11 apríl 2024
/
Úrskurður nr. 363/2024
Hinn 11. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 363/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU23120062 og KNU23120061
Kæra [...]
[…]
og barns þeirra
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 14. desember 2023 kærðu [...] fd. [...] ríkisborgari Venesúela (hér eftir K), og [...] fd. [...] ríkisborgari Venesúela (hér eftir M), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 30. nóvember 2023, um að synja kærendum og barni þeirra, [...] fd. [...] ríkisborgari Venesúela (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærendur krefjast þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka málið til meðferðar á ný vegna þess að verulegir annmarkar hafi verið á hinum kærðu ákvörðunum. Til vara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og kærendum og barni þeirra verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum og barni þeirra verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautaþrautavara gera kærendur þá kröfu að tekin verði afstaða til málefna fjölskyldunnar í einum úrskurði sem einnar heildar á grundvelli meginreglunnar um sameiningu fjölskyldunnar.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi 14. desember 2022 fyrir sig og barn sitt. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun 30. maí 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 30. nóvember 2023, synjaði Útlendingastofnun kærendum og barni þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærendum og barni þeirra var jafnframt brottvísað frá landinu og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru þær ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 14. desember 2023. Kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgigögnum 3. janúar 2024. Kærunefnd bárust viðbótargögn frá kærendum 20. febrúar, 11. og 22. mars 2024.
III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna ofríkis glæpamanna og ofsókna og fjárkúgana af hálfu meðlima CICPC lögreglunnar.
Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og að þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kærenda, kom fram að það væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það. Fram kom að umsókn barns kærenda væri grundvölluð á framburði foreldra þess og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnsins og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þess, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að barni kærenda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis.
Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Barni kærenda var brottvísað frá landinu.
Útlendingastofnun tilkynnti kærendum og barni þeirra jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvarðananna, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kærenda
Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í sameiginlegri greinargerð til kærunefndar kemur fram að M sé fæddur í […] í Anzoategui fylki og K sé fædd í […] í Carabobo fylki í Venesúela. Þau hafi gengið í hjónaband árið 2016 og hafi eignast A árið 2019. Kærendur vísa til viðtala og greinargerða þeirra til Útlendingastofnunar hvað aðra málavexti varðar.
Aðalkrafa kærenda er sú að ógilda beri ákvarðanir Útlendingastofnunar og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til nýrrar meðferðar vegna þess að ákvarðanirnar og málsmeðferð stofnunarinnar séu haldnar verulegum annmörkum. Kærendur telji að þessir annmarkar lúti einkum að túlkun og fyllingu réttarheimilda, greiningu málsatvika og heimfærslu atvika til lagaskilyrða og þar af leiðandi sé niðurstaðan í málum kærenda efnislega röng. Að mati kærenda hafi í fyrsta lagi verið annmarkar á greiningu málsatvika þar sem Útlendingastofnun hafi ekki tekið afstöðu til þeirra opinberu gagna sem kærendur hafi vísað til um almennt ástand í Venesúela og ályktana sem kærendur hafi dregið af þeim gögnum. Þá hafi Útlendingastofnun dregið ómálefnalegar og ógagnsæjar ályktanir af opinberum gögnum um ástand í Venesúela og það sé óljóst hvort að frásögn kærenda sé talin ótrúverðug eða hvort að frásögn kærenda sé lögð til grundvallar. Þessi óskýrleiki valdi því að kærendur skilji ekki forsendur ákvarðana Útlendingastofnunar. Í öðru lagi hafi verið annmarkar á túlkun og fyllingu réttarheimilda og heimfærslu málsatvika til viðeigandi réttarreglna. Forsendur fyrir niðurstöðu Útlendingastofnunar um kröfur kærenda hafi verið óskýrar, ekki hafi verið lagt mat á öll lagaskilyrði sem tilgreind séu í viðeigandi lagaákvæðum um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og stofnunin þrengi mat á viðbótarvernd umfram það sem lagagrundvöllur heimili. Kærendur telji framangreinda annmarka á ákvörðunum og málsmeðferð Útlendingastofnunar brjóta gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga, réttmætisreglu, reglunni um skyldubundið mat stjórnvalda, sannleiksreglu og rétti til viðhlítandi rökstuðnings svo aðila máls megi vera ljósar þær forsendur sem ákvörðun byggi á og 22. gr. stjórnsýslulaga um rökstuðning.
Í greinargerð kærenda er vísað til greinargerða þeirra til Útlendingastofnunar hvað málsástæður varðar til viðbótar við það sem fram kemur í greinargerð kærenda til kærunefndar. Í greinargerðum kærenda til Útlendingastofnunar kemur fram að þau geri þá aðalkröfu að þeim og barni þeirra verði veitt staða flóttamanna hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem þau uppfylli öll skilyrði ákvæðisins. Kærendur tilheyri hópi einstaklinga sem séu skotmörk endurtekinna fjárkúgana. Þau hafi ríkar ástæður til að óttast ofsóknir glæpamanna sem stjórnvöld veiti ekki vernd gegn og ofsóknir yfirvalda sem hafi ítrekað rænt þau og kúgað af þeim fé. Þá hafi M verið þvingaður til að skrifa undir falska yfirlýsingu um að hafa stundað peningaþvætti í þeim tilgangi að fjármagna hryðjuverk. Kærendur geti ekki fært sér í nyt vernd heimaríkis þar sem ríkisstarfsmenn hafi staðið að ofsóknum. Kærendur geri þá varakröfu að þeim og barni þeirra verði veitt viðbótarverndar á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem aðstæður í Venesúela séu með þeim hætti að raunhæf ástæða sé til að ætla að kærendur eigi á hættu ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í heimaríki sínu. Yfirvöld í Venesúela beri að mestu leyti ábyrgð á þeirri stöðu og heimildir beri með sér að ástandið sé að mestu sambærilegt í öllu landinu. Kærendur geri þá þrautarvarakröfu að þeim og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi ítrekað orðið fyrir ofsóknum glæpamanna og spilltra lögreglumanna sem hafi undir höndunum falska yfirlýsingu M um að hann hafi framið glæpi, til að nýta til frekari fjárkúgunar. Almennt ástand í landinu sé þess eðlis að fjölskyldan hafi bersýnilega ríka þörf fyrir vernd. Þá sé M með [...], ólæknandi sjúkdóm sem geti m.a. leitt til þess að bein í [...] grói saman og valdi ómældri skerðingu á lífsgæðum. Viðeigandi meðferð, sem hann hafi ekki haft aðgang að í Venesúela síðustu ár, geti dregið úr einkennum og hægt á framvindu sjúkdómsins. Kærendur byggi á því að það sé hvorki raunhæft né sanngjarnt fyrir þau og barnið A að flytja sig um set í Venesúela með vísan til landaupplýsinga og frásagna kærenda. Kærendur vísa til sérstakra sjónarmiða um hagsmuni barna og til 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, 2., 3. og 6. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og þess að stjórnvöldum beri að hafa framangreind ákvæði að leiðarljósi og taka ákvörðun sem best tryggi hagsmuni barnsins. Með vísan til frásagna kærenda um sérstakar aðstæður fjölskyldunnar í heimaríki, almennt ástand í landinu, forsendna kærunefndar útlendingamála í úrskurðum nr. 231/2022 og 418/2022 og samanburðar á aðstæðum í heimaríki og aðstæðum hér á landi sé ekki með sanngirni hægt að komast að annarri niðurstöðu en að gera fjölskyldunni mögulegt að búa sér nýtt líf hér á landi.
Kærendur lögðu fram ýmis gögn við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun og kærunefnd. Kærendur lögðu m.a. fram skjáskot af samtölum við nafngreinda og ónafngreinda einstaklinga á samskiptaforritinu WhatsApp, skjáskot af samtali á Instagram við yfirmann CICPC lögreglunnar, hljóðskrá með samtali M og vinar hans, mynd af kæru til CICPC, myndir af bíl kærenda, myndir af ónýtum bíl kærenda, myndir af lager og matvöruverslun og læknisfræðileg gögn vegna sjúkdóms M.
Við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun lagði M fram skjal með viðbótarfrásögn. Í þeirri frásögn M kemur fram að hann hafi starfað í verkfræðideild á skrifstofu borgarstjóra eftir útskrift úr háskóla og hafi síðar fengið fast starf þar. Borgastjórinn hafi stutt ríkisstjórn forseta Venesúela og M og aðrir stafsmenn hafi verið skyldugir til að taka þátt í atburðum til stuðnings stjórnvöldum. Þegar M hafi ekki lengur viljað taka þátt í þessum atburðum þá hafi honum verið sagt upp og hann verið ásakaður um að vera svikari af yfirvöldum. Kærandi lagði einnig fram myndir sem hann kveður vera af borgarstjóra, yfirmanni M og af stjórnmálafundum og atburðum til stuðnings ríkisstjórninni.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Leggur kærunefnd því til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.
Réttarstaða barns kærenda
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd með foreldrum sínum og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Ankylosing Spondylitis (heimasíða National Institute of Arthritis and Musculoskeletal and skin Diseases, síðast skoðað 9. apríl 2024);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 3. apríl 2024);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 6. apríl 2024);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 3. apríl 2024);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum.Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 morð á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Samkvæmt skýrslu EUAA hafi þrír sjómenn verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og morðin hafi verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fá lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kærenda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera fæddur og uppalinn í Anzoátegui fylki í Venesúela og hafa búið í borginni […] í sama fylki þegar hann hafi flúið heimaríki í desember 2022. M kvaðst hvorki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málsstaðar í Venesúela. Aðspurður greindi M frá því að tilheyra minnihlutahóp í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana. Hann hafi reynt að skipta sér ekki af til þess að vernda fjölskyldu sína og hafi því ekki tekið þátt í mótmælum þó hann hafi viljað það. Allir hafi verið að kvarta yfir ástandi í þjóðfélaginu, spillingu og þess háttar og hann hafi viljað mótmæla því. M greindi frá því að hafa flúið frá Venesúela þar sem hann hafi orðið fyrir ýmsum mannréttindabrotum. Þegar M hafi verið 18 ára hafi aðilar ráðist á hann, beint að honum byssu og rænt símanum hans. Þetta hafi bara verið hluti af daglegu lífi sem þau hafi lært að lifa með. Þegar hann og K hafi verið ung hafi þau verið í rútu á leið heim til sín þegar menn hafi komið í rútuna, rænt símum, peningum og öðrum verðmætum. Einn mannanna hafi miðað byssu á M og þreifað hafi verið á kærendum til að leita að verðmætum. Einn mannanna hafi snert kynfæri K, hún hafi öskrað en viðkomandi aðili hafi sagt að hann ætlaði ekki að nauðga henni, hann væri ekki kominn til þess. Mennirnir hafi farið út úr rútunni í öðru þorpi og málið hafi ekki verið rannsakað. Síðar þegar M hafi enn verið ungur að árum hafi hann verið úti að borða með vinum sínum þegar hann hafi séð fjóra einstaklinga koma út úr bíl með byssur. M hafi talið þetta vera lögreglumenn. Þessir einstaklingar hafi komið að borði M og vina hans og miðað byssu að vini M. Þeir hafi krafist þess að M og vinir hans afhentu síma sína og allt sem þeir væru með. Þá hafi þeir tekið lykla af bíl vinar M og stolið honum. M og vinir hans hafi kært þetta til lögreglunnar en lögreglan hafi ekkert aðhafst vegna málsins. Eftir útskrift úr háskóla hafi M unnið hjá borgarstjóranum, þegar hann hafi hætt þar hafi efnahagsástandið verið orðið mjög slæmt og M hafi ákveðið að stofna sjálfstæðan atvinnurekstur. M hafi byrjað að selja raftæki fyrir heimili og hafi geymt lager af raftækjum í bílskúr vinar síns í sama hverfi. Reksturinn hafi gengið vel og M hafi keypt sér nýrri bíl. Eitt sinn hafi nafngreindur vinur M, X, komið og keypt heimilistæki hjá honum. Með X hafi verið annar maður sem hafi haft tengingu við lögregluna. Síðar hafi M fengið símhringingu frá öðrum vini sínum um að X hafi verið að bera það út að M hafi átt mikið af peningum og vörum á lager. Nokkrum dögum síðar hafi tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn komið heim til M. Þeir hafi kynnt sig sem PTJ, sem hafi verið nafn á rannsóknarlögreglu áður en það hafi orðið CICPC, og hafi greint frá því að vera rannsaka hvort M ætti vopn eða byssur. Þá hafi vinur hans sem geymdi lager af vörum fyrir hann komið og lögreglan hafi talað við hann. Lögreglumenn hafi farið inn í hús vinar hans tekið síma þeirra beggja og séð vörurnar í bílskúrnum. Lögreglumenn hafi sagt að vörurnar væru stolnar og að reikningar sem M hafi sýnt þeim fyrir vörurnar væru falsaðir. Þeir hafi sagst ætla að taka vörurnar og fangelsa M og vin hans en að þeir væru tilbúnir til að semja við þá. Lögreglumennirnir hafi krafið þá um verndargjald, tekið bíl M, tvö loftkælitæki og látið M millifæra að andvirði 500 til 600 dollara inn á reikning þeirra. Lögreglumennirnir hafi svo beðið M að láta sig vita ef eitthvað myndi gerast og ef þeir þyrftu að hjálpa honum. Nokkrum dögum síðar hafi hann séð fólk vera að auglýsa loftkælitækin sem lögreglumenn hafi tekið til sölu á Facebook. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að þetta atvik hafi átt sér stað á árunum 2016 eða 2017. Tíminn hafi liðið, viðskiptin hafi gengið vel og M hafi keypt sér nýjan bíl árið 2019. M og K hafi farið í ferðalag til annarrar borgar og þegar þau hafi komið heim hafi þau rekist á einn lögreglumannanna sem hafi krafist verndargjaldsins frá M. Lögreglumaðurinn hafi séð þau og nýja bílinn og tveimur dögum síðar, 14. febrúar 2018, hafi bílnum þeirra verið rænt fyrir utan heimili þeirra í öruggu afgirtu hverfi. M hafi kært þjófnað á bílnum til CICPC lögreglunnar. M hafi verið viss um að lögreglumennirnir sem hafi áður krafist verndargjalds af honum hafi stolið bílnum. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að hafa ekki leitað aðstoðar yfirvalda þar sem CICPC lögreglan tilheyrði yfirvöldum. Síðar hafi M farið að starfa við að selja og kaupa bíla og hafi haldið sölumennsku áfram. M hafi verið í viðskiptum með vini sínum og þeir hafi ákveðið að reka heildsölu. Dag einn hafi fjórir óeinkennisklæddir lögreglumenn, PTJ, komið heim til kærenda. Lögreglumennirnir hafi stolið símum af kærendum, farið með M á lager þar sem hann hafi geymt allar vörurnar og tekið allt saman. K hafi í kjölfarið hringt í föður M og greint honum frá því að mennirnir hafi farið með M. Faðir M hafi farið til lögreglunnar og tilkynnt að M hafi verið rænt. Lögreglan í borginni og faðir M hafi komið á staðinn og hitt M og hina lögreglumennina sem hafi verið að stela vörunum. Síðarnefndu lögreglumennirnir hafi sagt hinum lögreglumönnum að fara, sem þeir hafi gert. Lögreglumennirnir sem hafi rænt M hafi ekki verið að vinna fyrir PTJ í heimaborg kæranda heldur í höfuðborg fylkisins Anzoátegui. Þeir hafi farið með M í höfuðborgina á skrifstofu CICPC, krafist þess að M greiddi þeim 8000 þúsund dollara og látið hann skrá bíl sinn á nafn eins lögreglumannsins. M hafi einungis getað greitt 2000 dollara og lögreglumennirnir hafi samþykkt þá greiðslu í skiptum fyrir að láta M lausan. Lögreglumennirnir hafi í kjölfarið útbúið skýrslu þar sem fram hafi komið að M hafi stundað peningaþvætti og fjármagnað hryðjuverk. M hafi verið látinn skrifa undir skýrsluna og tekin hafi verið af honum fingraför og mynd eins og af glæpamanni. Lögreglumennirnir hafi sagt honum að ef hann borgaði ekki restina af fjárhæðinni myndu þeir nota þetta gegn honum og að hann færi í fangelsi. M kvað þetta ferli kallast „Interno“, það hafi ekki verið skráð í nein kerfi og hafi bara verið á milli hans og lögreglumannanna. Það sé bara notað til að hræða fólk og kúga af því fé. Mennirnir hafi svelt M, hann hafi ekki getað hringt í lögregluna og hafi ekki átt rétt á neinu. Vinir M hafi svo komið með peningana, lögreglumennirnir hafi verið mjög þakklátir og sagst ætla hjálpa M ef hann vantaði aðstoð. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að það hafi verið CICPC, PTJ og herforinginn hjá þeim, yfirlögreglumaðurinn, sem hafi verið að hóta honum og að framangreind atvik hafi átt sér stað árið 2019. Kærandi greindi jafnframt frá því að skýrslan hafi einungis verið notuð á milli lögreglumannanna og M en hafi ekki verið skráð í lögreglukerfin í Venesúela. Í framhaldinu hafi M selt afganginn af vörum sínum, fengið 8000 dollara fyrir það sem hafi skipst á milli M og vinar hans. M hafi síðan stofnað litla búð sem seldi matvöru.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera fædd og uppalin í Carabobo fylki í Venesúela og hafa búið í […] í Ansoátegui fylki í Venesúela þar til hún hafi flúið heimaríki sitt í desember 2022. K kvaðst hvorki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki né virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Kærendum hafi hins vegar verið gert að skrá sig í stjórnmálaflokkinn PSUV til að fá að kaupa bensín og einhverja kosti sem þeir hafi stundum verið að bjóða almenningi. K hafi ekki verið meðlimur í stjórnarandstöðuflokki eða tekið þátt í mótmælum. K kvaðst hafa flúið frá heimaríki sínu af mörgum ástæðum. K hafi búið hjá foreldrum sínum og hálfbróður áður en hún hafi gift sig, hún sé kennari og hafi verið að vinna í skóla. Eitt kvöld árið 2013 hafi verið brotist inn í hús fjölskyldu hennar og faðir hennar, kona hans og hálfbróðir K hafi verið bundin og bílnum þeirra og ýmsu úr húsinu hafi verið stolið. Daginn eftir hafi faðir hennar farið til lögreglu og kært þjófnaðinn. Faðir hennar hafi þá fengið símtal frá þeim sem rænt hafði bílnum sem hafi krafist greiðslu fyrir að skila bílnum aftur. Faðir hennar hafi greitt umrædda fjárhæð og fengið bílinn til baka. Fjölskyldan hafi búið hjá tengdamóður föður K á meðan faðir hennar hafi sett upp rafmagnsgirðingu í kringum hús þeirra og gert frekari öryggisráðstafanir áður en fjölskyldan hafi flutt aftur heim. Síðar hafi K og M gift sig og flutt saman í íbúð á efri hæð í húsi foreldra M. M hafi starfað hjá borgarstjóranum en hafi svo hætt þar og kærendur hafi stofnað sjálfstæðan atvinnurekstur við að selja raftæki. Eftir að vinur þeirra úr menntaskóla hafi keypt af þeim raftæki, hafi hann farið að bera út sögur um að M ætti pening. Nokkrum dögum síðar hafi óeinkennisklæddir lögreglumenn frá CICPC komið heim til kærenda og tilkynnt þeim að búið væri að kæra M en það hafi ekki verið satt. Vörurnar sem M hafi verið að selja hafi verið geymdar í hverfinu hjá vini M og lögreglumenn hafi farið með M og vini hans þangað, tekið loftkælitæki og M hafi greitt verndargjald til lögreglumannanna. Þá hafi þeir látið M í friði í ákveðinn tíma. Síðar í viðtalinu greindi K frá það þetta atvik hafi átt sér stað árið 2017. Kærendur hafi haldið áfram að vinna og keypt sér nýjan bíl. Þau hafi einn daginn verið að leggja bílnum sínum í miðbæ heimafylkisins þegar þau hafi rekist á einn lögreglumannanna sem hafi áður komið að heimili þeirra. Tíu dögum síðar hafi bílnum þeirra verið stolið. Þeim hafi þótt það skrítið því girðingin hafi verið rafmagnsvædd. Kærendur hafi ekki vitað hver hafi stolið bílnum en þau hafi grunað þessa lögreglumenn frá CICPC. Síðar þegar barn þeirra hafi verið þriggja mánaða hafi þessir menn frá CICPC komið aftur heim til þeirra, stolið símum þeirra og farið í burtu með M. K hafi ekki vitað hvað hafi gerst eða hvert þeir hafi farið með M. M hafi verið að stofna matvöruheildsölu með vini sínum auk þess að selja raftækin. Lögreglumennirnir hafi farið með M á lagerinn og pantað sendibíl til að taka allar vörurnar. Þeir hafi svo tekið M og farið með hann til Puerto La Cruz. M hafi verið með þeim allan daginn og fjölskyldan hafi ekki vitað hvar hann væri. Þá hafi M fengið að hringja í hana til að biðja hana að koma með 3000 dollara til að lögreglumennirnir myndu sleppa M úr haldi. K greindi frá því síðar í viðtalinu að þessi atvik hafi átt sér stað árið 2019. Í framhaldi af þessu hafi kærendur ekki átt neitt nema einn bíl, M hafi ákveðið að selja bílinn og stofna litla matvöruverslun fyrir peninginn. Einu ári síðar hafi fulltrúar yfirvalda komið og fylgst með verði í búðinni. Fulltrúar yfirvalda hafi krafist greiðslu sektar annars myndu þeir loka búðinni. Kærendur hafi ákveðið að loka versluninni og hafi þá verið atvinnulaus í nokkra mánuði. Þá hafi kærendur fengið tækifæri til að selja mat í matsal fyrir starfsmenn olíufyrirtækis í eitt ár. Kærendur hafi safnað fyrir laserskurðarvél og hafi starfað við það áður en þau flúðu til Íslands. K hafi alltaf verið hrædd þegar hún hafi séð áðurnefnda lögreglumenn og forðað sér í burtu. K kvaðst óttast um líf sitt, að vera beitt ofbeldi, að vera sett í fangelsi ef hún myndi snúa til baka til heimaríkis og þær afleiðingar sem kæra á fjárkúgun og ránum myndi hafa í för með sér.
Við málsmeðferð hjá kærunefnd lagði M fram yfirlýsingu um ástæður flótta kærenda frá heimaríki. Þar greinir M frá heilsufari sínu og því að hann hafi verið greindur með sjaldgæfan sjúkdóm, […] (e. […]). M kvaðst hafa tekið lyf við sjúkdómnum í Venesúela en þau hafi hætt að fást þar árið 2018 og þá hafi hann tekið önnur bólgueyðandi lyf sem hafi ekki virkað eins vel. Þá greindi M frá því að CICPC lögreglan í Venesúela væri á eftir honum. Árið 2017 hafi tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn úr CICPC komið til hans og kúgað af honum fé og raftæki sem hann hafi verið að selja. Lögreglumenn hafi farið með peninga og raftæki þegar hann hafi greitt þeim. Nokkur tími leið og þá hafi annar lögreglumaðurinn séð kærendur á nýjum bíl. Tveimur dögum síðar hafi þeir stolið bílnum og hann hafi tilkynnt það til lögreglu. Engin rannsókn hafi farið fram og M hafi þá sent yfirmanni CICPC skilaboð á Instagram vegna málsins en yfirmaður hafi ekki tekið kæru hans til greina. Tveimur árum síðar hafi aðrir CICPC lögreglumenn ráðist inn á heimili kærenda, farið með M í vöruhús þar sem hann hafi geymt lager af vörum að andvirði 20.000 dollara. Lögreglan hafi tekið nánast allar vörurnar og farið með M á lögreglustöð þar sem þeir hafi látið hann skrifa undir falska játningu um að M hafi stundað peningaþvætti til að fjármagna hryðjuverk. Þeir hafi tekið af honum mynd og fingraför og hótað honum með ákæru ef hann myndi ekki greiða þeim 8000 dollara. Vinir M hafi komið með 3000 dollara og lögreglan hafi leyst hann úr haldi en hafi haldið eftir þessari fölsku játningu til að nýta til fjárkúgunar ef M myndi tilkynna atvikið til annarra lögregluembætta. Kærendur hafi ekki séð aðra leið en að flýja frá heimaríki sínu. M vísar til frétta og annarra heimilda um CICPC máli sínu til stuðnings. Kærendur óttist um framtíð barns síns og vísa til þess hversu slæmt almennt ástand sé í Venesúela. Þá vísa þau til slæms ástands í heilbrigðiskerfinu, hárrar glæpatíðni og mannúðarkrísu í landinu.
Kærunefnd telur ýmislegt í frásögn kærenda draga úr trúverðugleika þeirra. Einkum hvað varðar þá staðreynd að umræddir aðilar sem staðið hafi að baki fyrrnefndri fjárkúgun og ránum hafi tilheyrt lögreglunni. M greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að lögreglumennirnir sem hafi kúgað af honum fé og raftæki árið 2017 og stolið nýjum bíl hans árið 2018 hafi greint frá því að þeir væru meðlimir lögreglunnar PJT, en að nafni lögreglunnar hafi síðar verið breytt í CICPC. Í yfirlýsingu sem M lagði fram hjá kærunefnd þá talar hann um CICPC lögregluna. Samkvæmt heimildum um heimaríki kærenda var nafni lögreglunnar breytt úr PJT í CICPC í lok ársins 2001. Dregur það úr trúverðugleika frásagnar M en hann greindi fyrst frá því að lögreglan hafi kynnt sig sem PJT þegar umræddir atburðir hafi átt að eiga sér stað árið 2017, 16 árum eftir að nafni lögreglu var breytt. Þá greinir M annars vegar frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi millifært umbeðna peningafjárhæð á lögreglumennina en greinir hins vegar frá því í yfirlýsingu til kærunefndar að lögreglumennirnir hafi farið með fjármuni í burtu eftir að hann hafi greitt þeim. M greindi einnig frá því að bíl þeirra hafi verið rænt tveimur dögum eftir að lögreglumennirnir hafi séð kærendur á bílnum en K greindi frá því að bílnum hefði verið rænt tíu dögum eftir umrætt atvik. M greindi þá frá því að hafa kært framangreindan bílaþjófnað til CICPC lögreglunnar og lagði fram afrit af lögregluskýrslu og samskipti við yfirmanns CICPC lögreglunnar á Instagram máli sínu til stuðnings. Að mati kærunefndar bendir framangreint ekki til þess að M hafi óttast CICPC lögregluna í kjölfar framangreindra atvika þrátt fyrir að meðlimir lögreglunnar eigi að hafa átt í hlut. Við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun lagði M fram myndir af hinum stolna bíl og myndir af ónýtum bíl í skóglendi. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er það lagt til grundvallar að myndirnar séu af bíl kærenda, annars vegar fyrir ránið og hins vegar af bílnum ónýtum eftir ránið. Í yfirlýsingu sem M lagði fram hjá kærunefnd greindi hann hins vegar frá því að myndirnar af ónýta bílnum hafi ekki verið af þeirra bíl. Myndirnar sem slíkar hafa takmarkað sönnunargildi en ljóst er að myndirnar eru ekki af sama bíl. Um er að ræða nokkrar myndir sem sýna mismunandi bíla og er ónýti bíllinn ekki í sama lit og sá bíll sem kærendur greina frá að hafi verið þeirra.
Þá greindi M frá því að árið 2019 hafi spilltir PTJ eða CICPC lögreglumenn stolið af honum vörum, kúgað af honum fé og látið hann skrifa undir falska játningu um að hann hafi stundað peningaþvætti og fjármagnað hryðjuverkastarfsemi. Þrátt fyrir að hann hafi greitt lögreglumönnunum hafi þeir haldið eftir fölsku játningunni til að notað gegn honum til frekari fjárkúgunar. M greindi einnig frá því að þegar hann hafi greitt lögreglumönnunum þá peninga sem þeir hafi krafist á árunum 2017 og 2019 hafi þeir verið þakklátir og sagt M að láta þá vita ef hann þarfnaðist aðstoðar eða verndar. Ber framangreint ekki með sér að þessir einstaklingar hafi talið hann skulda sér peninga og að þeir hafi haldið eftir falskri játningu til að tryggja greiðslu heldur þvert á móti að þeir hafi talið hann hafa greitt fyrir vernd sem þeir hafi boðið honum. Að auki greindi M frá því að lögreglumennirnir sem hafi staðið að baki framangreindum atvikum árið 2019 hafi verið frá höfuðborg Anzoátegui fylkis og að þeir hafi farið með M á CICPC lögreglustöðina í höfuðborginni til að láta hann skrifa undir falska játningu. Samkvæmt heimildum er Barcelona höfuðborg Anzoátegui fylkisins. K greinir hins vegar frá því að lögreglumenn hafi farið með M til borgarinnar Puerto La Cruz. Þá greindi M frá því að árið 2019 hafi lögreglumennirnir farið með hann á lagerinn þar sem hann hafi geymt vörur sínar að andvirði um 20.000 dollara og greindu bæði M og K frá því að lögreglan hafi rænt öllum vörunum. Síðar í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun greindi M hins vegar frá því að hann hafi selt þær vörur sem hafi orðið eftir og að hann og frændi hans sem átti með honum lagerinn hafi fengið um 8000 dollara alls fyrir vörurnar. Þá er einnig um að ræða misræmi hvað aðra þætti í frásögn kærenda varðar.
Þrátt fyrir að ekki sé hægt að útiloka að kærendur hafi árin 2017 og 2019 orðið fyrir fjárkúgun af hendi spilltra lögreglumanna sem hafi krafist verndargjalds af þeim er ekkert í gögnum málsins sem styður þá fullyrðingu eða að um hafi verið að ræða sömu aðila. Þá dregur framangreint misræmi í frásögn kærenda úr trúverðugleika þess að um lögreglumenn hafi verið að ræða auk þess sem framlögð lögregluskýrsla ber ekki með sér að kærendur hafi óttast það að leita til lögreglu. Þá er jafnframt rétt að benda á að stjórnvöld í Venesúela hafa brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna líkt og fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar. Atvikin hafi auk þess átt sér stað með tveggja ára millibili og hafi síðast átt sér stað árið 2019 eða um þremur áður en kærendur flúðu heimaríki sitt í desember 2022. Kærendur hafa að eigin sögn stundað sjálfstæðan atvinnurekstur frá árinu 2019 án frekara áreitis. Þá ber frásögn M einnig með sér að þeir einstaklingar sem eigi að hafa tekið niður falska játningu M til að nota gegn honum hafi ekki viljað að M tilkynnti málið til lögreglu sem gefur til kynna að þeir hafi ekki starfað í skjóli yfirvalda.
Með vísan til framangreinds trúverðugleikamats og framlagðra gagna málsins verður því ekki talið að kærendur hafi leitt líkur að því að lögreglumenn hafi staðið að baki fyrrgreindum atvikum. Þá er ekkert sem bendir til þess að kærendur eigi á hættu ofsóknir af hálfu lögreglunnar í heimaríki. Kærunefnd hefur litið til landaupplýsinga í heimaríki kærenda sem benda til þess að vopnaðir glæpahópar séu starfræktir í heimaríki þeirra sem stundi glæpi á við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa í landinu og bera heimildir ekki með sér að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna.
Kærendur bera einnig fyrir sig að þau hafi verið rænd nokkrum sinnum þegar þau hafi verið ung og ógift. Annars vegar hafi síma M verið rænt og byssu beint að honum þegar hann hafi verið 18 ára og hins vegar hafi hann og vinir hans verið rændir á veitingastað. Þá hafi kærendur verið rænd í rútu þegar þau hafi verið ungt par. Þegar einn mannanna hafi verið að leita á þeim eftir verðmætum hafi þeir snert kynfæri K, hún hafi öskrað og maðurinn hafi þá sagst ekki ætla að nauðga henni. Árið 2013 hafi verið brotist inn í hús fjölskyldu K þar sem hún hafi búið með föður sínum, konu hans og hálfbróður og menn hafi rænt þau og bíl föður hennar. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að kærendur hafi orðið fyrir fyrrnefndum ránum í heimaríki. Af frásögn kærenda er þó ekki hægt að ráða annað en að tilviljun hafi ráðið því að þau hafi verið fórnarlömb umræddra rána. Atvikin hafi átt sér stað fyrir fjölmörgum árum og það sé ekkert sem bendi til þess að kærendur hafi verið sérstök skotmörk þjófa eða glæpahópa af neinum þeim ástæðum sem talin eru upp í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vegna tilvísunar til þess að K hafi orðið fyrir kynferðisbroti í heimaríki bendir kærunefnd á að samkvæmt landaupplýsingum hefur dómsmálaráðherra Venesúela sett á fót stofnun sem tekur á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Því verður lagt til grundvallar að K geti leitað sér aðstoðar vegna kynferðislegs áreitis telji hún þörf á því.
Kærendur bera fyrir sig að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að þau hafi hvorki verið aðilar að stjórnmálaflokki né virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki sínu. K greindi frá því að þau hafi neyðst til að ganga í stjórnmálaflokkinn PSUV til að fá aðstoð og að kaupa bensín sem stjórnvöld hafi verið að bjóða. Í yfirlýsingu sem M lagði fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun greindi hann frá því að hafa eftir háskólanám starfað hjá borgarstjóranum sem starfsnemi og síðar í föstu starfi. Á meðan hann hafi sinnt því starfi hafi hann verið neyddur til að taka þátt í viðburðum til stuðnings forseta og stjórnvöldum í Venesúela. Þá kvaðst M tilheyra minnihluta í Venesúela hvað varðar stjórmálaskoðanir og að hann hafi viljað mótmæla ástandi í landinu en hafi verið að reyna skipta sér ekki af þessu til að passa fjölskyldu sína. Samkvæmt upplýsingum um heimaríki kærenda, m.a. skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023, hafa öryggissveitir stjórnvalda ítrekað ráðist gegn mótmælendum í landinu síðan árið 2014 en tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu frá þeim tíma. Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir.
Frásagnir kærenda bera ekki með sér að þau hafi komið að starfsemi stjórnmálaflokka eða hafi verið áberandi fyrir hönd slíkra flokka í heimaríki. Þá bera frásagnir kærenda með sér þau hafi ekki tekið þátt í mótmælum. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærendur eigi ekki frekar á hættu að verða fyrir áreiti en aðrir einstaklingar í heimaríki þeirra sem séu mótfallnir stjórnvöldum. Að mati kærunefndar benda gögn málsins og framburður kærenda samkvæmt framangreindu ekki til þess að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni A samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þess. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kærenda, kom fram að það væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barnsins A nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að A fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis.
Það barn sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem eru almennt heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Líkt og áður greinir var A í einkaleikskóla og stendur til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki sínu. Þá bera gögn málsins og frásagnir kærenda með sér að þau hafi fengið læknisþjónustu í Venesúela. Einstaklingsbundnar aðstæður barnsins A séu ekki með þeim hætti að það teljist í hættu við endursendingu til heimaríkis. Þá bendir ekkert til þess að barninu A verði mismunað eða það útilokað frá réttindum sem almennt bjóðast börnum í Venesúela. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins, að það sé því fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærendur og barn þeirra hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærendur og barnið A uppfylla því ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kærenda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærendur séu í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærendur verði þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kærenda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 110 mgr., og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997, 40. mgr.).
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í framangreindum úrskurðum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barns þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra leiði til þess að þau og barn þeirra eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera fæddur í […] og uppalinn í […] í Anzoátegui fylki í Venesúela. K greindi frá því að vera fædd í […] og uppalin í […] í Carabobo fylki í Venesúela. Kærendur hafi búið í […] í Anzoátegui fylki í Venesúela þar til þau hafi flúið heimaríki sitt í desember 2022. Samkvæmt landaheimildum er Anzoátegui fylki staðsett í norðausturhluta Venesúela og er Barcelona höfuðborg þess. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur hafa tengsl við eða í Venesúela almennt.
Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði þau send aftur til heimaríkis.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður kærenda og barns þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og barn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barns þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda og barns þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Hann sé íþróttamaður og æfi körfubolta. Árið 2012 hafi M verið greindur með […] (s. […]) sem sé svipað og gigtarsjúkdómur. M hafi tekið tvenns konar lyf vegna þessa en annað hafi hætt að fást í Venesúela fyrir fjórum árum. Hann hafi tekið lyfin […] og […] og sama virkni hafi verið á þessum lyfjum. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að bæði lyfin hafi hætt að fást í Vensúela árið 2018. Það hafi ekki verið hægt að fá lyfið þar sem það hafi verið dýrt og sjúkratryggingar í Venesúela gætu bara fengið þessi lyf fyrir fólk sem hafi verið með HIV því kostnaður hafi verið mjög hár. Þegar lyfin hafi hætt að fást hafi hann tekið lyf sem heiti [...] sem sé bólgueyðandi lyf, og lyfið […] á hverjum degi. Hann hafi þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í Venesúela til að fá lyf við þessum sjúkdómi. Þá hafi hann leitað til læknis í Venesúela en aldrei vegna neins alvarlegs. Faðir hans hafi borgað sjúkratryggingu fyrir hann þar til hann var 25 ára og eftir það hafi hann greitt fyrir læknisþjónustu sjálfur.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu. K hafi einungis leitað til heilbrigðiskerfisins í Venesúela þegar hún hafi fætt barn sitt og það hafi hún gert á einkareknu sjúkrahúsi. K hafi þurft að greiða fyrir þjónustuna. K greindi frá því að nota ekki lyf að staðaldri. Á tímabili hafi ekki verið til lyf í apótekum en hún hafi aldrei þurft að kaupa sérstök lyf. Kærendur greindu frá því að barn þeirra sé við góða heilsu. Þau hafi greitt fyrir bólusetningar fyrir barnið, keypt lyf fyrir það og farið með barnið á einkarekin sjúkrahús og læknastofur þar sem engin hafi viljað fara með börn sín á ríkisrekin sjúkrahús. Það hafi verið hættulegt þar sem allt hafi verið óhreint, langur biðlisti eftir aðgerðum og engir barnalæknar til að skoða börn.
Í yfirlýsingu sem M lagði fram við málsmeðferð sína hjá kærunefnd greindi hann frá því að hann hafi verið greindur með sjaldgæfan og ólæknandi sjúkdóm, […] (e. […]). Læknir í Venesúela hafi ávísað honum líftæknilyfjum sem hétu […] og […] sem hann hafi notað í fjölda ára og þau hafi verið greidd af sjúkratryggingum í Venesúela. Á einhverjum tímapunkti hafi lyfið […] ekki verið til og þá hafi hann fengið lyfið […]. Um mitt ár 2018 hafi bæði þess lyf hætt að fást í Venesúela og hann hafi tekið önnur lyf sem ekki hafi verið árangursrík. Framangreind lyf séu enn ófáanleg í Venesúela.
M lagði fram ýmis heilbrigðisgögn frá Venesúela og Íslandi við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun og hjá kærunefnd. M lagði fram fjögur ódagsett skjöl frá heimaríki. M lagði fram frumrit af sjúkratryggingu þar sem fram kemur að hann hafi fengið lyf við [...] læknisvottorð um að hann hafi undirgengist meðferð við sjúkdómnum [...] lyfseðla og niðurstöður um greiningu á veikindum. Þá lagði M fram afrit af sjúkraskrá sinni frá Landspítalanum. Í nótu dagsettri 29. nóvember 2023 kemur fram að M hafi óskað eftir því að fá líftæknilyf sem hafi reynst honum vel í heimaríki. Skoðun læknis hafi leitt í ljós að M hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir líftæknilyfjum að svo stöddu. Í nótu, dags. 22. febrúar 2024, kemur fram að meðferð með lyfinu […] hafi verið samþykkt til 22. september 2024 og í nótu, dags. 15. mars 2024, kemur fram að meðferð með lyfinu […] hafi verið samþykkt til 15. september 2024.
Ekki verður annað ráðið en að kærendur og B hafi geti leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Af frásögn M og heimildum verður ekki ráðið að sjúkdómurinn […] sem M hafi verið greindur með árið 2012 sé skyndilegur eða lífshættulegur sjúkdómur. Þá bera heimildir með sér að meðferð við sjúkdómum sé einna helst sjúkraþjálfun, hreyfing og lyfjagjöf. Þá verður til þess litið að M hafi staðið til boða mismunandi lyf við sjúkdómnum í heimaríki og ber frásögn M ekki með sér að heilsu hans hafi hrakað af ráði né að hann hafi orðið óvinnufær í kjölfar þess að hann hafi þurft að skipta um lyf í heimaríki. Kærendum og barni þeirra standi því læknisaðstoð til boða í heimaríki sínu, jafnvel þó að greiða þurfi fyrir hana. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur og barn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir kærendur og barn þeirra verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærendur og barn þeirra hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera menntaður verkfræðingur en hafa verið með sjálfstæðan atvinnurekstur við sölu raftækja og húsbúnaðar, rekstur lítillar matvöruverslunar, veitingaþjónustu fyrir mötuneyti fyrirtækis og merkingar með laserskurðarvél, sem hann hafi haft góðar tekur af. Í starfi við veitingaþjónustu hafi hann til dæmis fengið um 1200-1500 dollara í mánaðarlaun. Efnahagsástand kærenda hafi verið yfir meðallagi. M greindi frá því að fjölskyldan hafi búið í íbúð í eigu frænku K, þau hafi ekki þurft að greiða leigu og hafi getað keypt mat og aðrar nauðsynjar. M hafi einnig náð að safna og kaupa sér bíl. M kvað A hafi verið í einkareknum leikskóla í einn til tvo mánuði áður en kærendur hafi komið til Íslands. A hafi leikið sér við frænkur og frændur sína og hafi haft það gott. M greindi frá því að eiga foreldra og systur í Venesúela. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera menntaður kennari og að hún vildi gjarnan starfa við það en ekki væri hægt að framfleyta sér í Venesúela sem kennari. Hún hafi stundað sjálfstæðan atvinnurekstur með M í fjölda ára og hafi starfað við að hanna glös og aðra minningarmuni, handverk og slíkt með laserskurðarvél áður en þau hafi flúið frá heimaríki. Kærendur hafi fengið um 500 dollara í mánaðarlaun fyrir það en sumar vikur hafi þau fengið meira. Fjölskyldan hafi búið í íbúð í eigu hennar og þau hafi getað keypt mat og aðra nauðsynjavöru. K kvað A hafa verið í einkaleiksskóla í Venesúela þar sem hann hafi getað leikið við önnur börn. Fjölskyldan hafi hitt foreldra kærenda og vinir þeirra hafi komið í heimsókn. K greindi frá því að eiga foreldra og systkini í Venesúela.
Frásögn kærenda ber með sér að þau hafi haft góðar tekjur af atvinnu og sjálfstæðum atvinnurekstri í heimaríki og að A hafi verið í einkareknum leikskóla. Þá hafi kærendur getað keypt mat og aðrar nauðsynjavörur, greitt fyrir læknisþjónustu og sett barn sitt í einkarekinn leikskóla. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærendur séu heilsuhraust og vinnufær og eigi bakland í heimaríki. Er því ljóst að félagslegar aðstæður kærenda og barns þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við mat á þörf fyrir dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hefur kærunefnd litið sérstaklega til aðstæðna barna í Venesúela. Eins og áður greinir er menntun gjaldfrjáls til 18 ára aldurs í Venesúela, skólaskylda er á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita því dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða barn þeirra teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barnsins A í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður kærenda og barnsins A í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 14. desember 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Athugasemdir kærenda við ákvarðanir og málsmeðferð Útlendingastofnunar
Líkt og fram hefur komið eru í greinargerð kæranda færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við meðferð mála kærenda hjá Útlendingastofnun. Er byggt á því að ákvarðanir Útlendingastofnunar brjóti gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga, réttmætisreglu, reglunni um skyldubundið mat stjórnvalda, sannleiksreglu og rétti til viðhlítandi rökstuðnings svo aðila máls megi vera ljósar þær forsendur sem ákvörðun byggi á og 22. gr. stjórnsýslulaga um rökstuðning. Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við hana.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt gögnum málsins sóttu kærendur um alþjóðlega vernd hér á landi 14. desember 2022 fyrir sig og barn sitt. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barns þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kærendum og barni þeirra úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og barni þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðust ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærendur kváðu brottvísun og endurkomubann ósanngjarnar ráðstafanir gagnvart sér og barn sínu vegna þess að líf þeirra sé í hættu og þau séu ofsótt af yfirvöldum í Venesúela.
Af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og barns þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kærenda eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda og barns þeirra er þeim brottvísað og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi þau landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barns þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi kærendur landið sjálfviljug innan framangreinds frests.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barns þeirra staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barns þeirra eru staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and their child are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir