04 apríl 2024

/

Nr. 313/2024 Úrskurður

Hinn 4. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 313/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23100120

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 19. október 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og lagt verði fyrir stofnunina að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi, aðallega með vísan til 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og til vara með vísan til 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 18. ágúst 2023. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 19. ágúst 2023 kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Frakklandi. Hinn 1. september 2023 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 4. október 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 5. október 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 19. október 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst kærunefnd greinargerð kæranda 2. nóvember 2023.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að frönsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Frakklands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals síns hjá stofnuninni hvað varðar málavexti. Í greinargerð kæranda er fjallað um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærandi að skilyrði 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar séu ekki uppfyllt í tilviki hans og því geti Útlendingastofnun ekki endursent hann til Frakklands. Vísar kærandi til þess að umsókn hans um alþjóðlega vernd hafi ekki hlotið hljómgrunn hjá yfirvöldum þar í landi og hann hafi því ekki gilt dvalarskjal. Í ljósi framangreinds geti Frakkland ekki borið ábyrgð á umsókn hans um alþjóðlega vernd. Útlendingastofnun geti því ekki krafist þess að frönsk stjórnvöld taki við kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi óttist að verði hann endursendur til Frakklands muni frönsk yfirvöld taka ákvörðun á ný um að hann eigi ekki dvalarrétt þar í landi og verði sendur aftur til heimaríkis.

Kærandi byggir á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda sé óheimilt að senda hann til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 1. mgr. 42. gr. laganna. Vísar kærandi til þess að óheimilt sé að senda útlending til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir eða ef ekki sé tryggt að hann verði ekki áframsendur til slíks svæðis, sbr. 42. gr. laganna. Samsvarandi verndar skuli útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Vísar kærandi til þess að hann hafi búið við óviðunandi aðstæður í Frakklandi og það verði ósanngjarnt og ómannúðlegt ef hann verði sendur þangað aftur. Telji hann einnig blasa við að verði hann sendur aftur til Frakklands að frönsk stjórnvöld muni senda hann aftur til heimaríkis. Vísar kærandi til þess að hann túlki inntak 42. gr. laga um útlendinga á þann hátt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setji einstaklinga í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu sé í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Telur kærandi einnig að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar á grundvelli þess að endursending hans til Frakklands brjóti gegn meginreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), sem sé lögfest í 42. gr. laga um útlendinga. Auk þess vísar kærandi til mála Mannréttindadómstóls Evrópu, annars vegar M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi og hins vegar N.H. o.fl. gegn Frakklandi í málum nr. 28820/13, 75547/13 og 13114/15. Dómstóllinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að ríkin hafi brotið gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, m.a. á þeim grundvelli að búsetuaðstæður hafi verið óviðunandi, aðilar hafi sætt vanvirðandi meðferð og ekki hafi verið borin virðing fyrir mannlegri reisn þeirra.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...] sem staddur er einsamall hér á landi. Kærandi flúði heimaríki árið 2022 og sótti um alþjóðlega vernd í Frakklandi í apríl sama ár, en hann hefur fengið synjun á umsókn sinni á báðum stjórnsýslustigum. Kærandi hafi dvalið í Frakklandi í eitt ár og fjóra mánuði þegar hann hafi komið hingað til lands og lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd 18. ágúst 2023. Kærandi greindi frá því að hafa ekki fengið fjárhagsaðstoð, húsnæði, atvinnuleyfi né heilbrigðisþjónustu og hafi þurft að sofa á götunni. Hann hafi þó verið með óskráða atvinnu. Kærandi hafi haft aðgang að endurgjaldslausri lögfræðiþjónustu þegar hann hafi kært niðurstöðu lægra setts stjórnvalds til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa orðið fyrir árás í Frakklandi af hálfu arabísku mafíunnar þar sem hann hafi borið kennsl á einn úr hópnum í kjölfar þjófnaðar á vinnustað hans. Kærandi hafi leitað til læknis eftir árásina en ekki fengið aðstoð ýmist þar sem hann hafi neitað að segja hvað hafi komið fyrir hann af ótta við árásarmennina og þar sem hann hafi ekki verið með viðeigandi skjöl. Kærandi hafi jafnframt leitað aðstoðar lögreglu í tvígang vegna árásarinnar en hún hafi ekkert aðhafst. Þá hafi kærandi upplifað kynþáttafordóma í Frakklandi. Kærandi vilji ekki snúa aftur til Frakklands af ótta við arabísku mafíuna og þar sem hann kveði að frönsk stjórnvöld ætli að senda hann aftur til heimaríkis. Þá greindi kærandi frá því að vera heilsuhraustur, en að hann finni fyrir verkjum í höndum þegar hann lyfti þeim upp og glími við svefnleysi vegna hugsana um það sem hafi komið fyrir hann í Frakklandi.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Frakklands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja frönsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggir á því að skilyrði 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar séu ekki uppfyllt í tilviki hans og því geti Útlendingastofnun ekki endursent hann til Frakklands. Vísar hann til þess að hann hafi ekki gilt dvalarskjal þar í landi og því sé sá ómöguleiki fyrir hendi að Frakkland geti ekki borið ábyrgð á umsókn hans. Útlendingastofnun geti því ekki krafist þess að frönsk stjórnvöld taki við kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ljóst er að samþykki franskra yfirvalda er byggt á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar sökum þess að kærandi hefur hlotið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Af þeim sökum telur kærunefnd ljóst að fullnægjandi grundvöllur fyrir beitingu c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé fyrir hendi. 

Aðstæður í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 20. mars 2023);

  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017);
  • Amnesty International Report 2022/23 – France (27. mars 2023);
  • Annual Report 2021 (International Committee of the Red Cross (ICRC), 27. júlí 2022);

  • Applying for asylum in France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, http://www.gisti.org. Síðast uppfært 30. ágúst 2021);
  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 11. maí 2023);
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015);
  • France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 24. september 2020);
  • France 2022 – International religious freedom report (United States Department of State, 15. maí 2023)
  • Freedom in the World 2023 – France (Freedom House, mars 2023);

  • Guide for Asylum Seekers in France (Directorate General for Foreign Nationals in France, september 2020);
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/);
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017);
  • Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðisráðuneytis Frakklands (www.solidarites-sante.gouv.fr);
  • Upplýsingar af vefsíðu utanríkisráðuneytis Frakklands (www.diplomatie.gouv.fr);
  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2024 – European Union (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Frakkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Frakkland verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 3. maí 1974. Frakkland gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 18. febrúar 1986 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1980 og barnasáttmálann árið 1990. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 1954.

Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í maí 2023 kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fái umsókn þeirra hefðbundna meðferð í umsóknarkerfi landsins um alþjóðlega vernd. Umsækjendur geti sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fari greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Samkvæmt frönsku útlendingalöggjöfinni (f. Code de l‘entreée et du séjour des étrangers et du roit d‘asile) séu tilteknir hópar nefndir í dæmaskyni sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þ. á m. einstæðir foreldrar með ung börn á framfæri sínu, einstaklingar sem eiga við alvarleg veikindi að stríða, þ. á m. geðræn veikindi, einstaklingar sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi og þolendur mansals. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), taki svo efnisákvörðun í málinu.

Umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geti kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins fresti almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoði bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA sé hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fari formleg endurskoðun. Þeir umsækjendur sem synjað hafi verið um alþjóðlega vernd eigi möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggi fyrir í máli umsækjenda geti skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eigi almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína en það fari þó eftir því í hvaða móttökumiðstöð þeir séu vistaðir. Þegar umsókn hafi verið lögð fram geti þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skuli leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geti einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veiti lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð sé í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi einnig rétt á því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina.

Í skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d‘accueil de demandeurs d‘asile) eða í tímabundnum móttökumiðstöðvum, PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) eða HUDA (f. hébergement d‘urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Þeir sem séu endursendir til Frakklands njóti sömu réttinda til húsnæðis og þeir umsækjendur sem sæti hefðbundinni málsmeðferð. Árið 2017 hafi einnig verið komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d‘accueil et d‘examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geti verið á meðan beðið sé eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á umsóknarkerfinu í Frakklandi hafi þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fái úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fái gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildi í eitt ár, en slíkt vottorð geri umsækjendum m.a. kleift að stofna bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti þeir leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt rétt á framfærslu frá franska ríkinu.

Í skýrslunni kemur einnig fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi sé tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum. Umsækjendur sem sæti hefðbundinni málsmeðferð hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfi þó að sækja um aðgang að kerfinu og að hafa dvalið í Frakklandi í þrjá mánuði. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá geti umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd nýtt sér aðgang að sjúkratryggingakerfinu í ákveðinn tíma eftir synjun og í framhaldi af því hafi þeir aðgang að opinberri aðstoð (f. Aide médicale d‘Etat (AME)) sem geri þeim kleift að fá ókeypis meðferð á sjúkrahúsum sem og á læknastofum. Á grundvelli AME eða PUMA eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum komi þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tali frönsku þjónustu. Í umsóknarferlinu sé skimað eftir einstaklingum sem séu í viðkvæmri stöðu, m.a. vegna alvarlegra veikinda og hafi sérþarfir vegna þess.

Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 kveða lög á um vernd minnihlutahópa, svo sem á grundvelli kynþáttar eða þjóðernis, gegn hvers kyns ofbeldi og mismunun og um að stjórnvöld í landinu framfylgi lögunum með skilvirkum hætti. Þá sé ofbeldi gegn slíkum einstaklingum refsivert brot samkvæmt þarlendum refsilögum og sé það virt til refsiþyngingar sé brot framið á þeim grundvelli. Skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins bendir til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita m.a. umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist. Þá kemur fram í skýrslunni að í stjórnarskrá Frakklands og landslögum sé kveðið á um sjálfstæði dómsvalds og um rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. og 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því. Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er karlmaður á [...]. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera heilsuhraustur, en að hann finni fyrir verkjum í höndum þegar hann lyfti þeim upp og glími við svefnleysi vegna hugsana um það sem hafi komið fyrir hann í Frakklandi. Kærandi hafi orðið fyrir árás í Frakklandi og leitað til læknis eftir árásina en ekki fengið aðstoð. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 14. september 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 5. október 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 19. október 2023, um framlagningu uppfærðra heilsufarsgagna. Engin frekari gögn um heilsufar bárust frá kæranda. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur ljóst að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Frakklandi, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kæranda komi því til með að standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi, en hann muni e.t.v. þurfa að greiða fyrir slíka þjónustu sjálfur. Kærunefnd áréttar það sem kemur fram í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, þ.e. að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærandi hafi leitað til læknis eftir að hafa orðið fyrir árás í Frakklandi en verið tvísögli hvers vegna hann hafi ekki fengið læknisþjónustu. Kærandi greindi fyrst frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa ekki fengið læknisaðstoð í kjölfar árásar þar sem hann hafi neitað að segja hvað hafi komið fyrir hann af ótta við árásarmennina, en síðar breytt frásögn sinni í að hann hafi ekki verið með viðeigandi skjöl. Að öðru leyti hafi kærandi ekki þurft að leita til læknis.

Kærandi greindi frá því að hafa orðið fyrir árás í Frakklandi árið 2023 og hann óttist arabísku mafíuna. Hann hafi leitað til lögreglunnar í tvígang vegna árásarinnar en hún hafi ekkert aðhafst. Þá hafi hann upplifað kynþáttafordóma. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og löggæsluyfirvöld hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita m.a. umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd. Kærandi geti því leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum óttist hann um öryggi sitt eða telji sér mismunað að einhverju leyti. Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 5. október 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að 2. málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 18. ágúst 2023.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Enn fremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá 2. júlí 2020 í málum nr. 2880/13, 75547/13 og 13114/15, N.H. o.fl. gegn Frakklandi, tekur kærunefnd fram að málið varðaði fimm einstaklinga sem sóttu um alþjóðlega vernd í Frakklandi árið 2013. Skráning umsókna þriggja þeirra tafðist um meira en þrjá mánuði og á þeim tíma þurftu þeir að mestu að búa á götunni án aðstoðar, án aðgangs að hreinlætisaðstöðu, án möguleika á að sjá sér farborða og í stöðugum ótta við að verða fyrir ofbeldi. Dómurinn taldi að þær aðstæður sem þessir þrír einstaklingar þurftu að búa við hefðu verið þess eðlis og náð því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Atvik þessi áttu sér stað fyrir um ellefu árum í Frakklandi. Kærandi hefur fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Frakklandi og hefur verið gert að yfirgefa landið. Fram kemur í ákvörðun franskra yfirvalda um synjun á umsókn kæranda að hann eigi rétt á húsnæði, framfærslu og enduraðlögunarstyrk frá stjórnvöldum. Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn eða upplýsingar sem renna stoðum undir þá fullyrðingu hans að hann hafi ekki fengið neina þjónustu í Frakklandi. Kærunefnd hefur því ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi, sem er fullorðinn og að mestu heilsuhraustur, geti borið sig eftir þeim réttindum sem hann lögum samkvæmt á rétt á í viðtökuríki. Kærandi eigi þess kost að áfrýja neikvæðri niðurstöðu stjórnsýsludómstólsins til héraðsdómstóls þar sem fram fari formleg endurskoðun. Jafnframt eigi hann möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd og beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins. Að framangreindu virtu verður ekki fallist á að aðstæður kæranda séu sambærilegar þeim og fjallað var um í niðurstöðum Mannréttindadómstóls Evrópu í málum , N.H. o.fl. gegn Frakklandi. Að sama skapi telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki sambærilegar aðstæðum í máli Mannréttindadómstóls Evrópu frá 21. janúar 2011 nr. 30696/09 M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi. Í því máli var m.a. talið að grísk stjórnvöld hefðu brotið gegn mannréttindasáttmála Evrópu við málsmeðferð í Grikklandi gegn umsækjanda um alþjóðlega vernd sem hafði verið endursendur þangað frá Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, þ.m.t. möguleika kæranda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá frönskum yfirvöldum. Að mati kærunefndar bera gögn málsins með sér að í Frakklandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Frakklandi hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framsögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sambærileg aðferðarfræði er varðar mat á því hvort viðtökuríki tryggi raunhæfa vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þess eða frelsi er ógnað kemur fram í dómi Hæstaréttar í máli nr. 405/2013, dags. 24. október 2013. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 18. ágúst 2023 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Frakklands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Valgerður María Sigurðardóttir

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares