21 mars 2024

/

Nr. 286/2024 Úrskurður

Hinn 21. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 286/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23100075

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. október 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar, aðallega með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en til vara með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga. Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka mál hans til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 27. ágúst 2023. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Hinn 8. september 2023 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá þýskum yfirvöldum, dags. 12. september 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 15. september 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 6. október 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst kærunefnd greinargerð kæranda 18. október 2023, ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust 27. október 2023.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þýsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Þýskalands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann m.a. til fyrirliggjandi gagna málsins, greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals síns hjá stofnuninni hvað varðar málavexti. Kærandi vísar til þess að yfirvöld í Þýskalandi hafi sótt um alþjóðlega vernd í óþökk hans og án samþykkis. Þá vísar kærandi til þess að hann geti ekki snúið aftur til heimaríkis þar sem líf hans sé í hættu. Foreldrar hans séu einnig að reyna komast frá heimaríki.

Kærandi gerir kröfu um að mál hans verði tekið til efnismeðferðar aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem sérstök tengsl og sérstakar ástæður séu uppi í málinu í skilningi ákvæðisins. Vísar kærandi til þess að nafngreind systir hans sé með dvalarleyfi og búsett hér á landi. Að því leyti séu tengsl þeirra í samræmi við það sem fram kemur í athugasemdum í frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga. Kærandi vísar einnig til þess að samkvæmt mati kærunefndar útlendingamála um tengsl ættingja sé það einkum þríþætt. Tvö atriði af þremur séu óumdeild. Hvað varðar þriðja atriðið kveðst kærandi vera mjög náinn systur sinni og gögn liggi fyrir í málinu sem styðji það. Vísar kærandi til þess að tengsl geti verið fjarlægari en þau fjölskyldutengsl sem Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um. Kærandi hafi komið hingað til lands í þeim tilgangi að sameinast systur sinni en þau hafi verið mjög náin frá æsku. Þá hafi systir kærandi óskað sérstaklega eftir því við kærandi að hann myndi koma hingað til lands. Systir kæranda hafi misst eiginmann sinn í átökum í heimaríki og sé því einstæð með sex börn. Frá því að faðir barnanna féll frá hafi kærandi að sögn gengið þeim í föðurstað og systir hans treysti á aðstoð hans. Jafnframt sé kærandi eini ættingi barnanna sem þau eigi kost á að sameinast. Systir kæranda eigi í erfiðleikum með að sjá ein um börnin og treysti á að kærandi geti sameinast henni og aðstoðað líkt og hann hafi gert í gegnum tíðina. Hún glími einnig við andleg veikindi sökum þess að hún sé ein að sjá um börnin og njóti engrar aðstoðar. Vísar kærandi einkum til 32. gr. b reglugerðar um útlendinga, nr. 540/2017, með síðari breytingum, um að við mat á sérstökum tengslum skuli m.a. líta til þess hvort umönnunarsjónarmið séu fyrir hendi, hvort umsækjandi og aðstandandi hans hafi deilt eða alist upp á sama heimili eða hafi á einhverjum tímapunkti haft uppeldis- eða framfærsluskyldu sín á milli. Kærandi byggi einnig á því að til hliðsjónar beri að líta til þess hvað sé börnunum fyrir bestu, þ.e. að líta skuli til fjölskyldusameiningar sem og möguleika þeirra á að njóta aðstoðar kæranda. Þá eigi kærandi ekki ættingja í viðtökuríki og Ísland sé því eini valkosturinn fyrir hann.

Kærandi byggir mál sitt jafnframt á því að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt athugasemdum með 2. mgr. 36. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga er með sérstökum ástæðum verið að vísa til þess að einstaklingar geti verið í viðkvæmri stöðu, s.s. vegna heilsufars, þungunar eða átt erfitt uppdráttar í viðtökulandi vegna mismununar sem viðkomandi einstaklingur verði fyrir sökum kynhneigðar, kynþáttar eða kyns. Þá sé ákvæðinu ætlað að taka til þess ef varhugavert þyki að beita ákvæði 2. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og senda umsækjendur um alþjóðlega vernd til ríkja innan Evrópu þar sem ástæða þykir að ætla að meðferð eða aðbúnaður þeirra sé í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, eða aðrar þjóðréttarlegar skuldbindingar. Vísar kærandi til 32. gr. a og b reglugerðar um útlendinga, þar sem fram komi upptalning á viðmiðum við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna. Upptalningin sé aðeins í dæmaskyni og ákvæðin hafi því ekki að geyma tæmandi talningu þeirra sjónarmiða sem heimilt sé að líta til við matið. Kærandi sé með sýkingu í blöðruhálskirtli sem hann þurfi læknisaðstoð við og hafi ekki viljað né ætlað að sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi.

Til þrautavara gerir kærandi kröfu um að mál hans verði tekið til efnismeðferðar á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun hafi talið að þau gögn sem kærandi hafi lagt fram um tengsl hans við systur hans og skýringar hafi ekki sýnt fram á að um ríkari tengsl sé að ræða en gerist almennt milli systkina. Þá hafi stofnunin talið að kærandi hafi ekki sýnt fram á að ættingjar hans séu háðir daglegri aðstoð hans eða öfugt. Að mati kæranda hafi Útlendingastofnun ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína. Stofnuninni hafi verið í lófa lagið að afla frekari upplýsinga varðandi tengsl milli kæranda og systur hans, enda hafi hún verið í samskiptum við stofnunina bæði vegna máls kæranda og eigin máls. Þá telji kærandi að Útlendingastofnun beri að kanna tengsl kæranda við börn systur hans, en þau séu reiðubúin til að mæta til viðtals hjá stofnuninni.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...] sem er staddur einsamall hér á landi. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hafa flúið frá heimaríki í desember 2021 og farið til Rússlands þar sem hann hafi stundað nám. Kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi í júní 2023 og dvalið þar í landi þar til hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í ágúst 2023. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun ekki hafa tengsl við Þýskaland, en að systir hans og sex börn hennar séu með alþjóðlega vernd hér á landi. Hún sé andlega veik og geti ekki séð ein um börnin. Kærandi hafi komið hingað til lands til að aðstoða systur sína. Kærandi greindi einnig frá því að eiga unnustu sem búi á Spáni með fjölskyldu sinni. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa ekki haft aðgang að húsnæði, félagslegri aðstoð, heilbrigðiskerfinu né gjaldfrjálsri lögfræðiþjónustu. Kærandi hafi hvorki leitað eftir heilbrigðisþjónustu í Þýskalandi né aðstoðar lögreglu. Hann hafi ekki upplifað fordóma eða mismunun. Kærandi hafi aðeins dvalið í hálfan dag í flóttamannabúðum í Þýskalandi þar sem hann hafi yfirgefið búðirnar sjálfviljugur. Þá hafi kærandi greint frá því að hann væri við góða andlega og líkamlega heilsu, en að hann væri með sýkingu í blöðruhálskirtli.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Þýskalands á umsókn kæranda er byggð á b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja þýsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Germany (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 - Germany (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • The AnkER centres. Implications for asylum precedures, reception and return (European Council on Refugees and Exiles, 26. apríl 2019);

    Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 6. apríl 2023);

  • Asylum Information Database, Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 29. maí 2019);
  • Conclusions on Germany (European Commission against Racism and Intolerance, 28. febrúar 2017);
  • Country Report – Immigration Detention in Germany: From Open Arms to Public Backlash (Global Detention Project, ágúst 2020);
  • Freedom in the World 2023 – Germany (Freedom House, mars 2023);
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015);
  • Report to the German Government on the visit to Germany carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) from 13 to 15 August 2018 (Council of Europe, 9. maí 2019);
  • Upplýsingar af heimasíðu stofnunar gegn mismunun (https://www.antidiskriminierungsstelle.de/EN/homepage/homepage-node.html,);
  • Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de);
  • World Report 2024 – Germany (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Þýskaland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Þýskaland verið aðili að Evrópuráðinu frá 13. júlí 1950 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1953. Þýskaland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 1. október 1990, um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi og um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi 17. desember 1973. Þá fullgilti Þýskaland barnasáttmálann 6. mars 1992. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 1. desember 1953.

Í skýrslu European Council on Refugees and Exiles (ECRE) frá árinu 2023 kemur fram að einstaklingar skuli sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) eða lögreglunni. Lögum samkvæmt eigi umsækjendur rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum (þ. Aufnahmeeinrichtung) frá því að þeir leggi fram umsókn sína og þar til niðurstaða liggur fyrir. Í skýrslunni kemur fram að árið 2022 hafi meðalmálsmeðferðartími útlendingastofnunar á umsóknum um alþjóðlega vernd verið rúmir sjö mánuðir. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eigi rétt á viðtali með aðstoð túlks, áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni. Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur sem fengið hafi synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (þ. Verwaltungsgericht). Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eigi þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn (þ. Folgeantrag) um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggi fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geti skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geti borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Í skýrslu ECRE frá árinu 2023, um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Flestar móttökumiðstöðvar hafi þá stefnu að hýsa einstæðar konur og fjölskyldur í aðskildum byggingum eða álmum. Þá séu sumar móttökumiðstöðvar sem útvegi aðskilin herbergi fyrir einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Þá verður ráðið af skýrslu ECRE að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt dómaframkvæmd þýskra dómstóla felur orðalagið „nauðsynleg heilbrigðisþjónusta“ ekki einvörðungu í sér bráðaþjónustu. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd sem glíma við sálræn áföll fengið aðgang að þjónustu sérfræðilækna og annarra meðferðaraðila. Þó eru dæmi um að umsækjendur hafa átt í erfiðleikum með að nálgast slíka þjónustu, m.a. vegna fjarlægða milli búsetu- og meðferðarúrræða. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að börn umsækjenda um alþjóðlega vernd eigi rétt á menntun í Þýskalandi til 16 ára aldurs.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Samkvæmt skýrslu ECRE tryggi þýsk yfirvöld umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi. Frá árinu 2019 hafi verið boðið upp á lögfræðiráðgjöf fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og var sú ráðgjöf endurbætt árið 2023, en hún nái ekki til lögfræðiaðstoðar á fyrsta eða öðru stjórnsýslustigi. Á kærustigi eigi umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geti þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda.

Í skýrslu samtakanna Freedom House frá árinu 2023 kemur fram að stjórnarskrá Þýskalands og annarri löggjöf sé ætlað að tryggja jafnræði meðal allra auk þess sem í þeim er að finna ákvæði sem leggi bann við mismunun á grundvelli uppruna, trúar og annarra ástæðna. Þá kemur fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Þýskalandi. Í skýrslu samtakanna Amnesty International kemur fram að árið 2021 hafi þýska ríkisstjórnin samþykkt aðgerðaráætlun til að uppræta hatursglæpi en þó hafi skort heildarstefnu við að uppræta kynþáttafordóma. Þá kemur fram í skýrslu samtakanna fyrir árið 2022 að aðgerðaráætlun gegn hægri-öfgastjórn hafi verið kynnt í mars 2023 en þar hafi ekki verið tekið á stofnana- og kerfisbundnum kynþáttafordómum. Þá sé starfrækt stofnun gegn mismunun (e. Anti-Discrimination Agency) í Þýskalandi sem einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun geti leitað til. Á vefsíðu stofnunarinnar kemur fram að hlutverk hennar sé fyrst og fremst að veita þolendum mismununar leiðbeiningar og aðstoð um það í hvaða farveg sé best að leggja mál þeirra.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. og 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því. Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er karlmaður á [...]sem kom einsamall hingað til lands. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri við góða líkamlega og andlega heilsu, en að hann væri með sýkingu í blöðruhálskirtli sem þó þyrfti ekki að meðhöndla. Þá liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 9. október 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 15. september 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 16. október 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn um heilsufar kæranda bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi verður ráðið að umsækjendur hafi fullnægjandi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd sem glíma við sálræn áföll fengið aðgang að þjónustu sérfræðilækna. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd því ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Þýskalandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Gögn málsins bera ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. september 2023 hafa sérstök tengsl við Ísland þar sem hann eigi systur sem sé með dvalarleyfi hér á landi ásamt börnum hennar. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ljósmyndir af eigin auðkenniskorti og auðkenniskorti systur sinnar, tvær ljósmyndir af ótilgreindu fólki og eitt skjáskot af meintu samtali á milli kæranda og systur hans. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi jafnframt fram skriflega yfirlýsingu frá systur sinni sem staðfesti tengsl þeirra og að hún þurfi á aðstoð hans að halda með börnin þar sem hún sé veik. Auk þess lagði kærandi fram læknisvottorð vegna veikinda systur sinnar, sjúkraskrá hennar, dánarvottorð eiginmanns hennar og myndbandsupptöku af dauðsfalli eiginmanns hennar.

Lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið sérstök tengsl samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skuli túlkað. Í athugasemdum sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga kemur fram að ákvæðinu sé ætlað að taka m.a. til þeirra tilvika þegar umsækjendur eiga ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem þeir yrðu aftur sendir til. Þetta geti einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari en við viðtökuríkið, svo sem vegna fyrri dvalar. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að með ákvæðinu sé stjórnvöldum eftirlátið mat og hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, svo sem reglum Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því má m.a. leiða að þau tengsl sem ákvæðið vísar til geta verið fjarlægari en þau nánu fjölskyldutengsl sem Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um, sbr. m.a. g-lið 2. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Í 4. mgr. 32. gr. b reglugerðar um útlendinga segir að umsækjandi teljist ekki hafa sérstök tengsl við Ísland nema aðstandandi hans sé búsettur hér á landi í lögmætri dvöl. Við mat á sérstökum tengslum skal m.a. líta til þess hvort umönnunarsjónarmið séu fyrir hendi, hvort umsækjandi og aðstandandi hans hafi deilt eða alist upp á sama heimili eða hafi á einhverjum tímapunkti haft uppeldisskyldu eða framfærsluskyldu sín á milli. Stjórnvöldum er heimilt að krefja umsækjanda um að sýna fram á umrædd tengsl, t.d. með framlagningu skilríkja eða vottorða. Þá er stjórnvöldum heimilt að óska eftir því að aðstandandi umsækjanda staðfesti umrædd tengsl. Þá segir í 5. mgr. ákvæðisins að við mat á sérstökum tengslum ber þó ávallt að hafa til hliðsjónar þau tengsl sem viðkomandi hefur í því ríki þar sem hann hefur heimild til dvalar í, m.a. lengd dvalar í ríkinu, fjölskyldutengsl og samfélagsleg tengsl sem umsækjandi hefur myndað við ríkið. Þá skal jafnframt hafa til hliðsjónar hvort viðkomandi eigi rétt á fjölskyldusameiningu skv. VIII. kafla laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður að leggja til grundvallar að eigi umsækjandi um alþjóðlega vernd sannanlega ættingja hér á landi sem hafa heimild til dvalar hér og umsækjandi hefur raunveruleg og sérstök tengsl við hér á landi en ekki í viðtökuríki, geti umsókn hans verið tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið. Kærunefnd telur að við mat á sérstökum tengslum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé stjórnvöldum heimilt að líta til 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en hafa verður í huga að hugtakið er annað og þrengra en hugtakið ættingi sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga. Þannig geta önnur fjölskyldutengsl fallið undir 2. mgr. 36. gr., en gera verður ríkari kröfur til þess að sýnt sé fram á að þau tengsl séu sérstök og rík. Systir kæranda telst ekki til nánasta aðstandanda hans samkvæmt orðalagi 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en kærandi hefur tekið fram í greinargerð sinni að í athugasemdum við 2. mgr. 36. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga komi fram að sérstök tengsl geti átt við tilfelli þegar útlendingur eigi ættingja hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Kærunefnd hefur áður tekið fram að orðalagið í umræddri athugasemd sé matskennt og óskýrt og ljóst að löggjafinn hefur ljáð stjórnvöldum ákveðið svigrúm til mats á hugtakinu sérstök tengsl. Þá tekur kærunefnd fram að málatilbúnaður kæranda um að óheimilt sé að líta til 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga eigi ekki við rök að styðjast enda geti samræmisskýring innan sama lagbálks haft þýðingu við túlkun lagaákvæða. Þá tekur kærunefnd jafnframt fram að umrætt ákvæði um sérstök tengsl á sér hliðstæðu í Dyflinnarreglugerðinni en þar er vísað til ákveðinna umönnunarsjónarmiða (e. situation of dependency) auk þess sem reglugerðin gerir að kröfu að sá sem tengsl séu við séu annað hvort aðstandendur eða fjölskyldumeðlimir líkt og sjá má í g- og h-lið 2. gr. reglugerðarinnar. Verður af þeim sökum ekki fallist á með kæranda að nefndinni sé óheimilt að túlka hugtakið sérstök tengsl með vísan til 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um útlendinga ásamt því að beita meginsjónarmiðum Dyflinnarreglugerðarinnar við matið.

Jafnvel þó lagt verði til grundvallar að kærandi eigi systur hér á landi í lögmætri dvöl hafa þau gögn sem kærandi hefur lagt fram ekki sýnt fram á að umönnunarsjónarmið séu fyrir hendi. Þrátt fyrir að kærandi og systir hans hafi á einhverjum tíma deilt eða alist upp á sama heimili þá verður ekki séð af gögnum málsins að þau hafi á einhverjum tímapunkti haft uppeldis- eða framfærsluskyldu hvort við annað, sbr. 4. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi og systir hans eru fullorðnir einstaklingar og hún er umönnunaraðili barna sinna. Þá vísar kærunefnd til þess að samkvæmt gögnum málsins hafi sonur systur kæranda komið hingað til lands 15. ágúst 2021 sem fylgdarlaust barn og systir kæranda hlotið alþjóðlega vernd hér á grundvelli fjölskyldusameiningar við hann með ákvörðun Útlendingastofnunar 21. desember 2021. Af heildarmati á aðstæðum kæranda og fyrirliggjandi gögnum málsins er það því niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi gerir athugasemd við vinnubrögð Útlendingastofnunar og telur þau fela í sér brot á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og varða ógildingu ákvörðunarinnar þar sem ekki var rannsakað með fullnægjandi hætti tengsl milli kæranda og systur hans og milli kæranda og barna systur hans. Af endurriti af viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun má sjá að kærandi var hvorki spurður nánar út í tengsl hans við systur hans né var honum leiðbeint um hugtakið sérstök tengsl í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og framlagningu gagna til stuðnings fullyrðingum hans um tengslin. Hins vegar hafi Útlendingastofnun sent leiðbeiningar 29. september 2023 um þau sjónarmið sem horft sé til þegar mat sé lagt á sérstök tengsl, auk þess sem óskað hafi verið eftir gögnum sem renndu stoðum undir nefnd tengsl. Gögn hafi borist frá kæranda innan veitts frests. Kærunefnd gerir athugasemd við framkvæmd viðtalsins en telur það þó ekki leiða til ógildingu ákvörðunarinnar. Kærunefnd vísar til þess að kærandi hafi verið spurður út í tengsl sín við systur sína og leiðbeint um að leggja fram frekari gögn máli sínu til stuðnings með tölvubréfi Útlendingastofnunar 29. september 2023. Þá naut kærandi aðstoðar lögmanns við meðferð máls síns. Kærandi hefur jafnframt haft tækifæri til að leggja fram frekari gögn við meðferð málsins hjá kærunefnd, líkt og hann hefur gert. Þá telur kærunefnd að framlögð gögn og frásögn kæranda gefi ekki tilefni til að taka viðtöl við börn systur hans, en kærandi hefur haft kost á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í viðtali hjá Útlendingastofnun, með greinargerð sinni, með sérstökum tölvupósti frá Útlendingastofnun og með framlagningu gagna hjá stofnuninni og kærunefnd. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli hans. Í ljósi framangreinds telur kærunefnd ekki tilefni til að fallast á þrautavarakröfu kæranda um að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að 2. málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 27. ágúst 2023.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Þýskalandi, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 27. ágúst 2023 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Þýskalands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Gunnar Páll Baldvinsson