04 apríl 2024

/

Úrskurður nr. 316/2024


Hinn 4. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 316/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24030084

Beiðni um frestun framkvæmdar í máli

[...]og barns hennar

I. Málsatvik

Hinn 7. mars 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 26. september 2023, um að umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu, og barns hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrðu ekki teknar til efnismeðferðar og að þau yrðu endursend til Ítalíu. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir kæranda 7. mars 2024 og 13. mars 2024 barst kærunefnd beiðni hennar um frestun framkvæmdar, sbr. lokamálslið 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II. Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda um frestun framkvæmdar kemur m.a. fram að hún sé með opið mál hjá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðarbæjar vegna fjölda tilkynninga og hafi verið um þó nokkurn tíma. Hafi sonur kæranda m.a. verið vistaður utan heimilis. Um sé að ræða tilkynningar frá skóla og fleiri aðilum. Í ljósi þessara aðstæðna og þeirra nýju upplýsinga sé óskað eftir tímafresti til að afla gagna í málinu hjá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt lokamálslið 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Í beiðni aðila er byggt á því að nú liggi fyrir nýjar upplýsingar um opið mál hjá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 13. mars 2024, var kæranda leiðbeint um að leggja fram haldbær gögn með beiðni sinni um frestun á framkvæmd. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint um að hægt væri að leggja fram endurtekna umsókn samkvæmt 35. gr. a laga um útlendinga, væri hún stödd hér á landi.

Kærandi hefur ekki lagt fram gögn til stuðnings beiðni sinni þrátt fyrir leiðbeiningar kærunefndar þar um. Af þeim sökum verður ekki fallist á frestun framkvæmdar í máli kæranda og barns hennar.


Úrskurðarorð:

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

Valgerður María Sigurðardóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir Sandra Hlíf Ocares