21 mars 2024

/

Nr. 263/2024 Úrskurður

Hinn 21. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 263/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020173

Mál [...]og barns hennar

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. febrúar 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðunum Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir kærandi), og barns hennar [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir A), um alþjóðlega vernd og brottvísa þeim frá landinu. Var kæranda og A gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda og barns hennar til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærandi gerir kröfu um að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt 1., 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, en til vara að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að málum þeirra verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

Málsmeðferð

Kærandi og A lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 16. apríl 2023. Við meðferð málsins lagði kærandi fram auðkenniskort útgefin af yfirvöldum í Chile fyrir sig og fyrir hönd A, með gildistíma til 8. febrúar 2023. Kærandi og A komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, 25. janúar 2024 og 7. febrúar 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 22. febrúar 2024 að taka umsóknir kæranda og A um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi brottvísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda samdægurs og barst kærunefnd greinargerð kæranda 7. mars 2024 ásamt fylgigögnum.

Málsástæður og rök kæranda

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi flúið heimaríki í kjölfar þess að eiginmaður hennar sem hafi starfað sem lögreglumaður hafi verið myrtur. Kærandi hafi þurft að skipta um nafn og fara huldu höfði auk þess sem hún hafi skráð annan mann sem barnsföður sinn. Kærandi hafi flúið til Perú og þaðan til Chile árið 2019. Mikið hafi verið um uppreisnir og glæpi í Chile. Kærandi telji að hún hafi ekki kost á því að endurnýja dvalarleyfi sitt í Chile auk þess sem hún þurfi vegabréfsáritun ætli hún sér að snúa þangað aftur. Kærandi vísar til þess að A líði vel á Íslandi og að það væri andstætt hagsmunum hans að raska núverandi högum. Kærandi vísar til þess að framlögð gögn beri með sér að A kunni að þjást af áfallastreituröskun. Mælt sé með því að A fái viðeigandi meðferð hjá fagaðila og að frekari röskun geti valdið því að ástand hans versni, sem leiði til þess að námsleg færni minnki og kunni að hafa áhrif á tilfinningalíðan hans.

Í greinargerð er vísað til landaskýrslna hvað varðar aðstæður í Chile. Fjallar kærandi m.a. um hindranir að verndarkerfinu þar í landi og þá fordóma sem innflytjendur verði fyrir.

Í greinargerð gerir kærandi athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir. Telur kærandi að fella beri hinar kærðu ákvarðanir úr gildi og að málunum skuli vísað til nýrrar meðferðar. Kærandi gerir athugasemd við málsmeðferð stofnunarinnar þegar komi að því að ákvarða máli hennar farveg en langur tími hafi liðið frá því hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þar til hún hafi verið boðuð í viðtal og þá hafi hún staðið í þeirri trú að mál hennar myndi hljóta efnismeðferð hjá stofnuninni. Þá gerir kærandi athugasemd við það að ekki hafi verið talin þörf á að afla samþykkis viðtökuríkis.

Kærandi gerir athugasemd við að kærunefnd hafi ekki birt úrskurði um griðlandsmál og telur bagalegt að Útlendingastofnun reiði sig á óbirta úrskurði kærunefndar. Að mati kæranda feli málsmeðferðin í sér mörg brot gegn skráðum og óskráðum reglum stjórnsýsluréttar. Kærandi hafi óskað eftir framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun en þeirri beiðni verið hafnað. Höfnun stofnunarinnar á að gefa kæranda færi á að tjá sig um mál sitt hafi verið illa rökstudd auk þess sem brotið hafi verið gegn andmælarétti kæranda, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til 2. mgr. 28. gr. laga um útlendinga og telur að hún hafi ekki náð að koma sjónarmiðum sínum á framfæri líkt og tilgangur efnisviðtals sé. Þá telur kærandi að fulltrúi Útlendingastofnunar sem tekið hafi viðtalið hafi verið vanhæf til að vinna málið þar sem hún hafi greint frá skýrri neikvæðri afstöðu þegar því hafi verið haldið fram að það væri hlutverk kærunefndar að taka ákvörðun um það hvort mál kæranda skyldi hljóta efnismeðferð. Kærandi vísar til 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga hvað þetta varðar. Þá telur kærandi að þó annar fulltrúi sé skrifaður fyrir ákvörðununum veiti yfirlýsing umrædds fulltrúa innsýn í afstöðu stofnunarinnar til málsins.

