23 febrúar 2024

/

Nr. 163/2023 Úrskurður

Hinn 23. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 163/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23120107

 

Kæra [...]

og barns hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. desember 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 11. desember 2023, um að synja kæranda og barni hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og kæranda og barni hennar verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga með vísan til 1. mgr. 37. gr. sömu laga. Kærandi krefst þess til vara að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kæranda og barni hennar verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi krefst þess til þrautavara að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kæranda og barni hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi krefst þess til þrautaþrautavara að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi vegna mansals með vísan til 75. gr. og 76. gr. laga um útlendinga. Verði ekki fallist á framangreint krefst kærandi þess að endurkomubann til tveggja ára samkvæmt 101. gr. laga um útlendinga verði fellt úr gildi.

Í greinargerð gerir kærandi jafnframt kröfu um að réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana verði frestað á meðan málin eru til meðferðar hjá kærunefnd. Líkt og fram kemur í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar frestar kæra réttaráhrifum ákvarðana Útlendingastofnunar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 31. október 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, 1. nóvember 2022, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 16. nóvember 2022 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 29. nóvember 2022, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Við meðferð málsins lagði kærandi fram dvalarleyfiskort sitt og fyrir hönd A með gildistíma til 7. ágúst 2024. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, 13. desember 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 27. apríl 2023 að taka umsóknir kæranda og A um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, dags. 13. júlí 2023, voru ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar.

Þar sem flutningur kæranda og barns hennar fór ekki fram innan frest samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga voru mál þeirra tekin til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 15. nóvember 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 11. desember 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda og A um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og dvalarleyfi á grundvelli 75. og 76. gr. laga um útlendinga. Kæranda og A var jafnframt brottvísað frá landinu og var kæranda ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru ákvarðanir Útlendingastofnunar kærðar til kærunefndar útlendingamála 22. desember 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 12. janúar 2024 ásamt fylgigögnum.

III.    Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki vegna almenns ástands og vegna ótta við einstaklinga innan mansalshrings sem hafi upphaflega talið henni trú um að flytja frá heimaríki.

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar var sú að kærandi og A væru ekki flóttamenn og að þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda og A var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga og dvalarleyfi á grundvelli 75. og 76. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins A, kom fram að það væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það. Fram kom að umsókn A væri grundvölluð á framburði móður þess og henni hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga og dvalarleyfi á grundvelli 75. og 76. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun í máli móður hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna A og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli móður þess, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að A væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til heimaríkis.

Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. A var brottvísað frá landinu.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvarðananna, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún sé frá Edo fylki í Nígeríu, hún hafi fæðst í Benín borg en verið alin upp í þorpinu Igueben. Kærandi hafi verið búsett á Ítalíu í ellefu ár áður en hún hafi komið hingað til lands en hún hafi fengið dvalarleyfi eftir að hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi hafi flúið heimaríki sitt til Ítalíu ásamt bróður sínum en hann hafi síðar farið til Þýskalands, þaðan til Nígeríu og hafi verið myrtur í framhaldinu. Kærandi hafi komið til Íslands ásamt A 31. október 2022 og eigi von á öðru barni. Maki kæranda, sem glími við mikla heilsufarslega erfiðleika, hafi komið til Íslands 18. maí 2023 en hafi fengið synjun um efnismeðferð á umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Kærandi glími við hættulega háan blóðþrýsting, stöðuga höfuðverki og þyngdarmissi en hafi ekki fengið viðunandi meðferð fyrr en hún kom til Íslands. Kærandi geti ekki nálgast nauðsynleg lyf vegna þessa í heimaríki. Kærandi eigi jafnframt sögu um kvíða og þunglyndi. Kærandi vísar til viðtals síns hjá Útlendingastofnun þar sem hún hafi greint frá því að hafa alist upp við mikla fátækt í Nígeríu. Kærandi hafi ekki getað unnið sér til tekna þar sem engin atvinnutækifæri hafi verið í boði fyrir hana í heimaríki og hún hafi ekki haft aðgengi að menntun á grunnskólastigi. Einu atvinnutækifærin séu í borgum en hún hafi ekki haft fjármuni til þess að komast í borgina til að lifa og starfa. Kærandi og bróðir hennar hafi árið 2011 tekið boði frá konu frá Evrópu í gegnum vinkonu móður kæranda sem hafi sagst vera að leita að húshjálp fyrir sig og börnin sín næstu fimm árin og aðstoð í verslun á hennar vegum fyrir bróður kæranda. Þetta hafi síðan ekki reynst raunin og umrædd kona hafi hneppt kæranda og bróður hennar í mansal á Ítalíu og neytt kæranda til að stunda vændi, tekið af henni alla innkomu og gert kæranda og bróður hennar ljóst að þau hafi skuldað henni háar fjárhæðir fyrir flutning þeirra frá Nígeríu. Bróðir kæranda hafi verið neyddur til að betla í matvörubúðum fyrir umrædda konu sem hafi rekið vændisþjónustu með fjölda stúlkna og hóp betlara. Bróðir kæranda hafi flúið til Þýskalands en hafi verið fluttur þaðan til Nígeríu þar sem hann hafi verið myrtur fyrir tilstilli umræddrar konu. Konan hafi hringt í kæranda eftir andlát bróður hennar og greint henni frá því að hann hafi goldið líf sitt fyrir að hafa ekki greitt skuld sína. Konan hafi ítrekað hótað kæranda lífláti m.a. í gegnum móður kæranda. Þegar bróðir kæranda hafi flúið til Þýskalands hafi konan handtekið móður kæranda og frelsissvipt hana í tvo mánuði. Konan sé valdamikil og eigi fjármuni til að standa undir slíkum aðgerðum þó hún sé eftir atvikum ekki stödd í Nígeríu sjálf. Konan hafi flúið frá Ítalíu fyrir nokkrum árum og einhverjir segi hana vera í Nígeríu en kærandi geti ekki vitað það fyrir víst. Kærandi óttist að vera drepin eða fangelsuð fyrir tilstilli umræddrar konu með sama hætti og bróðir hennar og móðir verði henni gert að fara aftur til heimaríkis. Þá séu kærandi og A í sérstakri hættu í heimaríki vegna kynferðis og fátæktar. Þær geti ekki séð fyrir sér eða fengið viðunandi aðgang að menntun auk þess sem þær séu í hættu á að verða fyrir alvarlegu og margvíslegu ofbeldi, þar með talið kynferðisofbeldi og kynfæralimlestingum þar í landi. Eins og sjá megi af landaupplýsingum standi konur frammi fyrir alvarlegri mismunun og bágri stöðu í samfélaginu í Nígeríu, sérstaklega ef þær séu án eiginmanns. Yfirvöld í Nígeríu geti ekki veitt vernd eða aðstoð. Kærandi og börn hennar eigi enga framtíð í heimaríki og hún eigi ekki möguleika á að sjá fyrir þeim þar í landi.

Kærandi gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun og telur Útlendingastofnun hafa gengið mun lengra en talist geti eðlilegt í sönnunarkröfum til kæranda um ástæður flótta hennar frá heimaríki sínu og þeirri hættu á alvarlegum ofsóknum sem hún og barn hennar standi frammi fyrir verði þeim gert að snúa þangað aftur. Kærandi hafi lýst yfir þeim ómöguleika sem hún standi frammi fyrir varðandi gagnaöflun í tengslum við hótanir frá geranda kæranda en hún hafi tryggt að ekki væri hægt að rekja samskiptin til hennar. Með greinargerð til kærunefndar leggi kærandi aftur á móti fram gögn sem henni hafi tekist að afla í tengslum við manndráp bróður hennar. Kærandi telji sig hafa lagt fram fullnægjandi gögn til stuðnings frásögn sinni í ljósi aðstæðna og hún sé í augljósri hættu á alvarlegu ofbeldi, ofsóknum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki sínu. Með vísan til landaupplýsinga geti einstaklingar sem snúi aftur til Nígeríu sætt slíkum ofsóknum og vernd gegn því sé takmörkuð og í raun undir lágmarksviðmiðum. Það sé í takt við hina miklu tíðni mansals á svæðinu samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.

Kærandi vísar til þess að hún geri sér grein fyrir því að misræmi sé á milli frásagna hennar í Dyflinnarviðtali á fyrri stigum og í efnisviðtali hennar hjá Útlendingastofnun, m.a. um andlát föður hennar, ástæður flótta hennar frá Nígeríu og hvort hún hafi haft „madam“ á Ítalíu og ástæður vændisstarfa hennar þar í landi. Ástæða misræmisins liggi í því að kæranda hafi verið fyrirskipað af nafngreindum aðila að segja ákveðna sögu um ástæður flótta hennar frá Nígeríu, hvernig hún hafi komist úr landi o.fl. og hótað að vera send aftur til Nígeríu segði hún frá. Aðilinn hafi látið kæranda sverja eið þess efnis að kærandi myndi ekki uppljóstra um starfsemi hennar. Þær upplýsingar sem kærandi hafi veitt í efnisviðtali séu sannleikanum samkvæmt. Af ótta við aðgerðir af hálfu umrædds aðila og í ljósi áralangrar óttastjórnunar, tilfinninga- og kynferðislegs ofbeldis hafi kærandi óttast þær afleiðingar sem það gæti haft fyrir hana að óhlýðnast fyrirmælum. Þolendur séu oft óviljugir að vitna gegn mansalsaðilum vegna ótta við hefndaraðgerðir og heimildir beri með sér að þeir sem stundi mansal beiti þolendur og fjölskyldur þeirra líkamlegu ofbeldi, mannránum, ógnunum, skemmdarverkum og manndrápum í hefndarskyni. Kærandi andmælir trúverðugleikamati Útlendingastofnunar hvað þessi atriði varðar og telur stofnunina ganga út frá því að kærandi hafi ekki verið þolandi mansals vegna framangreinds misræmis í frásögn hennar. Kærandi vísar til heimilda um háa tíðni mansals á heimasvæði kæranda í Nígeríu.

Kærandi vísar til þess að í hinni kærðu ákvörðun sé með öllu litið fram hjá þeim alvarlegu atvikum sem fjölskylda kæranda hafi orðið fyrir og þeirri hættu sem hún og börn hennar muni búa við daglega í heimaríki. Um hafi verið að ræða alvarlegt ofbeldi, ofsóknir og ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Með vísan til fyrirliggjandi gagna um upplýsingar um ástandið í Nígeríu að auki aðgerðir og aðgerðarleysi stjórnvalda þar í landi enn fremur á alvarleika ástandsins í landinu. Almennir borgarar geti hvorki treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá sé ljóst að alvarlegt efnahagslegt ástand ríki í heimaríki kæranda, einkum í dreifbýli, ásamt skorti á aðgengi að fæðu, atvinnu, menntun og heilbrigðisþjónustu. Þrátt fyrir framangreint miði Útlendingastofnun við það í ákvörðunum sínum að kæranda og A standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda reynist þess þörf, sem sé gagnstætt fyrirliggjandi gögnum um ástandið í heimaríki kæranda og upplifun kæranda og fjölskyldu hennar í heimaríki. Öll gögn um ástandið í Nígeríu styðji jafnframt þá frásögn kæranda að henni standi ekki til boða vernd og aðstoð yfirvalda þar í landi. Kærandi vísar til þess sem hún hafi lýst í viðtali hjá Útlendingastofnun aðgerðum lögregluyfirvalda gagnvart móður hennar. Þá byggir kærandi á því að hún og A séu í hættu í heimaríki vegna stöðu sinnar sem kvenmanna, einkum í ljósi stöðu kæranda sem ógiftrar konu.

Kærandi byggir á því að horfa þurfi sérstaklega til hagsmuna barna hennar, bæði A og þess sem sé í móðurkviði. Í því samhengi vísar kærandi til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins frá 1989, sbr. lög nr. 19/2023 og 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar jafnframt til 2. mgr. 3. gr. og 6. gr. samningsins. Áréttar kærandi jafnframt að börn hennar muni ekki geta sótt skóla vegna þeirrar miklu fátæktar sem kærandi og fjölskylda hennar búi við í heimaríki, rétt eins og hún sjálf hafi ekki haft kost á.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og A verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 40. gr., sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi flúið almennt ástand í heimaríki og óttist jafnframt áframhaldandi ofsóknir og ofbeldi bæði almennt vegna stöðu sinnar og A sem konur, m.a. vegna hættunnar á að sæta kynbundnu ofbeldi, sem þolandi mansals og af hálfu þess aðila sem hafi staðið að mansali hennar. Kærandi og börn hennar geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í Nígeríu þar sem þau séu ófær um að vernda íbúa landsins gegn ofsóknum, sbr. b- og c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærandi krefst þess til vara að henni og A verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 1. mgr. 40. gr., sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, vegna alvarlegs ástands í Nígeríu. Kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði henni gert að snúa til heimaríkis. Þá eigi hún og börn hennar á hættu að verða fyrir skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðar- og borgarlegra skotmarka verði þeim gert að snúa aftur. Öryggisástand á heimaslóðum kæranda sé ótryggt og kæranda standi sérstök ógn af aðilanum sem hafi staðið að baki mansali hennar. Þá fremji nígerísk stjórnvöld ýmis mannréttindabrot gegn eigin borgurum og séu vanmáttug um að tryggja borgurum sínum vernd gegn árásum óopinberra aðila.

Til þrautavara krefst kærandi þess að henni og A verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Gróf mannréttindabrot viðgangist í Nígeríu og kærandi og börn hennar muni búa við alvarlega hættu á ofsóknum og illri og vanvirðandi meðferð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá standi kæranda ekki til boða viðunandi aðgangur að lyfjum eða annarri læknisaðstoð vegna veikinda sinna í heimaríki.

Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að henni og A verði veitt dvalarleyfi sem þolendur mansals eða gruns þar um samkvæmt 75. gr. og 76. gr. laga um útlendinga. Skýrlega liggi fyrir að kærandi sé þolandi mansals í skilningi framangreindra ákvæða.

Þá byggir kærandi á því að með því að senda hana og A til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við því að endursenda fólk þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu (e. non-refoulement), sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi slík ákvörðun brjóta gegn 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár Íslands, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi fyrir sig og fyrir hönd A. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og A hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Leggur kærunefnd til grundvallar að kærandi og barn hennar séu nígerískir ríkisborgarar.

Réttarstaða barns kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
  • 2016 Strategic Conflict Assessment of Nigeria (Institute for Peace and Conflict Resolution, 2017);
  • 2021 Country Report on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Nigeria (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual report on religious freedom (covering 2021) (USCIRF, apríl 2022);
  • Childs Rights Act Tracker (Partners West Africa Nigeria, https://www.partnersnigeria.org/childs-rights-law-tracker/ sótt 22. nóvember 2023);
  • Country Guidance: Nigeria – Common analysis and guidance note (EUAA, 19. október 2021);
  • Country of origin information report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs,2021);
  • Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (UK Home Office, júlí 2022);
  • Country Policy and Information Note- Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);
  • Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
  • DFAT Country Information Report - Nigeria (Austalian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • EASO COI Report – Nigeria - Actors of Protection (EASO, nóvember 2019);
  • EASO COI Report – Nigeria – Country Focus (EUAA, 4. júní 2017);
  • EASO COI Report – Nigeria – Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
  • EASO COI Report – Nigeria –Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO COI Report – Nigeria – Trafficking in human beings (EUAA, 25. apríl 2021);
  • Freedom in the World 2023 – Nigeria (Freedom House, 2023);
  • Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (Socialprotection.org, 7. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • Medical Country of Origin Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
  • Nigeria: Country Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • Nigeria: Delstaten Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
  • Nigeria 2021 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State,2. júní 2022);
  • Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 25. apríl 2019);
  • Nigeria: Psykisk helsevern (Landinfo, 23. júní 2017);
  • Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 Rome (EUAA, 21. ágúst 2017);
  • Nigeria: Security Situation – Country of Origin Information Report (EUAA, 3. júní 2021);
  • Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC), 16. júní 2019);
  • Nigeria: Whether women who head their own household, without male or family support, can obtain housing and employment in Abuja, Lagos, Ibadan and Port Harcourt; government support services available to female-headed households (2017-November 2019) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. nóvember 2019);
  • Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
  • Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
  • The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
  • Social Institutions and Gender Index 2019 - Nigeria (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014.en.pdf);
  • The World Factbook – Nigeria (CIA, uppfært 14. nóvember 2023);
  • Upplýsingar af vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (https://www.migrationjointinitiative.org/countries/sahel-and-lake-chad/nigeria, sótt 23. nóvember 2023);
  • Violent Extremist in West Africa (Denmark – Immigration Service, COI Division, 28. júní 2020);
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, janúar 2018);
  • Vest-Afrika: Nettverk (Landinfo, 15. maí 2019)
  • Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022) og
  • World Report 2024 – Nigeria (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Nígería er sambandslýðveldi með tæpa 231 milljón íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2021 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta, m.a. vegna takmarkana á réttindum þeirra til tjáningar og samkomu og einnig við að fá atvinnu hjá ríkinu.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022, að töluverð spilling sé innan dómkerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Council (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmanns í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórnar lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 kemur fram að sérstök viðbragðsdeild vegna kvartana yfir störfum lögreglu hafi unnið að því að byggja upp traust almennings til lögreglunnar. Deildin taki á móti kvörtunum vegna starfa lögreglunnar og auðveldi úrlausn slíkra mála. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérstakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt átt sér stað í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópnum, þ. á m. Boko Haram, en með takmörkuðum árangri.

Fram kemur í framangreindum gögnum að ofbeldi gegn börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaráætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016-2021), með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaráætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Samkvæmt vefsíðu Partners West Africa Nigeria hafa nú 34 af 36 fylkjum Nígeríu tekið lögin í gildi þ.á m. Edo fylki og Lagos fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.

Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá júlí 2022 og EASO frá 2019, er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengt sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-20%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurðar. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi hafði búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8 þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar eitt af markmiðum aðgerðaráætlunar til ársins 2030 um sjáflbærni (e. 2030 Agenda for Sustainable Development) sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu.

Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars 2023 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.

Í skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 og apríl 2022 kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram kemur að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðlög samtök og önnur ríki, þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo og skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í apríl 2022 hafi NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá kemur fram í skýrslu frá EASO frá árinu 2021 að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. NAPTIP vinni með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og andlegan stuðning. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP í einhverjum tilvikum fyrir aðkasti í samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu.  

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)) sem leitt sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Megin verkefni aðgerðarteymisins séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum s.s. Cross-river, Lagos, Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi vegna hefndaraðgerða þeirra aðila sem staðið hafi að baki mansalinu. Lögreglan í ríkinu hafi þá almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Samkvæmt skýrslu EASO frá apríl 2021 benda ýmsar heimildir til þess að mansalsgerendur einblíni frekar á að finna nýja þolendur mansals í stað þess að beita þolendur ofbeldi, sem enn standi í skuld við þá, þar sem þeir vilji síður draga að sér athygli lögregluyfirvalda í Nígeríu. Þrátt fyrir að dæmi séu um að fjölskyldur þolenda verði fyrir ofbeldi eða árásum af hálfu mansalsgerenda bendi heimildir til þess að slíkar hefndaraðgerðir séu sjaldgæfar samkvæmt framangreindri skýrslu EASO. Oft sé ástæðan sú að fjölskyldur þolenda komi að mansalinu sjálfu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2020 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stig sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Samkvæmt vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutninga­stofnunarinnar (IOM) hafa stofnanirnar síðan árið 2017 staðið að átaki er lýtur að endursendingu fólks til Afríkuríkja, m.a. Nígeríu. Verkefnið geri fólki kleift að snúa til baka til heimaríkis á öruggan og virðulegan hátt. Stofnanirnar hafi í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir í Nígeríu, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking), veitt ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. 

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Af greinargerð kæranda verður ráðið að hún byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til aðildar hennar að tilteknum þjóðfélagshópum, annars vegar sem þolandi mansals og hins vegar sem kona. Kærandi hafi verið þvinguð til að stunda vændi á Ítalíu og hún óttist aðilann sem hafi staðið að baki mansali hennar. Þá óttist kærandi almennt öryggisástand í heimaríki, erfiðar efnahagslegar aðstæður og að A og ófætt barn hennar muni ekki hafa tækifæri á að ganga í skóla.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. nóvember 2023 greindi kærandi frá því að vera fædd í Benín borg í Edo fylki í Nígeríu og hafa verið búsett í þorpinu Igueben. Kærandi sé ekki gift en eigi maka og sé þunguð af sínu öðru barni. Kærandi hafi verið búsett með foreldrum sínum og þremur systkinum í Nígeríu en faðir hennar hafi látist árið 2008 þegar hann hafi fallið úr tré. Þau hafi búið við fátæklegar aðstæður og fjölskylda kæranda hafi starfað við bústörf til að afla matar. Kærandi hafi aðeins gengið í skóla í skamman tíma, þó hafi hún farið bæði í grunn- og framhaldsskóla en ekki klárað. Kærandi hafi leitað að starfi til að aðstoða móður sína en ekki fundið. Árið 2011 hafi vinur móður kæranda komið kæranda í kynni við konu (hér eftir B) frá Evrópu sem hafi verið að leita að húshjálp. Starfið hafi falist í því að annast börn B á Ítalíu. Starfið hafi verið til fimm ára og B hafi jafnframt boðið bróður kæranda starf í verslun. Þegar kærandi og bróðir hennar hafi komið til Ítalíu hafi raunin hins vegar verið önnur og kærandi hafi verið neydd til þess að stunda vændi og bróðir kæranda hafi verið neyddur til að betla. Þá hafi B krafið þau um greiðslur fyrir að hafa komið þeim frá Nígeríu til Ítalíu. Kærandi óttist B sem hafi staðið að baki mansali hennar og hún viti til þess að B sé ekki lengur stödd á Ítalíu. Lögreglan leiti B og hugsanlega hafi hún farið með fjölskyldu sína aftur til Nígeríu. Kærandi hafi líka heyrt að B sé í Bretlandi. Bróðir kæranda hafi farið til Þýskalands árið 2013 og verið fluttur áfram til Nígeríu árið 2014 og í kjölfarið hafi B hótað kæranda og fjölskyldu hennar. Í Nígeríu hafi bróðir kæranda verið beittur ofbeldi af hópi stráka og orðið veikur í kjölfarið og látið lífið árið 2015. Eftir að hann hafi látist hafi B haft samband við kæranda og greint henni frá því að bróðir hennar hafi goldið líf sitt fyrir skuld sína við B. Þá hafi B jafnframt hótað móður kæranda sem sé búsett í heimaríki kæranda ásamt tveimur systkinum hennar. Þegar bróðir kæranda hafi flúið frá Ítalíu til Þýskalands hafi B greitt lögregluyfirvöldum í Nígeríu til að handtaka móður kæranda. Móðir kæranda hafi verið vistuð í fangelsi í tvo mánuði eða þar til kærandi hafi getað sent pening til að leysa hana úr haldi. Kærandi hafi ekki heyrt frá B frá því 2015 þegar kærandi hafi skipt um símanúmer. B hafi haft samband við móður kæranda árið 2016 og hótað henni að verða kæranda að bana ef þau greiddu ekki skuld sína en þau hafi ekki heyrt frá B síðan. Kærandi greindi frá því að B hafi farið frá Ítalíu árið 2014, eftir að ein stúlknanna sem hafi starfað fyrir hana hafi tilkynnt hana til lögreglunnar á Ítalíu. Kærandi kvaðst óttast að láta lífið líkt og bróðir hennar eða vera vistuð í fangelsi fyrir tilstilli B verði henni gert að snúa aftur til Nígeríu. Þá sé ástandið í heimaríki kæranda slæmt og hún hafi ekkert þar í landi sem hafi verið ástæða þess að hún hafi flúið á sínum tíma. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram afrit af dánarvottorði manns sem hún kveður vera bróður sinn, yfirlýsingu manns, sem hún kveður vera frænda sinn, vegna öflunar dánarvottorðs og eyðublað um upplýsingar um dánarorsök bróður kæranda. Þar kemur m.a. fram að bróðir kæranda hafi látist 10. nóvember 2015 eftir skammvinn veikindi. Dánarorsök hafi verið mikil blæðing vegna blóðflögusjúkdóms auk bilunar á öðrum líffærum.

Áður en mál kæranda hlaut efnismeðferð fór kærandi í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 13. desember 2022, þar sem mál hennar sætti Dyflinnarmeðferð. Þá greindi kærandi frá því að faðir hennar hafi verið myrtur. Húsið hans hafi verið brennt og hann hafi látið lífið í eldsvoðanum. Kærandi og bróðir hennar hafi flúið til Ítalíu þar sem eiginkona bróður kæranda hafi verið búsett. Kærandi og bróðir hennar hafi talið að móðir þeirra hafi einnig látist en henni hafi verið bjargað. Bróðir kæranda hafi síðar farið til Þýskalands en verið sendur aftur til Nígeríu þar sem hann hafi verið myrtur. Kærandi greindi frá því að hún hafi leigt herbergi með vini sínum á Ítalíu. Kærandi hafi síðar kynnst barnsföður sínum og hafi búið með honum um tíma. Barnsfaðir kæranda hafi orðið veikur og hafi ekki getað greitt leigu svo kærandi hafi flutt til vinkonu sinnar og búið með henni á Ítalíu. Kærandi hafi starfað við vændi í tvo mánuði á Ítalíu þar sem hún hafi ekki fengið neitt starf. Aðspurð kvaðst kærandi ekki hafa verið þolandi mansals.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum af hálfu yfirvalda sem ná því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi og barn hennar eigi þær á hættu.

Umtalsvert misræmi er á frásögn kæranda á milli viðtala hjá Útlendingastofnun er varða ástæður flótta hennar. Gaf kærandi m.a. upp mismunandi upplýsingar um ástæðu og framkvæmd flótta hennar frá Nígeríu, um fráfall föður hennar, hvort hún hafi mátt þola mansal á Ítalíu og hvernig lífi henni hafi verið háttað þar í landi. Kærandi hefur gefið þær skýringar að ástæða misræmisins liggi í því að henni hafi verið fyrirskipað af B að segja ákveðna sögu um ástæður flótta hennar frá Nígeríu, m.a. hvernig hún hafi komist úr landi. B hafi svo hótað að senda kæranda aftur til Nígeríu segði hún frá. B hafi látið kæranda sverja eið þess efnis að kærandi myndi ekki uppljóstra um starfsemi hennar. Að mati kærunefndar dregur framangreint misræmi verulega úr trúverðugleika frásagnar kæranda þar sem það varðar kjarna málsástæðna hennar og grundvöll umsóknar hennar. Þá verða þau gögn sem kærandi hefur nú lagt fram um fráfall einstaklings sem hún kveður vera bróður hennar ekki talin til þess fallin að staðfesta frásögn kæranda um að bróðir hennar hafi verið myrtur af aðilum sem hafi selt þau mansali, enda hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem sýna fram á tengsl hennar við þann einstakling og af gögnunum má ráða að aðilinn hafi látist eftir stutt veikindi en ekki í kjölfar barsmíða líkt og kærandi hefur haldið fram.

Í ljósi heimilda um heimaríki kæranda er þó ekki hægt að útiloka að kærandi kunni á einhverjum tímapunkti að hafa verið þolandi mansals og vændis. Fram kemur í ákvæði d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga að þolendur mansals skuli teljast til sérstaks þjóðfélagshóps. Samkvæmt skýrslu EUAA frá október 2021 geta þolendur mansals átt á hættu athafnir sem eru af slíku alvarleikastigi að þær jafngildi ofsóknum, t.d. ofbeldi eða endurtekið mansal. Ekki séu allir þolendur mansals taldir standa frammi fyrir slíkri hættu að þeir geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Fram kemur að einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram þar sem tekið sé mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafna eða hvort um sé að ræða samsafn athafna sem talist geti til ofsókna. Við mat á því hvort líklegt sé að þolandi mansals eigi á hættu ofsóknir beri að taka tillit til ýmissa áhættuþátta, svo sem upphæðar skuldar þolanda gagnvart geranda sínum, þ.e. þeim sem standi að baki mansalinu, hvort þolandi hafi borið vitni gegn geranda sínum, valda og getu geranda, þekkingu geranda á fjölskyldu og bakgrunni þolanda, aldurs þolanda, fjölskylduaðstæðna þolanda, t.d. hvort um sé að ræða einstæða konu, félags- og efnahagslegan bakgrunn þolanda, aðgangs þolanda að stuðningsneti í heimaríki og þátttöku fjölskyldu þolanda í mansalinu. Ekki er fjallað um vægi hvers og eins áhættuþáttar við mat á því hvort þolandi mansals geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir eða hversu margir áhættuþættir verði að vera til staðar svo að leggja megi slíkt mat til grundvallar.

Frásögn kæranda í viðtali 15. nóvember 2023 um meint mansal hennar ber ekki með sér að kærandi hafi þekkt konuna sem hafi hneppt hana í mansal og þvingað í vændi á Ítalíu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi verið að leita að starfi og vinur móður kæranda hafi bent henni á að kona frá Evrópu væri að leita eftir húshjálp. Konan hafi boðið kæranda og bróður hennar atvinnu á Ítalíu en þegar þangað hafi verið komið hafi raunin verið önnur og hún hafi verið þvinguð í vændi. Frásögn kæranda ber ekki með sér að B sé tengd kæranda fjölskylduböndum eða að fjölskylda kæranda hafi átt þátt í mansalinu. Þá hefur kærandi greint frá því að hún hafi ekki heyrt frá B frá því árið 2015 og móðir kæranda hafi síðast heyrt frá henni árið 2016 og kærandi viti ekki hvar B sé niðurkomin í dag. Að mati kærunefndar verður ekki talið að kæranda stafi hætta af B í dag. Af frásögn kæranda og gögnum málsins verður ekki séð að B hafi slík völd eða ítök í Nígeríu að kæranda sé ómögulegt að leita aðstoðar þarlendra yfirvalda telji hún þörf á því. Varðandi bakgrunn kæranda í heimaríki hefur hún greint frá því að móðir hennar, tvö systkini og föðurbróðir séu búsett í Nígeríu. Þá liggur fyrir að maki kæranda, sem er staddur hér á landi, er frá Nígeríu en er með viðbótarvernd á Ítalíu og hefur hlotið synjun á efnismeðferð á umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi. Þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu benda gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að þeir sæti almennt ekki ofsóknum við heimkomu og að til staðar séu innviðir í heimaríki kæranda sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals og að sækja gerendur til saka. Þá sé mansal refsivert í Nígeríu og hafa lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Það er mat kærunefndar að kærandi eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, hjá stofnuninni NAPTIP, aðgerðarteyminu ETAHT og lögreglu, telji hún þörf á því. Að mati kærunefndar hefur því ekki verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til þess að hún kunni að hafa verið þolandi mansals.

Auk framangreinds ber kærandi fyrir sig að hún og A tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi sem konur í Nígeríu. Þrátt fyrir að konur sæti almennt mismunun í Nígeríu og geti talist til sérstaks þjóðfélagshóps í skilningi 38. gr. laga um útlendinga er það mat kærunefndar að sú mismunun nái ekki því alvarleikastigi að geta talist ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna. Verður því ekki fallist á að kærandi og A hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki sínu á grundvelli kyns síns

Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hún og A geti ekki notið verndar lögreglu eða sýnt fram á það með öðrum hætti. Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda og A vernd telji kærandi þörf á því, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Útlendingastofnun taldi ekki ástæðu til þess að taka viðtal við A vegna aldurs hennar. Þá verður ekki ráðið að kærandi og A eigi á hættu að sæta ofsóknum af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barns kæranda samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Með tölvubréfi, dags. 12. febrúar 2024, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum um afstöðu kæranda til umskurðar kvenna. Í svari kæranda, 13. febrúar 2023, greindi kærandi frá því að hún hafi sjálf ekki verið umskorin og hyggist ekki láta umskera barn eða börn sín. Það liggur því fyrir að kærandi er mótfallin umskurði og af framburði hennar verður ekki ráðið að ástæða sé til að ætla að A hafi ástæðuríkan ótta við að verða þolandi umskurðar í heimaríki sínu gegn vilja móður sinnar. En af heimildum má ráða að refsing liggi við umskurði kvenna og að slíkt sé nánast aldrei gert gegn vilja foreldra barns.

Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barns kæranda nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur, að teknu tilliti til ákvæða í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og barnaverndarlögum nr. 80/2002, að engin rök standi í vegi fyrir því að A og ófætt barn kæranda fylgi móður sinni aftur til heimaríkis eða Ítalíu, þar sem kærandi og A eru með dvalarleyfi og faðir A hefur hlotið viðbótarvernd. Kærunefnd horfir m.a. til þess að A er í fylgd móður sinnar sem er að mestu heilsuhraust og vinnufær og nýtur stuðnings hennar. Þá benda gögn ekki til annars en að fjölskyldan geti búið saman í heimaríki þeirra eða á Ítalíu. Líkt og áður greinir stendur A til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki þeirra. Þá bera gögn með sér að A og ófætt barn kæranda muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður A, s.s. að hún hafi aldrei komið til heimaríkis, komi ekki í veg fyrir að hún fylgi móður sinni til heimaríkis. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska, að það sé A fyrir bestu að hún fylgi móður sinni til heimaríkis eða Ítalíu.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún eða A hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.

Er því ljóst að kærandi og barn hennar uppfylla ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda og barns hennar séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi og barn hennar séu í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Benín eða Edo fylki séu slíkar að kærandi eða barn hennar eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til Nígeríu.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda og barns hennar þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi og barn hennar uppfylla heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi og barn hennar uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem - er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Þá segir í athugasemdunum að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.

Kærandi byggir á því að hún og barn hennar muni búa við erfiðar félagslegar aðstæður verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. A og ófætt barn kæranda muni ekki geta sótt skóla vegna þeirrar miklu fátæktar sem kærandi og fjölskylda hennar búi við í heimaríki. Þá muni kærandi ekki hafa aðgang lyfjum eða annarri læknisaðstoð vegna veikinda sinna í heimaríki. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljast svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. Þá horfir kærunefnd til þess að kærandi á móður, tvö systkini og frænda í heimaríki og má ráða að samband þeirra sé gott. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar og félagslegar aðstæður sem bíða kæranda og barna hennar í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þessum athugasemdum. Varðandi rétt A og ófædds barns kæranda til að ganga í skóla vísar kærunefnd til þess sem fram hefur komið um að lög í Nígeríu kveði á um að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Þá hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf árið 2004 sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme).

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Kærandi kveður barn sitt við góða heilsu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 13. desember 2022 kvaðst kærandi glíma við magaverki vegna tíðablæðinga. Þá kvað hún andlega heilsu sína góða en að hún hafi verið slæm á Ítalíu. Á meðal gagna málsins er afrit af skjali, undirritað af hjúkrunarfræðingi hjá heilsugæslunni Sólvangi, dags. 16. desember 2022, þar sem fram kemur að kærandi sé með háan blóðþrýsting og kvarti undan höfuðverk. Í efnisviðtali hjá Útlendingastofnun 15. nóvember 2023 greindi kærandi frá því að hafa verið mjög veik þegar hún kom til landsins og hafa verið með háan blóðþrýsting. Kærandi hafi fengið meðferð við því og taki lyf. Kærandi greindi jafnframt frá því að hafa liðið illa andlega á Ítalíu og kvaðst hafa glímt við höfuðverki og þyngdartap. Kærandi fái ekki lengur höfuðverki eftir að hún hlaut meðferð við háum blóðþrýstingi.

Í ljósi þess sem fram kemur í framlögðum heilsufarsgögnum verður sú meðferð sem kærandi þarfnast hvorki talin vera svo sérhæfð að hún geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hana verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Líkt og fram hefur komið er öllum ríkisborgurum Nígeríu tryggður aðgangur að heilbrigðiskerfinu í landinu og er það mat kærunefndar að kærandi muni hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum sem henni eru nauðsynleg þar í landi. Samkvæmt skýrslu EUAA um lyf í Nígeríu frá apríl 2022 er hægt að fá meðferð við háum blóðþrýstingi í Nígeríu, þ. á m. lyf. Samkvæmt framangreindum landaupplýsingum er heilbrigðisþjónusta fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli, heldur en í strjálbýli og töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess. Kærandi kveðst hafa verið búsett í Igueben, sem er í um 116 kílómetra fjarlægð frá borginni Benín. Þá lítur kærunefnd svo á að ekkert sé því til fyrirstöðu að kærandi muni geta búið við stöðugleika í heimaríki sínu. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er kærandi að öðru leyti við góða heilsu og vinnufær og því ekkert sem bendir til annars en að hún geti framfleytt sér í heimaríki.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barns hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún og barn hennar hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kæranda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda og barns hennar í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og barni hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi vegna mansals eða gruns þar um - 75. og 76. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt ákvæði 75. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem grunur leikur á að sé fórnarlamb mansals dvalarleyfi í allt að níu mánuði þótt skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna sé ekki fullnægt. Í athugasemdum við fyrrgreint ákvæði í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðinu sé ætlað að stuðla að því að fórnarlamb mansals fái tækifæri til að ná bata og losna undan áhrifum þeirra sem stunda mansal. Veiting dvalarleyfisins sé óháð því hvort lögreglurannsókn fari fram en dvalarleyfinu sé m.a. ætlað að gefa hugsanlegu fórnarlambi svigrúm til þess að taka upplýsta ákvörðun um samstarf við yfirvöld við rannsókn málsins. Efni ákvæðisins ber með sér að því sé ætlað að veita þeim einstaklingum tímabundið atvinnuleyfi sem nýlega hafa losnað undan mansali eða eru enn undir áhrifum þeirra sem stunda mansal.

Í 76. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita fórnarlambi mansals og barni viðkomandi sem statt er hér á landi endurnýjanlegt dvalarleyfi til eins árs þegar sérstaklega stendur á, þótt skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. sé ekki fullnægt, þegar það telst nauðsynlegt ýmist vegna persónulegra aðstæðna viðkomandi eða að mati lögreglu vegna samvinnu viðkomandi við yfirvöld vegna rannsóknar og meðferðar sakamáls. Í athugasemdum við fyrrgreint ákvæði í frumvarpi til laga um útlendinga kemur m.a. fram að ákvæðið sæki fyrirmynd sína til 14. gr. samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali og fullnægi einnig skuldbindingum samkvæmt 1. mgr. 7. gr. Palermó-bókunarinnar. Í athugasemdum er vísað til greinargerðar með samningi Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali þar sem fram komi að persónulegar aðstæður fórnarlambs mansals geti verið allt frá öryggi eða heilsufari þess til fjölskylduaðstæðna.

Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur fram að hún sé þolandi mansals og nauðsynlegt sé að veita henni dvalarleyfi á þeim grundvelli. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið þvinguð í vændi árið 2011 á Ítalíu. Kærandi hafi ekki heyrt frá konunni sem hafi þvingað hana í vændi frá því árið 2015 en móður hennar hafi borist hótanir árið 2016. Þá kvaðst kærandi ekki vita hvort hún væri búsett í Nígeríu, Bretlandi eða annars staðar. Samkvæmt framangreindu eru um níu ár síðan kærandi heyrði síðast frá konunni sem hún kveður hafa þvingað hana til að stunda vændi og af gögnum málsins verður ekki séð að kærandi sé enn undir áhrifum þess aðila sem hún kveður hafa beitt sig mansali. Er það því mat kærunefndar að sá umþóttunartími sem ákvæðinu er ætlað að gefa mögulegum þolendum mansals eigi ekki við í tilfelli kæranda. Að mati kærunefndar, með vísan til framangreinds og annarra gagna málsins, er hvorki grundvöllur fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 75. gr. laga um útlendinga né 76. gr. sömu laga. Þrautaþrauta- og þrautaþrautaþrautavarakröfum kæranda er því hafnað.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Kærandi og A sóttu um alþjóðlega vernd 31. október 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og barns hennar. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barns hennar þangað.

Í 5. mgr. 104. gr. útlendingalaga, þar sem fjallað er um framkvæmd ákvörðunar, kemur fram að ef útlendingur hefur gilda heimild til dvalar í öðru EES- eða EFTA-ríki skuli hann fluttur þangað. Við komuna hingað til lands lagði kærandi fram dvalarskírteini frá ítölskum stjórnvöldum fyrir sig og barn sitt. Af skírteini kæranda má sjá að henni og A hafi verið veitt dvalarleyfi á Ítalíu með gildistíma til 7. ágúst 2024. Þá hefur maki kæranda og faðir A hlotið viðbótarvernd á Ítalíu. Telur kærunefnd rétt að taka sérstaka afstöðu til þess hvort ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi í vegi fyrir því að kærandi og barn hennar verði flutt til Ítalíu.

Við mat á aðstæðum á Ítalíu hefur kærunefnd tekið mið af þeim upplýsingum sem liggja fyrir um Ítalíu og skoðaðar hafa verið vegna fyrri úrskurða kærunefndar í tengslum við endursendingar einstaklinga til Ítalíu. Meðal skýrslna sem kærunefnd hefur kynnt sér sérstaklega eru: Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2023); Amnesty International Report 2022/23 - Italy (Amnesty International, 28. mars 2023) og Italy 2022 Human Rights Report (U.S. State Department, 15. maí 2023).

Kærandi og barn hennar eru með gilt dvalarleyfisskírteini á Ítalíu með gildistíma til 7. ágúst 2024. Með vísan til upplýsinga sem áður hefur verið tekin afstaða til um aðstæður á Ítalíu og nýlegra heimilda um aðstæður einstaklinga sem hafa alþjóðlega vernd og heimild til dvalar á Ítalíu er það niðurstaða nefndarinnar að 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barns hennar til Ítalíu.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 31. október 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hún því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa henni úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. nóvember 2023 var kæranda tilkynnt að Útlendingastofnun væri með það til skoðunar hvort brottvísa bæri henni með endurkomubanni til tveggja ára. Var kæranda gefið færi á að tjá sig um það og hafa uppi andmæli. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við lönd á Schengen-svæðinu og svaraði spurningu Útlendingastofnunar um hvort hún teldi brottvísun og endurkomubann hingað til lands og alls Schengen-svæðisins ósanngjarna ráðstöfun gagnvart sér eða fjölskyldumeðlimum sínum neitandi.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hennar og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn og því ekki ástæða til að fallast á varakröfu kæranda þess efnis.

Í ákvörðunarorðum í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hún landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður. A var brottvísað frá landinu.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar eru staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and her child are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Valgerður María Sigurðardóttir                                                        Þorbjörg I. Jónsdóttir