26 mars 2024

/

Nr. 323/2024 Úrskurður

Hinn 26. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 323/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24030023 og KNU24030024

 

Kæra [...]og [...] á ákvörðunum Útlendingastofnunar

 

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 4. mars 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir A) og [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgarar Indlands, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 4. mars 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að fallist verði á beiðni þeirra um vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og bárust kærur þeirra fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 10. janúar 2024, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 13 daga dvöl, frá 19. til 31. mars 2024. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 16. janúar 2024. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 187/2024, dags. 22. febrúar 2024, voru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og mál kæranda send til nýrrar meðferðar hjá stofnuninni. Með ákvörðunum, dags. 4. mars 2024, synjaði Útlendingastofnun kærendum um vegabréfsáritanir að nýju. Samdægurs, 4. mars 2024, bárust kærunefnd kærur frá kærendum en frekari gögn voru lögð fram með tölvubréfum, dags. 5. og 8. mars 2024.

III.    Málsástæður og rök kærenda

Í kæru vísa kærendur til fyrirliggjandi ákvarðana og synjunarástæðna Útlendingastofnunar sem kærendur séu ósammála. Í fyrsta lagi vísa kærendur til fyrirliggjandi ferðaáætlunar sinnar sem m.a. innihaldi hótelbókanir fyrir alla ferðina. Ísland sé meðal draumaáfangastaða B og þau hafi varið um einu ári í að undirbúa ferðina. Að sögn kærenda hafi þau lagt fram öll nauðsynleg fylgigögn í góðri trú um fyrirætlanir þeirra að ferðast til Íslands, m.a. til að fagna afmæli B. Í öðru lagi hafi þau bókað og staðfest flug til og frá Íslandi með flugfélaginu Lufthansa. Að þeirra sögn hafi þó orðið breyting á bókuðum flugferðum á meðan umsóknir þeirra væru til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum en þeim hafi ekki verið tilkynnt um breytingarnar. Því hafi kærendur lagt fram nýja flugbókun sem taki mið af framangreindu. Þá kveðast kærendur vera ósammála skýringu Útlendingastofnunar um viðtöl sín og benda á að þau hafi ekki verið boðuð í viðtöl á meðan umsóknir þeirra sættu nýrri málsmeðferð hjá Útlendingastofnun.

Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi er ný flugbókun, þar sem fram kemur að ferð kærenda til Íslands hafi tekið breytingum frá fyrri bókun. Breytingarnar fela í sér komu til Íslands degi fyrr en áður var ráðgert, og leggja kærendur því fram hótelbókun vegna aukanætur á Íslandi.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu. 

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum í málum kærenda er merkt í reiti 10 og 11 vegna synjunar á umsóknum þeirra, þ.e. að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru óáreiðanlegar, auk þess að rökstudd ástæða væri til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun og ætlun kærenda að ferðast til Íslands væru áreiðanlegar. Ákvörðununum fylgdu viðbótarupplýsingar þar sem fram kom að verulegur vafi væri um fyrirætlanir þeirra að ferðast til Íslands. Þá hafi ekki tekist að sannreyna flugbókanir þeirra frá Keflavíkurflugvelli til Bengaluru. Auk þess hefðu verið tekin viðtöl við kærendur þar sem í ljós kom að þau hefðu litla þekkingu á ferðaáætlun sinni og fyrirhuguðum áfangastöðum, þrátt fyrir framlagningu nýrra fylgigagna. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvarðana í máli kærenda.

Fram kom í úrskurði kærunefndar nr. 187/2024 að ný gögn hefðu verið lögð fram á kærustigi sem kærunefnd legði ekki mat á. Voru fyrri ákvarðanir vegna umsókna kærenda því felldar úr gildi og mál þeirra fengu nýja meðferð hjá Útlendingastofnun. Fram kemur í málaskrá Útlendingastofnunar að lagt hafi verið mat á þau gögn sem lögð voru fram hjá kærunefnd, fyrir töku ákvarðana, dags. 4. mars 2023. Í málaskránni kemur m.a. fram að þegar stofnunin hafi ætlað að sannreyna nýjar flugbókanir kæranda hafi tekist að sannreyna flugið frá Bengaluru til Íslands en ekki frá Íslandi til Bengaluru. Við meðferð þessa máls hafa kærendur vísað til þess að flugáætlun þeirra hafi tekið breytingum en fyrir liggur flugbókun þar sem þau fljúga frá Bengaluru til Frankfurt í Þýskalandi, og þaðan til Íslands en áður var ráðgert að millilenda í Zurich í Sviss á leið frá Frankfurt til Íslands. Flugbókunin kærenda til heimaríkis, sú sem ekki tókst að sannreyna, hefur þó haldist óbreytt á milli stjórnsýslustiga. Því eru enn óáreiðanlegar upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar. Þegar af þeirri ástæðu er ekki tilefni til að fjalla um aðrar málsástæður kærenda.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki væru færðar áreiðanlegar upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kærenda hingað til lands og réttmæti upplýsinga sem þau hafi veitt, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kærendum um vegabréfsáritanir til landsins því staðfestar.

 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður