbótarathugasemdir aðila 8. febrúar 2024.
Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Málsástæður aðila
Aðili krefst þess að henni verði veitt frestun réttaráhrifa á meðan hún leiti réttar síns fyrir dómstólum en hún hyggst höfða mál gegn íslenska ríkinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og krefjast ógildingar á úrskurði kærunefndar, dags. 24. janúar 2024. Niðurstaða kærunefndar hafi verið aðila mikið áfall og er hún ósammála mati íslenskra stjórnvalda. Aðili vísar til þess að hún hafi orðið fyrir tilraun til manndráps á Ítalíu af hálfu fyrrverandi kærasta síns sem sé meðlimur í glæpagengi. Aðili óttast að henni verði ekki gefið fullnægjandi færi á að leita réttar síns fyrir dómstólum hér á landi verði hún send í hendur á aðilum þessara glæpasamtaka og fyrrverandi kærasta síns, sem hafi haft uppi hótanir við hana og vilji henni mein. Þá muni aðili eiga á hættu að verða þvinguð í vændi eða að henni verði unnið mein. Aðili telji að stjórnvöld á Ítalíu hafi enga burði til að vernda hana og barn hennar gegn þessum aðilum. Þá hafi aðili áhyggjur af stöðu barns síns ef þeim verði gert að snúa aftur til Ítalíu. Aðili telji að kærunefnd hafi ekki tekið nægilegt tillit til óvenjulegrar og viðkvæmrar stöðu sinnar og barns hennar. Aðili hafi því þann eina kost að fara með málið fyrir dómstóla og óskar eftir að kærunefnd taki tillit til þessarar óvenjulegu stöðu.
Í viðbótarathugasemdum aðila kemur m.a. fram að aðili telji að kærunefnd hafi ekki tekið fullnægjandi afstöðu til lykilgagna hvað varðar sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Aðili vísar til tölvubréfs hjúkrunarfræðings á vegum Vinnumálstofnunar og bréfs frá fulltrúa Stígamóta. Aðili telji að framangreindar upplýsingar séu einungis þær nýjustu í langri röð gagna sem staðfesti að aðili sé bersýnilega mjög viðkvæmur einstaklingur sem sé í þörf fyrir aðstoð sem henni muni ekki standa til boða verði henni gert að snúa aftur til Ítalíu, en hún hafi greint frá því að hafa ekki haft aðgang að félagslegri þjónustu. Aðili telji óforsvaranlegt að senda hana úr landi með vísan til ummæla framangreindra sérfræðinga. Þá telur aðili að almenn umfjöllun um heilbrigðis- og félagslega aðstoð sé ekki fullnægjandi til að ganga gegn skýru mati sérfræðinga, sem hafi tekið afstöðu til einstaklingsbundinna aðstæðna aðila og barns hennar. Í ljósi þess sem fyrir liggi um viðkvæma stöðu aðila og barns hennar og áðurnefndra gagna sem gefi til kynna að það geti verið aðila og barni hennar skaðlegt að rjúfa meðferð sem hún sæki þessa stundina og að óforsvaranlegt sé að senda þær til Ítalíu, megi telja að verulega skorti á fullnægjandi rannsókn og rökstuðning í úrskurði kærunefndar. Aðili telji að kærunefnd hafi horft framhjá skýru mati sérfræðinga og því hafi verið brotið gegn 22. gr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Jafnframt telur aðili að kærunefnd hafi ekki tekið fullnægjandi afstöðu til aðstæðna barns hennar. Aðili telji að of mikil áhersla sé lögð á einingu fjölskyldunnar sem sé ekki til þess fallið að tryggja réttindi barnsins. Þá vísar aðili til skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá maí 2021 en þar komi m.a. fram að stjórnvöld þurfi að hafa það sem barni sé fyrir bestu í fyrirrúmi. Hagsmunum barns sé vissulega best borgið þegar eining fjölskyldunnar sé tryggð en slík sjónarmið komi aðeins til skoðunar þegar gætt hafi verið að sjónarmiðum hvað varði öryggi barnsins. Aðili telji að öryggi barns hennar sé betur tryggt hér á landi og að horfa þurfi til sjálfstæðs réttar barnsins til alþjóðlegrar verndar. Aðili gerir jafnframt athugasemd við skort á umfjöllun um glæpasamtökin Black Axe í úrskurði kærunefndar. Þá gerir aðili athugasemd við umfjöllun í úrskurði hennar um aðgerðir gegn mansali á Ítalíu og telur þá umfjöllun ekki bera með sér að aðili og barn hennar geti talist öruggar, verði þær endursendar til Ítalíu. Aðili vísar þá til fyrri greinargerðar sinnar og fyrirliggjandi gagna í máli hennar. Þá vísar aðili til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum og telur að horfa verði á einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Aðili telji að taka beri mál hennar til efnismeðferðar.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.
Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hennar að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Enn fremur hefur aðili þess kost að nýta rétt sinn til komu og tímabundinnar dvalar hér á landi á grundvelli 20. gr. laga um útlendinga til að vera við réttarhöld sín og gefa skýrslu fyrir dómi hafi endurkomubann kæranda ekki tekið gildi. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir hennar og barns hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra um efnismeðferð. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að aðila sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hún aftur til viðtökuríkis.
Í úrskurði kærunefndar í máli aðila var gerð grein fyrir mati nefndarinnar á hagsmunum barns aðila. Í úrskurðinum er m.a. vísað til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga þar sem fram koma sérviðmið er varða börn og ungmenni. Var það niðurstaða kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til viðtökuríkis samrýmdist hagsmunum barnsins þegar litið væri m.a. til öryggis þess , velferðar og félagslegs þroska, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.
Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins. Þá hefur kærunefnd þegar tekið afstöðu til framangreindra málsástæðna aðila í úrskurði kærunefndar, dags. 24. janúar 2024, en aðili hefur ekki lagt fram gögn sem breyta því mati. Kærunefnd ítrekar það sem fram kom í úrskurði aðila að nefndin hefur farið yfir framlögð heilsufarsgögn og afstöðu þeirra sérfræðinga sem þar komi fram. Það sé mat kærunefndar að sú félagslega aðstoð og heilbrigðisþjónusta sem aðila standi til boða á Ítalíu sé fullnægjandi.
Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hennar.
Úrskurðarorð:
Kröfu aðila er hafnað.
The appellant’s request is denied.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður