14 mars 2024
/
Úrskurður nr. 268/2024
Hinn 14. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 268/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24020060
Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli [...]
Málsatvik
Hinn 1. febrúar 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. maí 2023, um að synja[...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 5. febrúar 2024 og 9. febrúar 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 16. febrúar 2024 barst kærunefnd greinargerð aðila.
Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Málsástæður aðila
Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að mál hennar hafi ekki verið full rannsakað á æðra sem og lægra stjórnsýslustigi og telur mikilvægt að málið verði endurskoðað af dómstólum.
Aðili telur að í máli sínu sé ýmsum spurningum ósvarað, einkum um efnisreglur stjórnsýsluréttar og áhrif þeirra. Aðili vísar jafnframt til þess að hún eigi uppkominn son á landinu og þurfi ekki á fjárhagslegum stuðningi stjórnvalda að halda og leitast þess að fá að vera á landinu á meðan dómur gengur í máli hennar.
Aðili telur að mál hennar kunni að hafa fordæmisgildi varðandi önnur sambærileg mál, einkum varðandi samspil efnisreglna stjórnsýsluréttar við breytta stjórnsýsluframkvæmd á sviði flóttamannaréttar.
Aðili telur ekki málefnalegt að stöðva afgreiðslu umsókna um hálfs árs skeið á meðan beðið sé eftir því hvort landaupplýsingar breytist og að tilviljun ein ráði því hvort viðkomandi umsækjandi fékk viðtalsboðun fyrir eða eftir mánaðarmótin október og nóvember. Aðili telur enn skorta á rökstuðning fyrir því að hin breytta framkvæmd geti öðlast gildi gagnvart þeim sem búnir voru að sækja um alþjóðlega vernd fyrir mánaðarmótin október og nóvember 2022.
Aðili telur mikilvægt að fá úr því skorið hvort lægra sett stjórnvald sé bundið af málsmeðferðar- og efnisreglum stjórnsýsluréttar eða hvort lægra sett stjórnvald hafi algjöra hentisemi um það í framkvæmd hvort og þá hvenær það hefur málsmeðferðar- og efnisreglur stjórnsýsluréttar til hliðsjónar ákvörðunum sínum. Þá telur aðili mikilvægt að fá úr því skorið hvort kærunefnd útlendingamála hafi borið að rannsaka þann þátt sjálfstætt hvenær breytingin á stjórnsýsluframkvæmdinni hefði átt að taka gildi. Að mati aðila verði ekki séð að kærunefnd útlendingamála hafi vikið að því að hvenær heimilt var að láta slíka breytingu taka gildi.
Aðili tekur fram að fyrir dómi muni hún láta reyna á sjónarmiðu um breytingu á stjórnsýsluframkvæmd og afleiðingum þess að ekki er farið að hinum óskráðu reglum við breytingar á stjórnsýsluframkvæmd.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.
Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Þá er aðili máls ríkisborgari Venesúela og getur nýtt vegabréfsáritanafrelsi til þess að vera viðstaddur málsmeðferð hér á landi. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 98/2024 hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hennar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint og þær málsástæður sem aðili hefur haldið uppi er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hún aftur til heimaríkis.
Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins, bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.
Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hennar.
ÚRSKURÐARORÐ
Kröfu aðila er hafnað.
The appellant’s request is denied.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Þorsteinn Gunnarsson, formaður