Kærandi telur að hinar kærðu ákvarðanir séu staðlaðar og að ekkert raunverulegt tillit eða rannsókn hafi farið fram á aðstæðum kæranda. Þá vísar kærandi til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar sé því marki brennd að aðeins sé fjallað um sérstakar ástæður út frá viðmiðum sem komi fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga en í því sambandi ítrekar kærandi að þau viðmið séu einungis sett fram í dæmaskyni. Þá gerir kærandi athugasemd við afgreiðslu Útlendingastofnunar þegar komi að framburði kæranda um eiginmann sinn og mágkonu í heimaríki. Kærandi telur skorta efnislega umfjöllun um framangreint og að stofnunin hafi getað staðreynt umrætt atvik með því að taka til skoðunar hvort þau teldust vera í viðkvæmri stöðu og hvort sérstakar ástæður gætu því átt við um mál þeirra. Þá hafi Útlendingastofnun ekki tekið afstöðu til skjals sem lagt hafi verið fram í sambandi við stöðu A sem kærandi telji vera til þess fallið að sýna fram á að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli þeirra en umrætt gagn gefi til kynna að A kunni að glíma við áfallastreituröskun. Kærandi vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga í þessu sambandi. Þá gerir kærandi athugasemd við allar efnislegar ályktanir Útlendingastofnunar sem birtist í hinum kærðu ákvörðunum og vísar til landaupplýsinga í greinargerð sinni sem og málsatvikakafla.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda og A falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þar sem meginreglan sé sú að umsóknir um alþjóðlega vernd skuli almennt teknar til efnismeðferðar. Heimildin í a-d liðum 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga feli í sér undantekningu frá meginreglunni en slíkar undantekningar beri að túlka þröngt. Kærandi telji að hún hafi engin sérstök tengsl við Chile sem leiði til þess að rétt sé að endursenda hana og A þangað, en dvalarleyfi þeirra séu útrunnin. Kærandi vísar til úrskurða kærunefndar í málum nr. 203/2022, 245/2022, 427/2022, 190/2023, 724/2023 og 722/2023 máli sínu til stuðnings. Kærandi telur að horfa verði til þess að um gilt dvalarleyfi sé að ræða eða staðfesting yfirvalda viðtökuríkis um endurkomu til landsins.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda og A falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna þar sem miklar óeirðir hafi verið í Chile. Þá hafi A mætt útskúfun, ofbeldi og fordómum. Kærandi og A hafi verið á flótta eftir atburði í heimaríki frá árinu 2018. Þá vísar kærandi til skjals frá deildarstjóra stoðdeildar Birtu þar sem mælt sé með því að A fái viðeigandi meðferð hjá fagaðila og að frekari röskun á högum hans geti valdið því að ástand hans versni, sem kunni að leiða til þess að námsleg færni minnki sem og áhrif á tilfinningalíðan hans. Þá vísar kærandi til þess að frekari gögn hvað varði A muni berast en óskað hafi verið eftir þverfaglegri ráðgjöf fyrir hann. Þá vísar kærandi til þess að þau og þá einkum A hafi orðið fyrir mismunun og útskúfun í Chile auk þess sem endursending þangað kunni að fela í sér röskun á högum A. Þá vísar kærandi til þess að rétt sé að taka til skoðunar hvort A kunni að teljast í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá séu börn almennt álitin sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur og njóti af þeirri ástæðu sérstakrar verndar og umönnunar, samkvæmt alþjóðasamningum og lögum. Þá vísar kærandi til meginreglunnar um að ávallt skuli hafa það sem barni sé fyrir bestu í forgangi þegar teknar séu ákvarðanir um málefni þess sem komi fram í 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá vísar kærandi jafnframt til 1. mgr. 22. gr. barnasáttmálans og 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar jafnframt til þess að börn hafi sjálfstæðan rétt til alþjóðlegrar verndar og hafnar því að sjónarmið um einingu fjölskyldunnar skuli koma til skoðunar.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda og A falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna þar sem ekkert liggi fyrir um að þeim sé heimilt að snúa aftur til Chile, enda séu tímabundin dvalarleyfi þeirra útrunnin. Kærandi vísar til þess að yfirvöld í Chile hafi notað ólögmætar leiðir til að meina umsækjendum um að fá aðgang að verndarkerfinu. Þá stundi yfirvöld þar í landi brottvísanir á útlendingum án þess að meta hvort viðkomandi einstaklingar séu í hættu og eigi mögulega rétt á alþjóðlegri vernd. Kærandi vísar þá til þess að ekkert bendi til þess að Útlendingastofnun hafi haft samband við yfirvöld í Chile og því liggi ekki fyrir hvort kærandi og A geti snúið þangað aftur. Þá vísar kærandi til meginreglunnar um bann við endursendingu (non-refoulement).

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að kærunefnd beri að vísa máli kæranda og A til nýrrar meðferðar enda hafi verið alvarlegir annmarkar á málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli þeirra. Kærunefnd sé ekki stætt á því að leiðrétta þau vinnubrögð sem Útlendingastofnun hafi viðhaft. Vísar kærandi til framangreinds athugasemdakafla til stuðnings kröfu þessari.

Umsóknir um alþjóðleg vernd

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Aðstæður kæranda og barns hennar

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...]sem kom hingað til lands ásamt [...] ára syni sínum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa yfirgefið heimaríki og farið til Perú árið 2018 og dvalið þar til ársins 2019. Þau hafi þá flutt til Chile og dvalið þar frá júní 2019 til nóvember 2022. Barnsfaðir kæranda hefði verið tekin af lífi í heimaríki. Kærandi hafi verið handhafi dvalarleyfis á grundvelli atvinnu í Chile og hafi því ekki sótt um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi greindi frá því að hafa haft aðgang að einkarekna heilbrigðiskerfinu í Chile en hún hafi ekki þurft að nýta sér heilbrigðisþjónustu þar í landi. Kærandi greindi frá því að hafa orðið fyrir atviki í Chile þar sem kona réðst á hana úti á götu og lamdi hana. Kærandi hafi lagt fram kæru og hún fengið nálgunarbann gegn viðkomandi. Þá væri mikið af uppreisnum í Chile og kærandi teldi sig því ekki vera örugga þar í landi. Þá greindi kærandi frá því að A hefði orðið fyrir mismunun í skóla og íþróttum í Chile. Kærandi greindi frá því að hún og A væru við góða líkamlega og andlega heilsu.

Réttarstaða barns kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda og A hjá Útlendingastofnun. Gögn málsins bera ekki annað með sér en að A sé við góða heilsu og eigi í góðum tengslum við móður sína. Það er því mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða hans verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Landaupplýsingar

Aðstæður í Chile

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Chile, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd lagt mat á þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni.

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Chile (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: The State of the World‘s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Cartagena Declaration on Refugees (UNHCR, ódagsett);
  • Chile 2020 Crime & Safety Report (OSAC, 3. október 2020);
  • Chile anti-migrant protesters destroy camps in tense north (reuters, 30. janúar 2022);
  • Chilean protests against Venezuelan migrants (bbc.com, 31. janúar 2022);
  • Fact Sheet: Chile (UNHCR, september 2023);
  • Fact Sheet: Chile (UNHCR, mars 2021);
  • Fact Sheet: Chile (UNHCR, ágúst 2019);
  • Freedom in the World 2023 – Chile (Freedom House, 26. september 2023);
  • Guidelines on International Protection No. 12: Claims for refugee status related to situations of armed conflict and violence undir Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relation to the Status of Refugees and the regional refugee definitions (UNHCR, 2. desember 2016);
  • Health in the Americas+. Summary: Regional Outlook and Country Profiles (Pan American Health Organization, uppfært 12. desember 2017);
  • International Migration Outlook 2023 (OECD, 23. október 2023);
  • Profile of the Health Service System: Chile (World Health Organization, ódagsett);
  • Rights and obligations of permanent residents; instances under which permanent residence is lost (Immigration and Refugee Board of Canada, 25. janúar 2017);
  • Social protection and Venezuelan migration (International Organization for Migration, ódagsett 2021);
  • Socioeconomic Integration of Venezuelan Migrants and Refugees (International Organization for Migration, júlí 2021);
  • Summary Conclusions on the interpretation of the extended refugee definition in the 1984 Cartagena Declaration (UNHCR, 7. júlí 2021);
  • „They yell ugly things“: Migrants in Chile‘s north fearful after fiery protests (reuters.com, 27. september 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu Mannréttindastofnunar Chile (www.indh.cl,);
  • Upplýsingar af vefsíðu ráðuneytis innflytjendamála í Chile (www.extranjeria.gob.cl.);
  • World Report 2022 (Human Rights Watch, 16. desember 2021) og
  • World Report 2024 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Stjórnvöld í Chile eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi er ógnað (non-refoulement). Þá hafa stjórnvöld í Chile verið aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku síðan 8. ágúst 1990 þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá fullgilti Chile barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1990. Chile gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 30. september 1988 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1972. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum árið 1972.

Á vefsíðu ráðuneytis innflytjendamála í Chile kemur fram að einstaklingar geti verið handhafar tímabundins eða ótímabundins dvalarleyfis þar í landi. Tímabundið dvalarleyfi gildi í eitt ár og hægt sé að framlengja það einu sinni. Að því loknu þurfi handhafi dvalarleyfis að óska eftir ótímabundnu dvalarleyfi hjá Innanríkis- og almannaöryggisráðuneyti Chile. Fram kemur að hægt sé að sækja um ótímabundið dvalarleyfi hafi viðkomandi haft löglega búsetu í landinu í tvö ár eða eftir tólf mánuði hafi viðkomandi t.a.m. fjölskyldutengsl við ríkisborgara Chile eða einstakling með fasta búsetu þar í landi. Þá kemur fram að umsækjandi sem hafi fengið synjun á umsókn sinni geti beðið ráðuneytið um endurskoðun á ákvörðuninni auk þess sem að tryggt sé í lögum að hann geti borið lögmæti ákvörðunarinnar undir þar til bæra aðila. Einstaklingar sem séu með gilt dvalarleyfi í Chile og hafi haft búsetu þar í landi í fimm ár geti sótt um ríkisborgararétt þar í landi. Sé einstaklingur með ríkisborgararétt í Chile eða ótímabundið dvalarleyfi (s. Residencia Definitiva) geti sambúðar- eða hjúskaparmaki hans fengið tímabundið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Sama eigi við um ólögráða barn viðkomandi, barn sem sé með fötlun, ógift barn viðkomandi sem sé undir 24 ára aldri og sé í námi og foreldrar viðkomandi.

Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 er kveðið á um veitingu alþjóðlegrar verndar eða stöðu flóttamanns í lögum í Chile auk þess sem að stjórnvöld hafi komið á fót kerfi til að veita flóttamönnum vernd, þ. á m. aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu. Þá séu stjórnvöld í Chile í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og önnur mannréttindasamtök er varðar aðstoð við m.a. umsækjendur um alþjóðlega vernd. Chile sé aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og þá kemur fram í framangreindri samantekt og leiðbeiningum UN High Commissioner for Refugees (UNHCR) að Chile sé aðili að Cartagena yfirlýsingunni sem sé samkomulag milli ríkja í Suður-Ameríku um málefni flóttamanna. Orðalag yfirlýsingarinnar bendi til þess að skilgreining hennar á flóttamannahugtakinu sé rýmri en t.a.m. í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og geti þannig tekið til einstaklinga sem séu í þörf fyrir alþjóðlega vernd en falli ef til vill ekki undir skilgreiningu flóttamannasamningsins á hugtakinu. Sú skilgreining á hugtakinu flóttamaður sem fyrirfinnst í Cartagena yfirlýsingunni hafi verið innleidd í löggjöf ýmissa ríkja Suður-Ameríku, þ. á m. Chile. Þá árétti yfirlýsingin m.a. grundvallarregluna um bann við endursendingum og rétt einstaklinga til alþjóðlegrar verndar.

Samkvæmt skýrslum World Health Organization og Pan American Health Organization er öllum tryggður réttur til heilbrigðisþjónustu í stjórnarskrá Chile óháð því hvort viðkomandi sé með ríkisborgararétt. Heilbrigðiskerfi Chile samanstandi af opinberu og einkareknu kerfi. Ríkisborgarar Chile og þeir sem hafi heimild til löglegrar dvalar þar í landi hafi aðgang að endurgjaldslausri og niðurgreiddri heilbrigðisþjónustu í gegnum ríkisrekið sjúkratryggingakerfi. Þá kemur fram í skýrslu International Organization for Migration (IOM) að allir innflytjendur og flóttamenn hafi aðgang að heilbrigðiskerfi Chile þótt þau geti mætt ákveðnum hindrunum við að nýta sér þá þjónustu.

Samkvæmt áðurnefndri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins er kveðið á um jafnræði og vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar og þjóðernisuppruna í stjórnarskrá Chile. Hafi verið dæmi þess að minnihlutahópar hafa orðið fyrir mismunun í heilbrigðis- og menntakerfinu en stjórnvöld hafi komið á fót þjálfunaráætlun fyrir opinbera starfsmenn í því skyni að aðstoða innflytjendur og auka aðgang að túlkaþjónustu hjá hinu opinbera. Í skýrslu IOM frá árinu 2021 um félagslega stöðu ríkisborgara Venesúela í völdum löndum Suður-Ameríku kemur fram að innflytjendur frá Venesúela hafi upplifað mismunun. Af skýrslunni má sjá að útlendingaandúð í Chile hafi lengst af beinst gegn einstaklingum frá Haítí. Samkvæmt rannsókn á efni á samfélagsmiðlinum Twitter hafi 63% af mismunun beinst gegn einstaklingum frá Haítí þrátt fyrir að hlutfall innflytjenda í Chile sem séu frá Venesúela sé mun hærra en þeirra sem séu frá Haítí. Þá sýni rannsókn frá árunum 2018-2019 að tveir þriðju íbúa Chile hafi talið að stjórnvöld ættu að veita innflytjendum og flóttamönnum frá Venesúela heilbrigðisaðstoð, menntun og húsnæði. Þá sýni rannsókn frá árinu 2021 að 84% íbúa Chile styðji það að innflytjendur og flóttamenn í Chile hafi jafnan aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu. Þá sé starfrækt sjálfstæð mannréttindastofnun (s. Instituto Nacional De Derechos Humanos) sem hafi það að markmiði að efla og vernda mannréttindi allra þeirra sem séu búsettir í Chile. Samkvæmt þeim fréttum sem kærunefnd hefur kynnt sér, s.s. af fréttamiðlunum Reuters og BBC, hafa mótmæli gegn innflytjendum frá Venesúela aukist en sem dæmi má nefna að greint hefur verið frá því að í september 2021 og janúar 2022 voru fjölmenn mótmæli í Iquique í Norður-Chile sem beindust gegn innflytjendum frá Venesúela.

Samkvæmt framangreindum heimildum, s.s. skýrslum Freedom House, Human Rights Watch og Amnesty International, frá árinu 2023 og 2024 hafa stjórnvöld í Chile verið gagnrýnd fyrir brottvísanir frá landinu og framkvæmd þeirra. Samkvæmt þeim upplýsingum sem kærunefnd hefur kynnt sér hafa stjórnvöld í Chile gefið út að þeir einstaklingar sem komi með ólöglegum hætti inn á yfirráðasvæði Chile eða hafi gerst sekir um lögbrot geti átt yfir höfði sér brottvísun frá landinu. Það sé þó ekki refsivert að koma með ólöglegum hætti inn á yfirráðasvæði Chile. Brottvísunarmál hafi komið til kasta dómstóla í Chile um mitt ár 2021 þegar Hæstiréttur Chile og áfrýjunardómstólar þar í landi stöðvuðu brottvísanir einstaklinga frá m.a. Venesúela. Niðurstöður dómstóla hafi leitt í ljós tilteknar brotalamir á réttlátri málsmeðferð við meðferð brottvísunarmála í Chile. Þá má sjá af fréttatilkynningu frá Inter-America Commission on Human Rights, dags. 29. nóvember 2021, að nefndin hafi lýst yfir áhyggjum af brottvísunum einstaklinga í Chile.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur m.a. fram að öryggislögreglan (s. Carabineros) ásamt rannsóknarlögreglunni beri ábyrgð á löggæslu, m.a. landamæraeftirliti og almannaöryggi. Þá hafi innanríkis- og almannaöryggisráðuneytið yfirumsjón með báðum stofnunum. Lög og stjórnarskrá í Chile leggi bann við mismunun en tilkynnt hafi verið um mismunun gagnvart ákveðnum minnihlutahópum og innflytjendum innan heilbrigðis- og menntakerfisins. Þá kemur fram að ákveðnir minnihlutahópar, þ. á m. fólk frá Venesúela hafi orðið fyrir fordómum vegna þjóðernis síns. Þá hafi ákveðin sveitarfélög innleitt áætlanir um að aðstoða innflytjendur við aðgang að opinberri þjónustu. Samkvæmt skýrslu OSAC sé öryggislögreglan ein fagmannlegasta og best þjálfaða lögreglusveit Rómönsku Ameríku ásamt því að vera sú sveit þar sem minnst sé um spillingu innanborðs. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að friðsælum mótmælum hafi fjölgað í Chile árið 2019 þegar almenningur hafi mótmælt stjórnvöldum og samfélagslegum ójöfnuði. Enn eigi sér stað mótmæli en bæði borgaralegt ofbeldi og kúgun lögreglu hafi minnkað verulega frá árinu 2019. Þá kemur fram í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 að mótmæli gegn innflytjendum og ofbeldi gegn útlendingum hafi enn viðgengist í Chíie á árinu 2022 auk þess sem innflytjendur hafi neyðst til að yfirgefið landið vegna þessa. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2024 kemur fram að innflytjendur í landinu eigi erfitt með að fá dvalarleyfi en það hafi áhrif á aðgang þeirra að heilbrigðisþjónustu og atvinnu. Samkvæmt könnun frjálsra félagasamtaka og stofnana á vegum Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2023 hafi aðeins 16% innflytjenda frá Venesúela hlotið varanlegt dvalarleyfi í landinu.

Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

d. umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Í frumvarpi til laga nr. 14/2023, um breytingu á lögum um útlendinga kemur m.a. fram að

nýr d-liður 1. mgr. 36. gr. laganna mæli fyrir um regluna um fyrsta griðland, þ.e. að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og getur veitt honum vernd. Ákvæðinu um fyrsta griðland í gildandi lögum hefur ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að ákvæðið mæli fyrir um þau tilvik þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur slík tengsl við annað ríki að sanngjarnt og eðlilegt geti talist að hann dvelji þar. Í orðalagi ákvæðisins koma fram skilyrði þess að ákvæðið eigi við, þar á meðal að stjórnvöld hafi gengið úr skugga um að verði umsækjandi sendur til ríkisins þurfi hann ekki að óttast ofsóknir eða að verða sendur áfram til heimalands síns í andstöðu við meginregluna um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Við mat á því hvað telst sanngjarnt og eðlilegt skal m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu. Getur ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hefur ekki dvalið í ríkinu en hefur náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjandans er ríkisborgari þess ríkis og getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.

Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða III. og IV. kafla laganna eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, um túlkun samningsins og laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram tiltekin viðmið um beitingu reglunnar um fyrsta griðland. Að mati stofnunarinnar verður að líta til þess hvort grundvallarmannréttindi umsækjanda verði virt í þriðja ríki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og hvort að raunhæf vernd sé veitt gegn því að einstaklingum sé brottvísað þangað sem lífi þeirra eða frelsi kunni að vera stefnt í hættu (non-refoulement) eða þar sem hætta er á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá sé rétt að líta til aðstæðna í viðtökuríki, s.s. með hliðsjón af einstaklingsbundinni stöðu viðkomandi og möguleika hans á að sjá sér farborða.

Samkvæmt framburði kæranda var hún búsett í Chile á árunum 2019 til 2022 og með dvalarleyfi þar í landi á grundvelli atvinnu. Kærandi hefur framvísað auðkenniskortum útgefnum af yfirvöldum í Chile fyrir sig og fyrir hönd A með gildistíma til 8. febrúar 2023. Samkvæmt framangreindum upplýsingum um aðstæður í Chile verður ekki annað ráðið en að kærandi hafi átt þess kost að óska eftir alþjóðlegri vernd í viðtökuríki og að hún hafi möguleika á því við endurkomu þangað. Enn fremur telur kærunefnd að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að kærandi geti ekki lagt fram umsókn um dvalarleyfi að nýju í viðtökuríki þrátt fyrir að tímabundin dvalarleyfi hennar og A séu runnin út. Kærandi hafi haft heimild til að stunda atvinnu á grundvelli tímabundins dvalarleyfis og verður því að telja að hún hafi möguleika á að sjá sér farborða með löglegum hætti. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar og framburður kæranda til þess að löggæsla í viðtökuríki sé virk og að kærandi geti leitað til hennar telji hún þörf á því.

Þá er ljóst samkvæmt gögnum málsins og framangreindri umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki að kærandi hefur ekki ástæðu til að óttast ofsóknir í Chile, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að hún sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Nefndin hefur við framangreint mat m.a. litið til þess að stjórnvöld Í Chile eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá eru stjórnvöld í Chile aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé skilvirk og að kærandi geti leitað til hennar telji hún þörf á því. Falla því aðstæður kæranda og barns í viðtökuríki undir skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og verða umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi því ekki teknar til efnismeðferðar. Að mati nefndarinnar telst kærandi og A hafa slík tengsl við viðtökuríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að þau dvelji þar, ferðist eða séu send þangað í skilningi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kæranda kemur fram að lög um útlendinga feli í sér heimild en ekki skyldu til að endursenda einstaklinga til viðtökuríkis. Kærunefnd áréttar að samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a – d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar.

Kærandi gerir athugasemd við að ekki hafi verið talin þörf á að afla samþykkis viðtökuríkis. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við að kærunefnd hafi ekki birt úrskurði í griðlandsmálum og telur bagalegt að Útlendingastofnun reiði sig á óbirta úrskurði kærunefndar. Jafnframt vísar kærandi til úrskurða kærunefndar í málum nr. 203/2022, 245/2022, 427/2022, 190/2023, 724/2023 og 722/2023 máli sínu til stuðnings. Kærandi telur að til að hægt sé að beita d-lið ákvæðisins verði að horfa til þess hvort um gilt dvalarleyfi sé að ræða eða að fyrir liggi staðfesting yfirvalda viðtökuríkis um endurkomu til landsins.

Samkvæmt orðalagi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki gerð krafa um öflun samþykkis viðtökuríkis til að endursending þangað sé heimil. Vegna tilvísunar kæranda til framangreindra úrskurða tekur kærunefnd fram að mál kærenda sættu meðferð samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en túlkun kærunefndar á því ákvæði var að gilt dvalarleyfi væri forsenda beitingar ákvæðisins með þeim fyrirvara að kærandi hefði ekki sjálfur afturkallað dvalarleyfi sitt. Úrskurðir þessi féllu fyrir gildistöku laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 14/2023, en með breytingarlögunum kom inn fyrrgreint ákvæði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt orðalagi ákvæðisins, og í samræmi við þau meginsjónarmið sem ráðandi eru varðandi beitingu reglunnar um fyrsta griðland, eru því gerðar vægari kröfur til stjórnvalda við að ákvarða hvaða ríki endursenda eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd til, að gættum þeim sjónarmiðum sem við almennt eiga við um slíkar endursendingar, einkum meginregluna um bann við endursendingum (non-refoulement). Líkt og fram hefur komið hefur kærunefnd farið yfir aðstæður í Chile og telur að skilyrði framangreinds ákvæðis séu uppfyllt. Af þeim sökum telur kærunefnd að framangreindir úrskurðir hafi ekki fordæmisgildi fyrir mál kæranda. Hvað varðar athugasemd kæranda um að Útlendingastofnun vísi til óbirtra úrskurða kærunefndar tekur nefndin fram að úrskurðir kærunefndar eru bindandi fyrir Útlendingastofnun og hafa því fordæmisgildi fyrir stofnunina en opinber birting þeirra hefur ekki þýðingu í þeim efnum. Þá hafa umræddir úrskurðir kærunefndar nú verið birtir.

Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:

Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.

Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.

Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Kærandi er kona á [...]sem kom hingað til lands ásamt [...] ára syni sínum. Kærandi greindi frá því að hún og A væru við góða líkamlega og andlega heilsu. Kærandi greindi þó frá því að hafa upplifað ýmis áföll um ævina. Í viðtali A hjá Útlendingastofnun 7. febrúar 2024 greindi A frá því að vera heilsuhraustur. Í málinu liggur fyrir umsögn frá deildarstjóra Birtu, stoðdeildar Seljaskóla, þar sem m.a. kemur fram að námsleg staða A hafi verið slök þegar hann hóf nám hér á landi. A hafi átt erfitt með einbeitingu, tekið illa eftir og átt erfitt með að tileinka sér nýtt efni. Þessi einkenni séu algeng hjá börnum sem glími við áfallastreituröskun. Námsárangur A hafi batnað til muna. Mælt sé með því að A fái viðeigandi meðferð frá fagaðila. Frekari röskun á högum barns sem þannig sé háttað til geti valdið því að ástand þess versni sem leiði til þess að námsleg færni minnki sem muni hafa áhrif á tilfinningalíðan. A hafi myndað góð félagsleg tengsl við nemendur og starfsfólk sem hafi hjálpað honum að takast á við áfallastreituna. Búast megi við afturför ef frekari röskun verði á högum hans sem muni hafa enn frekari áhrif á tilfinningalega líðan. Þá kemur fram í tölvubréfi sálfræðings, dags. 28. febrúar 2024, að eftir umræðu á nemendaverndarráðsfundi í Seljaskóla hafi verið tekin ákvörðun um að kannað yrði hvaða þjónustu A gæti fengið vegna líðan hans. Sálfræðingur muni taka málið upp á skólateymisfundi og óska eftir þverfaglegri ráðgjöf. Þá kemur fram í tölvubréfi, dags. 14. mars 2024, frá deildarstjóra Birtu stoðdeildar, að samþykkt hafi verið að vísa máli A til Geðheilsumiðstöðvar barna. Í málunum liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 21. og 22. júní 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.

Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 25. janúar 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 22. febrúar 2024, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn hafa borist kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda og A sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda og A geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda og A sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, svo sem áskilið er í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kæranda og A er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Chile verður ráðið að kærandi og A hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá greindi kærandi frá því að hafa verið með aðgang að heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki en hún hafi ekki þurft að nýta sér heilbrigðiskerfið. Verður því að líta svo á að aðstæður kæranda og A tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kæranda og A ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Að því er varðar bréf deildarstjóra hjá Birtu, stoðdeildar Seljaskóla afstöðu þeirra sérfræðinga sem fram koma í gögnum málsins bera upplýsingar um aðstæður í Chile með sér að að kærandi og A geti fengið fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá hafa handhafar dvalarleyfa og börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd í Chile aðgang að skólakerfinu. Einnig er ljóst að móðurmál kæranda er jafnframt opinbert tungumál í Chile og mun skólahald fara fram á því tungumáli.

Kærandi telur sig ekki vera örugga í Chile vegna uppreisna. Þá hafi kærandi orðið fyrir tilefnislausri árás þar í landi en kærandi hafi leitað til lögreglu sem hafi gert árásarmanninum að sæta nálgunarbanni. Af þeim heimildum sem kærunefnd hefur kynnt sér, m.a. skýrslu Freedom House frá árinu 2023, verður ráðið að mótmæli hafi færst í aukana í Chile á árinu 2019 sem hafi haft í för með sér ofbeldi bæði frá mótmælendum og lögreglu. Þó hafi mótmæli, skemmdarverk og beiting óhóflegs valds almennt farið minnkandi þar í landi á síðustu árum. Þá má ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir hennar og A til efnismeðferðar hér á landi.

Í 5. til 8. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir í 1. málsl. 5. mgr. ákvæðisins:

Við mat á því hvort Útlendingastofnun sé heimilt að taka mál barns til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skulu hagsmunir barns hafðir að leiðarljósi.

Þá segir í niðurlagi 8. mgr. ákvæðisins að við mat á hagsmunum barns beri að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Samkvæmt framangreindum heimildum eiga öll börn í Chile rétt á skyldubundinni menntun, án tillits til réttarstöðu þeirra þar og án endurgjalds. Þá eiga börn í Chile rétt á heilbrigðisþjónustu og er almenn læknisþjónusta tryggð fyrir börn. Samkvæmt framburði kæranda og A hafi hann gengið í skóla í Chile. Þá greindi kærandi frá því að þau hafi haft aðgang að einkarekna heilbrigðiskerfinu í Chile.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún telji að A sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd áréttar að ákvörðun um hvort umsækjendur séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjendur í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl þeirra stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kæranda og A og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd í Chile er það mat nefndarinnar að flutningur þeirra til Chile samrýmist hagsmunum þess þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert sem gefur tilefni til að ætla að kærandi og A muni aðskiljast, sbr. niðurlag 8. gr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða nefndarinnar að synja því að taka umsókn barns kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli framangreindra sérviðmiða um börn og ungmenni í reglugerð um útlendinga. Að mati nefndarinnar er það í samræmi við réttindi og hagsmuni barnsins.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún telji að Útlendingastofnun hafi ekki tekið afstöðu til skjals sem lagt hafi verið fram í sambandi við stöðu A sem kærandi telji vera til þess fallið að sýna fram á að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli þeirra en umrætt gagn gefi til kynna að A glími við áfallastreituröskun. Kærandi vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga í þessu sambandi.

Af gögnum málsins má sjá að starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og stöðu kæranda og A. Kærandi og A komu í viðtal hjá Útlendingastofnun 25. janúar og 7. febrúar 2024. Aðspurð um heilsu A greindi kærandi frá því að hann væri við góða heilsu og væri heilbrigður. Þá hafi A jafnframt haft kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í viðtali hjá Útlendingastofnun en þar hafi hann greint frá því að hafa verið heilsuhraustur. Af ákvörðunum Útlendingastofnunar má sjá að mat hafi verið lagt á aðgang að viðeigandi heilbrigðisþjónustu í Chile. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda og A telur kærunefnd ljóst að ítarlegri umfjöllun um framangreint gagn hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í málinu enda er ekkert sem bendir til þess að A glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barns hennar verða umsóknir þeirra ekki teknar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 25. janúar 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hún hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Kærandi lagði fram umsókn sína og barnsins um alþjóðlega vernd hér á landi 16. apríl 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verða umsóknir kæranda og barnsins ekki teknar til efnismeðferðar á þeim grundvelli.

Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur nefndin jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur nefndin talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.

Gögn málsins bera með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Gögn málsins benda til þess að stjórnvöld í Chile leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda og barns hennar til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Meðal annars er til þess að líta að Chile er aðili að Cartagena yfirlýsingunni, þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi er ógnað (non-refoulement), og mannréttindasáttmála Ameríku, þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi og barn hennar hafi raunhæf úrræði í viðtökuríki fyrir landsrétti sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Chile og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barnsins, hefur ekki verið sýnt fram á að þau eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og barnsins um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verða umsóknir kæranda og barnsins ekki teknar til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Brottvísun og endurkomubann

Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.

Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Kærandi og A lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 16. apríl 2024. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barnsins til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.

Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun og endurkomubanni frá Íslandi í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi greindi frá því að hafa engin tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Þá taldi kærandi að um ósanngjarna ráðstöfun væri að ræða. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og umfjöllunar kærunefndar um aðstæður kæranda í Chile telst brottvísun hennar og A frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Að mati nefndarinnar og með vísan til 1. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið. Endurkomubann fellur niður yfirgefi kærandi og barnið landið sjálfviljug innan þess frests.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann eru staðfestar.

Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi óskað eftir framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun en þeirri beiðni verið hafnað. Telur kærandi að brotið hafi verið gegn andmælarétti hennar, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga auk þess sem kærandi vísar til 2. mgr. 28. gr. laga um útlendinga og telur að hún hafi ekki náð að koma sjónarmiðum sínum á framfæri líkt og tilgangur efnisviðtals sé. Kærandi hefur jafnframt lagt fram tölvubréfssamskipti sín við fulltrúa Útlendingastofnunar sem hún kveður að sýni fram á vanhæfi hans samkvæmt 6. tölul. 3. gr. stjórnsýslulaga.

Ljóst er að frásögn kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun 25. janúar 2024 um dvöl sína í Chile leiddi til þess að mál hennar og A hlutu réttilega meðferð samkvæmt d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er ljóst af endurriti viðtals kæranda hjá Útlendingastofnun að kærandi hafi verið spurð ítarlega út í helstu atriði hvað varðar einstaklingsbundnar aðstæður sínar og aðstæður í Chile. Auk þess var A boðaður í viðtal hjá Útlendingastofnun og lýsti aðstæðum sínum þar í landi. Kæranda gafst kostur á að leggja fram upplýsingar um ástæðu þess að hún teldi þörf á framhaldsviðtali og 30. janúar 2024 greindi kærandi frá þeim upplýsingum í tölvubréfi til stofnunarinnar. Þá gafst kæranda jafnframt kostur á að leggja fram greinargerð til Útlendingastofnunar auk þess að fá tækifæri til að skila greinargerð til nefndarinnar og koma þannig á framfæri sínum sjónarmiðum og athugasemdum. Framlögð gögn og frásögn kæranda og A í viðtölum hjá Útlendingastofnun gáfu ekki tilefni til að kærandi eða A yrðu tekin í frekari viðtöl en kærandi hefur haft kost á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri bæði hjá Útlendingastofnun og kærunefnd. Var málsmeðferð Útlendingastofnunar að þessu leyti í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 28. gr. laga um útlendinga. Þá gáfu framangreind tölvubréfssamskipti við fulltrúa Útlendingastofnunar ekki tilefni til að ætla að búið væri að taka ákvörðun í máli kæranda. Þá er ljóst að umræddur fulltrúi sem tók viðtal við kæranda skrifaði ekki undir ákvarðanir kæranda og A. Fellst kærunefnd ekki á með kæranda að yfirlýsingar umrædds fulltrúa hafi haft áhrif á niðurstöðu málsins. Er umræddum málsástæðum kæranda hafnað.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                          Bjarnveig Eiríksdóttir